Morgunblaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 44
44 C MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐFasteignir
LUNDUR
F A S T E I G N A S A L A
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2.HÆÐ, F/OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
Opnunartími
Frá kl. 8.30 til 18.00, Föstudaga til kl. 17.00 • Lokað um helgar í sumar
Karl
Gunnarsson
sölumaður
Erlendur
Tryggvason
sölumaður
Kristján P.
Arnarsson
sölumaður
Jóhanna
Gunnarsdóttir
móttaka
Sigtryggur
Jónsson
sölumaður
Jóhannes Ásgeirsson hdl., lögg. fasteignasali
FÉLAG
FASTEIGNASALA
Netfang: lundur@lundur.is
Heimasíða: //www.lundur.is
Nýbyggingar
Hafnarfjörður - Ásvellir - fáar
íbúðir eftir Nýjar 3ja-4ra herbergja 92-
112 fm í „viðhaldslitlu“ fjölbýli við Burkna-
velli í Hafnarfirði. Vandaðar innréttingar,
stáltæki í eldhúsi. Íbúðirnar verða afhentar
fullbúnar en án gólfefna í jan.-apríl 2004.
Lóð og bílaplan verður fullfrágengið. Verð
frá 12,9 m. BYGGINGARAÐILI: Erlendur og
Reynir. 3321
Einbýli
Þinghólsbraut - Kópavogi Vorum
að fá í einkasölu fallegt og mikið endurnýj-
að ca 203 fm einbýli ásamt nýlegum 40 fm
bílskúr (jeppaskúr). 4-5 svefnherbergi,
góðar stofur. Húsið er nýlega klætt með
Steni, nýjar innréttingar í eldhúsi, endurnýj-
að baðherbergi og gólfefni. Skipti á minni
eign í vesturbæ Kópavogs möguleg. V.
31,5 m. 3776
Sunnubraut - Kóp. - sjávarlóð Á
einhverjum albesta stað á höfuðborgar-
svæðinu er til sölu 329 fm einbýlishús á 2
hæðum ásamt 28 fm bílskúr, 28 fm báta-
skýli eða samtals ca 385 fm. Gott útsýni.
Aukaíbúð á jarðhæð. V. 42,5 m. 3685
Dimmuhvarf - Vatnsenda - ein-
býli og hesthús Nýtt glæsilegt 194 fm
einbýlishús á 2 hæðum ásamt tvöföldum
59 fm bílskúr og 87 fm hesthúsi. Húsið er
staðsett innst í götu á útsýnisstað. Vand-
aðar innréttingar og gólfefni. Stór suður-
verönd. Bílskúrinn er tvöfaldur með góðri
lofthæð og góðri geymslu. Hesthús með
kaffistofu, salerni, sag- og heygeymslu.
Rúmgott 160 fm gerði og lóðin er samtals
1.553 fm. V. 39,9 m. 3711
Ásvallagata - einbýli Virðulegt og
vandað 320 fm einbýlishús með bílskúr á
horni Ásvallagötu og Vesturvallagötu. Hús-
ið er steinsteyptur kjallari og tvær efri hæð-
irnar eru forskalað timbur. Í kjallara er
möguleiki á aukaíbúð með sérinngangi.
Húsið hefur í gegnum tíðina fengið gott
viðhald. 3643
Naustabryggja - glæsileg rað-
hús ÞRJÚ GLÆSILEG 3JA HÆÐA
RAÐHÚS Á SJÁVARLÓÐ MEÐ FRÁ-
BÆRU ÚTSÝNI YFIR GRAFARVOG. AF-
HENDIST FULLBÚIÐ AÐ UTAN MEÐ
ÁLKLÆÐNINGU, EINANGRUN OG
FOKHELT AÐ INNAN MEÐ FRÁGENG-
INNI LÓÐ. 3612
HLYNSALIR - með bílskýli
NÝBYGGING - 117 fm 4ra herbergja
endaíbúð með sérinngangi af svölum í
lyftuhúsi ásamt stæði í bílageymslu.
