Vísir - 07.11.1980, Blaðsíða 18
18
Föstudagur 7. nóvember 1980
vísm...
Milljóna-
arfur
Söngkonan Amanda Lear,
sem ágreiningur
hefur verið um hvorí
að sé karl eða kona, hefur nú
sjálf staðfest það opinberlega
aö hún sé kona og
i vilji ekki vera neitt annað.
k Hitt er þó markverðara, að
m spænski málarinn Salvador
®|k Dali er orðinn svo yfir
sig hrifinn af Amöndu,
að hann hefur gert
hana að erfingja
k að miklum
jÉk hluta auðæfa
,,Þetta var nú
æðisleg veisla”
— Frá „uppskeruhátíð” blaöburðarbarna á Akureyri
Texti:
Sveinn
Guöiónsson.
að afloknu blaöberaballi i diskó-
tekinu H-100 á sunnudaginn.
Það var mikið um að vera hjá
blaðburðarbörnum Visis á Akur-
eyri um sl. helgi. Þá kom Akur-
eyrarblaðiö út og krakkarnir
gengu með það í hvert hús og
buðu til sölu ásamt helgarblað-
inu. Gekk salan vel og seldu flest-
ir krakkarnir öll blööin sin. Lætur
nærri að Visir hafi farið á hvert
heimili á Akureyri á laugardag-
inn.
Visir bauð krökkunum siðan til
„uppskeruhátiðar” i diskótekinu
H-100 á sunnudaginn, — og þar
var mikið húllumhæ. i upphafi
dönsuðu krakkarnir nokkra
hressilega diskódansa, svona rétt
til að auka matarlystina, þvi von
var á pylsum. Og pylsurnar komu
og hver af annarri hurfu þær ofan
i krakkana. Ekki voru þau heldur
þurrbrjósta, þvi pylsunum var
skolað niður með gosdrykkjum
frá Sana og fékk hver og einn
Pepsi og appelsin, eins mikið og
hann gat i sig látið. Það var þvi
ánægður hópur sem hvarf heim á
leið að ballinu loknu.
Það er hverju blaði mikilvægt
að hafa vaska sveit blaðbera, þvl
það er til litils aö gefa út blað sem
ekki kemst með skilum til kaup-
enda. Visir hefur átt góðu gengi
að fagna á Akureyri, sem ekki er'
sist að þakka harðduglegu
dreifingarliði.
Myndirnar hér á siöunni eru
teknar á „uppskeruhátiöinni” og
skýra sig sjálfar.
G.S.
„Þetta var æöisleg veisla
maöur, ég er alveg aö springa eft-
ir allt pylsuátiö og gosþambiö og
svo var bara gaman aö dansa, en
ég hef nú aldrei þoraö þvi áöur”,
sagöi einn galvaskur blaöburöar-
drengur Vísis á Akureyri, I sam-
tali viö blaöamann sama blaös.
*«r