Morgunblaðið - 23.02.2004, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2004 33
DAGBÓK
SÍMI 530 1500
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert jarðbundin/n, sjálfs-
örugg/ur og ráðagóð/ur og
hefur gott tímaskyn. Leggðu
hart að þér á þessu ári því þú
munt uppskera árið 2005.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Dagurinn í dag verður mun
betri en gærdagurinn. Þú
elskar lífið og það skilar sér í
bættum samskiptum þínum
við aðra.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Vikan byrjar vel hjá þér. Þú
munt bæði njóta þess að vera
með öðru fólki og ein/n með
sjálfri/sjálfum þér í dag. Þú
getur gert hvað sem þú vilt.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Vinir þínir eru sérlega hjálp-
legir og skemmtilegir í dag.
Njóttu þess að vera með þessu
góða fólki. Þetta er einnig
góður dagur til að undirbúa
listræna samvinnu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú hefur mikil áhrif á fólk í
dag. Þú ert heillandi og þægi-
leg/ur í samskipum og sam-
vinnu. Yfirmenn þínir og aðrir
yfirboðarar taka ekki síður
eftir þessu en aðrir.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Ferðaáætlanir og áætlanir
sem varða framhaldsmenntun
líta nú loks betur út. Þú færð
mikið út úr því að ræða heim-
speki og trúarbrögð í dag.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Einhver gæti fært þér gjöf
eða boðist til að gera þér
greiða í dag. Þú ættir endilega
að þiggja gott boð. Þannig
gefurðu öðrum tækifæri til að
sýna örlæti.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það liggur vel á þér í dag.
Njóttu þess að tala við aðra,
jafnvel þá sem þú hittir úti á
götu. Líttu á þá sem vini sem
þú hefur enn ekki kynnst.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þetta ætti að veðar góður dag-
ur í vinnunni. Fólk er hjálp-
legt og samvinnuþýtt. Það er
eins og vinsemdin liggi í loft-
inu.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú ert í skapi til að leika þér,
daðra og vinna að listsköpun.
Þú munt fá mikið út úr því ef
þú tekur þér frí í vinnunni í
dag. Dagurinn mun þó einnig
verða ánægjulegur ef þú þarft
að vinna.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Kauptu eitthvað fallegt fyrir
heimilið eða handa ein-
hverjum í fjölskyldunni. Það
þarf ekki að kosta mikið til að
gleðja bæði þig og aðra.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú munt hugsanlega afla
tekna með skriftum eða ein-
hvers konar upplýsingamiðlun
í dag. Þú átt auðvelt með að
telja aðra á þitt band og það
mun skila þér góðum árangri
bæði í viðskiptum og kennslu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þetta er góður dagur til við-
skipta og innkaupa. Þú munt
njóta þess að kaupa föt á
sjálfa/n þig og gjafir handa
ástvinum þínum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
FAÐIR VOR Á FERÐ
Allra augu mæna á Drottin
hvar hann skálmar niður fjallshlíðina
með broddstafinn mikla á lofti
og snjóflóð í skegginu.
Ærin í svæflutónni hvessir gul augun
stappar og blæs:
hún er hrædd um gimbilinn sinn
því enginn veit hvar eða hvenær
stórbóndinn velur sér nýtt lamb
til að bera synd heimsins.
Jóhannes úr Kötlum
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
80 ÁRA afmæli. Átt-ræður er á morgun,
þriðjudaginn 24. febrúar,
Karl Jónatansson, harm-
onikufrömuður. Hann og
kona hans, Sólveig, verða að
heiman á afmælisdaginn.
60 ÁRA afmæli. Í dag,mánudaginn 23.
febrúar, er sextug Guðrún
Engilbertsdóttir, hár-
greiðslumeistari. Hún er
stödd erlendis en netfang
Guðrúnar er gudruneng-
@visir.is.
„Ég gæti skrifað langa
bók um þetta spil, en hver
myndi kaupa hana?“ Eng-
inn er spámaður í sínu
föðurlandi og það veit Er-
ik Kokish betur en aðrir.
Hann hefur þjálfað lands-
lið um allan heim, en fé-
lagar hans í kanadíska
landsliðinu hlusta ekki á
orð af því sem hann segir.
Suður gefur; AV á
hættu.
Norður
♠--
♥1043
♦Á1096
♣KG9732
Vestur Austur
♠ÁD73 ♠10842
♥9762 ♥G8
♦D7532 ♦KG84
♣-- ♣1054
Suður
♠KG965
♥ÁKD5
♦--
♣ÁD86
Spilið er frá 8-liða úr-
slitum NEC-keppninnar í
Japan. Þótt sex lauf sé
frábær slemma í NS (jafn-
vel sjö lauf), vafðist það
fyrir keppendum að kom-
ast upp fyrir geimið. Að-
eins eitt par spilaði sex
lauf og það voru Kan-
adamennirnir Mittelman
og Graves. En Kokish var
ekki hrifinn af sögnum
þeirra og hafði meiri sam-
úð með félaga sínum frá
Bretlandi, Brian Senior:
Vestur Norður Austur Suður
Silver Lambardi Carruthers Senior
-- -- -- 1 spaði
Pass 1 grand * Pass 3 hjörtu
Pass 3 grönd Pass 4 lauf
Pass 4 hjörtu Allir pass
Þetta er vandmeðfarið
spil í eðlilegu kerfi, því
hinn óvirðulegi lauflitur
gæti hæglega týnst. Hér
gerir Senior þó tilraun til
að koma litnum inn í
myndina, en Lambardi
túlkaði fjögur lauf sem
fyrirstöðusögn á leið í há-
litageim.
