Morgunblaðið - 12.11.2003, Page 42
DAGBÓK
42 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Helga, Freyja, Mána-
foss, Richmond Park,
Trinket og Laugarnes
koma í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur. Skrifstofa
s. 551 4349, opin mið-
vikud. kl. 14–17.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa og postulín,
kl. 13 postulín.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 10.30–
11.30 heilsugæsla, kl.
13–16.30 smíðar og
handavinna, kl. 13 spil.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–
12 glerlist, kl. 9–16
handavinna, kl. 13–
16.30 bridge/vist, kl.
13–16 glerlist.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 10 leikfimi,
kl. 14.30 bankinn, kl.
14.40 ferð í Bónus, kl.
9–16.30 púttvöllurinn ef
veður leyfir.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin, kl.
10–13 opin verslunin,
kl. 13.30 bankinn, kl.
11–11.30 leikfimi.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9 postu-
lín, kl. 13 trémálun.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 9.30 hjúkr-
unarfræðingur á staðn-
um, kl. 10–12 verslunin
opin, kl. 13 föndur og
handavinna,
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Kl. 9.30,
10,20 og 11.15 leikfimi,
kl. 10 vinnustofa gler,
kl. 13 handa-
vinnuhornið, kl 13.30
trésmíði nýtt og notað,
kl. 13. bridge í Garða-
bergi, kl. 13.30 opið hús
í Holtsbúð spilað og
skemmtidagskrá, kl. 16.
stafganga frá Kirkju-
hvoli.
Félag eldri borgara,
Kópavogi. Skrifstofan
er opin í dag frá kl. 10–
11.30, viðtalstími í Gjá-
bakka kl. 15–16.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Opnað
kl. 9, myndment kl. 10–
16, línudans kl. 11, gler-
list kl 13, pílukast kl.
13.30, biljard kl 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Leikfélagið
Snúður og Snælda æf-
ing kl. 11. Síðdegisdans
kl. 14.30, Sighvatur
Sveinsson stjórnar.
Söngfélag FEB kóræf-
ing kl. 17.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, kl. 10.30 sund og
leikfimiæfingar í Breið-
holtslaug, gamlir leikir
og dansar frá hádegi
spilasalur opinn kl. 13
kóræfing.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–17 handavinna, kl.
9.30 boccia, kl. 9.30 og
kl. 13 glerlist, kl. 13 fé-
lagsvist, kl. 16 hring-
dansar, kl. 17. bobb.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 og kl. 9.55 leikfimi,
kl. 10 ganga, kl. 11
boccia. Línudans kl. 17.
Dagur vatnsins í Gull-
smára. Kl. 10 heimsókn
í Gvendarbrunnarhús í
Heiðmörk. Dagskrá kl.
14. Afhending vatns-
brunns frá Bún-
aðarbanka Íslands,
Bergþór Pálsson syng-
ur.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurður,
banki, kl. 13 brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl.
9–15 handmennt, kl. 9–
10 og kl. 10–11 jóga, kl.
9.30–10.30 sögustund,
kl. 14.30 spænska, byrj-
endur, kl. 15–18 mynd-
list.
Korpúlfar Grafarvogi.
Á morgun pútt á Korp-
úlfsstöðum kl. 10.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 vinnustofa, kl. 9–
16 fótaaðgerð, kl. 13–
13.30 bankinn, kl. 14 fé-
lagsvist, kaffi og verð-
laun.
Vesturgata 7. Kl. 8.25–
10.30 sund, kl. 9.15–16
myndmennt, kl. 12.15–
14.30 verslunarferð, kl.
13–14 spurt og spjallað,
kl. 13–16 tréskurður.
Vitatorg. Kl. 8.45
smiðja, kl. 10 búta-
saumur, bókband og
föndur kl. 13. kóræfing
og verslunarferð kl.
12.30.
Vinahjálp, brids spilað
á Hótel Sögu í dag kl.
13.30.
Hafnargönguhóp-
urinn. Kvöldganga kl.
20. Lagt af stað frá
horni Hafnarhúsins
norðanmegin.
Rangæingar – Skaft-
fellingar. Spilakvöld í
kvöld kl. 20 í Skaftfell-
ingabúð á Laugavegi
178. Kaffiveitingar.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12.
Kl. 19.30 félagsvist.
