Morgunblaðið - 08.09.2003, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 08.09.2003, Qupperneq 16
LISTIR 16 MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ GEISLADISKUR Eddu Erlends- dóttur píanóleikara þar sem hún leik- ur tónlist eftir Carl Philipp Emanuel Bach hefur um nokkurra ára skeið verið ófáanlegur, en hefur nú verið endurútgefinn. Það er Edda sjálf sem gefur diskinn út en hún gaf einnig út aftur geisladiskinn þar sem hún leik- ur verk eftir Grieg fyrir nokkrum misserum. Hann var þá uppseldur. Þegar Edda er spurð hvers vegna hún hafi ráðist í endurútgáfu segir hún þetta spurningu um að diskurinn sé til á markaðinum – hann sé ekki bara gleymdur og grafinn. Bach-diskurinn kom fyrst út 1991. Hann hefur ekki verið til í nokkur ár, ekki síðan 1997 í Frakklandi. Upphaf- lega gaf Skífan hann út en nú hefur Edda öðlast útgáfuréttinn og er þetta fjórði diskurinn sem hún gefur út sjálf. Ástæðuna segir hún að það sé orðið óöruggt fyrir hljóðfæraleikara að vera með disk á markaði, að minnsta kosti í Frakklandi. Hvers vegna? „Það er vegna þess að útgáfufyr- irtækin eru keypt upp af stærri fyr- irtækjum og þá fýkur kannski einn þriðji af útgáfulistanum. Þannig var það með Grieg-diskinn minn. Hann var uppseldur og það átti ekki að end- urútgefa hann. Ég keypti réttinn á honum en í millitíðinni gaf ég sjálf út Tjækovskí og Haydn, þannig að það má segja að ég sé komin í æfingu með svona smáútgáfu. Þetta hefst kannski helst vegna þess að maðurinn minn vinnur alla grafíska hönnun á þessum fjórum diskum. Fyrir mig er persónu- legur fjársjóður að eiga þetta, vegna þess að ég legg mikla vinnu í að æfa verkin og hljóðrita. Ég vinn þetta eins og tónleikaefni, læri verkin utan að og vinn þau í nokkra mánuði. Mér finnst ég öruggari að gefa út sjálf. Þá veit ég hvar ég stend og get ákveðið allt sem snertir útgáfuna.“ Er útgáfa af þessu tagi ekki mikið mál? „Fyrir þann sem ekki stendur í út- gáfu daglega er þetta töluvert átak. Ég segi stundum að ég sé eins og trillukarl sem stendur einn á báti.“ Hver var ástæða þess að þú hljóð- ritaðir þessi verk á sínum tíma? „Á diskinum eru fimm sónötur, eitt lítið rondó og fantasía. Ég valdi þessi verk vegna þess að ég hafði spilað þau á tónleikum. Ég uppgötvaði þau af til- viljun, þegar ég fékk nótur á nokkrum heftum sem mér voru gefin. Það er stundum eins og tilviljanir ráði ferð- inni. Ég fór að lesa í gegnum þessi verk og uppgötvaði tónskáld sem ég þekkti alls ekki, utan að ég vissi að hann var næstelsti sonur Bachs. Ég fór að spila verk eftir hann á tónleikum, smátt og smátt, og það var eiginlega fyrir hvatningu kollega minna hér í Frakk- landi að ég fór að hljóðrita þau. Þeir voru sammála um að þetta væri tón- list sem yrði að komast á disk – en það var mjög lítið til af diskum með tón- listinni hans. Það var líka dálítil ögrun að taka þessa tónlist upp á stóran Steinwayflygil, því fyrir tólf til þrett- án árum var dálítill púritanismi í gangi um að maður ætti aðeins að spila Bach og hans syni annaðhvort á pianoforte eða sembal.“ Hefurðu leikið verkin sem eru á diskinum hér heima á tónleikum? „Já, ég held að ég hafi örugglega spilað þetta í óperunni 1989. En þetta er sá diskur sem er mér kærastur. Þetta var fyrsti diskurinn minn og ég var að leggja út í eitthvað sem var mér algerlega framandi og ég man að ég var bókstaflega í skýjunum allan tímann. Upptakan tók þrjá daga og var mjög gaman.“ Eru fleiri hljóðritanir á döfinni hjá þér? „Já, ég verð með tónleika hér í Frakklandi í vetur þar sem ég spila hluta af verkunum á diskinum og seinna í vetur mun ég taka upp disk með Bryndísi Höllu Gylfadóttur selló- leikara – sem við ætlum að gefa út sjálf. Þetta gengur aðeins ef maður hef- ur góða dreifingaraðila og dreifingar- aðilarnir segja mér að þetta gangi enn betur þegar maður er kominn með fleiri diska heldur en að vera með einn stakan. Þetta ævintýri mitt kom upp vegna þess að maðurinn minn var með fimm diska sem hann hafði spilað og gefið út hjá stóru fyrirtæki á nokkrum ár- um. Síðan var það fyrirtæki keypt af enn stærra fyrirtæki og þá hurfu diskarnir hans af markaðinum. Þetta er bara tíminn í dag og mað- ur bregst við því. Ég er bara mjög ánægð með að hafa getað keypt út- gáfuréttinn á mínum diskum. Það er ekki alltaf hægt.