Morgunblaðið - 12.11.2003, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 12.11.2003, Blaðsíða 15
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2003 15 hafi verið nauðgað á þessum þrem- ur klukkustundum, sem hún man ekki eftir sér. Þessu neita læknarnir á íraska sjúkrahúsinu algerlega í viðtölum við fréttamenn. Segjast þeir hafa rannsakað hana vel og ekki hafi verið um neitt slíkt að ræða. Í bókinni segir líka, að Lynch hafi neitað að láta taka af sér ann- an fótinn eins og írösku læknarnir hafi viljað. Björgunin sviðsett Lynch var níu daga á sjúkrahús- inu en þá lét íraskur lögfræðingur Bandaríkjamenn vita hvar hún væri niðurkomin og var hún þá sótt. Gekk mikið á við „björgun“ hennar, sem var mynduð í bak og fyrir, en það var bara sviðsetning enda engir íraskir hermenn á staðnum. Í bókinni segir Lynch við Bragg, að hún vildi, að Íraksstríðið hefði aldrei átt sér stað því að þá hefðu aðrir hermenn ekki fallið. „Við gerðum það, sem til var ætlast af okkur og fórum í stríð en ég vildi, að ég hefði ekki gert það,“ segir Lynch. ’ Gekk mikið á við„björgun“ hennar en það var bara svið- setning. ‘ KÍNVERSKIR sérfræðingar í bar- áttunni gegn alnæmi og mannrétt- indahreyfingin Human Rights Watch skoruðu í gær á stjórn Kína að gera grein fyrir raunverulegu umfangi alnæmisfaraldursins í land- inu og gera þegar í stað ráðstafanir til að stemma stigu við útbreiðslu sjúkdómsins. Kínversk stjórnvöld hafa verið sökuð um að hafa van- metið fjölda þeirra er smitast hafa af HIV-veirunni sem veldur alnæmi. Sérfræðingarnir kröfðust þess að beitt yrði svipuðum aðferðum og þegar barist var gegn bráðu lungnabólgunni, eða heilkenni al- varlegrar og bráðrar lungnabólgu (HABL), með góðum árangri fyrr á árinu. Zeng Yi, sérfræðingur í alnæm- isfaraldrinum við Sjúkdómavarna- stofnun Kína, sagði að stjórnin þyrfti að koma upp höfuðstöðvum „með raunveruleg völd“ til að stjórna baráttunni gegn útbreiðslu alnæmis í landinu. „Við ættum að segja fólki frá því hvernig ástandið er í raun og veru og gera ráðstaf- anir sem bera árangur,“ sagði hann. „Við þurfum að gera allt sem við getum til að finna alla HIV-smitber- ana og alnæmissjúklingana og veita þeim læknisþjónustu og stuðning.“ Ummæli Zengs endurspegla þá skoðun margra sérfræðinga að op- inberu tölurnar um alnæmisfarald- urinn í Kína séu alltof lágar. Óttast refsingu Stjórnskipuð nefnd á að stjórna baráttunni gegn alnæmi en hana skortir völd til að grípa til nauðsyn- legra aðgerða. Embættismenn heil- brigðisráðuneytisins viðurkenna að þeir hafi ekki getað komið á nægu samstarfi við héraðsstjórnirnar þar sem sumar þeirra vildu frekar leyna vandamálinu til að komast hjá refs- ingu eða af ótta við að fæla fjárfesta frá héruðum þeirra. Human Rights Watch hvatti stjórnina til að vernda réttindi þeirra sem smitast hafa af HIV- veirunni. Samkvæmt nýlegri skýrslu mannréttindahreyfingarinn- ar hafa mörg sjúkrahús neitað að taka við HIV-smituðum sjúklingum og hermt er að fátækir bændur, sem smituðust við blóðgjöf í Henan- héraði, hafi verið barðir og fangels- aðir fyrir að óska eftir aðstoð stjórnvalda. Stjórnvöld í Kína sökuð um að vanmeta fjölda HIV-smitaðra            !  "#! $ %     % % &'()*+,,&   -./01 23 ."4..51 "67.8-9 : :/- 2   % % ;  <    #=      %         >    $ ? @   $  ? $  #     % % ;         $     ! $  &    &'()*(( +    &'('*'A                                  A    &''B* !"