Vísir - 26.02.1981, Blaðsíða 11

Vísir - 26.02.1981, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 26. február 1981 VlSIR 11 AÐALSKIPU- LAG NES- KAUPSTAÐAR: ,,Við erum með i takinu núna og leggjum áherslu á sjúkrahúss- bygginguna sem er geysimikil bygging”, og þáð er verkefnið sem við leggjum mesta áherslu á um þessar mundir” sagði Logi Kristjánsson bæjarstjóri á Nes- kaupstað er Visir ræddi við hann, en blaðinu barst nýlega aðal- skipulag Neskaupstaðar, heljar- mikinn doðrant sem spannar árin 1979—1999. „Það verður lokiö við inn- réttingará þessu ári og við stefn- um að þvi að reyna aö taka sem mest i notkun af þessari byggingu á næsta ári” sagði Logi. „Annað mál á dagskrá er gatnagerðin. Við keyptum á siðasta ári gömlu § Frá Neskaupstað Hægt að fjdlga íbúum um 400 malbikunarstöðina frá Akureyri og það er hugmyndin að reyna að ná verulegum áfanga i gatna- málunum jafnframt þvi að við munum leggja áherslu á það að hinir gangandi muni njóta fyllsta réttar og reyna að stuðla að þvi að þessir aðilar skiljist að eftir þvi sem hægt er en að öðru leyti verði bfllinnað hæga á sér fyrir fölkinu. „Það spilaði ýmislegt inni er við keyptum þessa malbikunar- stöð frá Akureyri, við höfum verið mjög steinefnasnauðir til þess að blanda oliumöl og flutn- ingskostnaður á þvi efni hingað er ákaflega dýr. En við getum blandað malbik hér úr þeim steinefnum sem hér eru fyrir hendi.” „Þriðja málið eru fræðslu- málin. Við erum að byggja fjöl- brautarskóla og þar eru næg verkefni áfram. Þá vinnum við að verkkennslu og þá i tengslum við atvinnuvegina.” „Hægt að fjölga ibúum” — Það kom fram i samtalinu við Loga að hægt er að sýna fram á að með ákveðnum aðgerðum sé hægt að fjölga ibúum á staðnum úr 1700 i 2200 á stuttum tima, ef það væri sett sem markmið. Það væri aðallega spurning um ný at- vinnutækifæri. Það þurfti að koma 30—40 ný tækifæri i iðnaði til að ná þessu marki. Fáar á frjósemisaldri 1 aðalskipulaginu, i kafla þar sem rætt er um fólksfjölda kemur fram að aldursskipting ibúanna sé hagstæð með tilliti til atvinnu- uppbyggingar, en hinsvegar sé kynjaskiptingin óhagstæð að þvi leytinu að konur eru hlutfallslega fáar og fæstar á giftingaraldri og helsta frjósemisaldri. „Já, þetta er hlutur sem við höfum rekið okkur á og er ein orsökin fyrir þvi hvernig atvinnu- tækifærasamsetningin er hérna. Það vantar hérna aukna fjöl- breytni til þess að við missum ekki þessar stúlkur frá okkur, þarna kann að visu að vera um ævintýraþrá aðræða hjá þeim, en þær hafa leitað suður i atvinnuleit þött hugsanlega hafi þetta verið aðeins hagstæðara fyrir okkur allra siðustu árin. Það hefur vantað tækifæri fyrir þær, ég held það hafi ekki vantað strákana”. gk—• ^^^^lWenskór SKOSALAN Laugavegi1 — Sími16584

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.