Morgunblaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.09.2003, Blaðsíða 2
EF MIÐAÐ er við hverthámark húsbréfalánsvar árið 1989 þegar hús-bréfakerfið var tekið í notkun má færa rök fyrir því að hámarkslán Íbúðalánasjóðs ætti að vera 13,5 til 17,5 milljónir króna í dag. Hámark húsbréfalána Íbúða- lánasjóðs vegna notaðra íbúða er í dag 8 milljónir króna en vegna nýrra íbúða 9 milljónir króna. Hins vegar ber að hafa í huga að þeir sem eiga rétt á viðbótarlánum fá oft á tíðum mun hærri lán sem þá eru samsett af húsbréfaláni og viðbótarláni, enda getur láns- fjárhæð þessa hóps orðið 90% af kaupverði íbúðar. Átta milljónir 1989 Húsbréfakerfið var tekið í notk- un árið 1989. Hámarkslán var þá 8 milljónir króna. Upprunaleg hugs- un kerfisins var að landsmönnum væri gefinn kostur á aðgengi að sem hagkvæmastri lánsfjármögnun til öflunar íbúðahúsnæðis og við- mið voru á þeim tíma sett að há- markslán dygði til kaupa á 4–5 herbergja fasteign eða í raun að meirihluti landsmanna hefði að- gang að ódýrasta lánsfénu til hús- næðiskaupa. Athugun leiðir í ljós að há- markslán Íbúðalánasjóðs væri í dag 13,5 milljónir ef það hefði fylgt lánskjaravísitölu, 14,9 milljónir ef það hefði fylgt byggingavísitölu, 16,9 milljónir ef það hefði fylgt verðhækkunum nafnverðs kaup- samninga á fermetra og 17,5 millj- ónir ef það hefði fylgt launavísitöl- unni. Hámarkslán Íbúðalánasjóðs og forvera hans hafa því á raun- verði verið að lækka nær stöðugt frá upphafi kerfisins og núverandi lán duga vart nema til kaupa á tveggja herbergja íbúð. Fasteignaverð fylgir launaþróun en ekki þróun hámarkslána Íbúða- lánasjóðs. Við athugun á þróun nafnverðs kaupsamninga á fer- metra frá 1989, eða frá stofnun húsbréfakerfisins, kemur í ljós að yfir lengri tíma litið fylgir fer- metraverðið þróun launavísitölu. Ekki er hægt að sjá sama sam- ræmi við skoðun á þróun hámarks- lána Íbúðalánasjóðs og fast- eignaverðs. Raunar má ganga svo langt að álykta að lítil sem engin fylgni sé þar enda ljóst að aðgang- ur heimilanna að lánsfé er á fleiri stöðum, t.d. lífeyrissjóðum og öðr- um fjármálastofnunum. Ætti hámarkslán Íbúðalánasjóðs að vera 13,5–17,5 milljónir í dag? Markaðurinn eftir Hall Magnússon, sérfræðing stefnumótunar og markaðsmála Íbúðalánasjóðs/ hallur@ils.is Innbyrðis þróun fasteignaverðs, hámarkslána og launavísitölu 1989—2003. 2 C MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐFasteignir Grandavegur - Bílskúr Vantar allar gerðir eigna á söluskrá Guðmundur Björn Steinþórsson, löggiltur fasteignasali. Síðumúla 24, 108 Rvík,  564 6464 hof@hofid.is - www.hofid.is Glæsileg 116 fm íbúð á efstu hæð í nýl. fjöleignarhúsi. Íb. er að hluta til á tveimur hæðum. Rúmgóð stofa og borðstofa, eld- hús með útskotsglugga, stórt baðherb., stórt svefnherb. og þvottahús. Á efri palli er alrými með herb. innaf. Vandaðar inn- réttingar og gólfefni. Áhv. byggsj. 5,8 millj. og lífsj. 4,6 millj. Verð 17,9 millj. Vesturberg - Laus Vel skipulögð 2ja herb. íbúð á 3. hæð í 4ra hæða fjöleignarhúsi. Rúmgóð stofa með eikarparketi, vestursvalir með góðu útsýni, þvottahús innaf eldhúsi. Áhv. 7,4 millj. 5,4 millj. og 2,0 millj. viðbótarlán. Verð 8,9 millj. Hólar - Laus Góð 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í nýlega klæddu lyftuhúsi. Tvö rúmgóð svefnher- bergi. Björt stofa með yfirbyggðum vest- ursvölum. Sameiginlegur frystiklefi og þvottahús með tækjum. Kjörin íbúð fyrir aðlila sem á kost á 90% láni. Verð 9,8 millj. Engihjalli - Útsýni 3ja herbergja 90 fm íbúð á 3. hæð í lyftu- húsi. Vel skipulögð stór stofa og gott sjónvarpshol, tvennar svalir, frábært út- sýni. Þvottahús á hæðinni fyrir 3 íbúðir. Áhv. húsbréf 4,2 millj. Verð 10,8 millj. Laus 1. október nk. Gvendargeisli 2-12 Glæsilegar 2-4ra herbergja íbúðir, 90-118 fm, með sérinngangi ásamt stæði í bíla- geymslu. Skilast tilbúnar til innréttinga eða fullbúnar án gólfefna. Verðlauna- hönnum. Íbúðirnar eru til afhendingar í janúar nk. Gvendargeisli Sérstaklega vel skipulagt einbýlishús á einni hæð ásamt innbyggðum bílskúr, alls 206 fm. Húsið afhendist fullbúið að utan með tyrfðri lóð, fokhelt að innan. Fjögur svefnherbergi. Stutt í afhendingu. Verð 18,2 millj. Penthouse - 201 Kópavogur „Penthouse“ - 201 Kópavogur Stórglæsileg 190 fm íbúð á efstu hæð í lyftuhúsi ásamt tveimur stæðum í bíla- geymslu. Stórar og góðar stofur, þrjú sérstaklega stór svefnherbergi, glæsilegt baðherbergi með sturtuklefa og hornkari. Aðeins tvær íbúðir á hæðinni. Vandaðar innréttingar og gólfefni. Frábært útsýni. Áhv. húsbréf 9 millj. Efnisyfirlit Ásbyrgi ........................................... 