Morgunblaðið - 12.11.2003, Side 47
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2003 47
BALDUR Ingimar Aðalsteinsson, Húsvíkingur-
inn sem leikið hefur með ÍA undanfarin fimm ár,
og Þórhallur Hinriksson úr KR eru gengnir til
liðs við Val og hafa samið við Hlíðarendaliðið til
þriggja ára. Þá skrifaði Matthías Guðmundsson
undir nýjan samning við Val í gærkvöld en hann
hafði sagt fyrri samning sínu upp þegar liðið féll
úr úrvalsdeildinni í haust, og ennfremur er frá-
gengið að fyrirliðinn Sigurbjörn Hreiðarsson
verður um kyrrt á Hlíðarenda en lið úr úrvals-
deildinni höfðu augastað á honum.
„Ég er búinn að eiga fimm frábær ár upp á
Skaga þar sem ég hef unnið titla flest árin en
mér fannst kominn tími til að breyta til. Ég hef
verið búsettur í Reykjavík undanfarin tvö ár og
það var farið að taka töluvert á mann að keyra á
milli. Vissulega er erfitt að yfirgefa ÍA en ég mat
stöðuna að það hentaði mér best að fara til Vals.
Það skiptir mig ekki miklu hvort ég spila í 1.
deild eða úrvalsdeild. Mér finnst Valur spenn-
baki í efstu deild, 62 með KR, 27 með Breiðabliki
og einn með KA. Þórhallur hefur leikið með öll-
um landsliðum Íslands, 27 leiki með yngri lið-
unum og fimm með A-landsliðinu. Síðast lék
hann fyrir Íslands hönd í Indlandsferð landsliðs-
ins í janúar 2001 og skoraði þá gegn Uruguay.
Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnu-
deildar Vals, sagði í gærkvöld að það væri mikill
fengur að fá Baldur og Þórhall í raðir Vals, ekki
síst vegna þess að báðir hefðu þeir reynslu af því
að vinna stóra titla og gætu vonandi miðlað af
henni á Hlíðarenda.
andi félag og ég heyri það á mönnum að stefnan
hefur verið tekin á að komast upp og ná stöðug-
leika í liðið. Ég held að það eigi vel að vera hægt
með þennan mannskap,“ sagði Baldur við Morg-
unblaðið í gær.
Baldur er 23 ára gamall miðjumaður sem lék
15 leiki með ÍA í úrvalsdeildinni í sumar en sam-
tals hefur hann leikið 67 leiki með Skagamönn-
um í efstu deild og skorað fjögur mörk. Baldur á
tvo A-landsleiki að baki sem hann lék á síðasta
ári, gegn Sádi-Arabíu og Brasilíu.
Þórhallur er 27 ára miðjumaður og hefur leik-
ið með KR-ingum undanfarin sex ár en þar hefur
hann fjórum sinnum orðið Íslandsmeistari. Hann
hóf ferilinn með KA, lék sinn fyrsta leik í efstu
deild 15 ára og 360 daga gamall árið 1992, ein-
mitt gegn Val, og spilaði með Akureyrarliðinu í
næstefstu deild til 1994. Frá 1995 til 1997 lék
Þórhallur með Breiðabliki, og frá 1998 hefur
hann spilað með KR. Hann á samtals 90 leiki að
Baldur og Þórhallur gengnir
til liðs við Valsmenn
Þórhallur Baldur
SEPP Blatter, forseti Alþjóða
knattspyrnusambandsins
(FIFA), gagnrýnir seinagang
enska knattspyrnusambands-
ins í máli Rios Ferdinands og
hefur krafist þess að sam-
bandið komist að niðurstöðu
hið fyrsta og dæmi varnar-
manninn í keppnisbann.