ITC Melkorka fundur í
Borgartúni 22, 3. hæð. í
kvöld kl. 20, fundurinn
er öllum opin. Upplýs-
ingar veitir Gunnlaug,
s. 581 1172.
Slysavarnakonur í
Reykjavík. Fé-
lagsfundur fimmtud.
13. nóv. kl. 20 í Höllu-
búð. Að loknum venju-
legum félagsstörfum
verður Ingibjörg Þeng-
ilsdóttir miðill með
skyggnilýsingarfund.
Í dag er miðvikudagur 12. nóv-
ember, 316. dagur ársins 2003.
Orð dagsins: En sá sem upp-
fræðist í orðinu, veiti þeim, sem
uppfræðir, hlutdeild með sér í
öllum gæðum. (Gl. 6, 6.)
Undanfarið hefur veriðkraftmikil umræða
um stöðu kynjanna.
„Þeir sem berjast fyrir
jöfnum réttindum og
tækifærum einstaklinga,
óháð kynferði, kalla sig
gjarnan femínista og
boðskap sinn fem-
ínisma,“ segir Geir
Ágústsson í málgagni
Frjálshyggjufélagsins,
Ósýnilegu höndinni.
Hann útskýrir eina gerð
femínisma sem kallast
einstaklingsmiðaður fem-
ínismi: „Kjarninn í boð-
skap hans er að allar
manneskjur hafi siðferð-
islegan og lögbundinn
rétt til að ráða sínu lífi
og eigum sínum án af-
skipta annarra, en hið
opinbera eigi að gæta
þess að þetta frelsi sé
virt í hvívetna.“
Hann segir muninn áþessari gerð fem-
ínisma og þeim hug-
myndum sem Íslendingar
þekki best vera áherslan
á einstaklinginn. Þessi
munur sé mikill þó end-
anlegt markmið sé það
sama. „Fylgjendur
beggja stefna telja sig
vera að berjast fyrir
jöfnum réttindum
kynjanna og segjast vilja
tryggja að ekki sé mis-
munað eftir kynferði.
Einstaklingsmiðaður
femínismi styður hins
vegar ekki lög sem mis-
muna eftir kynferði þótt
ef til vill halli á annað
hvort kynið innan ein-
hverra starfstétta,“ segir
Geir.
Friðbjörn Orri Ket-ilsson segir í sama
blaði að vinnuveitendur
vegi og meti einstak-
lingana og taki þá
ákvörðum sem er best
hverju sinni. Þeir há-
marki hag sinn með því
að ráða þann einstakling
sem hæfastur er. Ef fyr-
irtæki taki aðra þætti
fram yfir hæfni, til dæm-
is kyn eða háralit, er víst
að næsta fyrirtæki mun
ráða þann hæfasta.
„Markaðurinn spyr ekki
um hörundslit bakarans,
heldur hvernig brauðið
smakkast,“ segir í til-
vitnun Friðbjörns.
Það ætti líka að verakeppikefli allra sem
berjast fyrir jafnrétti að
tryggja hér sem mesta
samkeppni á flestum
sviðum. Þá hafa fyr-
irtækin ekki sömu tæki-
færin til að mismuna
fólki. Þeir sem mismuna
þurfa nefnilega að bera
kostnað af ákvörðun
sinni; ráða t.d. son for-
stjórans í stað hæfa um-
sækjandans. Aukin sam-
keppni er því tæki til að
eyða mismunun. Það sést
líka ef skoðuð er rétt-
indabarátta blökku-
manna í Bandaríkjunum.
Þeir náðu fyrst árangri á
sviði íþrótta. Þar eru
reglurnar skýrar og
samkeppnin tærust. Þeir
sem hlupu hraðast unnu.
Hefði liðsstjórinn valið
son sinn í liðið í stað þess
sem hljóp hraðast hefði
liðið hans tapað. Kostn-
aðurinn af ákvörðuninni
hefði komið strax í ljós
og árangur liðsstjórans
orðið lakari en ella.
STAKSTEINAR
Einstaklingsmiðaður
femínismi
Víkverji skrifar...