#  $   %   $ &          '   ()*   *+,-./0 )(11/,2 3 0 ,  ",2/,2 456 4766457666 57664467666 8467666 54466 464566 56447666     <   49666  :9666 ;9666 <9666 =9666 59666 >9666 ?9666 @9666 49666 6 4:;5 4:;< 4:;: 4::4 4::? 4::5 4::< 4::: @664    3   &     ;>676663      !"#;67666    1      4495 & 3           '    77 746 &  @646 %A,,, Greint verði satt og rétt frá út- breiðslu alnæmis Peking. AFP. TYRKNESK kona læsti eigin- mann sinn nakinn inni í baðher- bergi í þrjú ár og bar það fyrir sig að hann væri geðbilaður, að sögn tyrkneskra fjölmiðla. Eiginmaðurinn, 41 árs auðug- ur iðnrekandi, fannst nakinn og í losti á flísalögðu gólfi við sturtu baðherbergisins. Á gólf- inu var skál fyrir matinn hans. Hyggst skilja Eiginkonan sagði að enginn vafi léki á því að maðurinn væri genginn af göflunum vegna þess að hann færi þrisvar sinnum í sturtu á hverjum degi. Hún kvaðst nú ætla að skilja við hann eftir 15 ára hjónaband. „Markmið hennar var að gera mig veikan, þannig að ég myndi deyja og hún erfa allar eign- irnar mínar,“ sagði eiginmað- urinn. Hann bætti við að hún hefði skemmt sér með öðrum karlmönnum meðan hann var læstur inni í baðherberginu. Maðurinn fannst eftir að ná- grannar gerðu móður hans við- vart og hún hringdi í lögregl- una. Eiginkonan verður ákærð og maðurinn fær nú geðlæknis- hjálp vegna sálræna áfallsins. Læsti eigin- manninn inni á baði í þrjú ár Istanbúl. AFP. ÁHORF á bandarískt sjónvarp hef- ur minnkað að undanförnu og er það hið versta mál fyrir sjónvarps- stöðvarnar. Bíða þær nú í ofvæni eftir útkomunni í þessum mánuði en áhorfið í nóvember og tveimur öðrum mánuðum ræður mestu um auglýsingaverðið. „Undanfarnir mánuðir hafa verið ein versta sjónvarpsvertíð í manna minnum,“ segir sjónvarpsrýnirinn Ed Martin og aðrir taka svo djúpt í árinni að segja, að það sé eins og sjónvarpið sé eitthvað, sem hafi til- heyrt síðustu öld. Sagði frá þessu í Berlingske Tidende í gær. Áhorf hefur minnkað mikið hjá fimm af sex stærstu stöðvunum og aðeins er um nokkra aukningu að ræða hjá þeirri sjöttu, Fox-stöðinni. Er hún öll rakin til þess, að hún er með einkarétt á sýningum frá hafnaboltanum. Mestur er samdrátturinn í áhorfi ungra karlmanna, til jafnaðar 8% en á sumum tímum allt að 30%. Hjá sjónvarpsstöðvunum var tal- ið, að svokallað raunveruleika- sjónvarp væri öruggt til vinsælda en þegar Fox reyndi að fylgja eftir smelli síðasta árs, „Joe Millionaire“, mistókst það algerlega. Af ein- stökum þáttum má nefna, að áhorf á „Vini“ hefur minnkað um 23%, á „New York Blues“ um 23% einnig, á „Allir elska Raymond“ um 9% og um 16% á „Bráðavaktina“. Nóg kom- ið af sjón- varpi? gegn sprengjuhríð Bandaríkja- manna, sem varð til þess, að hann blindaðist á öðru auga, og tókst að snúa á útsendara Baath-flokksins, sem hefðu verið á hælunum á hon- um. Reheef segist ekki hafa neinar áhyggjur af því þótt þeim beri ekki alveg saman, Jessicu og honum. „Ég veit, að hún þjáðist mikið,“ segir hann. Ýmsir hafa gagnrýnt það, að ver- ið sé að upphefja hlut einstakra her- manna vegna þess, að það sé yf- irleitt á kostnað annarra og sumir segja, að ekkert hafi verið gert með Shoshana Johnson, sem var fangi Íraka um skeið, vegna þess, að hún er svört og innflytjandi frá Panama. Lynch aftur á móti er bandaríska ímyndin holdi klædd, ljóshærð stúlka frá Vestur-Virginíu. ÞAÐ var 56 stiga frost fyrir