„Mál af þessu tagi er hægt
að afgreiða með hraði þar sem
það er á hreinu, að mæti mað-
ur ekki í lyfjapróf jafngildir
það að falla á prófi,“ segir
Blatter. FIFA hefur hótað að
taka sjálft af skarið, verði á
máli Ferdinands tekið með
silkihönskum af enska sam-
bandinu.
Blatter vill
niðurstöðu
SÆVAR Árnason, fyrrum fyrirliði
handknattleiksliðs KA, var óvænt í
leikmannahópi liðsins í leiknum gegn
Þór í gær. Sævar var búinn að leggja
skóna á hilluna en hefur verið að æfa
undanfarið, vegna forfalla hjá horna-
mönnum liðsins.
SÆVAR lék síðustu 20 mínútur
leiksins og þurfti nokkrar tilraunir til
að stilla kanónuna. Fyrsta skot hans
var nálægt því að hæfa ljósmyndara
við endamörkin og Jónas Stefánsson
varði síðan tvívegis glæsilega frá
honum. Í fjórðu tilraun kom Sævar
boltanum í netið og það reyndist síð-
asta mark leiksins og tryggði hann
sínum mönnum þar með annað stigið.
LEMGO náði með naumindum
jafntefli, 32:32, gegn Nordhorn á úti-
velli í þýsku 1. deildinni í handknatt-
leik í gærkvöld. Nordhorn virtist
hafa skorað sigurmark í blálokin en
leikmenn Lemgo voru eldsnöggir að
byrja á miðju og Andre Tempel-
meier jafnaði metin. Flensburg og
Lemgo eru nú jöfn og efst í deildinni
með 19 stig, Flensburg eftir 11 leiki
og Lemgo eftir 12. Magdeburg,
Hamburg og Kiel eru öll með 16 stig,
og hafa öll leikið 10 leiki.
Í HÁLFLEIK í Nordhorn var
dregið til 16-liða úrslita í þýsku bik-
arkeppninni í handknattleik. Í tveim-
ur tilvikum lentu Íslendingalið sam-
an. Magdeburg, lið Sigfúsar Sig-
urðssonar og Alfreðs Gíslasonar,
fær þá Einar Örn Jónsson og Rúnar
Sigtryggsson í heimsókn með Wall-
au-Massenheim. Þá tekur Wilhelms-
havener, lið Gylfa Gylfasonar, á móti
Jaliesky Garcia og félögum í Göpp-
ingen.
EINN Íslendingur enn verður á
ferðinni í 16-liða úrslitum keppninn-
ar. Aleksandrs Petersons og félagar
hans í Düsseldorf fá lið Spenge í
heimsókn.
TONY Adams, knattspyrnustjóri
Wycombe, hefur mikinn hug að fá
fyrrverandi félaga sinn hjá Arsenal,
sem leikmann og aðstoðarmann. Það
er Frakkinn Gilles Grimandi, 33 ára,
sem er nú leikmaður í Bandaríkjun-
um.
SOUTHAMPTON hefur bannað
Agustin Delgado, sóknarmanni frá
Ekvador, að fara á heimaslóðir til að
leika gegn Paraguay og Perú í und-
ankeppni HM. Stjórnarmenn South-
ampton segja að Delgado sé ekki
heill heilsu eftir meiðsli og fari
hvergi. Hann skoraði 9 mörk fyrir
Ekvador í síðustu undankeppni HM
en hefur ekki náð sér á strik í ensku
knattspyrnunni.
ANTHONY Gardner, varnarmað-
ur frá Tottenham Hotspur, hefur
verið kallaður inn í enska landsliðs-
hópinn í knattspyrnu í fyrsta sinn.
Hann kemur í staðinn fyrir Gareth
Southgate sem er meiddur.