NETVÆÐINGIN í þjóðfélaginuhefur ekki farið framhjá Vík-
verja, enda er hann verulega háður
þessum nýja fjölmiðli. Ef komast
ætti yfir allt efni á Netinu myndi
okkur ekki duga ævin til þess. Því
ætlar Víkverji að víkja að einu að-
skildu efni tengdu netvæðingunni,
þ.e. kúnstinni að tryggja sér lén.
Sé aðeins litið til ráðherra rík-
isstjórnar Íslands þá hafa þeir ver-
ið misjafnlega snöggir til. Fremst-
an skal þó nefna Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra sem fyrstur
reið á vaðið með vefsíðu sína, sem
nýverið var kjörin besti ein-
staklingsvefurinn. Skaut Björn þar
1.752 öðrum nöfnum sínum í land-
inu ref fyrir rass er hann opnaði
www.bjorn.is í ársbyrjun 1995. Siv
Friðleifsdóttir umhverfisráðherra
keppti við öllu færri nöfnur sínar á
þessu sviði, en samkvæmt þjóð-
skrá eru aðeins sex konur í landinu
með fornafnið Siv, að ráðherra
meðtöldum. Aðrir ráðherrar jafn-
forsjálir eru Valgerður Sverr-
isdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, og Sturla Böðvarsson
samgönguráðherra. Valgerður
virðist hafa verið fyrst 785 kvenna
með að stofna www.valgerdur.is og
veffangið www.sturla.is hefðu 144
aðrir íslenskir karlmenn en sam-
gönguráðherra getað notað. Þeir
ráðherrar sem Víkverji telur að
hafi möguleika á að tryggja sér
gott veffang eru Geir H. Haarde
fjármálaráðherra, Árni Magnússon
félagsmálaráðherra, Árni M.
Mathiesen sjávarútvegsráðherra
og Tómas Ingi Olrich menntamála-
ráðherra, sem og arftaki hans um
áramótin, Þorgerður Katrín Gunn-
arsdóttir. Árnarnir gætu þó þurft
að slást um slóðina www.arnim.is.
SÍÐAN sér Víkverji ekki beturen að aðrir ráðherrar hafi
misst af þessari lest, þ.e. Davíð
Oddsson forsætisráðherra, Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra,
Guðni Ágústsson landbún-
aðarráðherra og Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra. Guðni nokkur
Þorbjörnsson virðist hafa slegið
landbúnaðarráðherra við, Halldór
Kolbeins ljósmyndari hefur tryggt
sér www.halldor.is en öllu óljósara
er hver ræður yfir léninu www.da-
vid.is. Þar má m.a. finna miður fal-
legt myndefni. Léninu www.jon.is,
sem á sjötta þúsund íslenskra karl-
manna hefðu getað nýtt sér, ræður
svo yfir hinn landskunni og geð-
þekki tónlistar- og sjónvarps-
maður, Jón Ólafsson. Kannski þyk-
ir einhverjum þessar pælingar
Víkverja ekki hafa mikið pólitískt
vægi en þarna er þó verið að tala
um ákveðna ímynd stjórnmála-
manna, sem nú er farið að verð-
launa, samanber nýleg auglýs-
ingaverðlaun til handa
Framsóknarflokknum. Spurning
hvort t.d. formaður Framsókn-
arflokksins gangi ekki til viðræðna
við þennan ljósmyndara.
Morgunblaðið/Þorkell
Lénið www.bjorn.is hefðu um 1.750
Birnir getað nýtt sér.
The Match
Ísland-Holland,
frábær leikur
Á STÓRA sviði Borgarleik-
hússins er um þessar mund-
ir boðið upp á frábæra
skemmtun sem áhugamenn
um fótbolta og aðrar íþrótt-
ir ættu ekki að láta fram hjá
sér fara. Og auðvitað ekki
heldur unnendur góðs leik-
húss.
