Morgunblaðið - 12.11.2003, Qupperneq 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2003 9
Jólablússurnar komnar
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
Glæsilegur hátíðarfatnaður
Síðir kjólar, síð pils
og samkvæmisbuxur
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
Kringlunni — s. 568 1822
Áttu von
á barni
Mikið úrval
af fatnaði fyrir
barnshafandi
undirfataverslun
Síðumúla 3, s. 553 7355
Opið virka daga kl. 11-18
laugardag kl. 11-15
AÐHALDS-UNDIRFATALÍNA
WWW.HOLT.IS
BERGSTAÐASTRÆTI 37 • SÍMI: 552 5700
Komið í heimsókn
á www.holt.is
Skoðið verðið á
gistingu og veitingum
Sími 552 1400
fax 552 1405
Laugavegi 170, 2. hæð, 105 Reykjavík
Viðar Böðvarsson
viðskiptafræðingur
löggiltur fasteignasaliHeimasíða: www.fold.is - Netfang: fold@fold.is
20 íbúðir - 2ja, 3ja og 4ra herbergja
Erum að leita fyrir opinberan aðila að 20 íbúðum, 2ja, 3ja og 4ra herbergja, í
Reykjavík. Staðgreiðsla í boði fyrir réttar eignir. Skoðun og kaup ganga mjög hratt
fyrir sig.
Áhugasamir hafi samband við sölumenn Foldar fasteignasölu
í síma 552 1400 eða í gsm síma sölumanna:
Ævar 897 6060, Böðvar 892 8934, Helgi 897 2451.
Í SKÝRSLU matvælaeftirlits Um-
hverfis- og heilbrigðisstofu Reykja-
víkur um niðurstöður rannsóknar á
örverufræðilegum gæðum íss úr vél
árið 2003 kom í ljós að 47% sölu-
staða, sem skoðaðir voru í Reykja-
vík, voru með ófullnægjandi niður-
stöður. Sala á ís úr vél var stöðvuð
tímabundið á 7 stöðum í kjölfar end-
urtekinnar sýnatöku. Segir í niður-
stöðum skýrslunnar, að töluverð
aukning hafi orðið frá síðasta ári í til-
fellum þar sem kólígerlar fundust.
Samskonar verkefni voru unnin árin
2001 og 2002. Könnunin náði til 53
sölustaða íss úr vél í Reykjavík. Far-
ið var á sölustaðina og hreinlæti, að-
búnaður og ýmis atriði varðandi ís-
vélar skoðuð. Einnig var tekið sýni af
ís úr vél til örverumælinga. Niður-
stöður samantektarinnar sýna að
40% fyrirtækjanna voru með full-
nægjandi niðurstöður úr fyrstu
sýnatöku, 13% fengu senda athuga-
semd og 47% voru með ófullnægj-
andi niðurstöður.
Í skýrslunni segir, að færri staðir
falli nú en áður vegna of mikils heild-
argerlafjölda en töluverð aukning
virðist hafa orðið í tilfellum þar sem
kólígerlar eru eina ástæðan fyrir
falli. Virðist það vera meginorsök
þess að fleiri staðir falli nú en árið
2002.
Heldur fleiri falli nú í fyrstu sýna-
tökunum en gerðu árið 2002 og er
hlutfallið nú svipað og árið 2001 þeg-
ar fyrsta samantektin var gerð. Í
skýrslunni segir, að ástæður þessa
séu ekki ljósar. Þrátt fyrir að skil-
virkara eftirlit hafi skilað árangri á
ýmsum sviðum varðandi íssölu í
Reykjavík bendi niðurstöðurnar til
þess að meira þurfi að koma til svo
að örverufræðileg gæði séu innan
viðmiðunarmarka. Hlutaðeigandi að-
ilar þurfi að taka höndum saman og
leita leiða til að bæta örverufræðileg
gæði íss úr vél til frambúðar. Um-
hverfis- og heilbrigðisstofa Reykja-
víkur muni leita eftir slíku samstarfi
nú í vetur og fylgja málum eftir með
nýrri samantekt á næsta ári.
Íssölustaðir í Reykjavík
Um helmingur féll
á örveruprófi
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
LANDMÆLINGAR Íslands (LÍ)
hafa gefið út geisladisk með Atlas-
kortunum, sem margir þekkja sem
herforingjaráðskortin. Þetta er í
fyrsta sinn sem atlaskortin koma út
á geisladiski, en danskir landmæl-
ingamenn gerðu þau á fyrri hluta
síðustu aldar. Kortin voru lengi vel
hornsteinn kortaútgáfu á Íslandi og
þykja með fallegustu kortum sem
gerð hafa verið af landinu. Magnús
Guðmundsson, forstjóri LÍ, flutti í
tilefni útgáfunnar stutta kynningu
og afhenti síðan Flemming Morch,
sendiherra Dana á Íslandi, fyrsta
eintakið af kortadiskinum á fundi á
Nordica hótelinu.