FÓLK
Þrír nýliðar eru í hópnum; ÓmarJóhannsson markvörður úr
Keflavík, sem varið hefur mark 21-
árs landsliðsins,
Ólafur Ingi Skúla-
son, miðjumaður frá
Arsenal og Kristján
Örn Sigurðsson,
varnarmaður úr KR, sem hefur hef-
ur þó verið í hópnum áður en ekki
spilað leik með landsliðinu. Ólafur
Ingi var kallaður inn í hópinn í gær,
eftir að hann var tilkynntur, þegar í
ljós kom að Bjarni Guðjónsson væri
meiddur. Landsliðshópinn skipa,
landsleikir í sviga:
Árni G. Arason, Rosenborg (32)
Ómar Jóhannsson, Keflavík (0)
Rúnar Kristinsson, Lokeren (103)
Helgi Sigurðsson, Lyn (50)
Þórður Guðjónsson, Bochum (49)
Ríkharður Daðason, Fredrikst. (43)
Tryggvi Guðmundsson, Stabæk (32)
Arnar Þór Viðarsson, Lokeren (29)
Auðun Helgason, Landskrona (27)
Ólafur Ö. Bjarnason, Grindavík (14)
Indriði Sigurðsson, Genk (13)
Marel Baldvinsson, Lokeren (11)
Bjarni Þorsteinsson, Molde (9)
Gylfi Einarsson, Lillström (8)
Hjálmar Jónsson, Gautaborg (5)
Veigar P. Gunnarsson, KR (4)
Kristján Örn Sigurðsson, KR (0)
Ólafur Ingi Skúlason, Arsenal (0)
Sjö úr þessum hópi voru í byrj-
unarliðinu á móti Þjóðverjum í Ham-
borg í síðasta mánuði, Árni Gautur,
Rúnar, Helgi, Þórður, Arnar Þór,
Ólafur Örn og Indriði, og þá komu
Ríkharður og Veigar Páll inn á sem
varamenn í seinni hálfleik.
„Við stefndum að því að fá í ferð-
ina okkar sterkasta lið en því miður
tókst það ekki. Þessir strákar sem
ekki gáfu kost á sér vildu allir vera
með en félög þeirra voru með
ákveðnar hótanir gagnvart þeim og
stilltu þeim upp við vegg. Þetta er
erfitt við að ráða og auðvitað skilur
maður sjónarmið strákanna,“ sagði
Logi Ólafsson, landsliðsþjálfari, við
Morgunblaðið.
Logi sagði að vissulega hefðu
hann og Ásgeir Sigurvinsson, sam-
herji hans, verið í erfiðri stöðu gagn-
vart þeim leikmönnum sem ekki
gáfu kost á sér. „Við hefðum getað
beitt hörðum ráðum til að fá þessa
menn en með því værum við kannski
að skjóta okkur í fótinn. Leikmenn-
irnir fengju ekki að spila með sínum
liðum og það var nú helsta umræðan
fyrir síðasta leik hvað við vorum með
marga menn í hópnum sem ekki
leika að staðaldri.“
En eru ekki fleiri leikmenn
Chelsea að fara í leiki með sínum
landsliðum?
„Aðalástæðan að baki því að
Chelsea setur sig á móti því að Eiður
Smári fari er sú að Hernan Crespo
og Veron eru farnir í tvo leiki í und-
ankeppni HM með Argentínu og þeir
koma ekki til baka fyrr en á föstu-
degi, eða degi fyrir leik hjá Chelsea
gegn Southampton 22. nóvember.
Þar með vænkast hagur Eiðs að vera
í byrjunarliðinu. Ef þessi leikur hefði
verið á fyrri alþjóðlega leikdeginum,
sem er á laugardaginn, hefðum við
fengið alla þessa menn sem við ósk-
uðum eftir og eins ef hann hefði verið
spilaður í Evrópu.“
Logi segir það synd að geta ekki
farið til Mexíkó með sitt sterkasta lið
en á móti kemur að í liðið eru kallaðir
til leikmenn sem ekki hefur gefist
tækifæri til að fylgjast nægilega með
í leik og starfi á undanförnum miss-
erum. „Við erum alls ekki að kasta
rýrð á þá stráka sem koma inn í stað
þeirra sem ekki áttu heimangengt.
