Morgunblaðið - 08.09.2003, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 08.09.2003, Blaðsíða 28
DAGBÓK 28 MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Poseidon og Dettifoss koma í dag. Rainbow Warrior og Eykon fara í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Brúarfoss kemur í dag. Mannamót Aflagrandi 40. Vinnu- stofa og leikfimi kl. 9, boccia kl. 10. Félagsvist í dag kl. 14. Árskógar 4. Kl. 11 boccia. Handa- vinnustofan er opin. Kl. 13.30 félagsvist, kl. 16 myndlist. Púttvöllur opinn mánudag til föstudags kl. 9-16.30. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9– 16 handavinna, kl. 9–12 bútasaumur, kl. 9–17 fótaaðgerð, kl. 10–11, samverustund, kl. 13.30–14. 30 söngur við píanóið Kristjana H. kl. 13–16 bútasaumur. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Kynning- ardagur um fé- lagsstarfið á haustönn er í dag 8. september kl. 15 í Garðabergi. Innritað verður í hóp- astarf og á námskeið eftir kynningu. Leik- fimishópar kvenna eru á mánudögum og á mið- vikudögum kl. 9.30 kl. 10,20 og 11. 15. Full- bókað er í tímann kl. 10.20. Leikfimi karla er á þriðjudag kl. 12.50 Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist í Gullsmára 13 kl. 20.30. Fótaaðgerð frá kl. 10. Skrifstofa félags eldri borgara í Kópavogi er opin í dag frá kl. 10– 11.30. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handavinna. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Kl. 10 leikfimi, kl. 13 brids, kl. 9–16.30 púttvöllurinn opinn. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 9–16 opin handa- vinnustofan, kl. 9–12 myndlist, kl. 13–16 körfugerð, kl. 11–11.30 leikfimi, kl. 13–16 spil- að, kl. 10–13 verslunin opin. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Bað kl. 9– 12, opin vinnustofa, kl. 9–16.30, félagsvist kl. 13.30, kl. 9–12 hár- greiðsla. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Fé- lagsvist kl. 13.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Brids í dag kl. 13. S. 588 2111. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan op- in, leiðbeinandi á staðn- um kl. frá kl. 9–17. Gullsmári, Gullsmára 13. Félagsþjónustan er opin frá kl. 9–17 virka daga, heitt á könnunni. Hraunbær 105. Kl. 9 postulínsmálun, perlu- saumur og kortagerð og fótaaðgerð, kl. 10 bænastund, kl. 13.30 sögustund og spjall, kl. 13 hárgreiðsla. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9–15 handmennt, kl. 9– 10 jóga, kl. 10–11 jóga, kl. 13–16 frjáls spila- mennska. Fótaaðgerð- ir. Norðurbrún 1. kl. 9–16 fótaaðgerð, kl. 10–11 ganga, kl. 13–16.45 opin vinnustofa. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15–15.30 handavinna, kl. 9.30– 10.30 boccia, kl.11–12 leikfimi, kl. 13–16 kór- æfing. Vitatorg. Kl. kl. 9 hár- greiðsla, kl. 9.30 hand- mennt og morg- unstund, kl. 10 fótaaðgerð og boccia, kl. 13 frjáls spil. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborg- arsvæðinu, félagsheim- ilið, Hátúni 12. Kl. 19. brids. Minningarkort FAAS, Félag aðstand- enda alzheim- ersjúklinga. Minning- arkort eru afgreidd alla daga í s. 533-1088 eða í bréfs. 