Vísir - 16.01.1981, Blaðsíða 13
Föstudagur 16. janúar 1981
KtStH
Fjögurra manna undirbúningsnefnd.laganefnd hefur starfaö á annað ár til undirbúnings þessari fram-
kvæmd laganema. A myndinni eru þrjú þeirra sem setið hafa í nefndinni, þau eru Erla Arnadóttir,
Tómas Þorvaldsson formaður nefndarinnar og Andri Arnason varaformaður Orators. Fjórði aðilinn á
myndinni er Lilja ólafsdóttir formaður Orators, fyrsta konan er gegnir þvi embætti i rúmlega fimmtfu
ára sögu félags laganema. Visism./Emil. E.Þ.S.
ókeypis lög-
fræöiaöstoð
A^menningur getur nú leitað
úrlausna við lögfræðilegum
vandamálum án endurgjalds.
Orator, félag laganema, hefur nú
i samráði við Dómsmálaráðu-
neytið tekið upp slika þjónustu.
Fyrst um sinn verður starfsem-
in þannig, að fólki gefst kostur á
að hringja i sima 21325 á fimmtu-
dagskvöldum milli klukkan 19.30
og 22.00 og leggja þrautir sinar
fyrir laganema. Ekki verður hægt
að sinna hvers konar úrlausnar-
efnum og verða upplýsingar
veittar munnlega i sima en i und-
antekningartilfellum verður
svarað skriflega. Ekki verður um
gerðskriflegra samninga að ræða
né þau mál sem þarfnast frekari
aðgerða svo sem lögsóknar og
innheimtuaðgerða. Hins vegar er
þeim, sem til laganema leita,
leiðbeint um hvernig haga skuli
samningsgerð og hvernig þeim sé
vænlegast að haga sér eins og
málum þeirra er háttað. Þeir
laganemar sem við þetta starfa
eru allir á siðari stigum námsins
og vinna undir stjórn starfandi
lögmanns.
Tómas Þorvaldsson formaður
undirbúningsnefndar laganema,
sagði, að Friðjón Þórð-
arson dómsmálaráðherra hefði
sýnt þessu máli áhuga og hefði
verið veitt fé til starfseminnar af
fjárlögum ársins 1981. Með þvi
kvað Tómas tryggðan grundvöll
starfseminnar á þessum vetri á
meðan þessi tilraun fer fram.
Hann sagði greiðslur til laga-
nema hverfandi litlar þar eð þeir
fengju einungis greitt fyrir þann
tima sem þeir væru til viðtals en
hins vegar væri gert ráð fyrir að
mun meiri timi færi til athugunar
á hverju máli en afgreiða mætti i
einu simtali. Þann tima, sem
laganemar verja til könnunar á
úrlausnarefnum utan simatima
fá þeir ekki greitt fyrir. Það er
ekki við þvi að búast að skjólstæð-
ingar fái undantekningarlaust
svör við fyrirspurnum sinum i
einu simtali, heldur kann að vera
að hafa þurfi samband að nokkr-
um dögum liðnum, svo kostur
gefist á að kanna málið nákvæm-
lega og gefa traust svar.
Tómas Þorvaldsson gat þess,
að hér væri ekki um að ræða
skattframtalsþjónustu eins og
laganemar höfðu með höndum i
fyrra en slik þjónusta yrði vænt-
anlega rekin nú en óháð þessari
starfsemi.
Allir þeir laganemar, sem taka
þátt i lögfræðiaðstoðinni undirrita
þagnareið áður en þeir hefja
störf.
Undirbúningur undir þessa lög-
fræðiaðstoð hefur staðið frá árinu
1979 og ber aðstoðin svip af hlið-
stæðri starfsemi i Kaupinhöfn og
Osló.
— ÞG.
*e>,- V>-
(
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
L
& 1 H el ig rv ðt m ilnii.
Guðni Kolbeinsson vakti upp eitt mikið
havari um daginn hann vakti það sjálfur
þegar hann beygði orðið lækur rangt i út-
varpsþætti um dagiegt mál og tók það svo
nærri sér að hann ákvað að hætta með
þættina. Svo hætti hann við að hætta.
Helgarblaðið hefur tekið hressilegt viðtal
við Guðna þar sem haun talar um heima
og geima og körfubolta og islensku og
daglegt mál og kannski læk..
LEIKHÚS
í BÍÓI
Alþýðuleikhúsið er nú að koma sér fyrir i
Hafnarbiói og er þar að æfa tvö leikrit eft-
ir Dario Fo: Kona og Stjórnleysingi ferst
af slysförum. Helgarblaðið heimsótti leik-
húsið i Hafnarbiói og er skýrt frá þeirri
heimsókn i myndum og máli.
j SS-sveitir nar
i — Um Heinrich Himmler !
I önnur grein birtist i þessu blaði um SS-sveitirnar al- .
I ræmdu og fjallar mestanpart um foringja þeirra Heinrich !
j Himmler var góður viö dýrin en slæmur viö gyöinga og
| annan ruslaralýö sem hann taldi vera. Makalaus maöur
| en um leiö harla venjulegur og hans likar gætu veriö allt í
kringum mann.
Friðrik
og FIDE
Friörik ólafsson hefur nú
I tvö ár veriö forseti
Alþjóöaskáksam handsins.
aö flestra dómi viö góöan
oröstir en þó hafa komið
upp gagnrýnisraddir.
Meöal annars hefur hann
veriö sakaöur um linkind
viöRússa. ónóga aöstoö viö
Korchnoi og Boris Gulko og
stefnuleysi i ýmsum mál-
um. Fréttaljósi er aö þessu
sinni varpað á Friörik og
skýrir hann málin frá sinu
sjónarmiði.
]Rod Stewart i poppinu
13
Viö gerum ekki unp á miííi
Aííirfá sama afsíátt
Lítið synishorn af
lágu vöruverði:
• Sa/tar rú/lupy/sur
• ■ * /
Hangiframpartur
Hangiframpartur úrbeinaðir
* Cheerios 425 gr
• Cocoa Puffs 480 gr.
Bug/es 198 gr
• Kjúk/ingar 5 stk. í kassa
Lambahjörtu, vakúmpökkuð
• Lambanýru, vakúmpökkuð
«
• Lamba/ifur, vakúmpökkuð
Coco-malt Benco, 400 gr
Egg kg
Strásykur 25 kg.
kg-verð kr. 8,70
C-11 þvottaefni 3 kg pakkning
kg-verð kr. 11,05
OPIÐ: föstudaga kl. 9-22
laugardaga kl. 9—12
í Matvörudeild og Rafdeifd
JIS
Lr
A A A A A A *• k
Jón Loftsson hf.___
Hringbraut 121
5 -jouqjj
z juuuajjvi'
ími 10600
Fyrst um sinn er
opið í:
★ ByggingavÓrudei/d
★ Húsgagnadeild
★ Teppadeiid
til kl. 19 á föstudögum,
en lokað á laugardögum
sama
afslátt