Morgunblaðið - 12.11.2003, Side 50
50 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Miðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 4 og 6.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 16.
kl. 6. B.i. 16.
Kl. 8. B.i. 16.
Sýnd kl. 4.
með ísl. tali.
Miðav
erð
kr. 50
0
BRJÁLUÐ BÍÓUPPLIFUN!
Kvikmyndir.com
Skonrokk FM909
HJ MBL
„Snilldarverk“
HK DV
„Brjálæðisleg
Kvikmynd“
„Frábær mynd“
4. myndin frá Quentin Tarantino
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12.
Þú deyrð úr hlátri enn og aftur!
Stærsta október opnun allra tíma í USA!
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 10 ára.
ÞÞ FBL
Síðu
stu
sýn
inga
r
3D
gleraugu
fylgja hverjum
miða
Yfir 20.000 gestir
Stærsta grínmynd ársins!
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 10 ára.
Miða
verð
kr. 50
0
Sýnd kl. 6.
Sýnd kl. 8 og 10.40.
DV
Kvikmyndir.com
OPEN RANGE
Stórkostlegur
vestri
frá Kevin
Costner
leikstjóra
DANSAR VIÐ
ÚLFA
Þú deyrð úr hlátri enn
og aftur!
Stærsta október opnun
tíma í USA!
VIÐAR Jónsson söngvari erlítt þekktur á plötumark-aðnum en hefur þó sungið
og spilað út um allar trissur í
bráðum hálfa öld!
Hann hefur þó bætt þar úr og
gefur nú út plötuna Flakkarann
með tólf lögum eftir sjálfan sig,
fyrir utan eitt sem er amerískt
þjóðlag. Diskurinn er hinn vörpu-
legasti og segist Viðar hafa viljað
vanda sérstaklega til verks, úr því
hann hefði loksins komið þessu í
gang.
Viðar hefur verið mikilvirkur í
íslenskum dægurtónlistarheimi í
gegnum tíðina þótt hann hafi
kannski verið síður áberandi.
Hann hóf ferilinn með Geislum í
upphafi sjöunda áratugarins en
sveitir sem hann hefur m.a. leikið
með eru Garðar og Gosar, Ernir,
Plantan, Áhöfnin á Halastjörnunni
og Kúrekarnir.
Flakkarinn er fyrsta plata Við-
ars sem út kemur á geisladiski en
hann sendi fyrst frá sér tveggja
laga plötu, með laginu „Sjóarinn
síkáti“, árið 1973. Þá átti hann
stóra plötu árið 1977, Viðar Jóns-
son, og svo plötu með Ara Jóns-
syni árið 1983, Viðar og Ari.
Það er valinn maður í hverju
rúmi á plötunni; Þórir Úlfarsson,
Jóhann Ásmundsson, Sigfús Ótt-
arsson, Matthías Stefánsson,
Kristinn Svavarsson, Vilhjálmur
Guðjónsson og Dan Cassidy koma
m.a. við sögu. Auk þess syngur
dóttir Viðars, Edda, með honum í
nokkrum lögum.
Blóð, sviti og tár?
Þessi plata ku hafa verið nokk-
uð lengi í vinnslu?
„Jú, hún er búin að vera um
fjögur ár í vinnslu. Margir lista-
mannanna sem koma að plötunni
voru mjög uppteknir og það tók
tíma að ná þeim saman.“
En þú hefur náð að berja þetta
saman á endanum?
„Já, og það var svosem ágætt að
fá allan þennan tíma því þá gat
maður vandað sig því meira. Bæði
hvað texta og lög varðar. Ég
vandaði mig mikið við textana og
lá yfir þeim. Ég vil helst hafa þá
nokkuð þokkalega.“
Hljómurinn er afar ljúfur og
mjúkur. Hvar er platan tekin upp?