533-1086. Heilavernd. Minning- arkort fást á eft- irtöldum stöðum: í síma 588- 9220 (gíró) Holts- apóteki, Vesturbæj- arapóteki, Hafnarfjarð- arapóteki, Keflavíkurapóteki og hjá Gunnhildi Elías- dóttur, Ísafirði. Minningarkort Park- insonsamtakanna á Ís- landi eru afgreidd á skrifstofutími í síma 552-4440 frá kl 11-15. Kortin má einnig panta á vefslóðinni: http:// www.parkinson.is/ sam_minning- arkort.asp Minningarkort Sam- taka sykursjúkra fást á skrifstofu samtakanna Tryggvagötu 26, Reykjavík. Opið virka daga frá kl. 9–13, s. 562-5605, bréfsími 562- 5715. Minningarkort Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar fást í Bókabúð Böðvars, Reykjavíkurvegi 64, 220 Hafnarfirði s. 565- 1630 og á skrifstofu K.H., Suðurgötu 44,II. hæð, sími á skrifstofu 544-5959. Í dag er mánudagur 8. sept- ember, 251. dagur ársins 2003, Maríumessa hin s. Orð dagsins: Því hungraður var ég, en þér gáfuð mér ekki að eta, þyrstur var ég, en þér gáfuð mér ekki að drekka. (Mt. 25, 42.) Ásta R. Jóhannesdóttirfjallar á heimasíðu sinni um úrskurð um að ríkinu beri að inna af hendi greiðslur vegna frestunar framkvæmda við Héðinsfjarðargöng. „Samgönguyfirvöld standa frammi fyrir þess- um greiðslum til lægst- bjóðanda, Íslenskra að- alverktaka, fyrir útboðskostnað fyrirtæk- isins. Slíkur kostnaður hleypur á tugum milljóna króna og hefur farið yfir hundrað milljónir króna í ákveðnum tilvikum. Það er algjört ábyrgðarleysi hjá samgönguráðherra að stofna til útgjalda sem þessara í efnahagsástandi eins og nú ríkir og vitað var um fyrir kosningar.     Ráðherrann hefði aðminnsta kosti getað sett fyrirvara í útboðið til að firra ríkissjóð þessum kostnaði. Segja má að með þessu sé almenn- ingur látinn greiða millj- ónatugi fyrir kosninga- baráttu stjórnarflokk- anna, sem lofuðu verkinu þótt ljóst væri að ekki yrði staðið við það loforð og rökuðu þannig inn fylgi á Norðurlandi á fölskum forsendum.“     Helgi Hjörvar, flokks-bróðir Ástu, fjallar um íslenskan landbúnað á síðu sinni. „Sjónvarpið sagði frá því í gærkvöldi að í yfirreið Guðna Ágústssonar, landbún- aðarráðherra, um sveitir hefði kusa nokkur spark- að í hann. Það er lýsandi fyrir ástandið í landbún- aðinum. Jafnvel kýrnar, sem sýndu ráðherranum ekkert nema elsku og „kysstu“ hann meira að segja, sjá ekki lengur ástæðu til annars en að sparka í hann. Bragð er að þá beljan finnur.     Fréttir af stöðu sauð-fjárbænda í vikunni eru enn ein staðfestingin á vanmætti kerfisins til að fást við vandann. Heil stétt vinnandi fólks, þ.e. sauðfjárbændur, hafa lægri tekjur en lágmarks- framfærsla þrátt fyrir að við séum að dæla pen- ingum í landbún- aðarkerfið og hér sé ekki beinlínis lægsta mat- vöruverð á byggðu bóli. Það virðist þannig vera að nýting og stýring þeirra miklu fjármuna sem við verjum til land- búnaðar sé hvorki með hagsmuni verst settu bændanna að leiðarljósi, né hagsmuni neytenda. Fyrirgreiðslu- og fram- leiðslustyrkjakerfi Fram- sóknar og Sjálfstæð- isflokks hefur augljóslega gengið sér til húðar. Það er t.d. með öllu óskilj- anlegt að við höfum enn framleiðslustyrki fyrir vörur sem offramleiðsla er á í stað þess að leita ár- angursríkari leiða við að styrkja þá sem styrkja þarf. Og kannski það sýni sig nú að menn hefðu bet- ur fyrr hlustað á skilaboð frjálslyndra jafn- aðarmanna um að bænda vegna og neytenda sé nauðsynlegt að draga úr miðstýringu og höftum í landbúnaði.