Morgunblaðið - 08.09.2003, Síða 31

Morgunblaðið - 08.09.2003, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2003 31 Nýr og betriHverfisgötu  551 9000 www.regnboginn.is Sýnd kl. 6, 8 og 10. Fjölskyldumynd ársins! Sýnd kl. 6, 8 og 10. Ísl. tal. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16 ára. Frá leikstjóra Trainspotting kemur hið magn- aða meistaraverk 28 Days Later. Missið ekki af þessum frábæra framtíðartrylli. SV MBL  HK DV  Kvikmyndir.com Einn sá allra besti hryllingur sem sést hefur í bíó síðustu misserin." Þ.Þ. FBL. Ein besta mynd ársins Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14. MEÐ ÍSLEN SKU TALI Barnapössun hefur aldrei verið svona fyndin! Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna. www.laugarasbio.is Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. Sýnd kl. 6. Með íslensku tali.Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 10 ára BRUCE ALMIGHTY Fjölskyldumynd ársins! MEÐ ÍSLEN SKU TALI Barnapössun hefur aldrei verið svona fyndin! Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Fullkomið rán. Svik. Uppgjör. KVIKMYNDIR.IS Skemmtilegasta spennumynd ársins er komin.. J I M C A R R E Y Sýnd kl. 8 og 10.15. HLJÓMPLATAN 22 ferðalög með Magnúsi Eiríkssyni og Kristjáni Kristjánssyni hefur selst gríðarvel í sumar, alls um þrettán þúsund ein- tökum til þessa og er salan á við það sem best gerist í poppinu á Íslandi. Íslenskt ferðafólk hefur fegins hendi gripið þessa söngplötu með hógværum útsetningum dúettsins á íslenskum útileguperlum. Á plötunni 22 ferðalög má finna lög eins og Kötukvæði, Ó Jósep Jós- ep og Viltu með mér vaka í einföld- um og ómþýðum flutningi meist- aranna. Þeir Maggi og KK hafa lengi starfað saman í blús og popp- tónlist og hafa fyrir löngu síðan skipað sér sess sem einir ástsælustu tónlistarmenn þjóðarinnar og eiga þeir heiðurinn af mörgum fegurstu dægurperlum íslenskrar tónlistar. Má þar nefna Vegbúann, Óbyggð- irnar kalla, Garún og Einhvers staðar, einhvern tíma aftur. Langt ferðalag framundan Drengirnir söngelsku eru nú á ferðalagi um landið með dæg- urlagaperlurnar í farteskinu og komu við í Básum í Þórsmörk um helgina þar sem þeir héldu hádeg- istónleika í boði Útivistar og Heklu. Þessir tónleikar marka upphaf tón- leikaferðalags drengjanna í sept- ember og október, þar sem þeir munu fara hringferð um landið, en þeir hyggjast meðal annars koma við á Selfossi, Vestmannaeyjum, Vík í Mýrdal, Egilsstöðum, Siglu- firði, Akureyri, Sauðárkrók og Stykkishólmi svo fátt eitt sé talið. Ekki var annað að sjá en að gest- ir Þórsmerkur kynnu vel að meta flutning þeirra félaga og var þeim vel fagnað í blíðviðrinu í Básum. Nú er bara að sjá hvort þeir njóta viðlíka velgengni á viðkomustöðum hringvegarins, en þeirra bíður langt og strangt ferðalag um byggðir landsins og leika fáir eftir slíkar hljómleikaferðir. Íslensk vegalög í hauststemmningu Þeir kumpánar Maggi og KK léku á als oddi í Básum, gestum til ómældrar ánægju. Veðrið lék svo sannarlega við útilegumenn í Básum á laugardaginn og var stemmningin hin ágætasta. Þórsmörk er sívinsæll áfangastaður Íslendinga. Magnús og KK trölluðu í Þórsmörk ÁSGEIR Óskarsson, sem mörgum er betur kunnur sem trommari Stuð- manna, hélt útgáfutónleika á Gauki á stöng síðasta fimmtudag í tilefni af útkomu geisladisksins Áfram. Tón- leikarnir fylgja fast í kjölfar útgáfu- tónleika sem hann hélt í Austurbæ fyrir tæpum tveimur vikum. Þar kynnti hann tónlist sem hann hefur verið að semja og vinna upp á eigin spýtur og flutti í góðra vina hópi. Ásgeir vann plötuna í hjáverkum og hófust upptökur árið 2000. „Ég hef alltaf samið tónlist, allt síðan ég lærði fyrsta gripið,“ sagði Ásgeir í viðtali við Morgunblaðið í liðinni viku í tilefni af útkomu nýju plötunnar. „Áður en ég byrjaði að spila á trommur lék ég á bassa og gítar. Þetta er bara eitthvað ... það koma lög og það koma hugmyndir. Þetta er einhver þörf og svo langar mann auðvitað til að koma þessu frá sér.“ Tónlist Ásgeirs er framsækið popp með þéttri og leikandi hrynj- andi. Naut hann við flutninginn að- stoðar fjölmargra félaga sinna úr tónlistargeiranum. Á sviðinu stóðu með Ásgeiri Sigfús Óttarsson trommuleikari, Haraldur Þorsteins- son bassaleikari, Eyþór Gunnarsson og Karl Olgeirsson hljómborðsleik- arar, Lárus Grímsson flautuleikari og Kristján Edelstein gítarleikari, auk þess sem dóttir Ásgeirs, Mar- grét Guðrúnardóttir, söng með föður sínum, en hún syngur eitt lag á plöt- unni auk þess að syngja bakraddir. Ásgeir, sem áður hefur sent frá sér sólóplötuna Veröld stór og smá, segist afar ánægður með viðtökurn- ar á tónleikunum. Stemmningin á báðum tónleikum var mjög góð og heppnuðust þeir afar vel að sögn við- staddra, enda reyndir fagmenn að verki. Ásgeir Óskars heldur tvenna útgáfutónleika Ásgeir Óskarsson var í essinu sínu með gítar í stað trommukjuða. Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.