Morgunblaðið - 12.11.2003, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 12.11.2003, Blaðsíða 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2003 37 vandfundna, eigi sigur að vinnast. Og það er við leikslok, sem spurn- ingin sækir á okkur: Hef ég gengið götuna til góðs? Til hvers var þetta líf? Við kunnum að stæra okkur af völdum, frama, aurum og þar fram eftir götunum, en eigum við ekki gæskuna, hvað eigum við þá? Ef lífið er til að elska og vera elskaður, þá hefur Sóley Brynjólfsdóttir staðist þá prófraun og það með láði. Mér skilur hún eftir fyrirmynd, þá fyr- irmynd, að ef ég uppsker þau um- mæli við mín lífslok að hafa verið góð manneskja, þá fyndist mér ég ekki hafa lifað til einskis. Þá gæti ég dáið með bros á vör. Ég votta Bryndísi mína dýpstu samúð, sem og föður hennar, Bjarna Ágústssyni, þeim mæta sómamanni, Glúmi og Melkorku og bið Sóleyju Guðs blessunar og hans eilífa kær- leikans skjóls. Aldís Baldvinsdóttir. Það verður ekki hjá því komist að þegar lífsstrengurinn slitnar verkar það hjá okkur sem eftir sitjum eins og skammhlaup, það slitnar eitthvað innra með okkur og við fyllumst söknuði og trega. Mágkona mín Sóley Brynjólfs- dóttir er látin og kveð ég hana með sárum söknuði. Día sem hún var allt- af kölluð, kynntist ung eftirlifandi eiginmanni sínum, Bjarna Ágústs- syni. Þau eignuðust einn son, Agnar, sem lést af slysförum á fjórða ári og varð það þeim hjónum mikill harm- ur. Eftir sonarmissinn fluttust þau til Bandaríkjanna og bjuggu þar næstu fimm árin. Nokkrum árum eftir heimkomuna reistu þau sér fallegt hús í góðu umhverfi þar sem elsku- leg og kærkomin dóttir þeirra Bryn- dís ólst upp og síðar fæddist lítill sól- argeisli barnabarn Díu og Bjarna, Melkorka Sóley. Það eru orðin rúm fjörtíu ár síðan ég kynntist Díu. Frá fyrstu kynnum okkar fannst mér alltaf einhver æv- intýraljómi yfir henni, þær eru góðar stundirnar sem við áttum saman og er þar helst að nefna matarboðin sem voru engu lík, oft með vinum þeirra, og svo jólaboðin þar sem fjöl- skyldur okkar komu saman, og nut- um við kræsilegra veitinga Díu. Día var glæsileg kona, ákveðin, lá ekki á skoðunum sínum, en um leið mikill húmoristi og sá oft spaugilegu hliðarnar á hlutunum. Þau hjónin lögðu mikla rækt við að eignast fal- legt heimili þar sem smekklegheitin voru í hávegum höfð. Í mörg ár áttu þau hjónin sinn sælureit við Langá í Borgarfirði. Við hjónin áttum margar góðar stundir í sumarhúsi þeirra. Vináttuna og gleðina sem ég átti með þér í yfir fjörtíu ár varðveiti ég í hjarta mínu. Elsku Bjarni, Bryndís og Mel- korka Sóley, Guð styrki ykkur og varðveiti. Ásgerður Hjörleifsdóttir. Sóley var alltaf kölluð Día. Día og Bjarni móðurbróðir okkar bjuggu í næsta húsi við okkur í Garðabæ. Día og Bjarni voru tryggir nágrannar og vinir fjölskyldu okkar. Día var ákveðin kona sem sagði meiningu sína á einlægan hátt. Hún var ekki allra, eins trygga og bóngóða mann- eskju var vart að finna. Þau voru ófá skiptin sem hún setti permanett í hárið á okkur systrum. Día var mjög vel klædd og snyrt alla tíð. Hún valdi falleg og vönduð föt á fjölskylduna og fór í utanlandferðir með móður okkar. Día var mjög góður kokkur og Bjarni annálaður matmaður eins og allt hans fólk. Bjarni og Día bjuggu í Bandaríkjunum í nokkur ár. Þegar þau fluttu heim var spennandi að heimsækja þau og skoða allt fína dótið sem þau fluttu með sér. Heimili þeirra var ætíð smekklegt, fallegt og framúrskarandi hreint. Þeim leið vel þrátt fyrir að hafa misst drenginn sinn á unga aldri. Minnisstætt er þegar Día varð veðurteppt í Reykjavík vegna vinnu sinnar. Hún hringdi í Bjarna og bað hann að sækja sig á vörubílnum. Hann sagði Hafnarfjarðarveginn vera ófæran og hún yrði bara að bíða. Día sagði þá að bragði: „Þetta reddast allt, ég tek bara leigubíl.