“ STAKSTEINAR Loforð og landbúnaður Víkverji skrifar... VÍKVERJI veltir því stundumfyrir sér hvort þeir sem ekki hafa veruleg kynni af því að eiga íbúð í fjölbýlishúsi viti hvað það merki. Þar sem eigendurnir eru 20, 30 eða jafnvel enn fleiri reynir mikið á lipurð og viljann til málamiðlana. Á að mála blokkina ljósgræna með bleiku rósamunstri? Á að fella gamla tréð sem er farið að teygja ræturnar inn í undirstöður hússins og getur á endanum valdið stór- tjóni? En það er svo fallegt og hefur staðið svo lengi, segja sumir. Og hlusta ekki á rök varganna sem segja að tré verði stundum að víkja fyrir steypunni. x x x ENN vandast málið þegar farið erí stórframkvæmdir. Þá getur fólk, sem fyrir slysni hefur valist í hússtjórn, þurft að kynna sér jafn dularfull mál og skolplagnir, gæta þess að nákvæmlega sé fylgt öllum reglum um fundarboð og það sem kemur mest á óvart: Fá eigendurna til að mæta á fundi og skipta sér af því hvað gert sé við húsgjöldin. Það getur verið snúið, ekki síst þegar sumar íbúðirnar eru leigðar út. Leigjandinn telur málið sér óvið- komandi og eigandinn fjarstaddi er á því að þar sem hann búi ekki á staðnum geti „hinir“ séð um þetta. Og líka þrifið stigaganginn. Væri ekki ráð að sjónvarp allra landsmanna gerði stuttan þátt um lífið í stórri blokk? Það gæti fækkað eitthvað þeim hatrömmu deilu- málum sem stöðugt spretta upp. Jafnframt væri hægt að rifja upp dramatískar sögur af því hvernig innanhússdeilur hafa hrakið suma á eyðieyju þar sem þeir strengdu þess heit að reyna aldrei, aldrei að semja við annan en sjálfan sig. NÚ FER berjatíminn að komast íalgleyming og Víkverji, sem er sælkeri, hugsar sér gott til glóð- arinnar. Á tímum þegar ábyrgir borgarar þora ekki lengur að borða neitt gott og mishollt nema í laumi má benda á að úti í Guðs grænni náttúrunni er hægt að standa á blístri af bláberjaáti án þess að nokkur viti af því – nema Guð. Ís- lensk bláber eru líka mun bragð- betri en útlend og undarleg ber. x x x REYKVÍKINGAR, sem þurfa aðleggja bílnum sínum í miðborg- inni, geta nýtt sér bílastæðahús við Hverfisgötu. En Víkverji á svolítið grófan bíl sem á ekki jafn auðvelt með að taka beygjur og kyrki- slanga. Eftir að hafa þurft í örvænt- ingu sinni að bakka í þrengslunum í sveigðum ranghölum bílastæða- hússins (og naumlega sloppið við árekstur) fór Víkverji að óska þess að notaðir hefðu verið amerískir staðlar við byggingu hússins. Bíla- stæðahúsin þeirra hljóta að vera rýmilegri en húsið við Hverfisgöt- una. Morgunblaðið/Golli Þegar blokkin er máluð er stundum erfitt að ná samkomulagi um litinn. ÉG vil senda þakkarkveðju til starfsfólks í Árnes apó- teki á Selfossi. Ég keypti þar nýlega naglaherði en uppgötvaði þegar heim var komið að glasið var tómt. Þegar ég hringdi til að kvarta fékk ég annað sent strax til Reykjavíkur, þar sem ég bý. Finnst þetta rosalega góð þjónusta. Ragnhildur Pálsdóttir. Skemmtilegt sjónvarpsefni ÉG vil lýsa ánægju með út- sendingar Sjónvarpsins frá nýafstöðnu heimsmeistara- móti í frjálsum íþróttum í París. Þetta var einstaklega skemmtilegt sjónvarpsefni, vel skipulagt og þeir sem lýstu keppninni gerðu það með miklum ágætum. Þó tel ég að ekki sé á neinn hallað þótt getið sé sérstak- lega frammistöðu Norðan- mannsins Sigurbjarnar Árna Arngrímssonar en lýsingar hans frá hinum ýmsu keppnisgreinum voru frábærar og sýndu