Morgunblaðið - 12.11.2003, Page 52

Morgunblaðið - 12.11.2003, Page 52
52 MIÐVIKUDAGUR 12. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ KRINGLAN Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 12. ÁLFABAKKI Kl. 4, 5.30, 6.30, 8, 9 og 10.30. B.i. 12. Empire Kvikmyndir.is SV MBL SG DV Allar sýning ar í Kring lunni eru PO WER- SÝNING AR! ll i í i l i I Stundin sem allir hafa beðið eftir er komin! Lokauppgjör Matrix þríleiksins er hafið! i lli f i f i i ! j i íl i i fi !  Kvikmyndir.com Kvikmyndir.com Kvikmyndir.com Yfir 200 M US$ á 5 dögum!. SG DV Sýnd kl. 5.30, 6.30, 8, 9 og 10.30. B.i. 12. Mynd sem kemur skemmtilega á óvart enda ein stærsta mynd ársins í Bretlandi. ATH ! AUK ASÝN ING KL. 6.30 , og 9 . Stundin sem allir hafa beðið eftir er komin! Lokauppgjör Matrix þríleiksins er hafið!  Kvikmyndir.com  SG DV Empire Kvikmyndir.is SV MBL “Fyndnasta barátta kynjanna á tjaldinu um langa hríð.” „Ein besta gamanmynd ársins- fyrir fullorðna“ Sýnd kl. 5.50 og 10.15. Nýjasta mynd Coen bræðra. Frábær rómant- ísk gamanmynd sem bragð er að. 6 Edduverðlaunl Sýnd kl. 8. M.a. Besta mynd ársins Sýnd kl. 5.30 og 10.. Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15. Yfir 2 00 M US$ á 5 dög um!.  SG DV Hvað ertu að hlusta á um þessar mundir? Bland í poka eins og vanalega: Ascii Disco, nýju Hljómaplöt- una, Belle & Sebastian, Rás 1, nýsjálenskt döbb, útvarpsþátt Johns Peels á Netinu o.s.frv. Uppáhaldsplata allra tíma? Ég hef ekki myndað mér svar við þessari spurningu, sorrí. Hvaða plötu setur þú á á laugardagskvöldi? Ég læt róterast The Stooges, japönsku popphljómsveitina The Go-Bangs og disk sem ég á með inúítakerlingum að kveð- ast á. Hvaða plötu setur þú á á sunnudagsmorgni? Megas – Fram og aftur blindgöt- una. Hver er fyrsta platan sem þú keyptir þér? Það var annaðhvort Jazz með Queen eða bláa eða rauða safnplatan með Bítlunum. Þetta vil ég heyra Gunnar „Dr. Gunni“ Hjálmarsson, tónlistar-, útvarps- og sjónvarps- maður ÝMSIR FLYTJENDUR – Kill Bill Vol. 1 Það er löngu ljóst að meiri smekkmaður fyr- irfinnst varla þegar kemur að því að velja góða og viðeigandi tón- listarblöndu en Quentin blessaður Tarantino. Ég væri sannarlega til í að lenda í partíi þar sem hann væri næst græjunum. Sjálfur hefur hann sagt að þegar að því kemur að velja tónlist í myndir sínar þá hugsi hann ekki bara um að finna lög sem selja heldur líti á tónlistina sem veigamik- inn þátt í framvindu mynda sinna. Það skilar sér líka fullkomlega á plötunum, sem allar – þar með talin þessi – hafa verið með eigulegasta móti. Svo er Tarantino náttúrlega alltaf svo óendanlega svalur að hon- um tekst meira að segja að gera lyftulúðann Zamfir hipp og kúl.  VAN MORRISON - What’s Wrong With This Picture? Karlinn hefur laglega náð sér á strik eftir nokkur æði mögur ár. Skýringin er aug- ljós. Hann er aft- ur farinn að búa til þá tónlist sem honum er kærust, vel sveiflukenndur ritmablús, trega- blandinn á köflum, með einstaka rokkabillí innslagi.  STARSAILOR – Silence is Easy Það kemur fyr- ir að maður fellur fyrir plötu, hleður hana lofi, en sér svo eftir öllu sam- an þegar á daginn kemur að lífdagi hennar er enginn. Þetta upplifði ég með frumraun Starsailor. Hlustaði ekki einu sinni á hana eftir að hafa fellt dóminn. Hafði ekki snefil af áhuga á því. Sem betur fer eyðir nýja platan sumpartinn þessu óbragði, enda er hún bara ágæt, og fjarri því að vera eins uppskrúfuð og löðrandi í plattilfinningu.  