Morgunblaðið - 08.09.2003, Qupperneq 14
ERLENT
14 MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
LEIÐTOGAR Hamas-samtakanna
eru „markaðir til aftöku“ og munu
engra griða njóta, sagði Ariel Shar-
on, forsætisráðherra Ísraels, í gær,
eftir að Ísraelum mistókst að fella á
einu bretti forystusveit Hamas með
250 kílóa sprengju er varpað var úr
flugvél á íbúðahús í Gazaborg á
laugardaginn, fáeinum klukku-
stundum eftir að Mahmoud Abbas,
fyrrverandi forsætisráðherra Pal-
estínumanna, hafði sagt af sér.
Hamasliðar hótuðu hefndum sem
aldrei fyrr, og sögðu Ísraela hafa
„opnað hlið helvítis“ með árásinni,
en meðal þeirra sem voru í húsinu
var stofnandi samtakanna og and-
legur leiðtogi, Sheik Ahmed Yassin,
sem slapp með minniháttar meiðsl.
Ísraelar hertu til muna öryggis-
gæslu og lokuðu af Gazasvæðið og
Vesturbakkann.
Meðal Palestínumanna hófst í
gær leit að eftirmanni Abbas, sem
sagði af sér í fyrradag í kjölfar mik-
illar valdabaráttu við Yasser Ara-
fat, æðsta leiðtoga Palestínumanna.
Arafat hafði í gær enn ekki sam-
þykkt afsögn Abbas skriflega, svo
sem honum ber samkvæmt lögum,
en tjáði palestínskum þingmönnum
að hann liti á stjórn Abbas sem
bráðabirgðastjórn, og gaf þannig í
skyn að hann hefði samþykkt af-
sögnina.
Í gær sagði þó aðstoðarmaður
Arafats, Nabil Abu Rdeneh, að
Arafat vonaðist enn til að geta talið
Abbas á að sitja áfram. En ef Abb-
as hvikaði ekki frá ákvörðun sinni
yrði að skipa eftirmann hans og
væri ákvörðunar um það að vænta
á næstu tveim sólarhringum.
Abbas fullyrti að ákvörðun sín
væri endanleg, tjáði aðstoðarmanni
sínum að sér fyndist sem allir hefðu
snúið við sér baki og kvaðst sár og
reiður. En heimildarmaður sem er
náinn vinur Abbas sagði að hann
kynni að sitja áfram í embættinu,
en því aðeins að hann kæmist að
ótvíræðu samkomulagi við Arafat
um hvert valdsvið sitt væri og um
skipan ríkisstjórnarinnar. Sagði
heimildarmaðurinn, sem ekki vildi
láta nafns síns getið, að þetta yrði
erfitt.
Sjálfur var Abbas myrkur í máli
er hann var í gær spurður að því
hvort hann myndi fara fyrir nýrri
ríkisstjórn. „Það er of snemmt að
tala um það. Afsögn mín er end-
anleg,“ sagði hann við fréttamenn
er hann yfirgaf skrifstofu sína.
Með afsögn Abbas hafa Ísraelar
og Bandaríkjamenn ekki lengur
neinn Palestínumann til að tala við
um frið, að minnsta kosti um stund-
arsakir, og hefur afsögnin því orðið
reiðarslag fyrir friðarumleitanir
fyrir botni Miðjarðarhafs og teflt í
tvísýnu alþjóðlegu friðaráætluninni
er nefnd hefur verið Vegvísir. Ísr-
aelar og Bandaríkjamenn neita að
ræða við Arafat, sem þeir segja að
kyndi undir hryðjuverkastarfsemi.
Á næstu dögum mun ísraelska
þingið ræða hvort látið verði til
skarar skríða gegn Arafat og hann
rekinn á brott frá Vesturbakkanum,
þar sem hann hefur verið í herkví
mánuðum saman í Ramallah. Utan-
ríkisráðherra Ísraels, Silvan Sha-
lom, er fylgjandi því að Arafat verði
hrakinn á brott, því að svo lengi
sem Arafat sé á svæðinu nái enginn
nýr leiðtogi að hasla sér völl meðal
Palestínumanna. Arafat leyfi það
ekki.
Bandaríkjamenn hafa hingað til
komið í veg fyrir að Arafat verði
hrakinn á brott, og öryggisráðgjaf-
ar Sharons hafa varað við því að
Arafat gæti unnið Ísraelum meira
tjón væri hann rekinn í útlegð en
hann geti gert sitjandi í herkví í
Ramallah.
Leiðtogar Hamas
„markaðir til aftöku“
Óljóst hvort
Abbas myndi
nýja stjórn
Jerúsalem. AP.