Við teljum að þeir eigi allir mögu-
leika á að festa sig í sessi. Ómar hef-
ur til að mynda staðið sig mjög vel
með ungmennalandsliðinu og var
verulega góður í leiknum gegn Þjóð-
verjum. Við þurfum að huga að fram-
tíðinni og Ómar kemur inn í stað
Birkis sem er að taka við nýju starfi
sem gerir honum erfitt fyrir að vera
með á fullu.“
Um endurkomu Auðuns sagði
Logi: „Við Ásgeir fórum til Svíþjóðar
í haust og sáum hann spila býsna vel
fyrir Landskrona. Hann fær þarna
kærkomið tækifæri til að sýna okkur
hvað í honum býr og það á við um
fleiri leikmenn í þessum hópi. Menn
sem gera það gott í þessari ferð og
falla vel inn í hópinn færa sig bara
nær liðinu,“ segir Logi.
Eiður ekki með
á móti Mexíkó
TALSVERÐ afföll eru á íslenska landsliðinu í knattspyrnu sem mæt-
ir Mexíkó í vináttulandsleik í San Francisco 19. þessa mánaðar.
Fyrirliðinn Eiður Smári Guðjohnsen, Hermann Hreiðarsson, Ívar
Ingimarsson, Jóhannes Karl Guðjónsson og Brynjar Björn Gunn-
arsson gáfu ekki kost á sér vegna stöðu sinnar hjá sínum erlendu
félögum og þá eru Bjarni Guðjónsson, Arnar Grétarsson, Pétur Haf-
liði Marteinsson, Lárus Orri Sigurðsson og Heiðar Helguson meidd-
ir. Sömuleiðis gæti Rúnar Kristinsson hugsanlega dottið út úr
hópnum af persónulegum ástæðum en það ætti að skýrast í dag.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
BÆÐI KR og Fylkir hafa sett sig í samband við
Bjarna Þorsteinsson, knattspyrnumann hjá
Molde í Noregi, og hafa hug á að fá hann í sínar
raðir fyrir næsta tímabil. Bjarni staðfesti þetta í
samtali við Morgunblaðið í gær og sagði jafn-
framt að það væri nánast öruggt að hann hætti
hjá Molde að þessu tímabili loknu, sem er hans
þriðja með félaginu, en til þess tíma lék hann
með KR.
„Ég fékk tilboð frá Molde sem ég gat engan
veginn sætt mig við og er því að pakka niður og
búa mig undir að fara héðan. Reyndar fer ég
með landsliðinu í leikinn gegn Mexíkó í næstu
viku og síðan spilum við í Molde gegn Benfica í
UEFA-bikarnum 27. nóvember, en að öllu
óbreyttu verður það kveðjuleikur minn með fé-
laginu,“ sagði Bjarni, sem hefur einnig verið
orðaður við danska úrvalsdeildarliðið AGF en
það er skammt á veg komið, að sögn Bjarna.
„Umboðsmaðurinn minn hefur verið í sam-
bandi við Danina en það skýrist ekki fyrr en um
eða eftir mánaðamótin hvort meira verður úr
því. Annars tel ég það góðan kost að koma heim,
það var alltaf stefnan að spila aftur á Íslandi og
bæði KR og Fylkir hafa verið í sambandi við mig
að undanförnu. En aðalmálið er að vera þar sem
fjölskyldunni hentar best,“ sagði Bjarni Þor-
steinsson.
Hann er 27 ára gamall og hefur spilað 9 A-
landsleiki fyrir Íslands hönd, síðast gegn Skotum
í Glasgow í mars, og er í hópnum sem valinn var
í gær til að leika gegn Mexíkó í næstu viku.
Bjarni í KR eða Fylki?
Bjarni Þorsteinsson