Morgunblaðið - 08.09.2003, Page 30

Morgunblaðið - 08.09.2003, Page 30
30 MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Sýnd kl. 5.50. B.i.12. Sýnd kl. 6. með íslensku tali. Sýnd kl. 8 og 10 með ensku tali Barnapössun hefur aldrei verið svona fyndin! Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna. MEÐ ÍSLEN SKU OG EN SKU TALI Mestu illmenni kvikmynda- sögunnar mætast í bardaga upp á líf og dauða. TVÆR VIKUR Á TOPPNUM Í USA Sýnd kl. 6, 8 og 10.15. B.i. 16.  Skonrokk FM 90.9 HUGSAÐU STÓRT EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS kl. 5.30, 8 og 10.20. Miðasala opnar kl. 15.30 Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal. Mestu illmenni kvikmynda- sögunnar mætast í bardaga upp á líf og dauða. TVÆR VIKUR Á TOPPNUM Í USA Miðaverð 500 kr. ATH. Eingöngu Sýnd í Lúxussal Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 16.  Skonrokk FM 90.9 Fjölskyldumynd ársins! Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 með íslensku tali. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 með ensku tali MEÐ ÍSLENS KU OG EN SKU TALI Barnapössun hefur aldrei verið svona fyndin! Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 12 ára. J I M C A R R E Y Stóra svið LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Aðalæfing fö 12/9 kl 13 - kr. 1.000 Forsýning lau 13/9 kl 14 - UPPSELT FRUMSÝNING su 14/9 kl 14 - UPPSELT Lau 20/9 kl 14 - UPPSELT, Su 21/9 kl 14. Lau 27/9 kl 14, Su 28/9 kl 14, Lau 4/10 kl 14, Su 5/10 kl 14. ÖFUGU MEGIN UPPÍ e. Derek Benfield Lau 13/9 kl 20, Lau 20/9 kl 20. Nýja sviðið KVETCH e. Steven Berkoff Í samstarfi við Á SENUNNI Mi 10/9 kl 20 - UPPSELT, Fi 11/9 kl 20 - UPPSELT, Fö 12/9 kl 20 - UPPSELT. Síðustu sýningar NÚTÍMADANSHÁTÍÐ - Sex danshöfundar frumflytja sex sólódansa Lau 13/9 kl 20, Su 14/9 kl 20. Aðeins þessar sýningar Litla sviðið Miðasala: 568 8000 Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is Sala áskriftarkorta og afsláttarkorta stendur yfir Sex sýningar: Þrjár á Stóra sviði, og þrjár aðrar að eigin vali. kr. 9.900 Tíumiðakort: Notkun að eigin vali kr. 16.900 Komið á kortið: Fjórir miðar á Nýja svið/Litla svið. Kr. 6.400 VERTU MEÐ Í VETUR RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT og ÍD Lau 13/9 kl 20. Allra síðasta sýning IÐNÓ fim, 18. sept kl. 21, sun, 21. sept kl. 21, fim, 25. sept kl. 21. föst, 26. sept kl. 21. Gríman 2003 „BESTA LEIKSÝNING ÁRSINS,“ að mati áhorfenda Félagsheimilið Hnífsdal,Ísafirði lau 13. sept kl. 21. Örfá sæti Miðasölusími í IÐNÓ 562 9700 og sellofon@mmedia.is Breski leikarinn og athafnaskáldið Ian McKellen er vandur að virðingu sinni. Eftir stjörnuleik sinn sem níð- ingurinn Magn- eto í kvikmynd- unum X-men og X2 og frábæra frammistöðu sem Gandalfur í kvik- myndun nýsjá- lenska leikstjór- ans Peter Jackson á Hringadrótt- inssögu, ákvað hann að bæta fyrir „kassastykkin“ með því að leika aðal- hlutverk í Emile, sjálfstætt fram- leiddri, kanadískri kvikmynd, sem fjallar um roskinn mann sem svikið hefur fjölskyldu sína og reynir að taka upp þráðinn löngu seinna. Leikstjórinn Carl Bessai var hepp- inn, þar sem McKellen hafði nógan tíma á meðan á tökum X2 stóð. Hann þurfti einungis að vera viðstaddur tökur fimmtán daga af þeim tæpum fjóru mánuðum sem tökur mynd- arinnar tóku í héraðinu Bresku Kól- umbíu í Kanada og gat því gefið sér nægan tíma til að hjálpa sjálfstæðu kvikmyndagerðarmönnunum. Segir McKellen mikilvægast fyrir leikara að gleyma ekki að vera ungir innra með sér, því það að leika sé helst á færi barna og leikarar verði að við- halda sér í kring um fjórtán ára ald- urinn hið innra. Einfalt mál fyrir Gandalf gamla ... Fleiri leikarar hugsa sér dulítið til hreyfings þessa dagana og sagði kempan góðkunna Harrison Ford blaðamönnum í Berlín á dögunum að hann vildi óska að hann fengi tæki- færi til þess að leika illmenni á hvíta tjaldinu. Hann sagði það vera erfitt í Holly- wood, því illmenni hefðu þar yfirleitt það eina hlutverk að vera andstæð- ingar hetjunnar og lúffa fyrir henni í endann. Harrison hefur einmitt einu sinni leikið illmenni í myndinni „What lies beneath“ og lenti þar í miklum hremmingum á móti Michelle Pfeiffer, sem tók á honum stóra sín- um í enda myndarinnar eins og til siðs er í Heilagaskógi. Segir Ford helstu kosti þess að leika rummunga og illmenni þá, að í þeim hlutverkum geta menn farið mun víðar í túlkun sinni og látið öllum illum látum á skjánum, en hetjan verður alltaf að halda stillingu sinni og vera