Vísir - 26.02.1981, Síða 21
Fimmtudagur 26. febrúar 1981
vtsm
21
Dansi, dansi dúkkan mín...
íslenski dansflokkurinn ásamt öðrum með frumsýningu í næstu viku:
„Já, gott”.
Ekki flýta ykkur. Þaö er nógur
tlmi.”
,,Já, gott...gott.”
„Heyröu, viltu ekki vera aö
taka myndir núa. Þetta er svo
erfitt atriöi, sem þau eru áö
dansa.”
Það er Eske Holm, þekktur
danskur bailettdansari og rithöf-
undur, sem þarna hefur orðið, en
Holm er um þessar mundir aö
setja upp bailett meö Islenska
dansflokknum i Þjóðleikhúsinu.
Ballettinn verður frumsýndur á
miövikudag I næstu viku, en aö-
eins fjórar sýningar eru fyrir-
hugaöar. Viö litum inn á æfingu I
fyrradag.
Hjartaknúsarinn, Vor-
blót og Auður:
A Dansskemmtuninni i Þjóö-
leikhúsinu koma fram auk Is-
lenska dansflokksins, Eske Holm
sjálfur og svo gestirnir Auður
Bjarnadóttir og Dinko Bogdanic.
Islenski dansflokkurinn sýnir
tvö verk eftir Eske Holm. Þessi
verk eru Vorblót við tónlist Igor
Stravinski og Hjartaknúsarinn
við margvislega tónlist. Auk þess
sem Eske setur verkin sjálfur á
svið, dansar hann eina karlhlut-
verkið I Vorblóti.
Auður Bjarnadóttir og Dinko
Bogdanic ætla að dansa hér tvo
tvidansa, Paganini við tónlist
eftir Rachmaninoff og dans úr
ballettinum Le Corsair við tónlist
eftir Drigo.
Auður, sem lengi var meðlimur
Islenska dansflokksins, er nú
aðaldansari við óperuna i
Munchen i Vestur-Þýskaandi og
hefur ekki komið fram á islensku
leiksviði frá þvi hún sigraði á
frystu norrænu danskeppninni i
Kuopio i Finnlandi sumarið 1979.
Mótdansari Auðar er einnig frá
ópernnni i Munchen. En dansar-
nir, sem þau sýna hér eru einmitt
frá áðurnefndri danskeppni.
„Skemmtilegt að vinna
með dansflokknum.”
Viö gripum Eske Holm glóð-
volgan milli atriða á æfingunni
og báðum hann að segja okkur
örlitið frá Vorblóti og Hjarta-
knúsaranum.
„Vorblót samdi ég fyrir fjórum
árum fyrir dansflokk, sem ég
stjórna i Kaupmannahöfn.
Ballettinn segir frá hópi kvenna,
sem lifa saman i samfélagi.
Skyndilega birtist eitthvað karl-
kyns og veldur það miklum óróa
meðal kvennanna, allt fer úr
skorðum og konurnar óttast þessa
veru. Ein þeirra slitur sig úr hóp-
num og leitar uppi karlkynsver-
una. Þau tvö ná saman, en um
leið eru þau útskúfuð úr hópnum.
Þetta leiöir siðan til dauða hjú-
anna.
Hjartaknúsarinn er safn sex
atriða, sem lýsa kúgun i hinum
ýmsu myndum gjarnan á gaman-
saman hátt. Þetta er verk, sem
ég samdi á siðasta ári og var sýnt
I Kaupmannahöfn siðastliðiö vor.
Fyrsta myndin nefnist Upp og
niður með virðingu og lýsir fólki,
sem ekki lærir af reynslunni.
önnur myndin er klassiskt mótif
um stúlku, sem er að dreyma.
Þriðja myndin segir frá mann-
eskju, sem afklæðir sig áður en
hún mætir dauða sinum. Fjórða
myndin lýsir yfirstéttarkonunni
Júliu og vélamanninum Jóni, sem
dufla pinulitið og daðra. Fimmta
myndin, Efnaverk, lýsir skemmt-
un i efnaverksmiðju. Þar er mjög
glatt á hjalla og meðal annars er
stiginn trylltur jassdans. Siðasta
myndin, Davið og Goliat er samin
upp úr mótmælum manna á upp-
byggingu á leikvelli i Kaup-
mannahöfn á siðastliðnu vori,”.
— Hvernig er að vinna með ts-
lenska dansflokknum?