utan en skilaboðin í tölvu Vísindamiðstöðvar suðurheimskautsins vöktu vísindamönnunum annars konar hroll. „Ég hef brotist inn í netþjóninn ykkar. Borgið mér, ann- ars sel ég gögn stöðvarinnar og segi öllum heim- inum hversu berskjaldaðir þið eruð,“ sagði í tölvu- póstinum. Til að sanna að þetta væri ekki gabb fylgdu skilaboðunum vísindaleg gögn sem sýndu að fjárkúgarinn hafði komist inn í tölvukerfi vísinda- miðstöðvarinnar. Bandaríska alríkislögreglan, FBI, rakti tölvu- póstinn til netkaffihúss í Búkarest og aðstoðaði rúmensku lögregluna við að handtaka tvo Rúmena. Þetta mál er nýjasta vísbendingin um að ungir Rúmenar með mikla tölvuþekkingu séu orðnir mjög umsvifamiklir á sviði tölvuglæpa. „Þar sem þeir eru mjög óánægðir með hversu fá störf eru í boði í Rúmeníu hafa nokkrir af hæfi- leikaríkustu tölvunemum heims tekið að nýta hæfi- leika sína á netinu,“ sagði í nýlegri skýrslu IFCC, bandarískrar stofnunar sem tekur við kvörtunum fólks sem verður fyrir barðinu á netglæpamönnum. Tölvuþrjótum óx ásmegin í Rúmeníu vegna þess að þar voru ekki sett lög gegn tölvuglæpum fyrr en í ár, en þau eru reyndar á meðal þeirra hörðustu í heiminum. Samkvæmt nýju lögunum varða tölvu- glæpir allt að fimmtán ára fangelsi, sem er meira en helmingi þyngri dómur en hámarksrefsingin fyrir nauðgun. Verulega dró úr tölvuglæpunum fyrstu þrjá mánuðina eftir að lögin tóku gildi. Yfir 50 Rúmenar handteknir Yfir 50 Rúmenar hafa verið handteknir á síðustu mánuðum með aðstoð FBI og eftirlitsstofnana í Bandaríkjunum, lögreglunnar í Bretlandi og yfir- valda í fleiri Evrópulöndum. Á meðal þeirra eru tveir Rúmenar sem grunaðir eru um að hafa reynt að kúga fé af farsímafyrirtæki í Alabama í Banda- ríkjunum eftir að hafa stolið upplýsingum um 30.000 kreditkortareikninga. Þótt Rússar séu þekktari fyrir fjárkúganir á net- inu eru Rúmenar orðnir mjög umsvifamiklir í slíkri starfsemi og hún hefur einnig aukist í Búlgaríu, Póllandi og Slóveníu. Rúmenar voru fljótir að til- einka sér upplýsingatæknina þar sem rúmenskir ráðamenn hafa lagt mikið upp úr tölvukennslu allt frá valdatíma Nicolae Ceausescus einræðisherra sem leit á tölvur sem mikilvægt vopn í hugmynda- fræðilegri baráttu kommúnista. Þar sem Rúmenar voru of fátækir til að geta keypt forrit frá Vest- urlöndum stóð ólögleg útgáfa með miklum blóma í landinu. Rúmenar byrja að læra á tölvur í leikskóla. Rúmenskir háskólar þykja standa framarlega á sviði upplýsingatækni og margir sem þeir braut- skrá fá störf í vestrænum fyrirtækjum.Þessi mikla tölvukunnátta Rúmena hefur einnig getið af sér netvampírur sem herja á fólk í fjarlægum löndum. Rúmensku netglæpamennirnir bjóða oft rafeinda- tæki og annan varning á netinu, taka við pöntun- um, staðfesta „vörusendinguna“ og hverfa síðan um leið og greiðslan berst þeim. Bandarískum yfirvöldum berast hundruð kvart- ana á dag vegna slíkra svika og mörg tilvikanna eru rakin til Rúmeníu þar sem glæpamennirnir nota netkaffihúsin til að komast hjá handtöku. Nokkrir þeirra hafa hannað vefsíður sem líkjast vefsetrum fyrirtækja á borð við eBay. Kaupendurnir telja sig hafa keypt vörur af eBay en glæpamenn fá pen- ingana og vörurnar eru aldrei sendar. Tölvuþrjótar í Rúmeníu Búkarest. AP. ’ Tölvukunnátta Rúmenahefur einnig getið af sér net- vampírur sem herja á fólk í fjarlægum löndum. ‘
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.