Vísir - 04.02.1981, Blaðsíða 13
14
vtsm
Miftvikudaeur 4. febrúar 1981
Stórkostlegur
af siáttur á matvöru
alla daga fyrir alla
Sparimarkaðurinn
Austurveri v/Háaleitisbraut. Neðra bílastæði (sunnan hússins)
Miövikudagur 4. febrúar 1981
VÍSIR
15
„Hér er aigert
ófremdarástand
vegna prengsia”
- segir Ásgeir Hðskuldsson. framkvæmdastlóri
Flórðungssiúkrahússins á Akureyri, í samiaii við Vísi
„Þaö þarf ekki aö likja þessu
við ófremdarástand, þvi hér á
sjúkrahúsinu rikir ófremdar-
ástand vegna þrengsla á öllum
sviðum”, sagði Asgeir Höskulds-
son, framkvæmdastjóri Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri, i
samtali við Visi.
„Það er svo sem ekki að undra,
þótt hér sé þröngt”, sagði Ásgeir,
„þvi núverandi aðalbygging var
tekin i notkun árið 1953. Siðan hef-
ur ekki annað bæst við en fyrsti
hluti tengibyggingarinnar, sem
var tekin i notkun 1975. Það var
hins vegar aðeins byrjunin af 60
þúsund rúmmetra nýbyggingu,
sem fyrsta skóflustungan var tek-
in af árið 1973 og átti þeirri bygg-
ingu að vera lokið á þessu og
næsta ári. Til samanburðar má
geta þess, að gamla byggingin er
15 þúsund rúmmetrar.
En fjárveitingar til nýbygging-
arinnar hafa verið af skornum
skammti, þannig að með sama
hraða verður henni ekki lokið fyrr
en á næstu öld”, sagði Ásgeir.
— Bygging þjónustukjarna hef-
ur staðið yfir siöan 1976. Hvenær
má búast við þvi að hann verði
tekinn i notkun?
„Við gerum okkur vonir um að
það geti orðið siðari hluta þessa
árs, sem hægt verður að taka 2.
hæðina og hluta af kjallaranum i
notkun. Rikið veitir 1.075 gm kr.
til byggingarinnar á þessu ári og
ætti það að duga ásamt 15%
framlagi Akureyrarbæjar, en þó
ekki fyrir öllum þeim tækjakaup-
um, sem nauðsynleg eru. Þarna
verða skurðdeild, gjörgæsludeild
og bæklunardeild og i kjallaran-
um verður sótthreinsunaraðstaða
og ýmiskonar tæknibúnaður.
Aðalskrifstofunum hefur verið
komið fyrir á 1. hæðinni til bráða-
birgða, en þar verða i framtiðinni
röntgendeild, slysadeild og
göngudeild”, sagði Ásgeir.
—En hvað með tengi-
bygginguna?
„Já, þar stendur nú hnifurinn i
kúnni, það er enn eftir að tengja
þessa þjónustubyggingu við sjálft
sjúkrahúsið, sem verður gert með
tengiálmu á 2 hæðum ásamt
kjallara. Ef vei á að vera þarf
þessi bygging að vera komin i
gagniðsiðari hluta ársins, til þess
að þjónustukjarninn komi að full-
um notum. En það vantar fjár-
magn iþessa byggingu. Það hefuc
verið rætt um að auðvelda þetta
með þvi að láta nægja að byggja
kjallarann i sumar og nota hann
til að byrja með. Við erum ekki
sáttir við það fyrirkomulag, enda
hljóta allirað sjá hversu óhentugt
það er, að flytja sjúklinga á milli
deilda, sem báðar eru á 2. hæð, en
þurfa niður i kjallara til að kom-
ast á milli. Okkur reiknast til að
það ferðalag tæki ekki minna en
15 minútur, i stað þess að það tæki
ekki nema 5 minútur að aka
sjúklingunum á milli ef tengi-
byggingin kemst upp”, sagði Ás-
geir.
T e x t i o g
myndir: Gisli
Sigurgeirs-
son, Akureyri.
Yfirmenn og stjórn sjúkrahúss-
ins hafa átt fund með alþingis-
mönnum kjördæmisins. Asgeir
var spurður hvernig hugmyndin
væri að leysa þetta mál?
„Þaö er til heimild i lögum um
lántöku til sjúkrahússins. Hug-
myndin er aö Akureyrarbær taki
lán til að koma tengibyggingunni
upp. Yrði það þá hugsað sem
framlag Akureyrarbæjar fram i
timann. Ágreiningurinn er hins
vegar um fjármagnskostnaðinn
af þessari lántöku, sem rikið vill
ekki taka þátt I. En þetta mál er i
athugun og við vonum að hægt
verði að leysa þetta mál, þannig
að nýbyggingunni seinki ekki enn
frekar en orðiö er”.
— Hvar eru þrengslin
mest?
„Þrengslin eru allstaðar, hvert
sem litið er, hvort heldur sem er
vinnuaðstaða starfsfólksins eða
aðbúnaður sjúklinganna. Einn
hópur sjUklinga er verst settur,
en það eru sjUk gamalmenni, en
þar rikir algert neyðarástand.
Það liggur fyrir heimild sjúkra-
hússstjórnarinnar, um að breyta
„Systraseli”, sem er bústaður
fyrir hjúkrunarkonur, i legudeild
fyrir 17-18 gamalmenni. En til
þess að hægt sé að fara út i breyt-
ingarnar skortir fjármagn. Það
er dæmi upp á 150-60 g.m.kr. Það
hefur komið til tals að reyna að fá
þetta fé með framlögum frá ein-
staklingum, sveitarfélögum i ná-
grenninu og félagasamtökum,
sem oft hafa lagt heilbrigðismál-
um lið. Ekkert er þó ákveðið i
þeim efnum”, sagði Asgeir.
— En rýmkar ekki um ykkur
þegar þjónustukjarninn kemur i
gagnið?
„Jú, það gerir það, en einungis
á þeim sviðum sem hann er æti-
aður til. En á öðrum sviðum eykst
álagið, ég get nefnt þvottahús,
eldhús og borðsal, þar sem um-
fangiö eykst samhliða starfsemi
sjúkrahússins og ekkert er gert til
Asgeir Höskuldsson, framkvæmdastjóri FSA
að bæta starfsaðstöðu á þessum
sviðum. Það er þvi brýnt að á
næstu árum verði settur fullur
kraftur á nýbygginguna þvi með
þessum eilifu bráðabirgöarlausn-
um á aðkallandi vandamálum,
sem þola ekki biö, veröur rekstur
sjúkrahússins erfiðari og
kostnaðarsamari”, sagði Asgeir i
lok samtalsins.
CXX^ diet pepsi
,ar.
cA || ■
Likan af Fjórðungssjúkrahúsinu, eins og þaö á að veröa, og átti raunar aö vera orðiö, ef upphaflegar
áætlanir heföu staðist. A: Gamla sjúkrahúsið frá 1953. B:Fyrri hiuti tengibyggingar, sem tekinn var I
notkun 1975 oghýsir m.a. barnadeild tilbráðab. C: Tengibyggingin,sem þarf aðkomast upp Isumar. D:
Þjónustukjarninn, sem verður tilbúinn i sumar, en kemur ekki að fullum notum nema tengibyggingin
verði byggö, en til þess vantar fé.
dief
pepsi-cok
5yKURLAUST
Sanilas