dönnuð. Ford gaf einnig í skyn að nýjasta In- diana Jones myndin færi í tökur á næsta ári, handritið væri í skrifum og allir í góðum gír. Leikstjórinn Stev- en Spielberg ætlar að leikstýra myndinni eins og honum einum er lagið og þá er bara að sjá hvort Spiel- berg hefur tapað einhverju af sum- arsmellatöktunum sem einkenndu hann í upphafi ferilsins og gerðu hann frægan, þegar hann leikstýrði myndum eins og Jaws, Poltergeist og E.T. Gleðipinninn og klæðskiptingurinn litríki „Boy George“ O’Dowd, sem gerði garðinn frægan á níunda ára- tugnum með poppsveitinni Culture Club, er nú í óða önn að færa upp söngleik sinn, „Taboo“ sem fjallar um hann sjálfan. Söngleik- urinn verður sýndur í Mekka söngleikjamenn- ingarinnar, á Broadway í New York. Í hlutverki stráksins Gogga verður ungur og snoppufríður leikari og söngvari, Euan Morton. Boy George samdi sjálfur tónlistina og söngtext- ana í „Taboo“ og leikur Leigh Bow- ery, stjórnlausan listamann og hönn- uð, í sögu sem fjallar um öfgar og úrkynjun skemmtanalífsins í London á níunda áratugnum. Munu áhuga- samir aðdáendur fá smá forsmekk að söngleiknum á sérstökum Broadway tónleikum, þar sem eitt lag úr söng- leiknum verður flutt. Söngleikurinn var áður sýndur í London og gekk í fimmtán mánuði. Nú er verið að endurskrifa handritið fyrir bandarískan markað og segir framleiðandi söngleiksins, Rosie O’Donnell, sem einnig er frægur spjallþáttastjórnandi að söngleik- urinn eigi örugglega eftir að vinna til Tony verðlauna, þar sem útkoman verði öll hin glæsilegasta. Boy George segir að boðskapur söng- leiksins sé að ekki megi dæma fólk af yfirborðinu ... Athyglissýki bandaríska sjónhverf- ingamannsins David Blaine eru fá takmörk sett. Nýjasta framtak hans er að hanga yfir ánni Thames í plast- búri án matar í fjörutíu og fjóra daga. Hann gekk inn í búrið klukkan níu á föstudagskvöld og hyggst ekki koma út fyrr en seint í október. Blaine er frægur fyrir fáránleg uppátæki sín og hefur meðal annars dvalið í ísblokk í tæpa þrjá sólarhringa og stokkið ofan af tuttugu og átta metra hárri súlu. Blaine mun fá vatn um slöngu, en engan mat, og mun því hungrið ganga á líkama hans. Reiknað er með því að Blaine muni tapa tutt- ugu kílóum af vöðvamassa við uppátækið og hafa heilbrigð- isyfirvöld mót- mælt slíkri léttúð frá hendi Blaine. Líklegt er að ýmis starfsemi líffæra hans fari illa út úr þessu og getur þetta bitnað illilega á nýrum og æða- kerfi. Breskir veðmangarar eru í miklum vafa um hvort þeir taki við veðmálum um þetta uppátæki og heimsmetabók Guinnes hefur neitað að taka við þessu væntanlega „heimsmeti“ Blaine, því þeir taki ekki við heims- metum í svelti. Ken Livingstone, borgarstjóri Lundúna, hefur einnig lýst yfir vanþóknun sinni á þessu uppátæki og sagt ekki við hæfi að setja líf sitt í hættu. Aðrir hafa gagn- rýnt hann fyrir að sýna raunveruleg- um fórnarlömbum hungurs og ein- angrunar vanvirðingu auk þess sem þetta snerti einnig fólk sem þjáist af átröskunarsjúkdómum illa. Sky One sjónvarpsstöðin mun sýna „bestu senurnar“ á hverjum degi, þó ýmsir bendi á að það sé óskaplega lít- ið spennandi við mann sem situr og húkir í plastbúri í fjörutíu og fjóra daga ... FÓLK Ífréttum Moggabúðin Geisladiskahulstur, aðeins 700 kr. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 ÆRINGINN Marilyn Manson bíður nú úrskurðar kviðdóms í máli sem öryggisvörður höfðaði gegn hon- um. Öryggisvörðurinn kærir Man- son fyrir að hafa hringsnúist í kringum sig og þreifað á sér á tónleikum árið 2000 þegar hann var við gæslu á sviðinu. Lögfræðingar Manson segja að öryggisvörðurinn, David M. Diaz að nafni, hafi ekki hlotið neinn skaða af athæfi Mansons, en Diaz krefur Manson um andvirði um fimm milljóna króna fyrir tilfinn- ingalegt tjón sem hann varð fyrir vegna ósið- samlegs athæfis Mansons. Lög- fræðingur Diaz hefur sagt að Diaz hafi orðið fyrir mikilli nið- urlægingu vegna atviksins, en lögfræðingar Mansons andmæla þessu og segja niðurlæginguna fyrst og fremst mega rekja til málaferlanna, enda hafi umfjöllun um málið þá fyrst hafist. Manson hefur ekki mótmælt ásökununum enda segir hann þetta hluta af sviðslátum sínum. Hins vegar hefur hann ekki játað sök, þar sem hann telur að ekki hafi verið um saknæmt athæfi að ræða. Manson hefur áður verið kærð- ur fyrir svipaða hluti og hafa menn jafnvel kært hann fyrir að veifa gervilim úr gúmi í andlitið á sér. Kviðdómur rýnir í mál Mansons

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.