Vísir - 16.01.1981, Blaðsíða 20

Vísir - 16.01.1981, Blaðsíða 20
Föstudagur 16. janúar 1981 20____________________________ytsm íðag íkvöld Vinsælustu kvikmyndir liðins árs (osló: „Kramer gegn Kramer” hlaut mesta aðsðkn Þrjár myndir (engu á annað hundrað Dúsund áhortendur „Kramer gegn Kramer” var sú kvikmynd, sem mesta að- sókn hlaut i kvikmyndahúsum Osló-borgar á siðasta ári sam- kvæmt upplýsinguin norskra dagblaða. Þá mynd sáu um 172 þúsund manns þar i borg og tekjurnar námu um 2.8 milljón- um norskra króna. t öðru sæti hvað aðsókn snerti varö kvikmynd Lasse Abergs „Selskapsreisen”, sem sýnd hefur verið hér á landi. Þá mynd sáu um 136 þúsund manns. „10” kom svo i þriðja sæti meö um 117 þúsund áhorfendur. Þessar þrjár myndir báru af öðrum um aðsókn og voru þær einu sem fengu yfir 100 þúsund áhorfendur. Næstar i röðinni voru eftir- taldar myndir: „Being There” meö Peter Sellers, 70 þúsund áhorfendur. „The Shining” Stanley Kub- ricks, 60 þúsund áhorfendur. „Life og Brian”, sem er Umsjón: Elias Snæ- land Jóns- son. Faðir og sonur: Ted Kramer (Dustin Hoffman) og Billy sonur hans (Justin Henry) I „Kramer gegn Kramer”. Monty Python-mynd. 58 þúsund áhorfendur. „Flóttinn frá Alkatraz” með Clint Eastwood, 54 þúsund áhorfendur. „Manhattan” eftir Woody All- en 53 þúsund áhorfendur. Kvikmyndin „1958” eftir Odd- var Bull Tuhus var sú norska mynd, sem besta aðsókn hlaut og var hún i tiunda sæti. Af þessum kvikmyndum, sem Osló-búar sóttu mest á siöasta ári, hafa þrjár verið sýndar i kvikmyndahúsum hérlendis til þessa. —ESJ 1 I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I { I I Fjórar sýningar opna í einu á Kjarvalsstððum Á Kjarvalsstöðum verða opnaðar hvorki meira né minna en fjórar sýningar nú um helgina. i Kjarvalssal verður sýning á teikningum eftir sænska málarann Carl Fredrik Hill en sá var samtímamaður Strindbergs. Þá verða tvær hollenskar sýningar á göngum Kjarvalsstaða annars vegar skartgripasýning og hins vegar sýning á grafíkmyndum. Loks er að geta sýningar hópsins Vetrarmyndar/ sem verður í Vestursal Kjarvalsstaða en það er samsýning 11 islenskra listamanna. í blaðinu á morgun verður f jallað um islensku sýning- una. —KÞ „Þriðja sinn sem við fáum hollenskar far- andssýningar hingað” - segir Hans Krlstján flrnason „Þessar sýningar eru skipu lagðar af hollenska menningar málaráðuneytinu, en þeir hafa verið mjög áhugasamir að senda okkur slikar farandsýningar og ei þetta i þriðja sinn á einu ári,’ sagði Hans Kristján Arnason ræðismaður Hollands á íslandi, samtali við Visi, en hann er i for svari fyrir hollensku sýningunum tveim. Sýningarnar, sem hér um ræðir, eru annars vegar skart- gripssýning og hins vegar sýning á grafikmyndum. Áður hafa verið hér á landi á vegum Hollendinga sýning á verkum grafiklista- mannsins Escher sem haldin var á siðastliðnu vori og svo sýning á veggskúlptúr, en með þeirri sýn- ingu má segja að Nýlistasafnið hafi hafið starfsemi sina á áliðnu sumri. ,,Á skartgripasýningunni er að sjá sýnishorn af nútimaskart- gripagerð