Morgunblaðið - 12.11.2003, Síða 38
FRÉTTIR
38 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
TILKYNNINGAR
Auglýsing um afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar Kópavogs
á auglýstum tillögum að deiliskipulagi
Í samræmi við 1. mgr. 25. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breyt-
ingum, er hér með auglýst afgreiðsla bæjar-
ráðs og bæjarstjórnar Kópavogs á eftirfarandi
deiliskipulagstillögum:
Hörðuvellir. Deiliskipulag
Í samræmi við skipulags- og byggingarlög
nr. 73/1997, með síðari breytingum, hefur bæj-
arráð Kópavogs þann 24. júlí 2003 samþykkt
tillögu að deiliskipulagi á Hörðuvöllum
(Kórum). Tillagan nær til svæðis sem afmark-
ast af Rjúpnahæð í vestur, fyrirhuguðum Arn-
arnesvegi og Vatnsendahvarfi í norður, fyrir-
hugaðri íbúðarbyggð við Andarhvarf,
Fagraþing (Norðursvæði) og af svokölluðu
Suðursvæði í austur og Heimsenda í suður.
Á svæðinu er gert ráð fyrir blandaðri íbúðar-
byggð sérbýlis og fjölbýlis auk grunnskóla,
leikskólum, um 8 ha íþróttasvæði með íþrótta-
húsi og keppnisvöllum, svæði fyrir verslun
og þjónustu og kirkjulóð. Í tillögunni kemur
jafnframt fram fyrirhugað gatnakerfi, göngu-
leiðir, reiðleiðir, opin svæði, trjáræktarsvæði
og leiksvæði. Tillagan er sett fram á uppdrátt-
um í mkv. 1:1000 og 1:2000 ásamt greinar-
gerð, sneiðmyndum og skilmálum dags. 14.
apríl 2003. Tillagan var auglýst frá 23. maí til
25. júní 2003. Frestur til að skila inn athuga-
semdum og ábendingum rann út 9. júlí 2003.
Athugasemdir og ábendingar bárust. Með
tilvísan í framkomnar athugasemdir og ábend-
ingar voru á fundi skipulagsnefndar 15. júlí
2003 gerðar eftirfarandi breytingar á fram-
lögðum gögnum: Mörk skipulagssvæðis
breytt þannig að leigulandið Vatnsendablettur
163 verður utan deiliskipulagssvæðisins og
deiliskipulagi frestað á umræddu svæði. Fjöl-
býlishúsalóð við Vörðukór er breytt til að liðka
til fyrir gerð fyrirhugaðra undirganga og lagn-
ingu reiðleiðar. Að ósk Skipulagsstofnunar
voru eftirfarandi lagfæringar gerðar á fram-
lögðum gögnum: hugmyndir að deiliskipulagi
teknar út af frestuðum deiliskipulagssvæðum
á uppdrætti, ennfremur aðkoma og bílastæði
við Vindakór, Völukór og Hörðukór lagfærð,
kirkjulóð og íþróttasvæði skilgreind nánar;
Rjúpnavegur ekki skilgreindur sem þjóðvegur,
ákvæði um hljóðvist og fyrirvari um lóðar-
stærðir og hæðarlegu breytt í greinargerð,
ákvæði um kostnað við gerð húsagatna tekin
út úr greinargerð; kafla um mæli- og hæðar-
blöð og um húsfélög tekin út úr skipulagsskil-
málum ennfremur fallið frá ákvæði um sama
hönnuð fyrir byggð við Baugakór. Ofangreinar
lagfæringar á framlögðum gögnum voru stað-
festar í skipulagsnefnd 21. október 2003 og
í bæjaráði 23. október 2003. Samhliða deili-
skipulaginu var auglýst breyting á Aðalskipu-
lagi Kópavogs 2000-2012 sbr. uppdrátt í mkv.
1:10.000 dags. í apríl 2003. Aðalskipulags-
breytingin hlaut staðfestingu umhverfisráð-
herra 3. sept. 2003. Skipulagsstofnun hefur
yfirfarið málsgögnin og gerir ekki athuga-
semd við að birt verði auglýsing um samþykkt
deiliskipulagsins sbr. ofangreind lög. Auglýs-
ing um gildistöku deiliskipulagsins mun birt-
ast í B-deild Stjórnartíðinda 12. nóv. 2003.
Kríunes. Breytt deiliskipulag
Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr.
