Morgunblaðið - 12.11.2003, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 12.11.2003, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2003 53 EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.30, 8 OG 10.30. Beint á toppinn í USA Ævintýraleg spenna, grín og hasar ROGER EBERT Empire Kvikmyndir.is SV MBL “Fyndnasta barátta kynjanna á tjaldinu um langa hríð.” NÝJASTA MYND COEN BRÆÐRA. Stórstjörnurnar George Clooney og Catherine Zeta-Jones fara á kostum í myndinni. Frábær rómantísk gamanmynd sem bragð er að.  SG DV „Ein besta gamanmynd ársins- fyrir fullorðna“ The Rundown er mikil rússíbanareið og hún nær þeim ævintýrablæ og húmor sem einkennir m.a. Indiana Jones myndirnar.H.K. DV. KVIKMYNDIR.IS ÁLFABAKKI Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. AKUREYRI Sýnd kl. 8. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8. AKUREYRI Kl. 10. ÁLFABAKKI Kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 KEFLAVÍK Kl.10. KRINGLAN Kl. 8 og 10.05 ATH!AUKASÝNINGKL. 6.30 og 9. Stundin sem allir hafa beðið eftir er komin! Lokauppgjör Matrix þríleiksins er hafið! Stundin sem allir hafa beðið eftir er komin! Lokauppgjör Matrix þríleiksins er hafið! i lli i i i ! j i íl i i i ! ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 5.30, 6.30, 8, 9 og 10.30. B.i. 12. AKUREYRI Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 12. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10.30. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4. Ísl. tal. Tristan og Ísold Miðaverð500 kr. AKUREYRI Sýnd kl. 6. Ísl. tal. KRINGLAN Sýnd kl. 6. AMERICAN PIE THE WEDDING KRINGLAN Sýnd kl. 6. KRINGLAN Sýnd kl. 10.30. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.50. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8.30 og 10.30. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 6. B.i.10. PIRATES OF THE CARIBBEAN Kvikmyndir.com  Kvikmyndir.com  Kvikmyndir.com Yfir 200 M US$ á 5 dögum!.  SG DV LUNDABÍÓ kynnir kvöld- stund af kvikmyndum í Nor- ræna húsinu í kvöld. Þar ber hæst að Jón Ólafsson píanó- leikari með meiru ætlar að flytja eigin tónlist við kvik- myndina Das Kabinett des Doktor Caligari frá árinu 1920 eftir þýska leikstjórann Robert Wiene. Jón ætlar að spinna tónlistina á staðnum á meðan hann og áhorfendur fylgjast með þessari sígildu, þöglu kvikmynd. Hassan hjá Lundabíói seg- ir að þetta sé áhrifamikil mynd og að settið sé allt öðruvísi en hafi verið í myndum á þessum tíma. „Það sem vakti athygli á þessari mynd er bjöguð heimsmynd hennar. Hlutir í settinu eru bognir og í nýjum hlutföllum,“ segir hann og bætir við að myndin hafi verið undir áhrifum frá Bauhaus- hreyfingunni. Myndin, sem er um 70 mínútur að lengd, „er ein af þeim þöglu myndum, ef ekki sú eina, sem hefur haft hvað mest áhrif á kvikmynda- heiminn á þessum tíma sem og næstu ár og áratugi. Kvikmyndin var mikill listrænn árangur fyrir sinn tíma. Áhrif hennar á ungar og nýmótaðar aðferðir við kvik- myndagerð eru ómetanleg og er þau að finna í öðrum kvik- myndum eins og Nosferatu (1922) og síðar í Metropolis (1927) sem er eftir Fritz Lang,“ segir í tilkynningu. 15 alþjóðlegar stuttmyndir Til viðbótar verða sýndar 15 alþjóðlegar stuttmyndir frá Finnlandi, Pakistan, Ástr- alíu og Bandaríkjunum. Um kvöldið verður fáanleg 32 síðna dagskrá, gestum að kostnaðarlausu, sem inni- heldur upplýsingar um allar stuttmyndirnar og nákvæma greiningu á kvikmyndinni Das Kabinett des Doktor Caligari. Jón Ólafsson með frumsamda tónlist Kvöldstund af kvikmyndum Úr kvikmyndinni Das Kabinett des Doktor Calig- ari, sem er sígild, þögul mynd, sem hefur haft nokkur áhrif í kvikmyndasögunni. Lundabíó í Norræna húsinu á miðvikudagskvöld kl. 20. www.lundabio.comSPJALLÞÁTTASTJÓRNANDINN umdeildi Jerry Springer skellti sér austur um haf, til Englands, í þeim tilgangi að vera viðstaddur frum- sýningu á söngleik um sjálfan sig á West End. Um er að ræða söngleik sem heitir einfaldlega Jerry Springer – Óperan og er hann byggður á spjallþáttunum alræmdu. Í honum má sjá steppandi Ku Klux Klan- liða og kóra kyrja algengt fjög- urra stafa enskt blótsyrði sem byrjar á stafnum f. Þótt þetta kunni allt að hljóma mjög vafa- samt þá er hann virtur mjög í bresku leikhúslífi sá er setti óp- eruna fyrstur upp, í National Theatre leikhúsinu. Hann heitir Nicholas Hytner og er m.a. þekkt- ur fyrir að hafa leikstýrt kvik- myndinni The Madness of King George. Springer er leikinn af Michael nokkrum Brandon í sýningunni á West End en hann er lítillega kunnur fyrir að hafa leikið í þátt- unum Dempsey og Makepeace á 9. áratugnum. Hingað til hefur sýn- ingin notið mikilla vinsælda þar sem hún hefur verið sýnd og er búist við að sama verði upp á ten- ingnum á West End, þótt dómar hafi verið misjafnir. Springer sjálfur sá verkið fyrst í Edinborg í fyrra og viðurkennir að það hafi verið býsna erfið lífsreynsla fyrir sig. Ekki síst vegna þess að aðrir áhorfendur í salnum hafi ekki alveg getað ákveðið sig, hvort þeir ættu að horfa á Springer á sviðinu, eða þennan eina sanna í salnum. En hann segist mjög sáttur við upp- færsluna á West End og þá sér- staklega frammistöðu Brandons. „Hann nær alveg líkamstjáningu minni.“ Höfundur tónlistarinnar í verk- inu, Bretinn Richard Thomas, seg- ir viðfangsefnið hafa verið tilvalið fyrir óperu. „Við fáum harmleik, ofbeldi, fólk öskrandi á hvað ann- að, sem maður skilur ekki hvað er að segja. Hinar fullkomnu for- sendur fyrir óperu.“ Nýr söngleikur á West End AG Jerry Springer ásamt Micheal Brandon sem leikur hann. Springer sáttur við sig EFTIR tíu ára hjónaband með Tom Cruise í sviðsljósinu segist Nicole Kidman vilja halda samband- inu við Lenny Kravitz fyrir sig. „Ég á ekki von á því að ég muni nokkurn tíma aft- ur leyfa fólki að grannskoða einkalíf mitt,“ segir Kidman í viðtali í desem- berhefti W- tímaritsins. „Samband karls og konu er of viðkvæmt, of hverfult og of sársaukafullt ef það brotnar til þess að hafa það til sýnis, en tilhugsunin skelfir mig.“ Kravitz og Kid- man vilja frið Nicole Kidman og sonur hennar Connor.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.