Morgunblaðið - 23.02.2004, Page 2

Morgunblaðið - 23.02.2004, Page 2
FRÉTTIR 2 MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ DÓMSMÁLARÁÐHERRA? Davíð Oddsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, leiddi að því líkur í fréttaskýr- ingaþættinum Í brennidepli sem sýndur var í Sjónvarpinu í gærkvöld að hann myndi hugsanlega taka við dómsmálaráðuneytinu í haust. Sagði Davíð utanríkisráðuneyti og fjár- málaráðuneyti ekki heppileg fyrir flokksformann. Brutu ekki lög Forsvarsmenn Heilsugæslunnar í Reykjavík segja ásakanir starfsfólks heimahjúkrunar um að þeir hafi lagt fram ólöglegan samning rangar. Hjúkrunarforstjóri segir breytingar á núverandi fyrirkomulagi við akst- urssamninga starfsfólks nauðsyn- legar til að efla og bæta þjónustu heimahjúkrunar. Starfsfólk geti valið um að nota eigin bíla við vinnu eða fá bíl sem heilsugæslan tekur á rekstr- arleigu. Cap Haitien fellur Uppreisnarmenn á Haíti tóku í gær á sitt vald næst stærstu borg landsins, Cap Haitien, og tóku borg- arbúar þeim fagnandi. Forseti lands- ins, Jean Bertrand Aristide, hefur fallist á alþjóðlega friðaráætlun, en stjórnarandstaðan og uppreisn- armenn hafna henni. Drápu 192 í Úganda 192 voru drepnir í búðum uppflosn- aðra í norðurhluta Úganda um helgina, er uppreisnarmenn sem hafa í á annan áratug barist gegn stjórn- völdum í landinu gerðu árás og lögðu eld að híbýlum og skutu á flýjandi fólk. Tilræði í Jerúsalem Palestínskur tilræðismaður varð sjálfum sér og átta öðrum að bana er hann sprengdi sig í loft upp í þétt- skipuðum strætisvagni í Jerúsalem í gærmorgun. Ísraelsk stjórnvöld segja tilræðið sýna fram á réttmæti aðskilnaðarmúrsins sem þau eru að reisa. Nader í framboð Bandaríski neytendafrömuðurinn Ralph Nader tilkynnti í gær að hann hygðist bjóða sig fram í forsetakosn- ingunum sem fram fara í nóvember. Hann bauð sig einnig fram í síðustu kosningum og hlaut þá 2,7% atkvæða. Sérfræðingar kafa í Kolkuós Erlendir fornleifafræðingar sem sérhæfa sig í að rannsaka mannvist- arleifar verða líklega fengnir til að kafa í Kolkuós sumarið 2005. Fyr- irætlanirnar tengjast svokallaðri Hólarannsókn en Kolkuós var hafn- araðstaða Hóla í Hjaltadal um tíma. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Kirkjustarf 29 Vesturland 11 Þjónusta 29 Erlent 12 Bréf 30 Listir 16/17 Dagbók 32/33 Umræðan 18/19 Leikhús 34 Forystugrein 20 Fólk 34/37 Minningar 22/25 Bíó 34/37 Hestar 26 Ljósvakar 38 Brids 27 Veður 39 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri guna@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is SVAVA Jakobsdóttir, rithöfundur og fyrrver- andi alþingismaður, er látin, 73 ára að aldri. Hún andaðist á Land- spítalanum – háskóla- sjúkrahúsi, laugardag- inn 21. febrúar síðastliðinn. Svava fæddist í Nes- kaupstað 4. október 1930. Foreldrar hennar voru Hans Jakob Jóns- son og Þóra Einars- dóttir. Hún lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1949 og BA-prófi í ensk- um og amerískum bókmenntum frá Smith College í Northampton í Massachusetts, Bandaríkjunum, 1952. Svava starfaði í utanríkisráðu- neytinu og í sendiráðinu í Stokk- hólmi 1955 til 1960 og var blaðamað- ur við Lesbók Morgunblaðsins 1966 til 1969. Hún var þingmaður Al- þýðubandalagsins í Reykjavík 1971 til 1979 og átti m.a. frumkvæði að jafnréttislögum sem Alþingi sam- þykkti. Svava sat í stjórn Rithöfunda- félags Íslands 1968 til 1971. Hún gegndi ýmsum nefndarstörfum og var meðal annars í nefnd til að semja frumvarp um hlutdeild rík- isins í byggingu og rekstri dagvist- arheimila 1971 og í nefnd til að semja frumvarp til laga um Launasjóð rithöfunda 1973. Hún var enn- fremur varamaður í Norðurlandaráði 1971 til 1974 og aðalmaður þess 1978 til 1979. Svava var fulltrúi á allsherjarþingi Sam- einuðu þjóðanna árin 1972, 1974, 1977 og 1982. Hún var í stjórn Máls og menningar 1976 til 1979 og átti einnig sæti í