Morgunblaðið - 12.11.2003, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
6 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
FULLTRÚAR Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks í útvarpsráði, þau Gunnlaugur S. Gunn-
laugsson, Páll Magnússon, Andri Óttarsson og
Anna K. Jónsdóttir, lögðu í gær fram tillögu á
fundi útvarpsráðs á þá leið að allt fréttaefni, frétt-
ir, fréttaþættir eða fréttaskýringar, innan Ríkisút-
varpsins verði í framtíðinni á ábyrgð fréttasviðs.
Kom tillagan fram er umræða fór fram um svar
útvarpsstjóra við fyrirspurn fulltrúa Samfylking-
arinnar, Svanfríðar Jónasdóttur og Ingvars Sverr-
issonar, vegna ummæla hans um útvarpsþáttinn
Spegilinn. Fóru þau fram á skriflega útskýringu á
því hvað útvarpsstjóri hefði átt við með einkunn-
argjöfinni „vinstri slagsíða“ þegar hann fjallaði um
einstaka dagskrárþætti RÚV og vísuðu þau til ný-
legrar umfjöllunar útvarpsstjóra um Spegilinn. Í
svari útvarpsstjóra segir: „Tilefni þessarar bók-
unar SJ og IS mun vera tölvupóstur er ég sendi
fjórum dagskrárstjórnendum útvarpsins og látinn
var leka til Fréttablaðsins. Tilefni hans var út-
varpsgagnrýni gamalreynds fjölmiðlamanns, Þrá-
ins Bertelssonar, í Fréttablaðinu 3. október sl., þar
sem sagði: „Spegillinn er vinstrisinnað fréttaskýr-
ingaprógramm, sem yfirleitt er gaman að hlusta
á.“ Þar af leiðandi hóf ég tölvupóst minn til um-
ræddra ábyrgðarmanna dagskrár útvarpsins með
eftirfarandi hætti: „Einhver umræða virðist vera í
gangi um „vinstrislagsíðu“ á speglinum.“ Í fram-
haldi velti ég upp atriðum er varða faglegt mat á
efnistökum í Speglinum, skyldur um óhlutdrægni
og ritstjórnarlega ábyrgð á efni sem þar birtist og
annars staðar í dagskránni.“
Allt fréttaefni verði unnið
af starfsfólki fréttasviðs
Í skipulagstillögunni sem lögð var fram á fund-
inum í gær segir: „Lagt er til að ráðist verði í
skipulagsbreytingar innan Ríkisútvarpsins, sem
miði að því að allt fréttaefni verði í framtíðinni á
ábyrgð fréttasviðs. Þannig verði allt efni sem
kynnt er og borið fram sem fréttir, fréttaþættir
eða fréttaskýringar unnið af starfsfólki fréttasviðs
og samkvæmt starfsreglum RÚV um fréttaflutn-
ing. Gildi þetta jafnt um hljóðvarp sem sjónvarp.
Tillögurnar verði unnar af útvarpsstjóra, forstöðu-
manni fréttasviðs og framkvæmdastjórum út-
varps og sjónvarps. Tillögurnar liggi fyrir sem
fyrst og verði kynntar útvarpsráði.“
Gunnlaugur sagði í samtali við Morgunblaðið í
gær, að komið hefði í ljós að ýmsum þáttum RÚV
sem teldust vera með fréttatengt efni væri ekki
fréttastýrt. „Það á við þætti eins og Spegilinn og
reyndar fleiri. Við teljum rétt að þetta efni falli
undir fréttareglur Ríkisútvarpsins og undir frétta-
svið og fréttastjórana. Það getur ekki viðgengist í
Ríkisútvarpinu frekar en á nokkrum öðrum frétta-
miðli að annars vegar séu fréttir og hins vegar séu
aðilar með fréttatengt efni sem lúti ekki nokkurri
fréttastjórn. Þetta á ekki síst við um Spegilinn,“
segir Gunnlaugur.
Afgreiðslu tillögunnar var frestað til næsta
fundar og sagðist Svanfríður Jónasdóttir í gær
ætla að nota þann tíma til að átta sig betur á hvað
þarna væri á ferðinni og hvort í tillögunni fælust
raunverulegar breytingar.
„Við höfum látið þá skoðun koma fram að mik-
ilvægast sé að Ríkisútvarpið sé með skýra stefnu
og að það séu skýrar reglur. Síðan eigi að treysta
starfsfólkinu til þess að vinna samkvæmt því og ég
held að í grófum dráttum hafi það nú verið gert
hingað til og gefist ágætlega.“
Svanfríður segir að miðað við efni bréfs útvarps-
stjóra sem lekið hafi til fjölmiðla sé svar útvarps-
stjóra við fyrirspurn hennar og Ingvars afskap-
lega rýrt og stuttort.
Allt fréttatengt efni RÚV
verði á ábyrgð fréttasviðs
Tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í útvarpsráði
ÞORGEIR Þorgeirson, rithöfundur
og kvikmyndagerðarmaður, var
jarðsunginn frá Dómkirkjunni í gær.
Séra Sigfinnur Þorleifsson jarðsöng.
Organisti var Marteinn H. Friðriks-
son, einleikari Arnþór Jónsson, ein-
söngvari Sigrún Hjálmtýsdóttir og
Viðar Eggertsson las upp. Páll
Skúlason fór með minningarorð.