“ Hún var fljóthuga og að þessu atriði var lengi hlegið. Okkur systkinunum fannst mjög spennandi þegar það fréttist að Día og Bjarni fengju litla stúlku. Bryndís kom sem himnasending inn í líf þeirra. Allt breyttist í tilverunni bæði hjá okkur og þeim. Við fórum auðvitað yfir til að skoða Bryndísi, þetta rólega, fallega barn. Foreldrar okkar pössuðu Bryndísi fáeinar næt- ur þegar hún var að taka tennur til að hvíla Bjarna og Díu. Það voru við- brigði að taka að sér lítið barn komin á þennan aldur. Tanntakan tók slík- an tíma að Día leitaði til tannlæknis með Bryndísi því hún hélt að tenn- urnar ætluðu aldrei að koma. Bryn- dís lærði heimspeki og var um tíma erlendis í námi. Hún á eina dóttur, Melkorku með sambýlismanni sín- um. Hin síðari ár hafa verið Bjarna og Díu erfið vegna sjúkleika. Þau hafa haldið heimili og stutt hvort annað dyggilega. Samferð okkar systkinanna með Díu hefur verið ánægjuleg og góð. Við sendum Bjarna, Bryndísi, Melkorku og öðr- um aðstandendum samúðarkveðjur okkar. Börn Aðalbjargar og Atla. Sláttumaðurinn slyngi hefur verið ötull að fella grösin í ranni föðurfjöl- skyldu minnar á þessu ári. Föður- systur mínar tvær, Aðalbjörg og Sig- urlín, létust og nú Sóley, eiginkona föðurbróður míns Bjarna. Þegar Día, eins og hún var jafnan nefnd, og móðir mín Ingibjörg urðu svilkonur tókst með þeim vinátta sem hvorki mölur né ryð fékk grand- að. Á uppvaxtarárum mínum í Hafn- arfirði voru Día og Bjarni órjúfan- legur hluti tilverunnar. Daglegt samband var á milli foreldra minna og þeirra og samgangur mikill. Hvort sem var á stórhátíðum eða við önnur tækifæri. Það var alltaf glatt á hjalla á þessum samverustundum mikið hlegið, spilað, málin rædd og reifuð og öllum leið vel. Día og Bjarni dvöldu í Bandaríkj- unum á árunum 1957-1961 og það ríkti mikil eftirvænting í litlum hjörtum þegar von var á þeim í heim- sókn og eins að opna jólgjafirnar og í hlut okkar systranna komu framandi leikföng og hlutir frá landinu fyrir vestan og það var í huga okkar baðað dýrðarljóma. Þær voru alsælar vinkonurnar þegar þau komu aftur heim og allt varð eins áður. Día var einstaklega myndarleg húsmóðir og heimili þeirra var til fyrirmyndar, smekklegt og hrein- legt. Sjálf var hún alltaf eins og klippt út úr tískublaði, sannkölluð heimsdama. Matargerð lék í höndum hennar og fór ég á námsárum mínum iðulega til hennar í hádegismat og alltaf fylgdi skemmtilegt spjall yfir krásunum. Día átti auðvelt með að setja sig í spor unglingsins og það var gott að ræða við hana á því aldursskeiði sem og síðar. Hún hafði einstaka kímnigáfu og kom auga á það broslega í amstri dagsins og það var alltaf líflegt í kringum hana og margt sem lá henni á hjarta. Sérstakt yndi hafði hún af léttri tónlist sem var leikin við hvert tækifæri. Þá var jafnvel tekið sporið og sungið með. Día og Bjarni urðu fyrir þeirri óbærilegu sorg að missa einkabarnið sitt, aðeins þriggja ára. Día bar alla tíð örin eftir það og gat virkað á marga sem köld hið ytra en við sem gerst þekktum vissum að hið innra brann eldur. Díu og Bjarna varð ekki annarra barna auðið en tóku kjördóttur, Bryndísi, árið 1972 sem veitti þeim ómælda hamingju og gleði. Ekkert var nógu gott fyrir einkadótturina og síðar barnabarnið Melkorku Sól- eyju. Nú eru vinkonurnar Día og mamma saman á ný en meðan báðar lifðu máttu þær vart hvor af annarri sjá. Það syrtir að er sumir kveðja og sérstakleg þeir sem hafa verið nánir samferðamenn alla tíð. Blessun fylgi föðurbróður mínum Bjarna, Bryndísi og Melkorku Sól- eyju. Sumir kveðja og síðan ekki söguna meir. Aðrir með söng, sem aldrei deyr. (Þ.V.) Lilja Hilmarsdóttir. Sem vinkona Bryndísar dóttur Díu og gamall heimagangur við Stór- ás 7, langar mig að rifja upp gamla tíma. Við Bryndís lékum okkur mikið saman og völsuðum út og inn, sjálf- sagt skildum við húsið eftir í rúst, en það skipti engu máli. Barbí út um alla stofu var umborið með jafnaðar- geði. Það var alltaf svo gott and- rúmsloft á heimilinu. Bjarni og Día voru klettar í hafinu, sem skiptu aldrei skapi og létu mig finna að ég var velkomin. Það var alltaf eitthvað gott með kaffinu, og svo fengum við líka kennslu í kökubakstri ef svo bar við. Oftast var líka auðsótt mál að fá að gista á víxl, og sýndu Bjarni og Día þá talsverða færni í að heyra ekki pískur og hlátur sem stóð langt fram á nótt. Ekki var síðra að fá að koma með á Mýrar, í bústaðinn sem svo mikið var nostrað við. Þar