FORYSTUSVEIT Hamas-samtaka
herskárra múslíma var öll saman
komin í einu herbergi, segja Ísraelar,
en 250 kg sprengja sem þeir vörpuðu
á húsið dugði ekki til að granda
henni. Ísraelar notuðu tiltölulega litla
sprengju að þessu sinni til þess að
forðast að saklausir borgarar féllu,
sögðu ísraelskir öryggismála-
fulltrúar. Þeir misreiknuðu sig, og
því glötuðu þeir tækifæri til að má af
yfirborði jarðar alla forystusveit
samtaka sem bera ábyrgð á dauða
hátt í 400 Ísraela í sjálfsmorðs-
sprengjutilræðum á undanförnum
þrem árum.
Ísraelar hófu aðgerðina snemma á
laugardagsmorgun, þegar hernum
barst njósn af því, að stofnandi Ham-
as, Sheik Ahmed Yassin, einn helsti
leiðtogi samtakanna, Ismail Hanieh,
sprengjusérfræðingarnir Moham-
med Deif og Adnan al-Ghoul og fleiri,
yrðu allir saman komnir í íbúð í Gaza-
borg. Eftir að ísraelskir ráðamenn
höfðu rætt fram og aftur hvenær
árás skyldi gerð og hvaða vopni beitt
lagði Ariel Sharon forsætisráðherra
blessun sína yfir fyrirætlanirnar.
Tímasetningn gat ekki verið betri,
Mahmoud Abbas, forsætisráðherra
Palestínumanna, var nýbúinn að
segja af sér og því þurftu Ísraelar
ekki lengur að halda að sér höndum
með árásir eins og þessa því að hann
var eini maðurinn sem þeir vildu tala
við í forystusveit Palestínumanna.
Þetta sagði ísraelskur embætt-
ismaður sem ekki vildi láta nafns síns
getið.
Síðdegis á laugardaginn sendi ísr-
aelsk herþota 250 kg sprengju inn í
íbúð á þriðju hæð fjölbýlishússins
sem Hamasleiðtogarnir voru í. Allir
sem þar voru sluppu án mikilla
meiðsla. Yassin, sem er bundinn við
hjólastól, meiddist lítillega á annarri
hendinni.
Reuters
Hópur Palestínumanna safnaðist saman við fjölbýlishúsið á Gaza þar sem
Ísraelar reyndu að fella forystusveit Hamas-samtakanna í fyrradag.
Misheppnað tilræði
Jerúsalem. AP.
AFSÖGN Mahmoud Abbas, for-
sætisráðherra Palestínumanna,
kom illa við ráðamenn í Bandaríkj-
unum, sem leita nú nýrra leiða til
að halda friðarumleitunum fyrir
botni Miðjarðarhafs gangandi.
Sagði talsmaður George W. Bush
forseta á laugardaginn, að Palest-
ínumenn yrðu að finna sér nýjan
leiðtoga sem hvorki væri flæktur í
spillingarmál né hryðjuverka-
starfsemi.
Yfirlýsingin, sem fréttafulltrúi
forsetans, Scott McClellan, las, sýn-
ir að Bandaríkjamenn hafa ekki
hvikað frá andstöðu sinni við Yass-
er Arafat, sem þeir segja kynda
undir hryðjuverkum. McClellan
sagði Bandaríkjamenn enn stað-
ráðna í að framfylgja Vegvísinum
svonefnda, alþjóðlegri friðaráætlun
sem lögð var fram fyrir rúmu ári og
kveður m.a. á um stofnun sjálfstæðs
ríkis Palestínumanna.
Bandaríkjastjórn illa brugðið
Washington. AP.
MEXÍKÓSKIR lögreglumenn stóðu
í gær vörð við ráðstefnumiðstöðina
í ferðamannabænum Cancún í
Mexíkó, en þar hefst ráðherra-
fundur Heimsviðskiptastofnunar-
innar (WTO) nú í vikunni. Auk ráð-
herra hvaðanæva að hefur mikill
fjöldi mótmælenda hópast til bæj-
arins, og er það sundurleitur hópur
verkalýðsleiðtoga, fylgismanna
Zapatista-uppreisnarmanna,
stjórnleysingja, umhverfisvernd-
arsinna og bænda, alls um 15 þús-
und manns. Ekkert samkomulag er
á meðal þeirra um baráttuaðgerðir
gegn stefnu WTO, en þó virðast
þeir sammála um það meginmark-
mið að hleypa upp fundi ráð-
herranna. Á fundinum verður fram
haldið tilraunum til að koma saman
nýjum sáttmála sem ætlað er að
styrkja hagkerfi heimsins með því
að draga enn frekar úr við-
skiptahömlum.
AP
Viðbúnaður
í Cancún