MARY J. BLIGE - Love & Life Jafnvel þótt Blige sé enn í al- gjörum sérflokki sem sálar/R&B söngkona í dag þá stenst nýja platan ekki alveg þær miklu væntingar sem maður gerði til hennar. Skýringin er einföld. Lögin er hreinlega ekki nógu sterk. En flutningurinn er ómótstæðilegur.  TRAVIS – 12 Memories Síðasta plata The Invisible Band hefur orðið æði illa fyrir barðinu á tímans tönn. Eins og hún var nú hljórituð fagmannlega af Nigel Goodrich þá finnur maður eftir á að viss þreyta hafi verið komin í lagasmíðarnar, að eitthvað hafi verið farið að rotna. Það kemur líka óþægilega á daginn hér á nýju plötunni, sem er með eindæm- um líflaus og óspennandi. Virkilega sorgleg þróun á hljómsveit sem enn iljar manni með The Man Who.  Erlend Tónlist Skarphéðinn Guðmundsson Morgunblaðið/Golli Á TÍMUM sívaxandi markaðshyggju og peningaplokks hvað tónlistariðn- aðinn varðar er ekki skrýtið að menn hugsi sig tvisvar um þegar boðið er upp á „betrumbættar“ útgáfur og „auka“ þetta eða hitt. Þeir eru ekki margir listamennirnir sem gera slík- ar yfirhalningar þess virði, hvað þá að eftir einhverju bitastæðu sé að slægj- ast þegar á annað borð er ráðist í slík- ar aðgerðir. R.E.M. er þó hiklaust ein þeirra sveita sem gera slíkar æfingar fylli- lega þess virði. Því er aukadiskurinn sem fylgir með takmörkuðu upplagi af safnplötunni nýju, In Time 1988– 2003 – The Best of R.E.M., í raun réttri hvalreki og skyldueign fyrir aðdáendur. Safnplatan sem slík tekur til bestu laga R.E.M. frá Warner- tímabilinu, en sveitin gaf út fyrstu plötu sína undir merkjum þess árið 1988, Green. Þá var hún búin að vera heitasta neðanjarðarrokksveit Bandaríkjanna í fleiri ár, hróðurinn reyndar borist mun víðar. Aukadiskurinn er fimmtán laga og tekur yfir þennan tíma sem sveitin hefur verið hjá Warner. Hér er að finna b-hliðar, prufuupptökur, lög af tónleikum og ýmislegt fleira sem prýða má safn af þessari tegund. Einnig fylgir forláta veggspjald sem ætti að hugnast þeim sem hrifnir eru af slíku. Þar er að finna fínustu mynd af piltunum, tekin af Anton Corbijn ef ég þekki minn mann rétt. Árið 1987 gaf R.E.M. út plötuna Dead Letter Office, sem lýtur sömu lögmálum og téður aukadiskur. Þar er einnig að finna fimmtán lög og vöktu ekki síður athygli stórskemmti- legar og einlægar athugasemdir gít- arleikarans Peters Bucks sem fylgdu hverju lagi fyrir sig. Hann end- urtekur leikinn hér og bætir reyndar um betur og skrifar einnig at- hugasemdir við lögin á safnplötunni sjálfri – það er aðalplötunni. Rótað í sarpinum Platan hefst á órafmagnaðri útgáfu af „Pop Song ’89“, upphafslagi Green. Hér eru líka tvö „alvöru“ lög sem ein- hverra hluta vegna fóru ekki inn á Out of Time á sínum tíma. „Fretless“, af Until the end of the World- plötunni, sem inniheldur tónlist við samnefnda mynd Wims Wenders, er hérna auk „It’s a Free World, Baby“. Það lag birtist hins vegar fyrst sem b- hlið á „Drive“-smáskífunni, svo í Coneheads-myndinni (geimveru- myndin geðþekka með Dan Aykroyd) og loks í