Morgunblaðið - 12.11.2003, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 12.11.2003, Qupperneq 2
FRÉTTIR 2 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ STÆKKUN EES Samningurinn um stækkun EES var undirritaður í gær í Vaduz, höf- uðborg Liechtenstein. Halldór Ás- grímsson, utanríkisráðherra ásamt utanríkisráðherrum Noregs og Liechtenstein undirrituðu samning- inn fyrir hönd EFTA-ríkjanna innan EES. Nú tekur við fullgildingarferli en stækkunarsamning EES þarf að fullgilda í öllum núverandi og tilvon- andi aðildarríkjum ESB til þess að hann öðlist gildi á sama tíma og stækkunarsamningur ESB eða hinn 1. maí nk. Sauðfjárbændur fá styrk Ríkisstjórnin samþykkti í gær að leggja til við Alþingi að greiddar verði 140 milljónir króna til sauð- fjárbænda og er miðað við að greiðslan verði innt af hendi fyrir áramót. Guðni Ágústsson landbún- aðarráðherra segir að þessi ákvörð- un sé liður í því að koma til móts við vanda sauðfjárbænda, en talið sé að tekjuskerðing þeirra á þessu ári nemi um 250 milljónum. Raskar lífi Palestínumanna Ein af hjálparstofnunum Samein- uðu þjóðanna segir í nýrri skýrslu að öryggismúr, sem Ísraelar eru að reisa til að hindra ferðir hermd- arverkamanna, muni raska mjög lífi um þriðja hvers Palestínumanns á Vesturbakkanum. Einnig er bent á að múrinn fylgi víðast hvar ekki hefðbundinni markalínu milli Vest- urbakkans og Ísraels heldur nái hann langt inn á palestínsk svæði. Afleiðingin fyrir marga Palest- ínumenn er m.a. að þeir verða að fara um hlið á múrnum til að geta ræktað jarðir sínar handan við hann. Lynch hafnar hetjusögum Bandaríski hermaðurinn Jessica Lynch, sem varð heimsfræg er fé- lagar hennar björguðu henni særðri úr klóm Íraka í miðju stríðinu sl. vor, vísar í nýrri bók um ævi hennar á bug ýmsum frásögnum sem yf- irvöld í hernum komu á kreik um hetjudáðir hennar. Hún ber íröskum læknum og hjúkrunarfólki vel sög- una. Segir hún Írakana hafa reynt að flytja sig til bandaríska herliðsins í bíl en orðið að hörfa þegar Banda- ríkjamenn skutu á bílinn. FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI SÍMI 555 6025 • www.kia.is KIA ÍSLAND Bílar sem borga sig! S u ð u r l a n d s b r a u t 2 2 S í m i 5 4 0 1 5 0 0 w w w. l y s i n g . i s LÝSING Alhliða lausn í bílafjármögnun VOLKSWAGEN TOUAREG 5 OG 10 STROKKA DÍSILÚTGÁFUR  GEGN FJARSTARTI  GULLNA STÝRIÐ  MAZDA 3 HARLEY DAVIDSON  UMHIRÐA BÍLA  NÝR OPEL VECTRA  Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Þjónusta 31 Viðskipti 12/13 Viðhorf 32 Erlent 14/15 Minningar 32/37 Heima 16 Bréf 40 Höfuðborgin 17 Dagbók 42/43 Akureyri 18 Staksteinar 42 Suðurnes 19 Kirkjustarf 43 Landið 19 Sport 44/47 Daglegt líf 20/21 Fólk 48/53 Listir 22/24 Bíó 50/51 Umræðan 25/27 Ljósvakamiðlar 54 Forystugrein 28 Veður 55 * * * VERÐMÆTI birgða hjá kjúklinga- búinu Móum er áætlað um 100 millj- ónir króna. Inni í þeirri tölu er bæði frystur og ferskur kjúklingur. Ást- ráður Haraldsson, skiptastjóri Móa, segist enga ákvörðun hafa tekið um ráðstöfun birgðanna, en vonast eftir að geta selt þær ásamt öðrum eign- um þrotabúsins. Viðræður um sölu eignanna hafa enn ekki skilað árangri. Í fyrravetur var heildarfram- leiðsla á kjúklingum mun meiri en sala og fór því umtalsverður hluti framleiðslunnar beint í frysti- geymslur. Heldur hefur gengið á birgðir á síðustu mánuðum. Ástráður sagðist í samtali við Morgunblaðið ekki hafa upplýsingar um hvað birgðir Móa væru miklar í tonnum talið. Skráð heildsöluverð í bókhaldi væri hins vegar um 100 milljónir. Lifandi fuglar væru aftur á móti metnir á 30 milljónir. Hann sagði að ýmislegt gæti haft áhrif á þetta verðmat, svo sem flokkun kjötsins og aðstæður á markaði. Ástráður sagðist enga ákvörðun hafa tekið um ráðstöfun birgða og kvaðst vonast til að hann þyrfti ekki að taka slíka ákvörðun. Hann sagð- ist alveg gera sér grein fyrir að ráð- stöfun þessara birgða gæti haft áhrif á kjötmarkaðinn í heild. Ástráður kvaðst stefna að því að selja þessar eignir þrotabúsins ásamt öðrum eignum. Það væri síð- an mál nýs eigenda að taka