„Þetta er tekið upp í Stúdíói
Stöðinni en hluti í Stúdíói Kirsu-
beri, sem er svona heima-
hljóðver.“
En hvað olli því að þú afréðst
loks að gefa út plötu? Síðast
gafstu út plötu með Ara Jónssyni
’83.
„Árið 1992 var ég reyndar á
safndiskinum Lagasafnið með þrjú
lög. Það var einmitt Stöðin sem
gaf þá plöturöð út. En ég hef allt-
af verið að semja og samdi gríð-
arlega mikið á árunum frá 1990 til
1993. Ég gat hins vegar ekki sinnt
þessu nægilega vel þar sem ég var
alltaf að spila. En svo fór ég loks-
ins í gegnum þetta og hluti af
þessum bing birtist á plötunni.“
Þú snertir á nokkrum stílteg-
undum, meðal annars kántríinu?
„Ég spilaði mikið í Borgarvirk-
inu árið 1992 sem er Nelly’s í dag.
Þá lék ég eingöngu kántrí. Íslend-
ingar eiga það þó til að kveinka
sér yfir kántríi þannig að diskinn
blandaði ég svolítið með öðru.“
Var það blóð sviti og tár að
koma þessu saman?
„Jaa … það kom tímabil þar
sem vinnan varð feikileg. Það var
mikil keyrsla síðustu tvo mán-
uðina.“
Breyttur bransi
Nú hefur þú verið viðloðandi
tónlist heillengi er það ekki?
„Ég byrjaði að spila ’61, ’62
þannig að þetta eru orðin rúmlega
fjörutíu ár. Síðan ’93 hef ég nær
eingöngu verið í tónlist og leikið á
hinum og þessum stöðum. Það er
nóg við að vera þótt stundum sé
þetta basl. En maður er vel þekkt-
ur í þessum bransa þó að maður sé
fljótur að gleymast hvað plötu-
bransann varðar enda langt um
liðið síðan ég gaf út. En það er nú
eins og það er.“
Hvernig hefur þessi tónleika- og
skemmtanabransi breyst, segjum
undanfarin tíu ár?
„Hann hefur breyst alveg of-
boðslega. Allir stóru ballstaðirnir
eru meira og minna horfnir. Í
gamla daga spilaði maður í
Glaumbæ, Sigtúni, Þórskaffi,
Röðli, Klúbbnum og ég veit ekki
hvar og hvar. Þetta datt niður
þegar pöbbarnir komu inn.“
En þessi titill, Flakkarinn?
„Platan heitir nú bara eftir
fyrsta laginu. Ég varð bara fastur
á þessu heiti strax. Þótt það megi
nú segja að maður sé hálfgerður
flakkari, búinn að spila lands-
horna á milli í gegnum tíðina.“
Ætlarðu að fylgja plötunni eitt-
hvað eftir?
„Já, ég var nú að hugsa um það.
Maður er nú ekki það þekktur í
þessum útgáfugeira þannig að það
er eiginlega nauðsynlegt. Þessi
plata er nú gefin út af þörf fremur
en frægðarþorsta en það er auð-
vitað gaman þegar vel gengur.“
Viðar Jónsson gefur út Flakkarann
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Viðar Jónsson hefur unnið við tónlist í meira en fjörutíu ár.
„Hef alltaf
verið að semja“
arnart@mbl.is
ÞEGAR Erik (Wilson), er rekinn
úr skóla fyrir ofbeldi, velur móðir
hans þann kostinn að senda vand-
ræðagripinn á virtan heimasvistar-
skóla. Hann nefnist Stjärnsberg og er
einkum sóttur af börnum efnafólks og
aðalsmanna. Sögusviðið er miður
sjötti áratugurinn og gilda úreltar og
mannskemmandi reglur í þessari
stöðnuðu stofnun. Hér bergmálar enn
um stofur lofsöngur um yfirburði nor-
ræna stofnsins og eldri nemendur
stjórna þeim yngri af ótvíræðum
kvalalosta og beita niðurlægjandi að-
ferðum í skjóli aflsmunar og með þög-
ulu samþykki skólastjórnarinnar.
