Morgunblaðið - 08.09.2003, Side 25
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2003 25
Hlutafjárútboð
Seljandi
Heildarnafnverð
hlutafjár
Útboðsgengi
Útboðstímabil
Sölufyrirkomulag
Greiðsluskilmálar
Umsjón
með útboði
Skráning
-Tilkynning um sölu hlutafjár-
Og fjarskipti hf. (Og Vodafone), kt. 600898-2059, Síðumúli 28, 108 Reykjavík, vefsíða www.ogvodafone.is, sími
599 9000, bréfsími 599 9001.
Hlutafé Og Vodafone verður hækkað um allt að 384.615.385 krónur að nafnverði. Nafnverð útgefinna hlutabréfa
félagsins er 3.081.493.942 krónur fyrir útboð þetta og verður allt að 3.466.109.327 krónur eftir að útboðinu
lýkur.
Útboðsgengi nýrra hluta i aukningunni er ákveðið af stjórn félagsins samkvæmt heimild í samþykktum félagsins,
sbr. gr. 2.01.5. Útboðsgengið verður 2,60 fyrir hverja krónu nafnverðs.
Sölutímabil til forgangsréttarhafa: Frá kl. 10:00 17. september til kl. 16:00 19. september 2003.
Sölutímabil til fagfjárfesta: Frá kl. 10:00 22. september til kl. 16:00 23. september 2003.
Sala til forgangsréttarhafa:
Hluthafar í Og Vodafone, samkvæmt hlutaskrá félagsins í lok dags þann 3. september 2003, eiga rétt á að taka
þátt í útboði þessu.
• Hluthafar geta nýtt sér forgangsrétt sinn að hluta eða öllu leyti. Forgangsréttur hvers og eins er
hlutfallslegur og tekur mið af eign hluthafa í félaginu í lok dags 3. september 2003, samkvæmt rafrænni
hlutaskrá Verðbréfaskráningar Íslands hf.
• Nýti hluthafi sér ekki forgangsrétt sinn eða framselji áskriftarrétt sinn að fullu öðlast aðrir hluthafar aukinn
rétt til áskriftar sem þeir geta ekki framselt öðrum.
Forgangsréttarhöfum er heimilt að framselja forgangsrétt sinn til nafngreinds aðila í heild eða að hluta í samræmi
við ákvæði laga nr. 2/1995 um hlutafélög. Þeir hlutir sem ekki fæst áskrift að hjá forgangsréttarhöfum verða
boðnir fagfjárfestum, eins og lýst er hér á eftir.
Hægt verður að skrá sig fyrir hlut í útboðinu með rafrænum hætti á heimasíðu Landsbanka Íslands hf.
www.landsbanki.is. Forgangsréttarhöfum verður sent lykilorð ásamt upplýsingum um forgangsrétt sinn í félaginu.
Áskrifandi fær rafræna staðfestingu um innsenda áskrift og er slík staðfesting forsenda þess að áskriftin sé tekin
gild. Hluthafar sem þess óska geta fengið sent til sín viðaukann við skráningarlýsinguna frá 4. apríl 2003 með
áföstu áskriftareyðublaði og skráningarlýsinguna sjálfa frá 4. apríl 2003, og skilað áskrift sinni til Landsbanka
Íslands hf., Fyrirtækjaráðgjafar, Laugavegi 77, 155 Reykjavík, á þar til gerðum áskriftarblöðum. Áskriftin, hvort
sem hún er rafræn eða á þar til gerðum áskriftarblöðum, þarf að berast í síðasta lagi kl. 16:00 föstudaginn 19.
september 2003. Ekki verður tekið á móti áskriftum með öðrum hætti en þeim sem hér hefur verið lýst.
Sala til fagfjárfesta:
Þeir hlutir sem forgangsréttarhafar skrá sig ekki fyrir verða boðnir fagfjárfestum til kaups á tímabilinu 22. - 23.
september 2003 á genginu 2,60. Sölutímabilið til fagfjárfesta getur orðið styttra ef allt hlutafé selst fyrir lok þess.
Þegar endanleg niðurstaða útboðsins liggur fyrir verða sendir greiðsluseðlar til allra sem hafa skráð sig fyrir hlut í
útboðinu. Gjalddagi greiðsluseðla er 1. október 2003. Berist greiðsla ekki tímanlega má innheimta skuldina með
lögleyfðum úrræðum. Og Vodafone hefur þó jafnan í stað innheimtuaðgerða heimild til að fella ógreiddar áskriftir
úr gildi og ráðstafa hlutnum til þriðja aðila í samræmi við ákvæði laga um hlutafélög.