Atlaskortin hafa hingað til verið
gefin út á áttatíu og sjö blöðum í
mælikvarðanum 1:100 000 en með
útgáfu þeirra á geisladiski gefst nú
tækifæri til að skoða þau án þess að
skipta þurfi á milli kortablaða. Auk
þess er hægt að bæta upplýsingum
inn á kortin og prenta út. Kortin
geta nýst ferðamönnum vel og eru
fyrst og fremst heimild um stað-
hætti og örnefni, enda er að finna
yfir fjörutíu þúsund nöfn á þeim.
Þó er ekki ætlast til að kortin séu
nýtt sem vegakort, þar sem þau hafa
ekki verið uppfærð frá árinu 1989.
Vegakerfið breytist ört og eru upp-
færð vegakort gefin út reglulega.
Atlaskortin geta hins vegar reynst
áhugaverð söguleg heimild um
byggðina í landinu, því á þeim má
finna fjölda sveitabæja sem farið
hafa í eyði.
Þúsund mannára vinna
Gerð Atlaskortanna var þannig
háttað að danskir landmælingamenn
mældu og kortlögðu allt Ísland á
fyrstu fjórum áratugum 20. aldar.
Verkið hófst aldamótaárið 1900 með
grunnlínumælingum og var fyrri
hluti verkefnisins fram til 1920 unn-
inn af landmælingadeild danska her-
foringaráðsins. Mælingum lauk árið
1939 en útgáfu síðustu kortanna
seinkaði vegna seinni heimsstyrjald-
arinnar.
Kortagerðin hafði gríðarlegt gildi
fyrir íslenskt samfélag, oft var unnið
við afar erfiðar aðstæður og kostaði
verkefnið mikla þrautsegju og um-
talsverða fjármuni. Alls er talið að
um eitt þúsund mannár hafi farið í
verkefnið í heild. Afraksturinn er
fjöldi prentaðra korta í ýmsum
mælikvörðum, auk ómetanlegra
frumgagna, m.a. í formi mælinga-
upplýsinga, einstakra kortahand-
rita, filmna og loftmynda. Þetta efni
er nú varðveitt í safni LÍ.
Kortadiskurinn kostar 3.980 krón-
ur og fæst hann í helstu bókaversl-
unum og öðrum sölustöðum landa-
korta um allt land.
Atlaskortin
gefin út á
geisladiski
Morgunblaðið/Ásdís
Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands, fagnar útgáfu Atl-
askortadisksins ásamt Flemming Morch, sendiherra Dana á Íslandi.
ÍSLENSKAR mjólkurafurðir hafa
verið sigursælar á stórri vörusýn-
ingu í Herning í Danmörku sem
stendur nú yfir. Íslenskir mjólkur-
iðnaðarmenn hafa fengið 11 gull-
verðlaun fyrir afurðir sínar og
þrenn heiðursverðlun að auki sem
veitt verða í dag fyrir Dalabrie frá
Mjólkursamlaginu á Búðardal og
Biomjólk með mangó og apríkósu
og Bioþykkmjólk með 6 kornum og
ferskjum, hvort tveggja frá Mjólk-
urbúi Flóamanna.
Íslenskir ostar hlutu 31 verðlaun,
þar af 7 gullverðlaun, 9 silfur- og 15
bronsverðlaun. Þá fengu 29 ferskar
mjólkurvörur verðlaun, þar af 4
gull, 13 silfur og 12 brons. Alls
sendu Íslendingar inn 213 sýnis-
horn af 1.500 innsendum sýnis-
hornum frá Norðurlöndunum utan
Finnlands sem ekki tekur þátt.
Að sögn Magnúsar Ólafssonar,
framkvæmdastjóra Osta- og smjör-
sölunnar, telst þetta ágætisárangur
og eru Íslendingarnir sáttir við út-
komuna. Er þetta í sjötta sinn sem
Íslendingar taka þátt í vörusýning-
unni en síðast tóku þeir þátt árið
2001 og unnu þá alls 64 verðlaun
auk tvennra heiðursverðlauna.
„Umgjörð sýningarinnar er mjög
glæsileg og greinilega mikill áhugi
fyrir henni í ljósi fjölmennis hér,“
segir Magnús. „Þetta er í fyrsta
skipti sem sýningin hefur skandin-
avískt yfirbragð, en þeir einu sem
ekki eru með eru Finnar.“ Íslend-
ingar voru fyrsta frændþjóð Dana
til að taka þátt í sýningunni en síð-
an fylgdu Svíar í kjölfarið, Norð-
menn og loks Færeyingar sem taka
þátt í fyrsta skipti.
Meðal nýjunga á sýningunni er
matarrjómi með hveiti sem ætlaður
er til sósugerðar. Jóakim prins,
yngri sonur Margrétar Þórhildar
Danadrottningar, heiðraði þátttak-
endur í gærmorgun með nærveru
sinni og setti mjög skemmtilegan
svip á samkunduna.
Íslenskar mjólkurafurðir sigur-
sælar á vörusýningu í Danmörku