Vísir - 13.12.1980, Page 2
2
Laugardagur 13. desember 1980
VÍSIR
„Hvað á ég ad gera?”
Algengustu (og óalgengustu) vandamál sem dálkahöf undar f á til meðf erðar
„Kæri Póstur. Ég er ofsalega
skotin i þessum strák, hann hefur
stundum kikt á mig og hvernig á
ég aö ná i hann?” Viðlika vanda-
mál eru iðulega borin undir nafn-
lausan dálkahöfund Vikunnar
sem væntanlega svarar eftir
bestu samvisku. Erlendis eru
svona dálkar ákaflega vinsælir og
áhrifamiklir, nefna má að danska
skáldkonan Tove Ditlevsen hélt
úti sllkum dálki við ágætan orð-
stir. I Bandarikjunum eru tvær
kvinnur þekktastar fyrir dálka-
skrif af þessu tagi: Abigail van
Buren og Ann Landers. Þær eru
náttúrlega miklir keppinautar
um hylli þeirra ástsjúku eða
hrjáðu en eru auk þess tvibura-
systur. Fyrir nokkrum árum voru
þær beðnar um að upplýsa hver
væru 10 algengustu málin sem
þær fengjust við, siöan og ekki
ófróðlegra: hver væri 10 óvenju-
legustu málin sem þær hefðu
staðið frammi fyrir á ferli sinum.
„Konan min skilur mig
ekki”.
Abigail van Buren eða „Kæra
Abby” svaraði fyrri spurningunni
á þennan veg:
1. Konan min skilur mig ekki.
2. Maðurinn minn lætur mig
ekki fá neina peninga.
3. Foreldrar minir treysta mér
ekki.
4. Barnabörnin min koma
aidrei i heimsókn.
5. Við heyrum aldrei frá giftu
krökkunum okkar nema þegar
þau vantar eitthvað.
6. Kærastinn minn er alltaf að
hamra á þvi að ég „sanni ást
mina” (Væntanlega vita menn
hvað þetta þýðir?)
7. Kærastan min vill að við gift-
um okkur i snatri og ég er ekki
undir það búinn.
8. Nágranni minn er alltaf að
koma óboðinn i heimsókn.
9. Hvernig fer gdð kona að þvi
að hitta góðan mann?
10. Hvernig fer góður maður aö
þvi að hitta góða konu?
Liklega kannast menn við
megnið af þessu úr eina vanda-
máladálknum hérlendis ,fyrr-
nefndum Pósti.
,,Hann er getulaus —
hún með brókarsótt”
1. Kynferðisvandamál á milli
hjóna: „Ég fæ ekki nóg” eða „Ég
fæ alltof mikið” eða „Hann er
getulaus” eða „Hún er með
brókarsótt”.
2. Framhjáhöld ektamaka: Hér
áður fyrr, segir Landers.voru það
karlmennirnir sem héldu fram
hjá konum sinum I 9 skipti af
hverjum 10. Nú er hlutfallið mjög
álfka.
3. Vandamál i sambandi við
ættingja: „Þau heimta alltof
mikinn tima af okkur” eða „Þau
eru afskiptasöm” eða „Þau spilla
krökkunum”.
4. Táningar sem kvarta undan
skilningssnauðum foreldrum sin-
um: „Þau eru svo gamaldags”,
eða „Þau tala aldrei um neitt við
okkur sem skiptir máli”.
5. Astamál táninga: „Hvernig
get ég verið viss um að hún sé
raunveruleg? ” eða „Hann er
hrifinn af annarri en mér” eöa
„Hann vill aldrei fara neitt með
mér, bara sitja i bilnum og gera
það” eða „Hvar getur maöur
fengiö pilluna?”
6. Einmanaleiki: „Hvernig á
almennileg stelpa (eða strákur)
að fara að þvi að kynnast fólki?”
7. Útlitsvandamál: 1 þvi felst
þyngd, fæðingarblettir, skakkar
tennur, skalli, unglingabólur, of
litil brjóst, of stór brjóst, of mikil
hæð, of li'til hæð.
8. ófriskar stúlkur: „Ætti ég að
fá fóstureyðingu?” eða „Ætti ég
að giftast honum?” eða „ætti ég
aðeignast barnið?” eða „Hvernig
á ég að segja pabba og mömmu
þetta ? ”
9. Atvinnuvandamál: „For-
stjórinneróþolandi.enég vil ekki
missa vinnuna” eða „Einhver af
starfsfólkinu er þjófur. Ætti ég að
segjatilhans?” eða „Þaðer vond
lykt af konunni við hliðina á mér.
Hvaö á ég að gera?”