ákvörð- un um ráðstöfun birgðanna. Sláturhús Móa ekki afhent Ferskum kjötvörum Eins og greint var frá í fréttum fyrir skömmu var gerður kaup- samningur milli Ferskra kjötvara og Landvers, en það fyrirtæki er eigandi húsnæðisins í Mosfellsbæ sem sláturhús og kjötvinnsla Móa er í. Móar gerðu, áður en húsið var reist, leigusamning við þann sem tók að sér að byggja það. Kaup- samningurinn, sem gerður var milli Landvers og Ferskra kjötvara í síð- asta mánuði, gerði ráð fyrir að Landver afhendi Ferskum kjötvör- um húsnæðið um miðjan nóvember. Ástráður sagði að húsnæðið yrði ekki afhent á þeim tíma og óljóst væri hvaða gildi þessi samningur hefði. Hann sagði að stjórnendur Ferskra kjötvara hefðu ekki sýnt sér neinn kaupsamning og ekki gert neina formlega kröfu um að fá húsið afhent. „Þeir hafa haldið því fram í samtölum við mig, að það væri ekki í gildi neinn leigusamningur við Móa og á þeim forsendum hafa þeir neitað að sýna mér kaupsamning- inn. Málið er því í dálítið óljósri stöðu, svo ekki sé fastar að orði kveðið.“ Ástráður tók fram að þó að það væri meiningarmunur á milli for- svarsmanna Ferskra kjötvara og þrotabús Móa ætti eftir að koma í ljós hvort reyndi á þennan ágrein- ing. Það réðist að nokkru leyti af því hvernig mál þróuðust á næstunni. „Það gæti hins vegar reynt á þetta ef einhver aðili vill kaupa eignir þrotabúsins og að þrotabúið gangi inn í þennan kaupsamning sem for- gangsréttarhafi,“ sagði Ástráður og bætti við að það væri alveg á hreinu að Móar hefðu þennan forkaupsrétt. Þetta kæmi fram með skýrum hætti í skriflegum leigusamningi Móa um sláturhúsið á Völuteigi 2 í Mos- fellsbæ. Skiptastjóri þrotabús Móa efast um gildi kaupsamnings um sláturhús félagsins Verðmæti kjúk- lingabirgða met- ið á 100 milljónir VEÐURGUÐIRNIR hristu sig sérdeilis hryss- ingslega á börnin á leikskólanum Klömbrum þegar þau klifruðu upp á hól í gær og slepptu blöðrum út í vindinn í tilefni af evrópska Comenius verkefninu. Börn víða um Evrópu slepptu blöðrum upp í loftið kl. tíu mínútur yfir eitt að íslenskum tíma. Blöðrurnar fuku yfir Reykjavík í áttina að Skólavörðuholtinu og í um það bil mínútu var engu líkara en það væri sautjándi júní og allir væru að missa blöðrurnar sínar. Vindurinn og rigningin léku sér við blöðrurnar þegar þær bárust yfir borgina í vestnorðvesturátt, burt frá meginlandi Evrópu í humátt til Græn- lands. Kannski var forsjónin að minna okkur á að frændur okkar Grænlendingar eru líka Evrópuþjóð. Hver sem orsökin er var það fal- leg og skemmtileg sjón að horfa á blöðrurnar léttar og máttlausar verða leiksoppa veð- urguðanna og tætast um loftin í leit að áfangastað. Blöðrum sleppt út í vindinn Morgunblaðið/Kristinn EFNAHAGSBROTADEILD ríkis- lögreglustjóra hefur ákært 38 ára karlmann fyrir fjárdrátt og fjársvik vegna blekkinga í hlutabréfakaupum með bréf í deCODE, móðurfélagi Ís- lenskrar erfðagreiningar. ÍE gerir kröfu um skaðabætur upp á 2,2 millj- ónir króna með dráttarvöxtum. Ákærði er sakaður um fjárdrátt með því að hafa dregið sér hlutabréf í deCODE þann 17. febrúar 2000 að verðmæti 8,3 milljónir króna, með því að setja það í Íslandsbanka að hand- veði. Segir í ákæruskjali að ákærði hafi nokkrum vikum fyrr selt bréfið með rafrænum hætti til Verðbréfa- stofunnar fyrir 7,7 milljónir króna. Þá er ákærði sakaður um fjársvik með því að hafa hinn 17. apríl 2000 blekkt deCODE til þess að ógilda framangreint hlutabréf sem þann dag var að verðmæti tæpar 6,6 milljónir króna og ganga með því í fjárhags- lega ábyrgð vegna þess, og til þess að gefa út nýtt hlutabréf í þess stað með því að framvísa í símbréfi við hluta- skrá fyrirtækisins skjali sem ákærði hafði undirritað þar sem hann lýsti því yfir að hann væri eigandi hluta- bréfsins og það væri glatað og fór fram á að fyrirtækið gæfi út nýtt bréf í þess stað. Við þingfestingu málsins í gær tók ákærði sér frest til að tjá sig um sak- arefnið. Málið verður tekið fyrir 27. nóvember. Ákærður fyrir milljónasvik með bréf í deCODE

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.