Landsbanki Íslands hf., kt. 540291–2259, Laugavegi 77, 155 Reykjavík, hefur umsjón með útboði þessu og
skráningu hlutafjárhækkunar Og Vodafone í Kauphöll Íslands hf.
Öll áður útgefin hlutabréf Og Vodafone eru skráð á Aðallista Kauphallar Íslands hf.
VEGNA umfjöllunar um séreignalíf-
eyrissparnað í laugardagsblaði
Morgunblaðsins vill Már Wolfgang
Mixa, sérfræðingur hjá Sparisjóði
Hafnarfjarðar taka fram að þær leið-
ir til viðbótarsparnaðar í hlutabréf-
um og skuldabréfum sem hérlendar
fjármálastofnanir bjóða upp á og
greint er frá í fréttinni eru ekki tæm-
andi.
„SPH býður uppá tvær leiðir til
viðbótar við innlánsreikning spari-
sjóðanna, Lífsval. Þær leiðir eru
Hlutabréfaáhersla og Skuldabréfa-
áhersla. Það sem meira er, þær hafa
veitt betri 12 mánaða ávöxtun en all-
ar hinar leiðirnar sem birtar eru í
blaðinu, að undanskildnum ávöxtun-
arleiðum sem fjárfesta einungis í
bréfum Úrvalsvísitölunnar.“
Hægt er að nálgast frekari upp-
lýsingar um þessar leiðir, m.a. sam-
setningu þeirra, á www.sph.is, á síð-
unni Lífeyrir.
SPH með fleiri
ávöxtunarleiðir
Hátíðardagskrá eftir viku
Í frétt í Morgunblaðinu sl. laug-
ardag er sagt frá hátíðardagskrá í
Hafnarborg sem Hafnarfjarðarbær
og vinabæjarfélagið Cuxhaven–
Hafnarfjörður ætla að efna til þann
sama dag. Hið rétta er að dagskráin
fer fram eftir viku, laugardaginn 13.
september. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
Landsskrifstofa Leonardó stendur
fyrir námskeiði í dag mánudaginn 8.
september í gerð umsókna í Leon-
ardo da Vinci starfsmenntaáætlun
Evrópusambandsins, en eftir miklu
fjármagni er að slægjast fyrir ís-
lenska þátttakendur.
Á námskeiðinu verður farið í gegnum
markmið og forgangsatriði áætlunar-
innar, bæði fyrir mannaskipti og til-
raunaverkefni og rætt um helstu at-
riði í umsóknagerð. Garðar
Vilhjálmsson, fræðslustjóri Eflingar
stéttafélags, mun einnig segja frá
reynslu sinni af þátttöku í áætluninni.
Ísland á aðild að Leonardo da Vinci
starfsmenntaáætluninni ásamt 29
öðrum Evrópulöndum. Markmið
áætlunarinnar er að styðja við að-
gerðir aðildarlandanna í starfs-
menntamálum með það að markmiði
að bæta fagkunnáttu og færni fólks,
auka gæði og aðgang að símenntun
og stuðla að því að starfsmenntun
leiði til nýsköpunar. Áætlunin skiptist
í tvo hluta, annars vegar í manna-
skipti sem er samheiti fyrir starfs-
þjálfun og mannaskipti í Evrópu, og
tilraunaverkefni sem eru verkefni
sem hafa það að markmiði að þróa
nýjungar í starfsmenntun, nýja að-
ferðafræði í kennslu eða yfirfærslu á
námsefni til að koma til móts við
breytingar á tækni eða markaði.
Allir þeir sem koma að starfs-
menntun á einn eða annan hátt geta
sótt um styrki úr Leonardó starfs-
menntaáætluninni. Hér er átt við
starfsmenntun í víðasta skilningi þess
orðs, en ekki einungis verk- og iðn-
menntun eins og gjarnan er talið.
Einungis lögaðilar, stofnanir eða fyr-
irtæki, geta sótt um styrki úr áætl-
uninni.
Námskeiðið hefst kl. 15 og verður
haldið í húsakynnum Landsskrifstof-
unnar í Tæknigarði, Dunhaga 5.
Næsti umsóknarfrestur um Leon-
ardó styrki er 3. október 2003. Nánari
upplýsingar um áætlunina er að finna
á heimasíðu Landsskrifstofunnar
www.leonardo.hi.is
Í DAG
Skyndihjálparnámskeið hjá RKÍ
Rauði kross Íslands, Reykjavík-
urdeild, heldur námskeið í almennri
skyndihjálp. Kennt verður dagana 9.,
10., 11. og 12. september í húsnæði
deildarinnar Fákafeni 11, 2 hæð.