9 Berg .............................................. 33 Bifröst ............................................ 8 Borgir ......................................... 6—7 Búmenn ........................................ 34 Eignaborg ..................................... 14 Eignalistinn ................................. 15 Eignamiðlun .......................... 12—13 Eignaval .................................... 4—5 Fasteign.is .......................... 28—29 Fasteignamarkaðurinn ....... 10—11 Fasteignamiðlunin ...................... 11 Fasteignamiðstöðin ................... 14 Fasteignasala Mosfellsbæjar .. 16 Fasteignasala Íslands .............. 29 Fasteignastofan ........................... 3 Fasteignaþing ............................. 32 Fjárfesting .................................. 34 Fold ............................................... 47 Foss .............................................. 46 Garður ........................................... 41 Garðatorg .................................... 39 Gimli ............................................. 35 Heimili .......................................... 20 Híbýli ............................................ 38 Hof ................................................... 2 Hóll ....................................... 22—23 Hraunhamar ....................... 24—25 Húsakaup ...................................... 31 Húsavík ........................................ 36 Húsið ............................................ 30 Höfði ....................................... 18—19 Kjöreign ....................................... 37 Lundur ................................. 44—45 Lyngvík ........................................ 48 Miðborg ................................ 40—41 Remax ........................................... 21 Skeifan .......................................... 17 Smárinn ....................................... 30 Stakfell ........................................ 27 Valhöll .................................. 42—43 Xhús ................................................ 9 Kópavogur — Hjá Lyngvík er nú til sölu gott íbúðarhús í Holtagerði 62 í Kópavogi. Um er að ræða 280 ferm. hús sem skiptist niður í 141,5 ferm. sérhæð ásamt um 60 ferm. ósam- þykktri 2ja–3ja herb. íbúð og sam- þykktri um 60 ferm. 3ja herb. íbúð. Í íbúðunum er allt sér. A aðalhæð er komið inn í flísalagða forstofu með fatahengi, lítilli geymslu og gestasalerni, en síðan tekur við parketlagt hol og parketlögð stofa með útgengi á vesturverönd. Svefnherbergin eru tvö og parket- lögð, en þar var áður borðstofa og auðvelt að opna á ný og gera aftur að borðstofu. Eldhúsið er dúklagt og með borðkrók, en þvottahús er inn af eldhúsi. Frá holi eru sjö tröppur upp á svefnhergisgang, en þar eru tvö dúk- lögð svefnherbergi með fataskápum, dúklagt baðherbergi með kari og flís- um á veggjum. Hjónaherbergi er dúklagt og með fataskáp. Ásett verð á þessa íbúð er 14,9 millj. kr. Önnur samþykkt íbúð er í húsinu samkv. framansögðu. Komið er inn í flísalagða forstofu. Hol og stofa eru parketlögð. Svefnherbergin eru tvö og parketlögð og annað með fata- skáp. Baðherbergi er flísalagt og með innréttingu og inn af er flísalagt þvottaherbergi með sturtuaðstöðu. Ásett verð á þessa íbúð er 7,9 millj. kr. Þriðja íbúðin er ósamþykkt. Komið er inn í flísalagða forstofu. Baðher- bergið er rúmgott og flísalagt með sturtuklefa og þvottaaðstöðu inn af. Hol er teppalagt og með fatahengi. Einnig er góð geymsla, rúmgott gluggalaust herbergi, teppalögð stofa, dúklagt gott eldhús með borð- krók og dúklagt svefnherbergi með fataskáp. Ásett verð á þessa íbúð er 6 millj. kr. en samtals er ásett verð fyr- ir allt húsið 28,8 millj. kr. Um er að ræða 280 ferm. hús, sem skiptist niður í 141,5 ferm. sérhæð ásamt um 60 ferm. ósamþykktri 2ja—3ja herb. íbúð og samþykktri um 60 ferm. 3ja herb. íbúð. Í íbúðunum er allt sér. Íbúðirnar seljast ýmist hver fyrir sig eða allt húsið í einu lagi og þá er ásett verð 28,8 millj. kr. Holtagerði 62

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.