Íslenski dansflokkurinn
sýnir þar verk eftir hol-
lenska danshöfundinn
Lonneke Van Leth sem
hittir glæsilega í mark. Sýn-
ingin er fyndin og frískleg,
kröftug og mjög erótísk á
kafla. Hún er meistaraleg
blanda af hráum alþýðleik
fótboltans og nútímalegri
danstækni eins og hún ger-
ist best. Hollensk brú yfir
síki sem skilur að tvær
skyldar greinar, dansinn og
fótboltann. Og ekki spillir
fyrir að úrslitin í leiknum,
Ísland-Holland, eru með
hagstæðasta móti fyrir
„okkur“.
Fótboltamenn og -konur,
sjáið ykkur sjálf í nýju ljósi!
Áhorfendur, hleypið tilfinn-
ingunum út eins og á góðum
kappleik! Æpið ef þið hríf-
ist, púið, ef þið verðið fyrir
vonbrigðum.
Á undan The Match eru
tveir styttri dansar, báðir
spennandi verk með óvænt-
um uppákomum og vel
leiknir. Ágætisupphitun
fyrir aðalmálið, sjálfan
landsleikinn, Ísland-Hol-
land, þar sem flottir strákar
og flottar stelpur spila sam-
an í liði.
Meiriháttar. Kúl. Takk
fyrir skemmtunina!
Áfram Ísland-Holland!
Steinunn Jóhannesdóttir
rithöfundur.
Þakkarverð grein
FALLEG og sterk í hóg-
værð sinni, fagnaðarrík og
opnandi sýn inn í heim Guðs
er greinin hans séra Úlfars
á Eyrarbakka í Morgun-
blaðinu laugardaginn 8. nóv.
Bara fyrsta setningin er
eins og lausnarorð inn í
löngu staðnaða umræðu þar
sem vantrúin, efinn og nið-
urrifsandinn höfðu sett
áhrifagjarnri hugsun okkar
mannanna stólinn fyrir
dyrnar. Framhaldið hjá
greinarhöfundi stendur allt
undir þeim væntingum sem
upphafið vekur, og er þá
mikið sagt.
„Á allraheilagramessu
2003“ eru orð eins sjáand-
ans enn í langri lærisveina-
sögu kristninnar.
Hafi séra Úlfar þökk fyr-
ir, og mættu sem flestir lesa
þessa grein, læra af henni
og taka anda hennar sér til
eftirbreytni.
Jón Valur Jensson.
Trico-sokkar
FÓLK er oft að kvarta und-
an sokkum með stífri teygju
en margir eiga erfitt með að
komast í og ganga í þannig
sokkum. Ég vil benda fólki á
að Trico-sokkarnir frá Vík í
Mýrdal eru ekki með þann-
ig teygju. Er ég búin að
ganga í sokkum frá þeim í
heilt ár og er mjög ánægð
með þá. Vil ég benda fólki á
að þessir sokkar fást í Hag-
kaupum í Skeifunni.
Kristín.
Tapað/fundið
Skinnhanski
týndist
BRÚNN skinnhanski með
loðkanti týndist í miðbæn-
um. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 690 3170.
Dýrahald
Norskur skógarköttur
fæst gefins
NORSKUR skógarköttur,
9 mánaða loðin gulbrún
læða, fæst gefins. Upplýs-
ingar í síma 554 7787 eða
694 6875.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
LÁRÉTT
1 gimsteinn, 8 málmi, 9
slæmur, 10 haf, 11 dimm-
viðri, 13 hirði um, 15
reiðtygi, 18 aulann, 21
ótta, 22 sárið, 23 flýtinn,
24 gullhamrar.
LÓÐRÉTT
2 talar, 3 byggi, 4 spjóts,
5 reyfið, 6 guðs, 7 stífni,
12 kvendýr, 14 fag, 15
höfuð, 16 gamla, 17
þekktu, 18 óskunda, 19
stétt, 20 nákomna.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
2
Lárétt: 1 þraut, 4 þylur, 7 kofar, 8 raust, 9 tap, 11 rýrt,
13 ótta, 14 ógnun, 15 þarm, 17 nóta, 20 hin, 22 felli, 23
ómyrk, 24 rautt, 25 tætir.
Lóðrétt: 1 þokar, 2 aðför, 3 tært, 4 þorp, 5 laust, 6 rotta,
10 agnúi, 12 tóm, 13 ónn, 15 þefur, 16 rellu, 18 ólykt, 19
arkar, 20 hitt, 21 nótt.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16