Hollendinga,” sagði Hans Kristján,,, hér er að finna verk eftir 19 unga listamenn og öll eru verkin unnin á siðastliðnum áratug. Skartgripirnir eru unnir úr sérkennilegum efnum, og formin eru óvenjuleg. Hér eru skartgripir úrgúmmii, tré, plasti, áli og kopar svo eitthvað sé nefnt. ifi'ÞJÓQLEIKHÚSKI Blindisleikur 8. sýning i kvöld kl.20 Gul aðgangskort gilda. laugardag kl.20 sunnudag kl.20 Oliver Twist Frumsýning laugardag kl.15 sunnudag kl.15 Miðasala 13.15-20. Simi 1-1200 leikfelag aiaiic REYKJAVlKUR Að sjá til þin/ maður! i kvöld kl.20.30 allra siðasta sinn Rommi laugardag uppselt fimmtudag kl.20.30 Ofvitinn sunnudag kl.20.30 miðvikudag kl.20.30 Miðasala i Iðnó kl. 14-20.30 I Austurbæjarbiói Miðasala i Austurbæjarbiói kl. 16-21.30. Sími 11384 Kópavogsleikhúsið Þorlokur þreytti Hinn geysivinsæli gamanleikur Sýndur á ný vegna fjölda áskoranna og óstöðvandi aðsóknar, laugardag k 1.20.30. Sprenghlægileg skemmtun fyrir alla fjölskyfduna Miðasala I Félagsheimili Kópavogs frá kl. 18-20.30 nema laugardaga frá kl. 14-20.30. Sími 41985 Ath. hægt er að panta miða allan sólarhring- inn i gegnum sjálfvirk- ann símsvara, sem tekur við miðapöntun- um. óvætturinn 'Allir sem með kvikmyndum fylgjast þekkja „Alien”-, ein af best sóttu myndum ársins 1979. Hrottalega spennandi og óvenjuleg mynd i alla staði og auk þess mjög skemmtileg, myndin skeður á geimöld án tima eða rúms. Aðalhlutverv: Tom Skerritt, Sigourney VVeaverog Yaphet Kottp. islenskir textar. Bönnuð fyrir börn yngrien 16 ára. Sýnd 'kl. 5, 7.15 og 9.30. Sími50249 Hörkutólið (TrueGrft) Hörkuspennandi mynd, sem John Wayne fékk Óskars- verðlaun fyrir að leika i. Sýnd kl. 9. TÓNABÍÓ Simi 31182 Spennandi og skemmtileg mynd gerð eftir samnefndri metsölubók Harold Robbins. Leikstjóri: Daniel Petrie Aðalhlutverk: Laurence Olivier, Robert Duvall, Katherine Ross. Sýnd kl.5 - 7.30 og 10. Bönnuð börnum innan 16 ára. ný, bandarisk gamanmynd litum og Panavision. Inter- national Film Guide valdi þessa mynd 8. bestu kvik- mynd heimsins s.l. ár. Aðalhlutverk: Bo Derek, Dudley Moore, Julie Andrews. Tvimælalaust ein besta gamanmynd seinni ára. Sýnd kl. 5, 7.15 og 9.30. Isl. texti Hækkað verð laugabAS Sími 32075 XANADU Viðfræg og fjörug mynd fyrir fólk á öllum aldri, sýnd i Dolby Stereo. Sýnd kl. 5 og 7. Á sama tíma aðári Thcy couldn’t have celebraled happier anniversaries if thcy were married to each othcr. Ellenx. Alan Burstyn Alda “SameTÍmc. Xcxt'Tear" A (lnn.eiMÍ (’Kiun: Technicokir • Ný bráðfjörug og skemmti- leg bandarisk mynd gerö eft- ir samnefndu leikriti sem sýnt var við miklar vinsældir i Þjóöleikhúsinu fyrir nokkr- um árum. Aöalhlutverkin eru i höndum úrvalsleikar- anna: Alan Alda (sem nú leikur i Spitalalif). og Ellen Burstyn. Islenskur Texti. Sýnd kl. 9 og 11. 1Simi 50184 Gleðidagar með Gög og Gokke Amerisk grinmyndasyrpa með hinum stórkostlegustu grinleikurum allra tima Stan Laurel og Oliver Hardy Hláturinn lengir lifið. Göð skemmtun Sýnd kl.9.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.