Morgunblaðið - 12.11.2003, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.11.2003, Blaðsíða 14
ERLENT 14 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ SPRENGING á vegi í suður- írösku borginni Basra, þar sem brezkir herbílar eiga oft leið um, banaði sex óbreytt- um íröskum borgurum í gær. Þá greindi háttsettur hers- höfðingi í hernámsliði Banda- ríkjamanna í Írak frá því að um 20 manns hefðu verið handsamaðir, grunaðir um tengsl við al-Qaeda hryðju- verkasamtökin. Í Bagdad gerðist það einn- ig í gær, að íraskir lögreglu- menn fundu sjúkrabíl sem bú- ið var að hlaða í 450 kg af sprengiefni. Sögðu talsmenn hernámsyfirvalda þetta dæmi um það gagn sem nýlega stofnsettar lögreglusveitir heimamanna gætu gert. Þrýst á Bandaríkin RÁÐAMENN í Evrópu- og Asíulöndum sneru saman bökum í gær til að setja þrýsting á Bandaríkjastjórn að hlíta úrskurði áfrýjunar- nefndar Heimsviðskiptastofn- unarinnar, WTO, sem úr- skurðað hefur að verndartollar, sem settir voru í Bandaríkjunum í marz 2002 á innflutt stál, brjóti í bága við skuldbindingar Bandaríkj- anna samkvæmt gildandi samningum um alþjóðavið- skipti. Fjöldi ríkja hefur hót- að því að setja háa refsitolla á ýmsan útlutningsvarning frá Bandaríkjunum grípi þarlend stjórnvöld ekki til ráðstafana til að hlíta úrskurði WTO. Gætu þessir refsitollar, hugs- anlega upp á marga milljarða Bandaríkjadollara, lagzt á vörur allt frá appelsínum til Harley Davidson-mótorhjóla. Úrskurðurinn sýni að „alþjóð- legar reglur um viðskipti virka eins og ætlazt var til og að lítil ríki eins og Noregur geta fengið sínu framgengt“, sagði Jan Petersen, utanrík- isráðherra Noregs, en Nor- egur átti ásamt Evrópusam- bandinu og sjö öðrum löndum aðild að því að kæra banda- rísku verndartollana til WTO. Hohmann rekinn ÞÝZKI þingmaðurinn Martin Hohmann, sem mikill styr hefur staðið um í opinberri um- ræðu í Þýzka- landi undan- farna daga vegna ummæla sem hann lét falla sem túlk- uð eru sem gyðingafjand- samleg, á samkvæmt ákvörð- un flokksstjórnar Kristilega demókrataflokksins (CDU) að verða brottrækur ger bæði úr flokknum og þingflokknum. Þingflokkurinn á að greiða atkvæði um brottvísunina á föstudag og að sögn Wolf- gangs Bosbach, varaformanns þingflokksins, eru yfirgnæf- andi líkur á að fyrir henni ná- ist tilskildur 2/3 hluta meiri- hluti. Hann sagði hins vegar í gær að velji Hohmann að verjast brottvísuninni fyrir rétti gæti ferlið jafnvel teygzt í nokkur ár. STUTT Spreng- ing í Basra Martin Hohmann JESSICA Lynch skaut ekki á írösku hermennina, sem handtóku hana; bandarísku hermennirnir, sem sóttu hana á íraskt sjúkrahús, mættu þar engri mótspyrnu og írösku læknarnir hættu sínu eigin lífi við að hjálpa henni. Þetta og margt fleira kemur fram í bókinni „Ég er líka hermað- ur: Saga Jessicu Lynch“, sem út kom í Bandaríkjunum í gær. Þar vísar hún á bug mörgum þeim sög- um, sem bandaríska varn- armálaráðuneytið kom á kreik um hetjudáðir hennar og félaga henn- ar þegar ráðist var á bandaríska bílalest í innrásinni í Írak, 23. mars sl. Í árásinni féllu 11 banda- rískir hermenn og sex voru hand- teknir, þar á meðal Lynch, 19 ára gamall hermaður í birgðadeild hersins. Í sögunni, sem Rick