73/1997, með síðari breytingum, hefur bæjar-
stjórn Kópavogs þann 23. sept. 2003 samþykkt
tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Kríunes
í Vatnsendalandi. Í breytingunni felst að núver-
andi íbúð stækkar auk þess sem heimilt verður
að gera 3 nýjar íbúðir í húsinu. Í tillögunni felst
jafnframt að undir hluta hússins er gert ráð
fyrir kjallara þar sem verða m.a. bílageymslur,
þvottahús og geymslur. Grunnflötur og hæð
bygginga í Kríunesi verður óbreytt miðað við
gildandi deiliskipulag svo og heimagisting sem
rekin er í húsinu. Tillagan var auglýst í sam-
ræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997 frá 25. júlí til 18. ágúst 2003 með
athugasemdafresti til 1. september 2003. At-
hugasemdir og ábendingar bárust. Tillagan
var lögð fram að nýju í skipulagsnefnd 16. sept.
2003 ásamt umsögn Bæjarskipulags um fram-
komnar athugasemdir og ábendingar. Tillagan
var samþykkt óbreytt. Skipulagsstofnun hefur
yfirfarið málsgögnin og gerir ekki athugasemd
við að birt verði auglýsing um samþykkt deili-
skipulagsins sbr. ofangreind lög. Auglýsing
um gildistöku deiliskipulagsins mun birtast
í B-deild Stjórnartíðinda 12. nóv. 2003.
Smiðjuvegur 68-76. Deiliskipulag
Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr.
73/1997, með síðari breytingum, hefur bæjar-
stjórn Kópavogs þann 9. september 2003
samþykkt tillögu að deiliskipulagi við Smiðju-
veg 68-76. Skipulagssvæðið afmarkast af
Reykjanesbraut til austurs, Smiðjuvegi 68, 70
og 72 til suðurs og Smiðjuvegi til vesturs og
norðurs. Breytingin byggir á samkomulagi milli
Kópavogsbæjar og Reykjavíkurborgar um
breytingu á mörkum sveitarfélaganna við
Blesugróf. Í tillögunni felst að til verða tvær
nýjar lóðir fyrir atvinnuhúsnæði norðan
Smiðjuvegar 68-72 þ.e. norðar Sólningar að
hinum nýju sveitarfélagamörkum og norður-
mörk lóða við Smiðjuveg 68-72 breytast. Tillag-
an var auglýst frá 27. júní til 28. júlí 2003 með
athugasemdafresti til 11. ágúst 2003. Athuga-
semdir og ábendingar bárust.Tillagan var
samþykkt með þeim breytingum að botnkóti
fyrirhugaðs húss að Smiðjuvegi 76 verði
lækkaður um 2 metra; þök Smiðjuvegar 74 og
76 verði flöt; ásýnd húsa nr. 68-72 komi fram
á sneiðmynd og undirgöng undir Smiðjuveg
verði sýnd á uppdrætti á móts við aðalstíg.
Samhliða deiliskipulaginu var auglýst breyting
á Aðalskipulagi Kópavogs 2000-2012 sbr. upp-
drátt í mkv. 1:10.000 dags. í apríl 2003. Aðal-
skipulagsbreytingin hlaut staðfestingu um-
hverfisráðherra 7. október 2003. Skipulags-
stofnun hefur yfirfarið málsgögnin og gerir
ekki athugasemd við að birt verði auglýsing
um samþykkt deiliskipulagsins sbr. ofangreind
lög. Auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins
mun birtast í B-deild Stjórnartíðinda 12. nóv-
ember 2003.
Hnoðraholt. Lóð undir tækjahús og
fjarskiptastaur
Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr.
73/1997, með síðari breytingum, hefur bæjar-
ráð Kópavogs þann 26. júní 2003 samþykkt
tillögu að nýrri lóð fyrir tækjahús og fjar-
skiptastaur í Hnoðraholti, nánar tiltekið norðan
við spennistöð Orkuveitu Reykjavíkur. Tillagan
var auglýst í samræmi við 25. gr. skipulags-
og byggingarlaga nr. 73/1997 frá 19. febrúar
til 19. mars 2003 með athugasemdafresti til
2. apríl 2003. Engar athugasemdir og ábend-
ingar bárust. Skipulagsstofnun hefur yfirfarið
málsgögnin og gerir ekki athugasemd við að
birt verði auglýsing um samþykkt deiliskipu-
lagsins sbr. ofangreind lög. Auglýsing um gild-
istöku deiliskipulagsins mun birtast í B-deild
Stjórnartíðinda 12. nóvember 2003.
Vatnsendi. (F-2 reitur).
Breytt deiliskipulag. Lóð undir tækjahús
og fjarskiptastaur
Í samræmi við skipulags- og byggingarlög nr.