“ edda.erlendsdottir@club-inter- net.fr. Persónulegur fjársjóður fyrir mig Edda Erlendsdóttir hef- ur endurútgefið geisla- disk sinn með tónlist eftir C.P.E. Bach og er hann aftur fáanlegur í hljómplötuverslunum. Morgunblaðið/Árni Sæberg „Eins og trillukarl sem stendur einn á báti,“ segir Edda Erlendsdóttir. Gallabuxna- klúbburinn (Sist- erhood of the Traveling Pants) er unglingaskáld- saga eftir Ann Brashares. Þýð- andi er Anna Heiða Páls- dóttir. Þar segir frá fyrsta sumr- inu sem æskuvinkonurnar Bridget, Lena, Carmen og Tibby eru að- skildar. Skömmu fyrir fríið rekur á fjörur þeirra gallabuxur sem eru þeim töfrum gæddar að passa jafn vel á allar stelpurnar. Vinkon- urnar ákveða samstundis að stofna Gallabuxnaklúbbinn og senda buxurnar á milli sín um sumarið. Allar ætla þær að sigra heiminn meðan buxurnar standa við en komast að því að lífið er bæði súrt og sætt. Gallabuxnaklúbburinn er fyrsta skáldsaga Ann Brashares. Hún fékk afar lofsamlega dóma og vermdi efstu sæti metsölulista þegar hún kom út í Bandaríkjunum haustið 2001 og hefur síðan verið gefin út á hátt á þriðja tug tungu- mála víða um heim. Um þessar mundir er unnið að gerð kvik- myndar eftir bókinni í leikstjórn Ken Kwapis (He Said, She Said). Útgefandi er Mál og menning. Bókin er prentuð í Svíþjóð. Út- lits- og kápuhönnun var í höndum Marci Senders. Bókin er mán- aðarbók í september og kotstar þá 1.743 kr. Skáldsaga w w w .d es ig n. is © 2 00 3 IT M 90 62 Trion 60 S-CN 3 hólf 63x50 sm Texina 50 B-CN 86x50 sm Trion 60 B-CN 3 hólf 98x50 sm Teka MC10 Plus Bursta› stál Trion 60 E-CN 88x50 sm FM Mattson ÚTSALA ALLT Í ELDHÚSI‹ V. Fellsmúla • S. 588 7332 Opi›: Mán. - föst. 9-18, Laugardaga 10-14 Uppgefi› ver› mi›ast vi› sta›grei›slu 40% afsláttu r af eldh ús- innréttin gum 35% afsláttu r af gegn heilum furuinnr éttingum Allt a› 35% afsláttu r af eldhúsv öskum Allt a› 30% afsláttu r af blöndu nartæk jum Keramik hellubor›, High Light og fullkominn antikofn 7 eldunara›ger›ir forritanleg klukka Setti› á›ur kr. 107.800,- Nú kr. 75.500,- 30% afsláttu r Antikofn og hellubor› Group Teka AG Teka Arkus Bursta› stál NÝLOKIÐ er listasýningu í þinghúsi Manitoba í Winnipeg í Kanada þar sem Ríkey Ingimundardóttir myndlist- armaður sýndi tæplega 70 verk, en þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur listamaður er með sýningu í þinghúsinu. ,,Það er frábært og algjör toppur að hafa fengið tækifæri til að sýna í þinghús- inu og mótttökurnar í Gimli voru líka ánægjulegar,“ segir Ríkey, sem sýndi ol- íumálverk, glerverk, skúlptúra og fleira, alls tæplega 70 verk, en áður var sýningin sett upp í Gimli í tengslum við Íslend- ingadagshátíðina. Aldrei hafa fleiri verk verið sýnd í Listasafninu í Gimli, en Ríkey hefur meðal annars verið með sýningar í Noregi, Bandaríkjunum, Lúxemborg og Færeyjum. Hins vegar var þetta í fyrsta sinn sem hún sýnir í Kanada, en verk hennar eru núna í Birchwood-listasafninu í Winnipeg og verða þar fram í október. Upphaf sýningarinnar í Manitoba má rekja til komu opinberrar sendinefndar frá Manitoba til Íslands í ágúst 2001 en þá sá sendinefndin sýningu hennar í Perl- unni. Tim Arnason, forseti Íslend- ingadagsnefndarinnar undanfarin tvö ár, kom til Íslands sumarið eftir og ræddi þá m.a. við listamanninn um að sýna verk hennar í Gimli. „Þetta var mjög skemmti- legt, fólkið yndislegt og viðbrögðin meiri- háttar.“ Ríkey fyrst til að sýna í þinghúsinu Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Ríkey Ingimundardóttir á sýningunni í Gimli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.