Morgunblaðið - 12.11.2003, Page 12

Morgunblaðið - 12.11.2003, Page 12
FRÉTTIR 12 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU NORSKUR sjávarútvegur á í mikl- um erfiðleikum um þesar mundir og hefur verið töluvert um það að Norð- menn hafa haft samband við íslenzk sjávarútvegfyrirtæki til að kanna hvort þau hafi áhuga á fjárfestingum í sjávarútvegi í Noregi. Meðal þeirra norskra fyrirtækja, sem nefnd hafa verið í þessu sambandi er Westfish- Aarsæther. Guðbrandur Sigurðsson, forstjóri Brims segir að það lýsi vel ástandinu í norskum sjávarútvegi að fjölmargir norskir aðilar hafi haft samband við íslenzk sjávarútvegsfyrirtæki til að kanna áhuga þeirra á fjárfestingu í Noregi, þar á meðal Brim. Hann seg- ir hins vegar að hjá Brimi séu menn ekki að íhuga slíkar fjárfestingar. Tapið 1,7 milljarðar Það er norska viðskiptablaðið Dagens Næringsliv sem fjallar um erfiðleika Westhfish-Aarsæter, sem hefur verið eitt af stærri sjávarút- vegsfyrirtækjum Noregs, og var með um 10 milljarða íslenzkra króna í veltu á síðasta ári. Reksturinn hef- ur gengið mjög illa og nemur tap tveggja síðustu ára 1,7 milljörðum- króna fyrir skatta. Í fyrra var starf- semi Westfish í Vardö lýst gjald- þrota, en samstæðan rekur ennþá fiskvinnslu í Kollafirði, Bátsfirði og Álasundi með samtals 350 starfs- menn. Samsteypan ræður yfir 7,1 þorskveiðileyfi, sem er dreift á fjóra báta í Finnmörku. Westfish á einnig 45% í Nordic Sea, sem ræður yfir veiðileyfum, sem eru dreifð á þrjú stór skip. Blaðið segir að fjórir aðilar séu að skoða möguleg kaup á Westfish og þar sé fremst í flokki fjárfestingar- félagið Marinvest, sem er í eigu Nor- ges Raafisklag. NR er í eigu sjó- manna og hefur einkaleyfi á sölu á fiski upp úr sjó í Norður-Noregi. Framkvæmdastjóri Marinvest segir að þeir fylgist vel með gangi mála hjá Westfish, en það séu margir aðr- ir möguleikar á fjárfestingu fyrir fé- lagið. Blaðið segir að eitt stórt íslenzkt sjávarútvegsfyrirtæki sé meðal hinna áhugasömu, en nefnir það ekki. Samkvæmt athugunum Morg- unblaðsins mun vera takmarkaður áhugi hjá íslenzkum fyrirtækjum til að fjárfesta í norskum sjávarútvegi, þótt hægt sé að komast þar inn fyrir tiltölulega lágar upphæðir. Skýring er fyrst og fremst erfitt rekstrarum- hverfi í norskum sjávarútvegi. Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson Norskur sjávarútvegur á við mikla erfiðleika að stríða um þessar mundir. Erfiðleikar í norskum sjávarútvegi Norðmenn á höttum eftir fjár- festum á Íslandi HAFRANNSÓKNASTOFNUNIN boðar á næstu vikum til kynningar- og umræðufunda um haf- og fiski- rannsóknir og ráðgjöf stofnunarinn- ar í bæjar- og sveitarfélögum við sjávarsíðuna. Tilgangurinn er að styrkja tengsl stofnunarinnar við þá sem vinna við sjávarútveg, útskýra eðli rannsóknanna, niðurstöður og ráðgjöf stofnunarinnar. Þá telur stofnunin ekki síður nauð- synlegt að vera í lifandi sambandi við þá sem sækja sjóinn svo virkja megi þekkingu þeirra í rannsóknunum. Flutt verða stutt erindi og góður tími gefinn til fyrirspurna og umræðna. Fyrsti fundurinn verður haldinn í Menntaskólanum á Ísafirði í kvöld, miðvikudagskvöld, klukkan 20.00. Næst verður fundað á Reyðarfirði næstkomandi þriðjudag, á Höfn í Hornafirði á miðvikudag og í Há- skólanum á Akureyri á fimmtudag. Annan desember verður fundað í Höllinni í Vestmannaeyjum, hinn þriðja í Grindavík og