Mittelman og Graves
fóru beint af augum í
laufslemmuna á hinu borð-
inu:
Vestur Norður Austur Suður
Armstrong Graves Callaghan Mittelman
-- -- -- 1 spaði
Pass 1 grand * Pass 3 hjörtu
Pass 4 lauf Pass 6 lauf
Dobl Pass Pass Redobl
Allir pass
Sama byrjun, en Graves
ákveður að segja fjögur
lauf við þremur hjörtum.
„Gott ef það sýnir lauflit,“
segir Kokish, „en sam-
kvæmt mínum skilningi er
þetta fyrirstöðusögn með
hjartaslemmu í miðinu.“
Það er augljóst að Mit-
telman og Graves eru á
öðru máli og miðað við ár-
angurinn eru þeir ekki lík-
legir til að skipta um skoð-
un eða kaupa bók Kokish
um stöðuna. Graves fékk
alla slagina og 1580 fyrir
spilið.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 d6 6. Bg5
e6 7. Dd2 Be7 8. 0–0–0 Rxd4
9. Dxd4 0–0 10. Dd2 h6 11.
Bf4 e5 12. Be3 Be6
13. Kb1 a6 14. f3 Dc7
15. g4 Had8 16. Rd5
Rxd5 17. exd5 Bc8
18. Hg1 Bf6 19. Bd3
De7 20. h4 Bxh4
Staðan kom upp á
þýska meist-
aramótinu sem lauk
fyrir skömmu. Thies
Heinemann (2.426)
hafði hvítt gegn Ger-
lef Meins (2.460). 21.
Bxh6! f5 21. … gxh6
gekk ekki upp vegna
22. Dxh6 og hvítur
hótar of mörgu og
miklu til þess að svartur geti
komið vörnum við. 22. gxf5
Bf6 23. Be4 Kf7 24. Bxg7!
Bxg7 25. Hxg7+ Kxg7 26.
Dg2+ og svartur gafst upp
enda verður hann mát bæði
eftir 26. … Kf7 27. Dg6# og
26. … Kh8 27. Hh1.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
PENNAVINIR
MASTER ANDY, sem er
12 ára nemi, óskar eftir ís-
lenskum pennavinum.
Hann hefur mikinn áhuga
á landi og þjóð og er að
læra um Ísland.
Master Andy Multari,
1924 Port Weybridge
Place,
Newport Beach,
CA. 92660,
U.S.A.
GALINA, sem er 16 ára
rússneskur nemi, óskar eft-
ir íslenskum pennavinum.
Hún hefur áhuga á bók-
lestri, íþróttum og tölvu-
leikjum.
Galina Saparbaeva,
30, K. Marx. St.,
Novouzensk,
Saratov region,
Russia,
413360.
FATIMA, sem er rúss-
neskur nemi, óskar eftir að
skrifast á við 14–20 ára Ís-
lendinga.
Fatima Bazarbaeva,
30, K. Marx. St.,
Novouzensk,
Saratov region,
Russia, 413360.
BRIAN, sem er 27 ára,
óskar eftir íslenskum
pennavini. Hann hefur hug
á að koma til Íslands í
sumar.
Brian Craig,
P.O. Box 90431,
Camten, NJ.,
08101,
U.S.A.
BIANCA Hanke, sem er
15 ára, óskar eftir íslensk-
um pennavinum. Hún hefur
áhuga á að heimsækja Ís-
land. Hún hefur áhuga á
hestum og erlendum
tungumálum.
Bianca Hanke,
filou15@gmx.de
ELENA, sem er 19 ára
rússnesk stúlka, búsett í
Noregi, óskar eftir íslensk-
um pennavini á sínum
aldri.
Elena Gilyazova,
Skrøytnes,
9925 Svanvik,
Norge.
FUNDUR sex evrópskra lágfar-
gjaldaflugfélaga hefst í Reykja-
vík í dag. Fundurinn er á vegum
BAA, British Airport Authority,
og eiga félögin það sameiginlegt
að fljúga öll til Stanstead-flug-
vallar í London. Gestgjafi er Ice-
land Express en hin flugfélögin
sem um ræðir eru Air Berlin, Air
Polonia, Germanwings, Norwegi-
an og SkyEurope. Í fréttatil-
kynningu frá Iceland Express
segir að félögin sex hafi flutt um
13,5 milljónir farþega á síðasta
ári.
„Þetta er í fyrsta skipti sem
evrópsk lágfargjaldafélög eiga
fund af þessu tagi, en tilgangur
hans er að huga að möguleikum á
markaðssamstarfi. Einkum er
hugað að gagnkvæmu kynning-
arstarfi, sem felst í því að hvert
flugfélag kynnir viðskiptavinum
sínum möguleika á framhalds-
flugi frá Stanstead með hinum fé-
lögunum,“ segir í tilkynningunni.
Lággjaldaflugfélög
á fundi í Reykjavík
FRÉTTIR
SMS
tónar og tákn