Íbúðin afhendist fullbúin en án gólfefna.
Traustur byggingaraðili. V. 17,5 m. 3799
Njarðargrund - Garðabæ Fallegt
einbýlishús á einni hæð ásamt tvöföldum
sérstæðum bílskúr. Bílskúrinn er tvöfaldur
og er góð geymsla í honum. Garðurinn er
fallegur og vel gróinn, góð verönd er aust-
an við húsið. V. 21,9 m. 3225
Parhús - Raðhús
Hlaðhamrar - m. bílskúr Gott og vel
staðsett 145 fm endaraðhús ásamt 28 fm
bílskúr. Á aðalhæð eru m.a. eldhús, 2 góð
svefnherbergi, stofur með útgengi í sól-
skála og suðurverönd. Á millilofti er hægt
að hafa 2 herbergi og bað. Fallegur og vel
ræktaður garður umhverfis húsið. V. 22,2
m. 3704
Mosfellsbær - Bugðutangi Gott
205 fm endaraðhús á 2 hæðum með inn-
byggðum bílskúr. Á efri hæðinni eru stofur,
eldhús, baðherbergi og 2 svefnherbergi og
á neðri hæð er miðrými, þvottahús, bað-
herbergi og 3 herbergi. Möguleiki á auka-
íbúð. Fallegur, gróinn og skjólgóður suð-
urgarður með verönd og heitum potti. V.
18,9 m. 3110
Hæðir
Sílakvísl - sérinngangur Björt og
rúmgóð 100 fm 4ra-5 herbergja íbúð á
tveimur hæðum með sérinngangi í litlu, vel
viðhöldnu og vel staðsettu fjölbýli. Stórt
eldhús, stofur og gestasnyrting niðri en 3
rúmgóð svefnherbergi og baðherbergi
uppi. Geymsluris yfir efri hæðinni. Stórar
vestursvalir með frábæru útsýni yfir bæinn.
V. 15,3 m. 3723
Bankastræti - „penthouse“ Björt
og rúmgóð 145 fm íbúð á efstu hæð í
vönduðu húsi á horni Bankastrætis og
Skólavörðustígs. Stórar stofur og stórt eld-
hús með nýlegum innréttingum. Út frá
stofu eru sólríkar suðursvalir og úr eldhúsi
er gengið á enn stærri vestur-, norður- og
austursvalir með frábæru útsýni yfir mið-
bæinn, út á Flóann og til Esjunnar. 3663
Auðbrekka - Kópavogi Björt og
rúmgóð 139 fm efsta hæð með miklu út-
sýni. Um er að ræða húsnæði á 3. hæð
sem nú hefur verið innréttað sem ósam-
þykkt íbúð. Sameiginlegur inngangur
með miðhæð. Um er að ræða 4 her-
bergi, opið eldhús, stofu og baðherbergi
með sturtu. Möguleikar að stúka enn
frekar niður. V. 12,9 m. 3794
Skeiðarvogur Vorum að fá í einka-
sölu ca 166 fm endaraðhús á 3 hæðum
á þessum vinsæla stað. Möguleiki á sér-
íbúð í kjallara. V. 17,3 m. 3373
4ra-7 herb.
Jörfabakki - falleg eign Vorum að fá
í einkasölu 3ja-4ra herbergja ca 90 fm íbúð
á 2. hæð í ágætu fjölbýli, þvottahús í íbúð-
inni, laus fljótlega. V. 11,7 m. 3806
Hraunbær - góð 4ra herbergja
Björt og rúmgóð 110 fm 4ra herbergja íbúð
á 2. hæð í nýviðgerðu og máluðu fjölbýli í
barnvænu umhverfi. Rúmgott hol eða skáli,
eldhús með borðkrók, stór stofa með suð-
ursvölum, 3 rúmgóð svefnherbergi og bað-
herbergi með tengi fyrir þvottavél. Sam-
eign að utan hefur öll verið endurnýjuð,
þ.e. sprunguviðgert, endursteyptar svalir
að hluta og húsið málað. Þakið var tekið í
gegn fyrir örfáum árum. Stór sameiginleg
lóð með barnaleiktækjum. Stutt er í alla
þjónustu, skóla, leikskóla, verslanir, banka,
heilsugæslu, sundlaug og að sjálfsögðu
Fylkisvöllinn og Elliðaárdalinn. V. 13,9 m.