Líkmenn voru (frá vinstri) Guðberg-
ur Bergsson, Gerard Lemarquis, Ari
Halldórsson, Jón Ásgeirsson, Ragn-
ar Aðalsteinsson, Viðar Eggertsson,
Álfrún Gunnlaugsdóttir og Þor-
steinn Jónsson.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Útför Þorgeirs Þorgeirsonar
FORSÆTISRÁÐHERRA Namibíu
styður framboð Íslands til öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóðanna fyrir tíma-
bilið 2009-2010. Þetta tilkynnti Theo-
Ben Gurirab á blaðamannafundi með
Davíð Oddssyni í Ráðherrabústaðn-
um í gær. Sagði hann framlag
smárra þjóða eins og Íslands og
Namibíu mikilvægt á þessum vett-
vangi. Það þekkti hann eftir áralangt
starf sem fulltrúi samtaka Suðvest-
ur-Afríkuríkja hjá Sameinuðu þjóð-
unum og síðar þegar Namibía var í
forsæti allsherjarþingsins og sat í
öryggisráðinu árin 1999 til 2000.
Best ígrunduðu ályktanirnar voru
samþykktar eftir frumkvæði og hug-
myndavinnu fulltrúa smærri ríkja.
Það hafi verið þeirra styrkur. Davíð
Oddsson sagðist vera þakklátur fyrir
þennan stuðning.
Gurirab er í opinberri heimsókn
hér á landi í ferð sinni um Norður-
lönd. Í gær átti hann fund með for-
sætisráðherra og hitti einnig sjávar-
útvegsráðherra, borgarstjóra og
forseta Alþingis á ferð um borgina. Í
gærkvöld var hátíðarkvöldverður
honum til heiðurs.
Vinnum með
Namibíu áfram
Frá því að Namibía varð sjálfstætt
ríki og losnaði undan stjórn Suður-
Afríku árið 1990 hefur verið þróun-
arsamvinna milli Namibíu og Ís-
lands, aðallega á sviði hafrannsókna
og sjávarútvegs. Gurirab segir vin-
náttu ríkjanna mikla og samstarfið
skipti máli fyrir efnahag landsins.
Það hafi stuðlað að virkjun mann-
auðsins með kennslu og þjálfun
fólks, sem geri íbúum kleift að skapa
aukin verðmæti. Slík aðstoð dugi til
langs tíma. Davíð sagði íslensk
stjórnvöld vilja halda áfram að vinna
með Namibíu næstu árin.
Auk sjávarútvegs sagði Gurirab
ferðamannaiðnaðinn vaxandi at-
vinnugrein. Hann vildi hvetja fólk
frá Norðurlöndum að koma til Nami-
bíu og skoða landið, sem hafi upp á
margt að bjóða. Davíð tók undir það
enda hafi hann heimsótt landið. Það
væri líka sumar þar þegar vetur ríkti
á Íslandi.
Theo-Ben Gurirab, forsætisráðherra Namibíu, í opinberri heimsókn
Morgunblaðið/Þorkell
Theo-Ben Gurirab og Davíð Oddsson að loknum fundi í gær.
Styður framboð
Íslands til
öryggisráðs SÞ
ÍSLENSK fjölskylda hefur þurft að
flytja fyrirtæki sitt um set vegna
óþæginda sem hún hefur fundið
fyrir frá þriðju kynslóðar far-
símamastri í heimabæ sínum,
Worcester í Englandi. Eftir að
mastrið var tekið í notkun í ágúst
sl. hefur fjölskyldan fundið fyrir
ógleði, höfuðverkjum og minn-
isleysi.
Hópur fólks hefur fellt far-
símamastur í bænum Sutton Cold-
field á Birmingham-svæðinu, rétt
hjá heimabæ íslensku fjölskyld-
unnar, og hefst við í tjöldum á
svæðinu til að koma í veg fyrir að
mastrið verði reist aftur. Íbúarnir
segjast hafa farið að finna til óþæg-
inda eftir að mastrið var tekið í
notkun og telja að geislar eða bylgj-
ur frá því valdi krabbameini.
Eiríkur Pétursson, sem er fædd-
ur í Danmörku, íslensk eiginkona
hans, Agnes Ingvarsdóttir og Nils
Eiríksson sonur þeirra, vinna öll í
fyrirtækinu Aces Dust Control, í
húsi fjölskyldunnar í Worcester.
Hinn 16. júní sl. lét fjarskiptafyr-
irtækið Hutchison setja upp þriðju
kynslóðar farsímamastur í bænum,
um 28 m frá húsi fjölskyldunnar.
Mastrið var tekið í notkun 7. ágúst.
Ógleði og höfuðverkur
Eiríkur segir að mjög fljótlega
eftir það hafi þau hjónin farið að
finna til óþæginda. Agnes hafi verið
með linnulausan höfuðverk, verið
heit á eyrum og óglatt. Sjálfur seg-
ist Eiríkur hafa fundið fyrir þrýst-
ingi á gagnaugum og átt erfitt með
að muna hluti. Þá hafi sonur þeirra
sem starfar í fyrirtækinu, þjáðst af
höfuðverk og ógleði á vinnutíma en
batnaði þegar hann fór heim.
Eiríkur segir að þau hafi í fyrstu
ekki áttað sig á því hvað olli óþæg-
indunum. Eiríkur segist hafa tekið
eftir því að maður var að vinna við
tengibox rétt hjá húsinu og í ljós
kom að vegna viðgerða var mastrið
ekki í notkun í nokkrar klukku-
stundir. Þegar viðgerðinni var lok-
ið gerðu óþægindin óðar vart við
sig á ný.
Eiríkur hefur ritað Hutchison
kvörtunarbréf en engin svör fengið
og segist hann ætla að höfða mál á
hendur Hutchison.
Óþægindin eru að hans sögn allt
frá klukkan níu á morgnana til átta
á kvöldin en þó verst milli fjögur og
fimm á daginn þegar farsímanotk-
unin er hvað mest.
Finna fyrir
óþægindum
vegna far-
símamasturs
ATVINNA mbl.is