„Það er mjög skemmtilegt. Þið
eigiö hérna góða dansara og það
er synd, aö ekki skuli búið betur
að þeim. Þaö er alltof litið fyrir
flokkinn aðfá ekki að dansa nema
á einni eða tveim sýningum á
ári,” sagði Eske Holm.
„Mjög óraunverulegt.”
„Þetta sem ég var að dansa er
„Grand pas de deux” eða klass-
■ iskt mótif,” sagði Ásdis Magnús-
dóttir, ballerina i samtali við Visi,
en hún dansar aðalhlutverkið i
einni myndanna.
— Getur þú lýst eitthvað
þessari manneskju, sem þú dans-
ar?
„Þetta er stúlka, sem er að
dreyma. Hún liggur i spenni-
treyju og dreymir um að vera
leyst úr fjötrum. Kannski er hún
konungsdóttir, eða hugsjúk
manneskja. Maður birtist,
kannski er hann konungssonur
eða gæslumaður i prinsagervi.
Þau dansa, en hún losnar ekki,
þvi maðurinn er alltof tilfinninga-
næmur til að henta þessu hlut-
verki. Það er allt mjög óraun-
verulegt i kringum þetta.”
— Er þetta lkt einhverju, sem
þú hefur dansað áður?
„Nei, alveg gjörólikt, ég hef
aldrei dansað i spennitreyju fyrr
til dæmis.”
— Er skemmtilegt að fást við
þetta?
„Já, mjög.”
— Nú er þetta önnur sýning Is-
lenska dansflokksins á þessu
starfsári. Megum viö vænta
fleiri?
„Nei,ekkifráokkar hendi. Það
koma hingað bráðlega hópur
dansara frá Bolshoi og dansa hér,
envið tökum ekkkert þátt i þeirri
sýningu, aftur á móti getur verið,
að viftiverðum með atriði á nem-
endasýningu Listdansskólans i
vor,” sagði Asdis Magnúsdóttir.
—KP.
Eske Holm fyrir miöju segir dönsurunum til. Vlsism. EÞS.
(Smáauglýsingar — sími 86611
OPIÐ' Mánudaga til föstudaga kl. 9-22
Laugardaga kl. 9-14 — sunnudaga kl. 18-22
)
Til sölu
Til sölu,
isskápur, eldhúsborð og 4 stólar,
barnastóll og barnaborð, stand-
lampi með 2 ljósum, einnig ýmsir
smáhlutir i eldhús, teketill,
brauðrist og hárþurrka. Uppl. i
sima 77418.
Hiab grabbi
litið notaður til sölu 500 litra.
Einnig Fogo krani 1,5 tonn. Uppl.
i sima 85064.
Sala og Skipti auglýsa
seljum þessa viku m.a.:
Atlas frystikistu vel með farna,
KPS uppþvottavél sem ný, KPS
eldavél 3ja ára, einnig stálvaska
handlaugar, WC, hurðir með
gleri, o.fl.
Vantar i sölu isskápa, eldavélar,
barnavagna, kerrur o.fl.
Seljum nýtt á góðu verði, 1x2
svefnsófann, Lady sófasett, furu-
veggsamstæður o.fl.
Opið virka daga kl. 13-18, laugar-
daga kl.10-16
Sala og skipti Auðbrekku 63,
simi 45366, kvöldsimi 21863.
nóTORSPORr
BatablaiVur—C.ufu\agnar
t.lltl ki i,n.ln,tiii,it raiVrli I>il.i««
Mótorsport blaöiö
erkomið á blaðsölustaði. Askrift-
ar- og auglýsingasimi 34351 kl. 3
til 6 virka daga.
(Bólstrun
Klæðum og gerum
við bólstruð húsgögn. Höfum
einnig til sölu roccocostóla með
áklæði og tilbúna fyrir útsaum.
Bólstrun Jens Jónssonar, Vestur-
vangi 30, Hafnarfiröi, simi 51239.
Bólstrun.
Klæðum og gerum við bólstruð
húsgögn. Gerum verðtilboð yður
að kostnaðarlausu. Bólstrun,
Auðbrekku 73, simi 45366.
Húsgögn ^ J
Húsgagnakynning
í dag hefst kynning á húsgögnum
sem eru nýkomin frá Sviþjóð og
mun vera hér i þessum dálk i
mánuð. Næst kynnum við Bóka-
hillu. Dúna, Siðumúla 23, simi
84200.
Allt i barnaherbergiö.
Hillur, skápar, skrifborð og rúm.