3808
Suðurhólar - laus fljótlega Vorum
að fá í einkasölu fallega 106 fm 4ra her-
bergja íbúð á 3. hæð. Rúmgott hol (sjón-
varpshol), stórt flísalagt baðherbergi með
baðkari og sérsteyptum sturtuklefa, gott
eldhús með ágætri eldri innréttingu og nýj-
um tækjum, stór stofa, suðursvalir. Útsýni.
Nýlegt parket á gólfum. V. 12,7 m. 3786
Ljósheimar - lyftublokk Rúmgóð 4ra
herbergja íbúð á 2. hæð í góðri lyftublokk.
Rúmgott hol, stofa með útgengi á suð-vest-
ursvalir, eldhús með uppgerðri innréttingu,
baðherbergi með kari og glugga og 3 svefn-
herbergi. Nýtt plastparket á gólfum. Nýtt
gler að hluta. V. 12,9 m. 3779
Klukkurimi - sérinngangur Björt og
rúmgóð 101 fm 4ra herbergja endaíbúð
með sérinngangi af svölum í góðu nýmál-
uðu fjölbýli. Suðursvalir. Sameign öll er í
góðu standi og umhverfið barnvænt. Stutt
er í alla þjónustu s.s. Spöngina, skóla
o.s.frv. V. 12,9 m. 3717
VESTURBERG - laus strax Fal-
leg 4ra herb. ca 106 fm íbúð á 3 hæð.
Nýstandsett eldhús m. borðkrók, rúm-
góð stofa, gangur, baðherbergi með
baðkari og sturtu og 3 ágæt herbergi.
Nýlegar flísar og parket á forstofu, holi,
stofu og gangi. Ágæt sameign og blokk-
in nýlega tekin í gegn. V. 12,4 m. 3738
Vetrargeymsla
VETRARGEYMSLA Á FELLIHÝSUM OG
TJALDVÖGNUM Í NÝJU OG VÖNDUÐU
HÚSNÆÐI Á GRANDATRÖÐ 5, HAFNAR-
FIRÐI. Upplýsingar í síma 893 3885 og eftir
kl. 19 í síma 555 3132. 3607
Fífuhvammur - Kóp.
Einstaklega vel staðsett einbýli, kjallari og
tvær h., neðst í Suðurhlíðum Kópavogs, gott
útsýni yfir Fífuhvammsland. Skjólgott og fal-
legt umhverfi. Á miðhæð er forstofa, hol,
ágætt eldhús með sérstökum eldri innrétt-
ingum, búr inn af eldhúsi. Baðherbergi og
eitt svefnherbergi. Borðst. (28 fm) og stofa
og sólstofa (samt. 31 fm). Á efri hæð eru baðherbergi, fjögur stór svefnherbergi, bað-
herbergi og línherbergi/geymsla. Í kjallara er þvottahús, geymslur og innangengt í ca
40 fm bílskúr. Garðurinn er stórkostlegur, fjölbreyttur blóma- og trjágróður, verönd
fyrir framan húsið og heitur pottur, tvö gróðurhús á baklóð. V. 33 m. 3742
Veghús - 5 herb. á tveim h.
