Morgunblaðið - 08.09.2003, Síða 21
HESTAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2003 21
Reiðfatnaður
Náttúrulegur lífsstíll
FREMSTIR FYRIR GÆÐI
ÞAÐ MÁ ljóst vera að Sigurður
Sigurðarson mun mæta sterkur til
leiks á næsta ári sem er lands-
mótsár ef ekkert óvænt kemur upp
á. Lengi vel hefur Skuggabaldur
frá Litladal sem hann reið til sig-
urs í A-flokknum á Andvaravöllum
verið talinn líklegur sigurkandídat
á LM en síðast var hann meiddur
og gat því ekki verið með á LM á
Vindheimamelum. En nú virðist
hann enn vera að eflast og sigraði
næsta auðveldlega með einkunn
upp á 8,81 í forkeppni og fyrtsa
sæti hjá öllum dómurum í úrslitum.
Í B-flokknum var það Bruni frá
Hafsteinsstöðum sem Sigurður
reið til sigurs með hvorki meira né
minna en 9,07 í einkunn í forkeppni
en hann lét ekki þar við sitja því
hann var með annan klár frá sama
stað, Mugg, einnig í úrslitum.
Þetta er annað árið í röð sem
Sigurður sigrar tvöfalt á þessu
móti og nú með öðrum hrossum en
hann sigraði á í fyrra. Til gamans
má geta þess að í röðun dómara í
úrslitum fengu báðir þessir hestar
einn á línuna hjá dómurum. Sann-
arlega frábær frammistaða hjá
þessum mikla keppnismanni.
Þá var Sigurbjörn Bárðarson
einnig með tvo hesta í úrslitum B-
flokks þá Kára frá Búlandi sem
hlaut 8,58 og Grun frá Oddhóli sem
var fjórum kommum lægri. Þá
vakti frammistaða unglingsins,
Valdimars Bergstað, einnig verð-
skuldaða athygli er hann reið Kólfi
frá Stangarholti í úrslit í B-flokki
en þeir hlutu 8,48 í einkunn.
Að venju voru seld á uppboði
sæti í úrslitum beggja flokka og fór
A-flokkssætið á 55 þúsund krónur
en B-flokkssætið á aðeins 25 þús-
und krónur. Ekki náðu uppboðs-
knaparnir að skáka þeim sem unnu
sér rétt í úrslitum og vermdu því
neðsta sætið en vafalaust haft góða
skemmtan af þátttöku í úrslitunum
og er það vel.
Þórður Þorgeirsson var hinn
öruggi sigurvegari í töltkeppni
mótsins á hinum ört vaxandi hesti
Sólon frá Stóra-Hofi.
Sigurður V. Matthíasson sigraði
í flugskeiðinu sem að venju fór
fram í flóðljósum á laugardags-
kvöldið. Var hann með nýjan hest,
Kaftein frá Kálfhóli, og fóru þeir
vegalengdina á 7,54 sek. en tímarn-
ir sem náðust í greininni voru sér-
lega góðir því sex keppendur voru
á tíma undir 8 sekúndum sem verð-
ur að teljast afbragðsgóður árang-
ur. Þá voru 150 og 250 metrarnir
vel heppnaðir að því leyti til að vel
gekk að láta vekringana liggja og
tímar býsna góðir. Logi Laxdal átti
þar góðan dag eins og sjá má í úr-
slitaupptalningu.
Sjónvarpið var með beina út-
sendingu frá úrslitunum á sunnu-
dag sem telja má góða uppbót á
frekar snautlega frammistöðu sjón-
varpsins þetta árið í málefnum
hestamanna. Hefur það sjónvarps-
efni vafalítið verið vel þegið af
mörgum hetsamönnum víða um
land.
Mótið þótti takast vel eins og
venjan hefur verið með meistara-
mótin gegnum tíðina enda vel að
málum staðið og stendur alltaf vel
undir því að heita lokahátið hesta-
manna á sviði hestamóta ár hvert.
Lokanóta hestamótanna slegin á Meistaramóti Andvara á Andvaravöllum
Sigurður
Sigurðarson
kvaddi keppnis-
tímabilið með
tvöföldum sigri
Sigurður Sigurðarson kvaddi keppnistíma-
bil hestamanna með stæl á meistaramóti
Andvara um helgina þegar hann reið tveim-
ur kunnum gæðingum til sigurs í A- og B-
flokki gæðinga á mótinu. Valdimar Krist-
insson tínir hér til það helsta sem gerðist á
þessu vel heppnaða kveðjumóti sem að
venju var haldið með miklum glæsibrag. Morgunblaðið/VakriSigurður Sigurðarson fagnar góðum sigri í A-flokki gæðinga á Skuggabaldri frá Litladal en nafni hans Sæmunds-
son virðist ekki síður ánægður með annað sætið á Ými frá Holtsmúla.