að ekk- ert kemur í stað þekkingar – þar var „réttur maður á réttum stað“. Ánægður sjónvarpsáhorfandi. Kötturinn á Popp Tíví ÉG las í Velvakanda pistil um misþyrmingu á ketti í sjónvarpsþætti á Popp Tíví. Ætla ég að vona að þetta mál komi fyrir dómstóla og að Kattavinafélagið gangist fyrir því. Þáttastjórnendur eiga ekki að komast upp með svona framferði og á að láta þá svara til saka. Og svo vildi ég gjarnan vilja fá að vita hvað varð um dýrið. Dýravinur. Ill meðferð ÉG vil taka undir með fyrr- verandi áhorfanda sem skrifar í Velvakanda og kvartar undan illri meðferð á ketti í þættinum á Popp Tíví. Undrar það okkur að fullorðið fólk skuli fara svona með dýr og langar að vita hver urðu afdrif þessa kattar. Það á ekki að nota lifandi dýr til að leika sér að. Ábj. Þræddar upp perlur MIG langar til að vita hvar væri hægt að fá þræddar upp perlufestar. Þeir sem gætu liðsinnt mér hafi sam- band í síma 553 1067. Varað við erlendum sölumönnum EINN morgun um átta- leytið var hringt í mig frá og var erindið einhver sölu- mennska, þ.e. að bjóða ein- hvern verðbréfapakka. Ég stytti samtalið snarlega og ráðlagði sölumanni að hætta að hringja til Íslands. Vil ég vara fólk við þess- um sölumönnum. Eldri borgari. Tapað/fundið Gleraugu í óskilum LÍTIL gleraugu fundust á þriðjudag í blómabeði við endastöð strætisvagns nr 7 við Kalkofnsveg/Lækjar- götu. Eigandi hafi samband í síma 893 5885. Lyklar í óskilum LYKLAR í leðurhulstri og áföst sólgleraugu fundust 3. ágúst sl. á Seltjarnarnesi. Upplýsingar í síma 562 2437. Flískragi týndist LJÓS flískragi hnepptur með 3 tölum týndist sl. helgi á Seltjarnarnesi. Skil- vís finnandi hafi samband í síma 695 4050. Dýrahald Newton er týndur NEWTON er 3ja ára fress- köttur sem hvarf frá heimili sínu á Grundartanga í Mos- fellsbæ 12. ágúst sl. Hann er gulbröndóttur og hvítur, frá haus aftur á skott, hvít- ur á maga með hvíta fætur. Hann er frekar þéttur. Hann var með ól, brúna og svarta með tígrismunstri og merktur, og er einnig eyrnarmerktur. Hans er sárt saknað og þeir sem gætu gefið upplýsingar hafi samband í síma 863-9339, 566-6921 eða 659-3939. Fundarlaun. Birta er týnd LÆÐAN Birta tapaðist frá Fellasmára í Kópavogi, laugardaginn 5. júlí sl. Birta er 10 ára gömul, mjög mannelsk og góð. Hún er með brotna vígtönn. Fólk er vinsamlegast beðið að líta í bílskúra og geymslur. Þeir sem hafa orðið varir við Birtu eru vinsamlegast beðnir að hafa samband í síma 564 2001 eða 690 3920. Fundarlaun. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Góð þjónusta LÁRÉTT 1 rusl, 4 kústur, 7 ræðu- stóls, 8 léleg skepna, 9 dugur, 11 vitlaus, 18 stífni, 14 þora, 15 knippi, 17 þref, 20 málmur, 22 veslingur, 23 árnar, 24 langloka, 25 nytjalönd. LÓÐRÉTT 1 drekkur, 2 meðvit- undin, 3 boli, 4 úrgangur, 5 hænur, 6 sefaði, 10 ávít- ur, 12 gætni, 13 á húsi, 15 beitir tönnum, 16 brúk- um, 18 ílát, 19 ávextir, 20 baun, 21 skott. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 reimleiki, 8 hugað, 9 dótið, 10 una, 11 faðir, 13 reisa, 15 úrann, 18 skapa, 21 átt, 22 skafl, 23 augað, 24 fangelsið. Lóðrétt: 2 ergið, 3 móður, 4 endar, 5 kætti, 6 óhæf, 7 eðla, 12 inn, 14 eik, 15 únsa, 16 apana, 17 nálæg, 18 stall, 19 angri, 20 auða. Krossgáta 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.