var yndislegt að vera og ýmislegt bjástr- að, farið í berjamó og „villst“ í kjarr- inu. Árin liðu en sumt breyttist ekki. Til dæmis var erfitt að hugsa sér gamlárskvöld án þess að bregða sér niður á Stórás til að skála við Bryn- dísi, Bjarna og Díu. Margar góðar minningar eru tengdar fjölskyldunni Stórási 7, og vil ég þakka fyrir þær. Nú þegar Día er farin er hugurinn hjá Bjarna og Bryndísi. Guð veiti ykkur styrk til að takast á við þennan missi. Guðrún Arnbjörg. Í dag er hún Día vinkona okkar jörðuð og hugurinn hvarflar aftur í tímann. Strandgatan á áttundaára- tugnum, Geiri Jóels. með skóbúðina, Gunnlaugur Magg, Bergþóra Ný- borg og á hinum endanum Hafnar- borg. Í Hafnarborg fékkst allt á milli himins og jarðar og þar vann skemmtilegt fólk á öllum aldri. Við unnum í snytivörudeildinni og fljót- lega eftir að við hófum þar störf bættist ný kona í hópinn. Það var Sóley sem alltaf var kölluð Día, nokkuð eldri en við – hvernig skyldi hún falla í hópinn? Día varð strax vinkona okkar, þessi glæsilega kona var heimsborgari fram í fingurgóma, glöð, bjartsýn og umfram allt frábær vinur og vinnufélagi. Heimsóknir í Stórásinn voru oft ævintýri líkastar og þar kynntumst við listisemdum í mat og drykk. Líf Díu tók miklum breytingum þegar Bryndís kom inn í líf þeirra Bjarna og nú tóku við nýjir tímar, tímar barnauppeldis og tíðra heimsókna. Bryndís var sólargeisl- inn í lífi þeirra og fylgdumst við með henni vaxa og dafna. Seinna bættist svo annar sólargeisli í líf þeirra þeg- ar Bryndís eignaðist dóttur. Síðan skildu leiðir og heimsóknum fækkaði en við fylgdumst alltaf hver með annarri og vinátta Díu var okk- ur mikilvæg og minnumst við hennar með þakklæti. Elsku Bjarni, Bryndís og fjöl- skylda við vottum ykkur samúð okk- ar, minningin um heimsborgarann vinkonu okkar mun lifa um ókomna tíð. Ásta Sigurðardóttir og Sigurbjörg Ármannsdóttir. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BJÖRG ÞORKELSDÓTTIR, Valdastöðum í Kjós, síðast vistmaður á Litlu Grund, sem lést á Landspítalanum Fossvogi fimmtu- daginn 6. nóvember, verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn 14. nóvember kl. 13.30. Katrín Sjöfn Sigurbjörnsdóttir, Magnús Sveinsson, Maríus Sigurbjörnsson, Sigríður Sverrisdóttir, Guðmundur Sigurbjörnsson, Gréta Tryggvadóttir, Sigurbjörn Ó. Ragnarsson, Elín Guðmundsdóttir, Halldór J. Ragnarsson, Björk Óskarsdóttir, Tómas A. Baldvinsson, Jóna Björg Pálsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, HELGI G. ÞÓRÐARSON verkfræðingur, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnar- firði fimmtudaginn 13. nóvember kl. 13.30. Thorgerd E. Mortensen, Þórður Helgason, Halldóra D. Kristjánsdóttir, Daníel Helgason, Vigdís Jónsdóttir, Hallur Helgason, Kolbrún Ýr Gísladóttir, Kristín Svanhildur Helgadóttir, barnabörn, Þórunn Þórðardóttir. Innilegar þakkir færum við þeim fjölmörgu sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát móður minnar, systur og mágkonu, INGUNNAR HALLSDÓTTUR, Boðagranda 7, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar Landspítalans í Kópavogi og deildar 11E við Hringbraut fyrir einstaka umönnun og hlýhug. Hallur Örn Jónsson, Erlingur Hallsson, Ásta Tryggvadóttir, Aðalsteinn Hallsson, Ebba Stefánsdóttir, Sigríður Björg Eggertsdóttir, Guðmundur Geir Jónsson og aðrir aðstandendur. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐJÓN ELÍASSON, Víðilundi 20, Akureyri, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju föstu- daginn 14. nóvember kl. 10.30. Helga Ingimundardóttir, Ásmundur Guðjónsson, Erna Melsted, Þorsteinn Guðjónsson, Sigríður H. Ármannsdóttir, Helga Guðjónsdóttir, Jón B. Arason, Haukur Guðjónsson, Guðrún Hilmarsdóttir, barnabörn og langafabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SVEINSÍNA JÓNSDÓTTIR, Brekkugötu 7, Ólafsfirði, sem lést á hjúkrunardeild Hornbrekku fimmtu- daginn 6. nóvember, verður jarðsungin frá Ólafsfjarðarkirkju laugardaginn 15. nóvember og hefst athöfnin klukkan 13.30. Aðstandendur. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu- síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.