10. Fikniefni, tóbak og áfengi:
„Foreldrar minir reykja. Ég hata
það. Hvernig á ég að fá þau til að
hætta?” eða „Hvernig á ég að fá
manninn minn (eða konuna mina
eða vin minn) til að hætta að
drekka?” eða „Pabbi og mamma
eru alltaf full. Ég þori ekki að fá
neinn i heimsókn” eða „Bestivin-
ur minn er alltaf „stónd” á
heróini eða LSD” eða „Er marjú-
ana skaðlegt?”
,,Get ég fengið mág
minn lánaðan?”
Svo eru það óvenjulegustu
vandamál tviburasystranna. Abi-
gail van Buren:
1. „Ég er strætóbilstjóri og mig
vantar upplýsingar um það
hvernig maður á að verða fjár-
hirðir”.
2. „Mig langar að eignast barn
en á ekki einu sinni kærasta.
Geturðu bent mér á einhvem?”
3. „Ég var aðfrétta að það sé lff
eftir dauöann. Ef það er rétt get-
urðu þá komið mér i samband við
Albert frænda frá Victoria,
Texas?”
4. „Viltu gera svo vel og senda
mér allt sem þú veist um ryþma.
Ég er að læra að dansa”.
5. „Ég er ekkja sem er nýorðin
fimmtug. Læknirinn minn segir
að mig vanti eiginmann eða ein-
hvern staðgengil hans — þú skil-
ur? Væri það i lagi að ég fengi
eiginmann systur minnar
lánaðan? Þeim er alveg sama”.
6. „Maðurinn minn sviður hár
úr nösunum á sér með sigarettu-
kveikjara. Svo heldur hann að ég
sé geðbiluð af þvi ég kaus Gold-
water!”
7. „Ég treysti ekki manninum
minum. Hann heldur svo mikið
framhjá mér að ég er ekki einu
sinni viss um að siðasti krakkinn
minn sé hans”.
,,Hann vill bara sofa hjá
líki”
Og aftur er röðin komin að Ann
Landers. Tiu svör þar.
1. Maöurinn sem faldi fölsku
tennur konunnar sinnar svo hún
kæmist ekki Ut úr húsi til að kjósa
Demók ra taflokk inn.
2. Brúðurin sem hringdi til
móður sinnar i miöri brúðkaups-
ferðinni og sagðist vera að koma
heim. Eiginmaður hennar var
krufningarlæknir og játaði fyrir
henniaðhannhefðiaðeins gaman
af samförum við konur sem
annaðhvort væru dánar eða létust
vera það. Hann skipaði henni að
liggja i baðkari með isköldu vatni
i 20 minútur að minnsta kosti,
koma svo f riímið og þykjast vera
dauð.
3. Maðurinn sem vildi láta
jarða sig i Dodgebil sinum, ár-
gerð 1939.
4. Maðurinn sem gat ekki gert
þarfir sinar á almenningssalern-
um.
5. Stúlkan sem var með
skaddaðan fót og vildi láta taka
hann af sér og setja gervilim i
staðinn svo hún yrði ekki hölt
þegar hún gengi inn kirkjugólfiö
við brúðkaup sitt.
6. Konan sem spurðist fyrir um
þaðhver ættihnetur úr hennar tré
sem féllu inn i garð nágrannans.
Hún fékkþað svar að nágranninn
mætti éta hneturnar en ekki selja
þær.
7. Konan sem átti eiginmann
sem var að láta breyta sér yfir i
konu. Hún vildi fá að vita hvað
börnin ættuaðkalla hann eftir að-
gerðina. „Pabbi” passaði ein-
hvern veginnekki. Henni var sagt
að þau skyldu kalla hann „Bob”
eða „Bill” eða hvað sem hann
sjálfur vildi — sennilega „Mary”
eða „Sue”.
8. Konan sem var algerlega
sköllótt en tók alltaf af sér hár-
kolluna viðpókerborðiðaf þvi hún
áleit að það færði henni lukku.
9. Maöurinn sem var með svin i
ibúð sinni og hélt þvi statt og
stöðugt fram að grisinn væri
undursamlegur „varðhundur”.
Nágrannamir kvörtuðu.
10. Konan sem gerði alltaf
hreint allsnakin og naut þess út i
ystu æsar þar til daginn sem hún
fór niður i kjallara til að þvo þvott
og rakst þar á pípulagninga-
mann.
Mottó: Margt er mannanna
meinið.
Ann Landers, sem eitt sinn var
kosin ein af 10 áhrifamestu kon-
um Bandarikjanna svaraöi I
lengra máli og itarlegar:
,,Erum við svinin kannski ekki aldeilis frábærir varðhundar?” Ja, égspyr þig, Ann Landers...