fimmtudaginn fjórða desember verður fundur í Stykkishólmi. Fundir um hafrannsóknir ÚTGERÐARFÉLAGIÐ Festi hefur fengið 200 milljónir norskra króna, jafnvirði 2,1 milljarðs íslenskra króna, í tryggingabætur vegna fjöl- veiðiskipsins Guðrúnar Gísladóttur KE 15 sem sökk í Nappstraumen við Lofot í júní í fyrrasumar. Þetta stað- hæfir lögmaðurinn Trond Eilertsen hjá lögmannsstofunni Wikborg Rein í Osló við blaðið Lofotposten, en stofan kemur fram fyrir hönd Festar í Nor- egi. Að sögn Eilertsen er það Trygg- ingamiðstöðin í Reykjavík sem greitt hefur Festi umræddar bætur. Hann segist hins vegar ekki geta gefið neina vissu fyrir því að Festi greiði reikning fyrir kostnaði við björgun Guðrúnar sem koma muni frá norsku strandgæslunni eftir að skipinu hefur verið náð á flot. „Það er mál sem Festi verður að gera upp við sig þegar reikningurinn berst og hvort hann verði í samræmi við það sem félagið telur sig geta borgað. Fyrir því er engin trygging að svo komnu máli,“ segir Eilertsen. Í Lofotposten er sagt að ýmsir telji að eigendur Guðrúnar KE hafi dregið lappirnar við björgun Guðrúnar til þessa, því þeir myndu græða mest á því að skipið kæmi aldrei upp af hafs- botni. Þessu vísar Ásbjörn Helgi Árnason hjá Festi alfarið á bug í sam- tali við blaðið. „Útborgun trygginga- bótanna er eitt og björgun Guðrúnar allt annað mál. Við höfum gert sam- komulag við norska ríkið um að það bjargi skipinu á okkar kostnað,“ segir Ásbjörn Helgi sem vill ekki segja blaðinu frá því hverjar bæturnar fyr- ir skipið hafi verið. „Ég held það skipti ekki máli í þessu samhengi, en það má ekki gleyma því að þetta var nýtt og dýrt skip og upphæðin var því nokkur,“ segir Ásbjörn Helgi. Aðspurður þvertekur Ásbjörn fyr- ir það í Lofotposten að það sé fjár- hagslegur ávinningur Festar að skip- ið fái að liggja á hafsbotni. Þvert á móti sé það hagur félagsins að skip- inu verði náð upp. Vangaveltur af þessu tagi séu því fráleitar. Fengu 2,1 milljarð fyrir Guðrúnu HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær fjóra menn á aldrinum 21-26 ára í 12-18 mánaða fangelsi fyrir fjölda þjófnaðarbrota á höf- uðborgarsvæðinu á árinu 2002, en sum þeirra voru stórfelld. Voru þeir dæmdir til að greiða 1,3 milljónir króna í bætur. Þrír mannanna hlutu 18 mánaða fangelsi hver og sá fjórði 12 mán- aða fangelsi. Samkvæmt dómi héraðsdóms nemur verðmæti þýfis í innbrotum og þjófnuðum mannanna um 10,6 milljónum króna. Lögðu þeir sig einkum eftir tölvum og tölvubúnaði í fjölda innbrota. Í einu innbrot- anna, í tölvuverslun í Reykjavík, var verðmætið 6,4 milljónir. Þá spenntu þeir upp peningaskáp í fyr- irtæki í Hafnarfirði í september í fyrra og höfðu á brott með sér 1,6 milljónir í peningum og tæplega 1,2 milljónir í peningum tóku þeir í inn- broti í verslun í Hafnarfirði í maí í fyrravor. Brotin frömdu mennirnir oftast tveir eða fleiri saman. Auk þess voru þeir í sumum tilvikum, einn í senn, dæmdir fyrir hylmingu. Þá voru þeir einnig dæmdir fyrir þjófnaði á bílum og nokkur umferð- arlagabrot. Að mati dómsins gaf málið tilefni til að víkja enn einu sinni að því vinnulagi lögreglu að gera almennt ekki hljóðupptökur af lögregluyfirheyrslum yfir grunuð- um og vitnum þar sem misræmi var á milli lögregluskýrslna og dóm- skýrslna. Málið dæmdi Pétur Guðgeirsson héraðsdómari. Kári Hrafn Kjart- ansson fulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík sótti málið. Verjandi eins þess sem 18 mánaða dóm fékk var Sigmundur Hannesson hrl. Hilmar Ingimundarson hrl. var verjandi hinna þriggja. 