fulltrúa- ráði þess. Hún var fulltrúi Íslands í jafnréttisnefnd Norðurlanda 1980 til 1983. Hún sat einnig í stjórn Leik- skáldafélags Íslands 1986 til 1990, svo nokkuð sé nefnt. Fyrsta bók Svövu var smásagna- safnið Tólf konur sem kom út árið 1965 en hún skrifaði smásögur, skáldsögur og leikrit auk þess að semja leikrit bæði fyrir sjónvarp og útvarp. Hún skrifaði ennfremur fjölda ritgerða og blaðagreina og gerði þætti fyrir útvarp. Verk henn- ar hafa verið þýdd á fjölmörg tungu- mál og hafa leikrit hennar einnig verið flutt víða erlendis. Eftirlifandi eiginmaður hennar er Jón Hnefill Aðalsteinsson og sonur þeirra er Hans Jakob S. Jónsson. Andlát SVAVA JAKOBSDÓTTIR HJÁLMAR Jónsson dómkirkjuprestur minntist þeirra sem látist hafa í bíl- slysum í vikunni í athöfn í Dómkirkjunni á sunnudag, en alls létust þrír í tveimur slysum í vikunni. Kertum var komið fyrir í kirkjunni og mynduðu þau ljósakross. Minningarathöfn var einnig haldin í Hagaskóla á laug- ardag, en stúlkurnar sem létust við Bifröst stunduðu nám í skólanum. Morgunblaðið/Eggert Minntust látinna í umferðinni Sat fastur í nítján tíma BJÖRGUNARSVEITIR frá Egils- stöðum og Breiðdalsvík voru kallað- ar út aðfaranótt sunnudags eftir að tilkynnt var að maður, sem ætlaði að keyra um fjallveg á milli Egilsstaða og Djúpavogs, hefði ekki skilað sér. Karlmaðurinn, sem var á stórum jeppa, fannst heill á húfi í bíl sínum eftir um tveggja tíma leit, en hann hafði lagt af stað frá Egilsstöðum um hádegi á laugardag. Ferðalagið tók hann hátt í nítján klukkustundir en fjallvegurinn er 87 kílómetra langur og alla jafna ófær yfir háveturinn. Maðurinn gat haft bílinn í gangi. MAGNÚS Þorsteinsson, aðaleigandi Air Atlanta, og Þóra Guðmundsdótt- ir, annar stofnenda félagsins, hafa undirritað samkomulag um kaup Magnúsar á um 24% hlut Þóru í félag- inu. Er um allan eignarhlut Þóru í fé- laginu að ræða. Magnús á að loknum þessum viðskiptum um 75% í Air Atl- anta. Arngrímur Jóhannsson, stjórn- arformaður félagsins, á áfram fjórð- ung í félaginu. Þóra Guðmundsdóttir og Arngrím- ur Jóhannsson stofnuðu Air Atlanta árið 1986 og hafa þau allar götur síðan helgað fyrirtækinu starfskrafta sína. Allt frá upphafi hefur Þóra starfað hjá fyrirtækinu og setið í stjórn fé- lagsins. Í fréttatilkynningu frá Air Atlanta segir að félagið þakki Þóru sameig- inlega vegferð og óski henni bjartrar framtíðar. Air Atlanta leigir vélar sínar til annarra flugfélaga. Auk vélanna leig- ir félagið áhöfn og annast viðhald og tryggingar. Flugfélagið er stærst sinnar tegundar í heiminum, sama hvort miðað er við stærð flugflota eða fjölda útleigðra tíma. Í flota félagsins eru 16 vélar af gerðinni Boeing 747, átta af gerðinni Boeing 767 og þrjár Boeing 757. Starfsmenn félagsins eru rúmlega 750, – um 250 flugstjórar og flugvélstjórar og um 500 flugþjónar. Starfsstöðvar Air Atlanta eru yfir 12 í tíu löndum, þ. á m. Bretlandi, Írlandi, Lúxemborg, Þýskalandi, Argentínu, Malasíu, Íslandi og fleiri löndum. Kaupir hlut Þóru Guðmundsdóttur í Air Atlanta UPPI varð fótur og fit á sýningu Þjóðleikhússins á Dýrunum í Hálsaskógi þegar í ljós kom að tuttugu þúsundasti gesturinn sat í salnum. Það var hún Sólrún Erna Víkingsdóttir sem þar var stödd ásamt móður sinni Rakel Há- konardóttur. Mikki refur, sem var hinn blíðasti, og Lilli klifurmús fögnuðu tímamótunum, en samband þeirra hefur batnað til muna, ekki síst fyrir til- stuðlan Bangsapabba sem segir að öll dýrin í skóginum eigi að vera vinir. Morgunblaðið/Árni Sæberg Tuttugu þúsundasti gest- urinn heimsækir Hálsaskóg Lést eftir bílslys KONAN sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans á föstudag eftir um- ferðarslys við Blönduós hét Margrét Þóra Sæmundsdóttir, fædd 1959. Margrét Þóra var til heimilis að Hringbraut 26 í Reykjavík. Hún læt- ur eftir sig þrjú börn og unnusta. ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.