Vísir - 13.12.1980, Blaðsíða 5
Laugardagur 13. desember 1980
5
VtSIR
/#The queen is in the counting home
Counting out the money
The king is in the Kitchen
Making bread and honey
No friends and yet no enemies
Absolutely free."
Cleanup Time (1980)
Svo sem alkunna er slitu John
og Yoko samvistum árið 1974 og
varöi viðskilnaður þeirra i hálft
ár. A þeim tima kveðst Lennon
hafa ómeðvitað viljað binda endi
á lif sitt með óhóflegri áfengis-
neyslu og pilluáti. Arið 1975 tóku
John og Yoko saman á nýjan leik
og sama ár fæddist þeim sonurinn
Sean. Fjölskyldan varð honum
allt, hann tók glaður við hlutverki
húsmóðurinnar meðan Yoko sýsl-
aði i þeim málum er að viðskipt-
um lutu:
maður, — og þá fyrst og fremst
söngvari og lagasmiður, — og
skáld gott, var hann hneigður að
myndlist og hélt amk eina sýn-
ingu á verkum sinum i Lundún-
um. Þar sýndi hann eingöngu
grafisk verk og þóttu sum þeirra
mjög klúr. Sýningunni var lokað
af þeim sökum um stundarsakir
og ekki opnuð fyrr en djörfustu
myndirnar höfðu verið fjarlægð-
ar. Lennon var á unglingsárum i
myndlistarskóla og þótti efnileg-
ur myndlistamaður, en tónlistin
Annar tveggja mestu laga-
smiða rokksins
Fjölhæfur mjög
John Lennon var fjölhæfur
listamaður. Fyrir utan það að
vera framúrskarandi tónlistar-
var honum ávallt hugstæðari og
hæfileikarnir ótviræðir á þvi
sviði. Lennon hafði nokkur kynni
af kvikmyndum, auk þess að
leika i Bitlamyndunum tveimur,
,,A Hard Days Night” og ,,Help”
íék hann árið 1970 i kvikmyndinni
„How I Won The War” við þokka-
legan orðstir. Sama ár vottaði
hann Yoko virðingu sina með þvi
að breyta nafni sinu úr John Win-
ston Lennon i John Ono Lennon.
Tvö hjónabönd — tveir
synir*
John Lennon var tvigiftur.
Fyrri kona hans var Cynthia
Powell, sem hann kynntist á ung-
lingsárunum i Liverpool.Þau áttu
einn son, Julian, sem nú er um
tvitugt. Siðla vetrar árið 1969
kvæntist hann Yoko Ono og fór
brúðkaupið fram á Gibraltar. A
þessum árum, 1968 til 1970, voru
þau hjónin mjög i fréttum fyrir
uppátektarsemi sina þar sem
vikulöng rúmlega i friðarþágu i
Montreal bar hæst. Plötugerð
höfðu þau hjónin i hávegum á
þessum árum, einkum var
framúrstefnutónlist (avant
garde) þeim hugleikin og vöktu
þær plötur þeirra mikið umtal en
salan var dræm. Jöfnum höndum
sinnti John rokktónlistinni og
hafði á sinum snærum hljóm-
sveitina Plastic Ono Band og sið-
ar Elephant’s Memory. Sólóplöt-
ur Lennons þykja ærið misjafnar
að gæðum, en þó munu æ fleiri
taka undir þá skoðun að Lennon
sé sá Bitill er eigi hvaö jafnbest-
an sólóferil að baki.
Söknuður
John Lennon fæddist i Liver-
pool 9. október árið 1940. Hann
lést i New York 8. desember 1980
rúmlega fertugur að aldri. Hvar-
vetna er hryggð og söknuður i
hjörtum, mikilhæfur tónlistar-
maður og friðarsinni hefur verið
veginn á grimmdarlegan hátt.
Hans verður sárt saknað meðan
rokkið lifir.
— Gsal
En óvinirnir voru nær en hann
hugði, loksins þegar heimurinn
virtistbrosa viðhonum, var hurð-
inni skellt i lás með sjö byssukúl-
um. Enginn einn tónlistarmaður
hefur verið jafn mikill boðberi
friðar og John Lennon, þó aðferð-
ir hans til að vekja athygli stjórn-
valda á nauðsyn friðar hafi að
sönnu verið umdeildar. „John
elskaði og bað fyrir mannkyninu.
Eg legg til að þið farið heim og
gerið slikt hið sama,” sagði Yoko
á þriðjudaginn við þúsundir
syrgjenda sem safnast höfðu
saman við hús Lennonshjónanna
á Manhattan.
John Lennons verður fyrst og
siðast minnst sem tónlistar-
manns. Og þó honum hafi orðið
léttir að þurfa ekki að vera Bitill
lengur, verður tæplega hjá þvi
komist að hans verður minnst
sem Bitils og sem annars tveggja
mestu lagasmiða rokksins.
Hins vegar var Johri ákaflega
pólitiskt þenkjandi tónlistarmað-
ur og hafði að þvi leyti sérstöðu
meðal félaganna i Bitlunum.
Hann gagnrýndi i textum sinum
hvers konar órétti i heiminum,
vildi færa almenningi aukin völd i
hendur og benti einlægt á kær-
leikann sem leið útúr ógöngum
mannkyns. John Lennon var
óvenju hreinskilinn i ljóðum sin-
um, opnaði einatt allar hirslur
sálarkirnunnar uppá gátt eins og
gleggst kemur fram á fyrstu sóló-
plötu hans „John Lennon/ Plastic
Ono Band” árið 1970. Hann var
óumdeilanlega mesta „skáldið” i
Bitlahópnum, ljóðrænn, bitur og
berorður. Bókarkorn gaf hann út
snemma á Bitlaárunum með ljóð-
um sinum, er hann nefndi „In His
Own Write”.
Manni
Nú er hægt að fá
vinsælustu lög Vilhjálms
Vilhjálmssonar á einni og
sömu plötunni.
Dagar og nætur
Björgvin og Ragnhildur
leggja saman krafta sína
og útkoman er hin
Ijúfasta og áheyrilegasta,
enda ein söluhæsta plata
ársins 1980.
Nýjól
Björgvin syngur tvö fal-
leg lög, sem koma fólki í
hið rétta hátiðaskap.
Hotter than Ju/y
Stevie Wonder
Enn ein skrautfjöðrin í
hatt eins mesta tónlistar-
mannsallra tíma.
Memoria
Mahalia Jackson
Þetta tvöfalda albúm
býður uppá f jölda laga
sem skapa þá stemmn-
ingu sem Mahaliu Jack-
son er einni lagið að töf ra
fram.
Ekta jolaplata.
Streisand
Guilty
Á þessari plötu ægir
saman þeim listamönn-
um, sem troða amerískar
poppgrundir.
....Frábær.
Halli og Laddi
Umhverfis jörðina á 45
mín. Þeir bræður leggja
loft undir fót og.
Halli og Laddi koma
og árita nýju plötuna
sína i dag milli
kl. 2 og 4.
Sendum i pó.stkröfu
Laugavegi33, 11508
Strandgötu Hafnarfiröi.