Bæði sambyggt, fyrir þá sem
ekki hafa mikið pláss, og hvert i
sinu lagi. Mjög hagstætt verð.
Simi 50421. AÐEINS MILLI kl.
18-20. Skáli s/f, Norðurbraut 39,
Hafnarfirði.
Svefnbekkir og svefnsófar
til sölu. Verðfrá kr. 750,- Sendum
út á land i póstkröfu ef ósRað er.
Uppl. að Oldugötu 33, simi 19407.
Sófasett til sölu,
litill 2ja sæta sófi (hringlaga) og 2
stólar, hvildarstóll meö
skammeli og snyrtiborði. Uppl. i
sima 84623.
Breitt einstaklingsrúm
til sölu, stærð 1,15x2.00 Vel með
farið úr ljósum viöi. Uppl. i sima
32758 e. kl. 17.30.
Sjónvörp
Nýtt litasjónvarp
Luxor 26”, 16 rása, með fjarstýr-
ingu, til sölu, einnig Sansui og
JVC stereosamstæða, samansett
af tveim JVC hátölurum SP 1000,
JVC fónn QLA 2, Sansui magnari
9500, Sansui útvarp 9500. Gott
verð gegn staðgreiðslu. Uppl. i
sima 81970 i kvöld og næstu kvöld
eftir kl. 17.
Tökum I umboössölu
notuð sjónvarpstæki. Athugiö
ekki eldri en 6 ára. Opiö frá kl.
10-12 og 1-6, laugardaga kl. 10-12.|
Tekiðá móti póstkröíupöntunum i
simsvara allan sólarhringinn.
Sportmarkaðurinn, Grensásvegi
50 simi 31290.
Teppi
Notað ullargólfteppi,
mjög vandað, til sölu. Uppl i
sima 31125.
Video
, ] ] ] nn
•• . 1 • o 1
Myndsegulbandsklúbburinn
„Fimm stjörnur” Mikið úrval
kvikmynda. Allt frumupptökur
(original). VHS kerfi. Leigjum
einnig út myndsegulbandstæki i
sama kerfi. Hringið og fáið
upplýsingar simi 31133.
Radióbær, Ármúla 38.
Tækifæri:
Sony SL 8080 myndsegulbands-
tæki. Afsláttarverð sem stendur i
viku. Staðgreiðsluverö kr. 12.410.-
Myndþjónusta fyrir viöskiptavini
okkar. Japis hf. Brautarholti. 2,
simar 27192-27133.
Vidoklúbburinn.
Höfum aukið við VHS myndasafn
okkar. Nýjir klúbbfélagar vei-
komnir. Opið alla virka daga frá
kl. 17 og laugardaga frá kl. 13.
Uppl. i sima 72139.
Hljómtæki
' Sportmarkaðurinn Grensásvegi
50 auglýsir: (
Hjá okkur er endalaus hljóm-
tækjasala, seljum hljómtækin
strax, séu þau á staönum. ATH:
mikil eftirspurn eí'tir flestum
tegundum hljómtækja. Höfum
ávallt úrval hljómtækja á
staðnum. Greiðsluskilmálar við
allra hæfi. Verið velkomin. Opið
frá kl. 10-12 og 1-6 laugardaga kL
10-12. Tekið á móti póstkröfupönt-'
unum i simsvara allan sólar-
hringinn. Sportmárkaðurinn,
Grensásvegi 50 simi 31290.
r/5&rn
Hljóófæri
' Rafmagnsorgel — hljómtæki
Ný og notuð orgel.
Umboössala á orgelum.
Orgel stillt og yfirfarin af fag'
mönnum,fullkomið orgelverk-
stæði.
Hljóðvirkinn sf. Höfðatúni 2 simi
13003.
Vérslun
Dömur — herrar.
dömunærföt, hosur, sportsokkar
100% ull þykkar sokkabuxur ull-
arblanda. Sjúkrasokkabuxur 3
litir, 5 stærðir. Herraflauelis-
buxur gallabuxur, náttföt. nærföt
JBS hvit og mislit, siöar nær-
buxur drengja og herra. Sokkar
50% ull. og 50% nylon, 80% ull og
20% nylon, sokkar 100% bómull
og sokkar með tvöföldum botni.
Barnafatnaður. Odýrir skiöagall-
ar, stæröir: 116-176. Smávara til
sauma. Póstsendum. S.ó. búðin
Laugalæk. Simi 32388. ( milli
Verðlistans og Kjötmiöstöðvar-
innar).