Þátttaka er heimil öllum 15 ára og
eldri. Meðal þess sem kennt verður á
námskeiðinu er: Aðgerðir á vett-
vangi, endurlífgun með hjartahnoði,
blástursaðferðin, hjálp við bruna,
beinbrotum, um blæðingar og sár,
umbúðir og sárabindi, eitranir, bit og
stungur og fleira. Einnig verður
fjallað um helstu heimaslys, þar með
talin slys á börnum og almennar for-
varnir. Námskeiðið er 16 kennslu-
stundir og að því loknu fá þátttak-
endur skírteini sem hægt er að fá
metið í ýmsum skólum. Leiðbeinandi
er Birgir Freyr Birgisson.
Skráning og nánari upplýsingar hjá
Rauða krossi Íslands, Reykjavík-
urdeild.
Jóga sem lífstíll á 21. öldinni Guð-
jón Bergmann heldur kynningarfyr-
irlestur um námskeið sitt Jóga sem
lífstíll á 21. öldinni í þingsal 8 á Hótel
Loftleiðum, þriðjudaginn 9. sept-
ember kl.20.20. Námskeiðið sam-
anstendur af sjö fyrirlestrum um
gagnsemi jóga fyrir nútímafólk og er
haldið á fjórtán vikna tímabili. Sam-
hliða námskeiðinu er hægt að kaupa
14 vikna aðgangskort í jóga hjá Guð-
jóni í Ármúla 38, 3. hæð.
Nánari upplýsingar veitir Guðjón
Bergmann.
Auðlindir og stjórnun – Fyr-
irlestraröð Mannfræðifélags Ís-
lands Félagið mun standa fyrir fyr-
irlestrum einu sinni í mánuði – annað
þriðjudagskvöld hvers mánaðar.
Fyrirlestraröðin ber yfirskriftina
Auðlindir og stjórnun, þar munu
mannfræðingar tala um efni sem
tengist þessu þema.
Á morgun, þriðjudaginn 9. sept-
ember fjallar Gunnar Þór Jóhann-
esson MA um samfélagslegar breyt-
ingar og bjargráð fólks á
landbúnaðarsvæðum. 14. október
fjallar Sveinn Eggertsson Ph.D. um
menningarauðlind Páskaeyju. 11.
nóvember fjallar Níels Einarsson
Fil.Lic um lífskjör, samfélagsbreyt-
ingar og auðlindir á norðurslóðum.
Fyrirlestrarnir eru haldnir í Reykja-
víkurAkademíunni, Hringbraut 121
4. hæð og hefjast kl.20. Allir eru vel-
komnir.
Auk þessara fyrirlestra verður
Mannfræðifélagið með aðra fyr-
irlestra m.a. mun Gísli Pálssson pró-
fessor í Háskóla Íslands tala um
„Mannfræði Vilhjálms Stefánssonar“
25. nóvember, kl. 20.
Hverfafundur Samfylkingarinnar í
Breiðholti Hverfafélag Samfylking-
arinnar í Breiðholti heldur opinn
fund á morgun, þriðjudaginn 9. sept-
ember kl. 20, í Miðbergi (við hliðina á
Gerðubergi). Fjallað verður um hlut-
verk félagsins í hverfinu, um ýmis
málefni íbúanna og um borgarmál al-
mennt. Frummælendur verða borg-
arfulltrúarnir Stefán Jón Hafstein og
Steinunn Valdís Óskarsdóttir.
Á MORGUN
Vefjagigtarnámskeið – að lifa með
vefjagigt Tvö vefjagigtarnámskeið
verða hjá Gigtarfélagi Íslands í hús-
næði félagsins að Ármúla 5, annarri
hæð. Um er að ræða þriggja kvölda
námskeið og byrja bæði mið-
vikudagskvöldið 17. september. Á
námskeiðinu verður lögð áhersla á
þætti sem tengjast því að lifa með
vefjagigt. Fjallað verður um sjúk-
dóminn, einkenni hans og áhrif á dag-
legt líf, mikilvægi þjálfunar, slökun,
aðlögun að breyttum aðstæðum í
tengslum við iðju, tilfinningalega, fé-
lagslega og samfélagslega þætti.
Leiðbeinendur á námskeiðunum
verða Arnór Víkingsson og Árni Jón
Geirsson, gigtarsérfræðingar, Sól-
veig Hlöðvesdóttir og Hulda Jeppe-
sen sjúkraþjálfarar, Unnur Stefanía
Alfreðsdóttir, iðjuþjálfi, Jónína Björg
Guðmundsdóttir og Svala Björgvins-
dóttir, félagsráðgjafar.
Þátttakendur skrá sig á skrifstofu
Gigtarfélags Íslands, þar er einnig
hægt að fá frekari upplýsingar um
námskeiðin.
Á NÆSTUNNI