Bragg, fyrr- verandi blaðamaður við New York Times, skráði, segist Lynch aldrei hafa skotið á írösku hermennina og hún ber íröskum læknum og hjúkrunarfólki vel söguna. Segir hún, að það hafi reynt að flytja hana á sjúkrabíl til bandaríska herliðsins en hafi neyðst til að snúa við er bandarísku hermenn- irnir skutu á bílinn. Bragg segir, að bandarísk her- yfirvöld hafi spunnið upp sögur um hetjudáðir í því skyni að auka stuðninginn heimafyrir og margar sögurnar verið svo ævintýralegar, að jafnvel handritshöfundur í Hollywood hefði átt fullt í fangi með þær. Segir hann, að fjölskylda Jessicu Lynch sé líka ævareið þeim, sem gefa í skyn, að hún hafi sjálf tekið þátt í að upphefja sjálfa sig á kostnað félaga sinna. „Ég vildi gefa allt til, að þetta hefði aldrei gerst,“ segir Lynch í bókinni. Sögu um nauðgun vísað á bug Eins og fyrr segir, segist Lynch ekki hafa skotið á írösku hermenn- ina enda hefðu M-16-rifflarnir flestir staðið á sér vegna fíns sandsins. Í árásinni rakst herbíll Lynch á annan herbíl með þeim af- leiðingum, að hún brotnaði á fæti og víðar en sjálf man hún lítið hvað gerðist eftir það og þar til hún vaknaði upp á írösku sjúkra- húsi þremur klukkustundum síðar. Í bókinni er vitnað í læknaskýrslur þar sem greint er frá meiðslum hennar og einnig sagt, að Lynch Hafnar hetjudáð- um og ævintýra- legri björgun Í bók um Jessicu Lynch segir að íraskir læknar hafi hætt lífi sínu við að hjálpa henni AP Jessica Lynch ásamt Shoshana Johnson, sem einnig var fangi Íraka um skeið. Tímaritið Glamour valdi þær í fyrradag „Konur ársins“ í Bandaríkjunum. New York. AP. FANGAR sem reyndu að flýja úr fangelsi í Sao Paolo í Brasilíu sitja uppi við vegg við fangelsið eftir að þeir náðust á flóttanum. Á sunnudag reyndu 87 fangar að flýja í gegn um göng sem vitorðsmenn höfðu grafið inn undir fangelsis- múrana. 32 var enn leitað í gær, en átta dóu er göngin hrundu og þann níunda skaut lögregla til bana. 48 náðust að sögn Cida Gonsalves, tals- manns fangelsisins. AP Fangaflótti í Brasilíu Í BANDARÍSKUM fjölmiðlum eru stóru hetjurnar úr Íraksstríðinu tvær, Jessica Lynch og íraski lög- fræðingurinn Mohammed al- Reheef, sá, sem sagði bandarískum hermönnum hvar hún væri nið- urkomin. Fyrir það var honum laun- að með landvist í Bandaríkjunum og með samningi um bók, sem NBC hefur gert sjónvarpsmynd eftir. Saga þeirra Lynch og Reheefs stangast þó á í mörgum atriðum. „Eitt af því, sem fylgir styrj- öldum, er, að fjölmiðlar reyna að persónugera þær og láta alla hina flóknu atburðarás birtast í hetju- dáðum nokkurra manna,“ segir Steven Livingston, prófessor við George Washington-háskólann í Washington, en hann hefur sér- staklega skoðað fréttaflutning af Íraksstríðinu. „Í þessu tilfelli tóku Hollywood og varnarmálaráðu- neytið höndum saman.“ Segir að Lynch hafi verið barin Bók Reheefs heitir „Sérhvert líf er dýrmætt: Hvers vegna Íraki hætti öllu fyrir Jessicu Lynch“. Þar segist hann hafa ákveðið að hjálpa Lynch vegna þess, að hún hafi verið barin á spítalanum en kona hans starfaði þar sem hjúkrunarkona. Hætti hann sér því að eigin sögn Tvær hetjur – tvær sögur Mohammed al-Reheef
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.