Morgunblaðið/Vakri
Skuggabaldur og Sigurður tryggja sér sigurinn í A-flokki með góðum skeiðsprettum í lok úrslitakeppninnar en skeiðið er alltaf heldur að styrkjast hjá þessum fjölhæfa gæðingi.
A-flokkur
1. Skugga Baldur frá Litladal og Sigurður
Sigurðarson
2. Ýmir frá Holtsmúla og Sigurður Sæ-
mundsson
3. Boði frá Flugumýri og Páll Bjarki Pálsson
4. Börkur frá Stóra Hofi og Logi Þór Laxdal
5. Prins frá Syðra Skörðugili og Sigurður V.
Matthíasson
6. Nótt frá Oddstöðum 1 og Jón Gíslason
7. Kolskeggur frá Oddhóli og Sigurbjörn
Bárðarson
8. Sveifla frá Brattavöllum og Vignir Sig-
geirsson
9. Riddari frá Krossi og Viðar Ingólfsson
10. Flugar frá Hvítárholti og Súsanna Ólafs-
dóttir
B-flokkur
1. Bruni frá Hafsteinsstöðum og Sigurður
Sigurðarson , 9,07
2. Muggur frá Hafsteinsstöðum og Sigurður
Sigurðarson/Sigurður V. Ragnarsson, 8,76
3. Þórður Þorgeirsson og Sólon frá Stóra
Hofi, 8,48
4. Hringur frá Húsey og Sveinn Ragnarsson,
8,53
5. Kólfur frá Stangarholti og Valdimar Berg-
stað, 8,48
6. Víkingur frá Efri-Gegnishólum og Sigurð-
ur V. Matthíasson, 8,46
7. Kári frá Búlandi og Sigurbjörn Bárðar-
son/Sylvía Sigurbjörnsdóttir, 8,58
8. Grunur frá Oddhóli og Sigurbjörn Bárð-
arson, 8,54
9. Máni frá Fremri Hvestu og Smári Adolfs-
son
Tölt
1. Þórður Þorgeirsson og Sólon frá Stóra-
Hofi, 7,03
2. Theódór Ómarsson og Greifi frá Garðs-
horni, 6,93
3. Sigurður Sigurðarson og Óliver frá Aust-
urkoti, 6,70
4. Hjörtur Bergstað og Djákni frá Votmúla
1, 6,67
5. Bylgja Gauksdóttir og Hnota frá Garða-
bæ, 6,50
6. Edda R. Ragnarsdóttir og Þengill frá
Kjarri, 6,37
7. Sigurður Ó. Kristinsson og Díana frá
Skeiðháholti 3, 6,33
8. Halldór Guðjónsson og Vonandi frá Dall-
andi, 6,20
9. Jón Ó. Guðmundsson og Regína frá
Flugumýri, 6,20
10. Sigurður Kolbeinsson og Þór frá Þjóð-
ólfshaga 3, 6,10
100 metra flugskeið
1. Sigurður V. Matthíasson og Kapteinn frá
Kálfhóli á 7,53 sek.
2. Þórður Þorgeirsson og Feykivindur frá
Svignaskarði á 7,56 sek.
3. Sigurbjörn Bárðarson og Skvetta frá
Krækishólum á 7,65 sek.
4. Logi Laxdal og Þoka frá Hörgslandi á 7,78
sek.
5. Sigurður V. Matthíasson og Hefill frá
Sauðafelli á 7,84 sek.
150 metra skeið
1. Logi Laxdal og Stör frá Saltvík á 14,32
sek.
2. Svavar Hreiðarsson og Johnnie be Good
frá Hala á 14,52 sek.
3. Sigurbjörn Bárðarson og Neisti frá Miðey
á 14,63 sek.
4. Þráinn Ragnarsson og Hrafnar frá Efri
Þverá á 14,64 sek.
5. Atli Guðmundsson og Sprettur frá Skarði
á 14,89 sek.
250 metra skeið
1. Logi Laxdal og Feykivindur frá Svigna-
skarði á 22,29 sek.
2. Sigursteinn Sumarliðason og Hekla frá
Vatnsholti á 22,48 sek.
3. Sigurbjörn Bárðarson og Óðinn frá Búð-
ardal á 22,52 sek.
4. Bjarni Bjarnason og Kolbeinn frá Þór-
oddst. á 22,98 sek.
5. Berglind Ragnarsdóttir og Von frá Stein-
nesi á 23,2 sek.
Úrslit