12 til 18 mánaða fangelsi fyrir stórfelld þjófnaðarbrot GÉRARD Starck, alþjóðlegur sendifulltrúi Rauða krossins, lést bílslysi í Kyrgyzstan en hann heim- sótti landið á ævintýralegri ferð sinni um heiminn með það markmið að tengja starfsemi Rauða krossins og Rauða hálfmánans út um allan heim. Gérard var 57 ára aldri og ferð- aðist mestmegnis á mótorhjóli en undanfarin sex ár hefur hann heim- sótt 148 deildir í fimm heimsálfum. Hann hóf ferðalagið í október árið 1997 með það eitt að leiðarljósi að breiða út boðskap Rauða krossins og Rauða hálfmánans um mannúð og frið um heim allan. Hann hefur oft komist í hann krappan og hefur lent í um það bil 60 slysum á ferð sinni. Helsta hug- sjón hans var að ýta undir frið með því að opna augu fólks fyrir öðrum menningarheimum og gera fólki kleift að ferðast. Gérard kom til Íslands í apríl sl. og staldraði við í fimm daga. Hann bar Íslandi vel söguna þó hann kvartaði undan því að myndatökur gætu reynst erfiðar vegna veður- farsins. Sendifulltrúi Rauða krossins lést í mótorhjólaslysi Vildi tengja ólíka menn- ingarheima saman Heimshornaflakkarinn Gérard Starck á mótorhjóli sínu í Taílandi. MEÐAN beðið er eftir að fá eina með öllu, eða því með- læti sem hver kýs á sína pylsu, er nóg að skoða. Sú er í það minnsta raunin við Bæjarins bestu, sem eru í hjarta Reykjavíkur, miðbænum. Morgunblaðið/Jim Smart Beðið eftir bitanum UM 40 manns hafa óskað lögfræði- aðstoðar vegna endurgreiðslukröfu á hendur sænska netsölufyrirtækinu Sprinklenetwork sem starfað hefur hér og í fleiri löndum. Gylfi Gylfason, lögfræðingur á lögfræðiskrifstofunni Lögborg, fer með málefni fólksins sem sumt hefur lagt frá 90 þúsund krónum upp í 10 milljónir í fyrirtæk- ið. Fyrirtækið hóf starfsemi hér á landi í maí sl og hafa um 300 Íslend- ingar keypt sér aðgang að verslunar- starfsemi undir hatti fyrirtækisins. Óánægja fór að gera vart við sig meðal fólks þegar sjálf verslunarvar- an skilaði sér illa eða alls ekki eftir að fólk hafði lagt fé í fyrirtækið. Gegn því að kaupa sér aðgang að fyrirtæk- inu fyrir 90 þús. kr. átti fólk að geta byrjað verslun með ýmsa vöruflokka og fengið umboðslaun af þeim við- skiptum sem færu í gegnum þá til- teknu verslun. Þessu fylgdi svokall- að sprinklekort, þ.e. afsláttarkort í verslunum og þjónustufyrirtækjum sem gilti sem aðgangskort að net- versluninni. Ennfremur stóð fólki til boða að kaupa hlut í fyrirtækinu fyr- ir 2 milljónir króna að lágmarki. Gylfi Gylfason segist hafa átt vin- samleg samskipti við sænska tals- menn fyrirtækisins í gær. „Þeir halda því enn fram að þeir muni borga þessa peninga,“ segir hann. „Ég lít svo á að þeir hafi hlaupið á sig í síðustu viku með að endurgreiða á þeim tíma sem þeir töluðu um, þ.e. föstudag í síðustu viku.“ Í reglum fyrirtækisins er kveðið á um endur- greiðslur til þeirra sem vilja hætta þátttöku í starfseminni. Segir Gylfi að Svíarnir hafi viljað endurgreiða fyrr en reglurnar kveða á um. Til stendur að talsmenn Sprinklenet- work komi hingað 22. nóv. til að kynna fyrirtækið og segir Gylfi að þeir vilji vera búnir að lægja öldurn- ar fyrir þann tíma. Vilja 30 milljónir endurgreiddar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.