73/1997, með síðari breytingum, hefur bæjar-
ráð Kópavogs þann 3. apríl 2003 samþykkt til-
lögu að breyttu deiliskipulagi á sk. F 2 reit í
Vatnsendalandi. Í tillögunni felst heimild til
að reisa tækjahús og fjarskiptastaur við Vatns-
endaveg á mörkum F-reitar og fyrirhugaðrar
grunnskólalóðar á Norðursvæði Vatnsenda.
Tillagan var auglýst í samræmi við 25. gr.
skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 frá
12. febrúar til 12. mars 2003 með athuga-
semdafresti til 26. mars 2003. Engar athuga-
semdir eða ábendingar bárust. Skipulagsstofn-
un hefur yfirfarið málsgögnin og gerir ekki at-
hugasemd við að birt verði auglýsing um
samþykkt deiliskipulagsins sbr. ofangreind
lög. Auglýsing um gildistöku deiliskipulagsins
mun birtast í B-deild Stjórnartíðinda 12. nóv.
2003.
Nánari upplýsingar eða gögn um ofangreindar
deiliskipulagsáætlanir og afgreiðslu þeirra er
hægt að nálgast á Bæjarskipulagi Kópavogs,
Fannborg 6, 200 Kópavogi, milli kl. 8:00 og
16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudög-
um frá 8:00 til 14:00.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
JÓLAMERKI Thorvaldsensfélags-
ins er komið út. Félagið hefur gefið
út jólamerki í 90 ár. Að þessu sinni
prýðir merkið myndin „Englar“
eftir Þröst Magnússon og grafískur
hönnuður er Robert Gulliermette.
Allur ágóði af sölu merkjanna fer
til styrktar veikum börnum. Örk
með 12 merkjum kostar 300 kr.
Jólamerkin eru til sölu á öllum
pósthúsum landsins, í Thorvald-
sensbazarnum, Austurstræti 4 og
hjá félagskonum.
Á heimasíðu félagsins www.thor-
valdsens.is er hægt að skoða jóla-
merkin. Einnig er hægt að panta
jólamerki á netfangi, thorvaldsens-
@isl.is.
Jólamerki
Thorvald-
sensfélagsins ATHUGASEMD frá Jóhönnu Harð-
ardóttur, formanni Félags eigenda
og ræktenda Landnámshænsna: „Í
viðtali við Friðrik G. Olgeirsson
sagnfræðing í Morgunblaðinu 10.
nóvember kemur fram að hann álíti
að landnámshænur hafi nær þurrk-
ast út á Íslandi í móðuharðindunum.
Sjálfsagt hafa hænur verið hætt
komnar á þessum tíma eins og önnur
dýr og menn, en þær lifðu sannan-
lega af eins og annar búpeningur á
Íslandi að svínum undanskildum.
Friðrik lætur að því liggja að þær lit-
skrúðugu hænur sem hann kallar
„íslenskar hænur“ séu að stærstum
hluta blanda af „brúnum ítölum“
sem hafi komið til landsins í byrjun
20. aldar. Hann vitnar einnig í Stefán
Aðalsteinsson erfðafræðing og segir
að niðurstaða úr vefjarannsókn hans
hafi sýnt að landnámshænur hafi
verið nánast útdauðar hér á landi.
Hér fer Friðrik beinlínis með rangt
mál. Ég hafði samband við Stefán
Aðalsteinsson og hann staðfesti að
við skoðun á vefjasýnum hefði hvergi
komið fram neinn skyldleiki við
neina aðra hænsnastofna á hinum
Norðurlöndunum og einna helst hafi
skyldleika verið að leita til hins
forna, norska hænsnastofns sem
heitir Jaðarhænur. Friðrik G. Ol-
geirsson má hafa sínar skoðanir á
nafni félagsins okkar og tilgangi
þess. Hann má einnig véfengja að
landnámshænur verpi vel þótt sú
staðreynd skipti minnstu máli fyrir
eigendurna. Ef hann ætti sjálfur
slíkar hænur gæti hann þó vitað að
við góðar aðstæður verpa þær eggi á
dag á varptíma og halda því áfram
árum saman, ólíkt öðrum hænsn-
um.“ Í athugasemdinni segir Jó-
hanna ennfremur: „Fyrir hönd fé-
lagsins vil ég vinsamlega biðja þá
sem skrifa um landnámshænur og
félagið sem nýlega var stofnað um
ræktun þeirra að leita sannleikans
hjá sérfræðingum áður en þeir
munda öxina til slátrunar.“
Frá formanni Félags eigenda
og ræktenda landnámshænsna