Friendsþætti. Lagið „Re- volution“ er þá einnig fullbúið en það passaði víst ekki á New Adventures in Hi-FI-plötuna og var sett í Bat- manmynd í staðinn (Batman & Rob- in, 1997)! Lagið „2JN“ hefur þá að- eins verið til á „Imitation of Life“-smáskífunni til þessa. Þá eru hér tónleikaútgáfur af „Turn You Inside Out“ (ansi rokkuð), „Country Feedback“ og „Drive“ (fönkútgáfa!). „The One I Love“ er strípað niður, leikið á kassagítar og píanó. Upptakan var gerð fyrir út- varpsþátt árið 2001. „Leave“ (af New Adventures …), „Chance“ (upprunalega b-hlið af „Everybody Hurts“-smáskífunni) og „Why Not Smile“ (af Reveal) eru öll í breyttri útgáfu. „Chance“ er t.d. sett í undirfurðulegan „döbb“-búning. „Beat a Drum“ og „The Lifting“ koma af tveimur síðustu plötum sveit- arinnar (Up (’98) og Reveal (’01)) og eru hér í prufuupptökum. Undarlegasta lagið er þó efalaust „Star Me Kitten“, sem sjálfur Willi- am Burroughs raular!? Undarlegt … Meira hnossgæti arnart@mbl.is R.E.M, um það leyti er Green kom út. Aukalögin á In Time 1988–2003 – The Best of R.E.M. FÆREYSKA söngkonan Eivör Pálsdóttir og hljómsveit hennar Krákan halda tónleika í Kaffileik- húsinu í kvöld. Tónleikarnir hefjast klukkan 21, miðaverð er 1.500 kr. og forsala er í 12 tónum á Skóla- vörðustíg. Á efnisskránni eru m.a. lög af nýútkominni plötu Eivarar, Krákunni. Morgunblaðið/Árni Torfason Eivör Pálsdóttir hefur hlotið lof fyrir frammistöðu sína á tónleikum. Eivör í Kaffi- leikhúsinu Oasis hefur upptökur á nýrri plötu í byrjun næsta árs, að því er fram kemur á netsíðunni nme.com. Upp- tökustjórar plöt- unnar verða þeir Death in Vegas- liðar Tim Holmes og Richard Fear- less. Útlit er því fyrir að ný plata, sú fyrsta frá Heathen Chem- istry sem kom út árið 2002, komi út seinni hluta næsta árs. Liðsmönnum Oasis og Death In Vegas hefur verið vel til vina um nokkurt skeið og Liam Gallagher léði þeim Vegas-mönnum rándýran barka sinn í laginu „Scorpio Rising“ sem finna má á síðustu plötu þeirra. Fyrr á árinu tilkynnti Noel Gallagh- er NME að tilbúin væru þrettán ný lög fyrir væntanlega Oasis-plötu; hann ætti fimm þeirra, Liam sex og Gem tvö. Noel og Gem fluttu eitt þeirra, „Stop The Clock“, á tón- leikum fyrr á árinu … The Offspring kynnir til sögunnar nýjan trommara á sjöundu plötu sinni Splinter sem kemur út í desem- ber. Heitir sá nýi Josh Freese og hefur áður leikið með Perfect Circle og Vandalas … Norah Jones syng- ur öll lögin á nýrri blúsrokkplötu bandaríska gít- arleikarans Pet- ers Malicks og hljómsveitar hans. Platan heit- ir New York City, inniheldur sjö lög og hefur fengið fínustu dóma. Þess má og geta að nú er nýkomin út sérstök viðhafn- arútgáfa af metsöluplötu Noruh Jon- es Come Away With Me. Er um tvö- faldan disk að ræða, því meðfylgjandi er mynddiskur sem hefur að geyma upptöku frá tónleikum hennar í New Orleans … Kylie Minogue segist í viðtali við þýska blaðið Der Spieg- el stórhneyksluð á hversu upptek- inn poppbransinn er af kynlífi og nekt. Sjálf hefur ástralska söng- konan verið ófeimin við að sýna hold sitt en segir framferði sitt þó ekki komast í hálfkvisti við nýj- ustu hiphop-myndböndin sem mörg hver fái hana til að roðna … POPPkorn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.