Svona hefur þetta alltaf verið og þeg-
ar nemendurnir eldast og fikra sig
upp bekkina geta þeir hefnt sín á ný-
liðunum. Erik vill ekki leggja meira á
móður sína og reynir að forðast
árekstra og brottrekstur í lengstu
lög. Ástæðurnar fyrir vandræðum
Eriks má rekja til heimilisofbeldis
sem hann er einatt beittur af fóstur-
föður sínum og brýst út í uppreisn
gegn umhverfinu. Hann er bæði
greindur og góður íþróttamaður og
reynir að nýta sér hvort tveggja í bar-
áttunni við óvægið nemendakerfið í
Stjärnsberg. Veröldin sem þar er
dregin upp er óskiljanlega einföld.
Eldri bekkingum virðist allt leyfilegt
og grimmd þeirra og pyntingarað-
ferðir með slíkum eindæmum að um-
hugsunarverður boðskapur myndar-
innar missir marks. Síðan þarf ekki
nema eitt símtal til að kippa málunum
í lag. Slíkar hremmingar eru tíðar í
amerískum B-myndum og oftast bet-
ur sagðar. Þrátt fyrir góða hluti verð-
ur Illskan æ yfirborðskenndari og
ótrúverðugri eftir því sem á líður og
ristir ekki nógu djúpt þrátt fyrir átak-
anlegt efni og góðan leik.
Sæbjörn Valdimarsson
Milli mjalta og messu
KVIKMYNDIR
Regnboginn – Sænsk
kvikmyndavika
Leikstjóri: Mikael Håfström. Aðalleik-
endur: Andreas Wilson, Gustaf Skars-
gard. 115 mínútur. Svíþjóð 2003.
ILLSKAN / ONDSKAN KRÁREIGANDA, sem segist næstum hafa farið á
hausinn eftir að söngvarinn góðkunni Van Morrison
aflýsti tónleikum, voru dæmdar skaðabætur í gær að
andvirði 40.000 breskra punda, eða 5,1 milljónar
króna. Gary Marlow höfðaði mál á hendur Morrison og
krafðist 400.000 punda, eða 51 milljónar króna, í
skaðabætur vegna þess að tónleikum sem Morrison
hugðist halda á The Crown Hotel í Everleigh á Suður-
Englandi í ágúst í fyrra var aflýst.
Morrison og útgáfa hans neituðu að hafa brotið
gegn samningum og segja engan fót fyrir skaðabóta-
kröfunni. Marlow, 44 ára, krafðist þess að fá endur-
greidda fyrirframgreiðsluna auk tapaðs hagnaðar af
miðasölu, sölu á áfengi og tóbaki auk þess að fá fjár-
hagslega bættan þann skaða sem orðstír hans hafði
orðið fyrir á sviði viðskipta.
Dómari við breskan héraðsdómstól fyrirskipaði
Morrison að greiða Marlow einungis 40.000 pund og
inni í þeirri upphæð er 20.000 punda fyrirframgreiðsla
Marlows til Morrisons. Lögmenn Morrison höfðu þá
boðið Marlow mun hærri upphæðir fyrir að útkljá mál-
ið án afskipta dómstóla. Þá er ekki útséð með að lung-
inn af upphæðinni fari í greiðslu málskostnaðar en
dómari hefur ekki kveðið upp úr með það hvor aðilinn
skuli bera þann kostnað. Engu að síður kom Marlow
sigri hrósandi út úr réttarsalnum. „Ég vil segja að ég
er alveg í skýjunum yfir því að hafa tekist á við einn af
rokkkóngunum og farið með sigur af hólmi,“ sagði
Marlow við blaðamenn.
Enskur kráreigandi fór fram á skaðabætur
Vann Morrison
Reuters
Lögmenn Morrisons segja hann hafa hætt við tón-
leikana vegna þess hve illa þeir hafi verið auglýstir.