Mjög rúmgóð og falleg 5 herbergja íbúð á
tveimur hæðum sem skiptist í: Neðri hæð:
Forstofa, stofa, borðstofa, eldhús, gesta-
snyrting. Efri hæð: Stigi, gangur, þrjú svefn-
herbergi, baðherbergi og þvottahús/-
geymsla. Stórar suðursvalir. Gólfefni, park-
et og flísar. Falleg íbúð sem vert er að
skoða. V. 18,2 m. 3812
Gautland - 2ja herbergja
Góð 60 fm 2ja herbergja íbúð í litlu fjölbýlis-
húsi í Fossvogi. Hol með skáp, eldhús, góð
stofa með útgengi á 30 fm afgirta suðurver-
önd, flísalagt baðherbergi og rúmgott
svefnherbergi með skápum. Parket og flísar
á gólfum. Sameign öll að utan sem innan er
í góðu standi. V. 10,4 m. 3367
Hraunbær - 5 herbergja
Mikið endurnýjuð 5 herbergja íbúð á 3. hæð
í góðu fjölbýli í barnvænu umhverfi. Hol
með skáp, eldhús með nýjum tækjum og
borðkrók, þvottahús inn af eldhúsi, stofa
með suð-vestursvölum og miklu útsýni og á
sérgangi eru 4 svefnherbergi og baðher-
bergi. Parket og flísar á gólfum. Sameign
að innan er nýlega máluð, teppalögð og
flísalögð og að utan er húsið Steni-klætt
áveðurs.Barnvænt umhverfi. Stutt er í alla þjónustu, s.s. verslanir, banka, heilsu-
gæslu, skóla, leikskóla, sundlaug o.fl. V. 13,9 m. 3814
Tunguheiði - 3ja herb. + bílskúr
Björt og rúmgóð 96 fm 3ja-4ra herbergja
íbúð á 2. hæð í Steni-klæddu fjórbýli ásamt
31 fm bílskúr. Rúmgott hol eða skáli, eld-
hús með borðkrók, þvottahús, búr, stór
stofa með suð-vestursvölum og glæsilegu
útsýni og á sérgangi eru 2 svefnherbergi og
baðherbergi. Parket á gólfum. Húsið nýlega
Steni-klætt og þakið yfirfarið. Íbúðinni fylgir
rúmgóður 31 fm bílskúr. Stutt er í alla þjónustu s.s. skóla, leikskóla o.s.frv. V. 14,9 m.
3811
BREKKUGATA - HAFNARFIRÐI
Sérhæð Virðuleg 172,2 fm sérhæð á tveim-
ur hæðum á góðum stað við miðbæinn í
Hafnarfirði. Neðri hæðin er 100,6 fm og
skiptist í forstofu, sjónvarpshol, borðstofu,
stofu, eldhús og þvottahús og geymslu.
Þriðja hæðin er 71,6 fm og ca 20 fm svalir,
þar má gera sólskála. Á hæðinni eru 3-4
herbergi og baðherbergi. Gróin lóð með há-
um trjám. 21,8 fm bílskúr getur fylgt. Hús
með karakter og útsýni yfir höfnina. V. 19,9 m. 3791
Stíflusel - góð 4ra - LAUS
Mjög snyrtileg og vel skipulögð 4ra her-
bergja íbúð á 3. hæð sem skiptist í: Hol,
stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi og bað-
herbergi á hæðinni og stóra sérgeymslu
(ekki inn í fmtölulu) og sameiginlegt þvotta-
hús, leikherbergi og hjólageymslu í kjallara.
LAUS VIÐ KAUPSAMNING. V. 11,9 m. 3749
Safamýri - m. bílskúr
Laus fljótl. Ágæt ca 93 fm endaíbúð á 2.
hæð í ágætu stigahúsi. Ca 22 fm bílskúr.
Eldhús með nýlegri innréttingu, suðvestur-
svalir. 3 svefnherb. Gólfefni parket á stofu,
flísar á baðherbergi, dúkur á öðrum gólfum.
Sameign er snyrtileg bæði úti og inni. Bíl-
skúrar hafa nýverið verið teknir í gegn að utan. V. 14,3 m. 3739
SE
LD