Morgunblaðið - 23.02.2004, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 23.02.2004, Blaðsíða 23
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2004 23 ✝ Lilja Guðmunds-dóttir fæddist á Laugalandi í Staf- holtstungum í Mýra- sýslu 21. maí 1920. Hún lést 14. febrúar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Guðmundur Krist- jánsson frá Grísa- tungu í Borgarfirði og Guðrún Jónsdótt- ir frá Hraunholtum á Snæfellsnesi. Systkini hennar eru þau Kristinn, f. 1903; Guðlaugur Sigurbjörn, f. 1907; Guðrún Mar- grét, f. 1909; Sigurbjörg, f. 1910; Kristján, f. 1911 og Sigrún, f. 1915, sem ein lifir systkini sín. Lilja fluttist ásamt foreldrum sínum til Vestmannaeyja árið 1931. Árið 1945 kynntist hún Axel Sveinssyni og bjó með honum um fimm ára skeið, þau eignuðust einn son, Ármann Guðlaug, f. 1946. Axel lést af slysförum á Siglufirði 1950 og fluttist Lilja þá aftur til Vestmannaeyja. Hún giftist Einari Jóns- syni 1952 og eignuð- ust þau tvo syni; Ax- el Gunnar, f. 1952 og Jóhann Sigurvin, f. 1959. Einar átti þrjú börn frá fyrra hjónabandi; Jón, f. 1936; Guðlaug Kristrún, fædd 1938 og Hjálmar Hún- fjörð, f. 1943, drukknaði árið 1980. Þau Einar og Lilja bjuggu á Kal- mannstjörn en eftir eldgosið á Heimaey 1973 bjuggu þau að Dvalarheimilinu Ási í Hveragerði. Eftir að Einar lést árið 1981 flutti Lilja á ný til Vest- mannaeyja og bjó um nokkurra ára skeið á Dvalarheimilinu Hraunbúðum. Árið 1999 flutti Lilja til Reykjavíkur og bjó á Dvalarheimilinu Felli, en síðustu árin dvaldi hún á Elliheimilinu Grund. Útför Lilju verður gerð frá Að- ventkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 11. Góð vinkona okkar hefur kvatt þennan heim. Gengin til þagnar- innar og hvíldar er þreyttir þrá. En við sem enn erum á lífsleiðinni erum minnt á hve tími okkar er takmarkaður og allt ber að þeim lyktum sem hver verður að lúta. Jónína Lilja Guðmundsdóttir, sem hér er kvödd með fáum orð- um, hefur gengið þann veg allan á þann hljóðláta hátt sem fyrirbúinn var, ekki heldur óvænt eða ótíma- bært, heldur það sem ekki varð undan vikist og minnti samt á sig að samfylgdinni væri lokið. Það sem eg vildi segja um þessa konu og kynni okkar langan tíma er ekki með stórum upphrópunum eða afrekum umfram það sem flestir þurfa að vinna í lífinu, held- ur helst hennar æðruleysi og sátt við lífið við margar þær erfiðu að- stæður sem hún lifði. Hún var fundvís á gleðina í dagsins önn en erfiðleikunum tók hún eins og veðri og vindum. Okkur er það líka nærri við íslenska veðráttu og að- stæður til sjávar og sveita. Unglingsárin sem hún ól í Borg- arfirðinum voru ekki auðveld, bæði aðstæður heimafyrir og persónu- lega, einmitt sá tími sem hvað mik- ilvægastur er í lífinu. Hjúskaparmál og eftirvænting um gleði og hamingju varð líka þungbær og sár reynsla mörg ár í lífi ungrar konu er hún missti mann sinn, Axel Sveinsson, 30 ára gömul með fjögurra ára son þeirra, Ármann. En á ögurstund kom þessi kona inn í líf fjölskyldunnar á Kal- mannstjörn í Vestmannaeyjum og síðan höfum við haldið hópinn, reyndar oft sitt í hvoru lagi, þó nokkuð hafi skarðast úr gegnum þau rúm 50 ár sem síðan eru liðin. Það má segja að með sinni glað- værð og bjartsýni hafi Lilja ein- kennt líf sitt og innt af hendi skyldur sínar og ábyrgð sem hús- móðir og móðir þriggja sona gegn- um veikindi og litla burði og þá sérstaklega litla sjón gegnum allt lífið og nú síðustu árin myrkrið eitt. En þá veit eg líka að hennar sterka trúarsannfæring, þolgæði og von vegna fyrirheita um fram- tíðina, sem Guð lofar, var henni mikilvægt, og að sumu leyti viðmið því æðruleysi sem á þarf að halda við slíkar aðstæður. Þá er alveg viðeigandi, í þessu sambandi, að þakka það frábæra starf sem unnið er á sjúkradeild- inni á Grund við Hringbraut, við fólk sem er svo lasburða að þurfa algjörlega að treysta á aðra með allar þarfir sínar. En þar dvaldi hún síðustu árin. Einn hæfileiki Lilju, sem var henni mikil gleði, var ljóðagerð og hafði raunar dulist fyrir mér hve mikið hún orti en kom í ljós er gef- ið var út í bók er synir hennar stóðu fyrir árið 1995 og nefnist Ljóðmæli eftir Borgfjörð. Margt hefur borið við á þessum tíma og margs að minnast. Vindasama tíð á vertíðum í Vest- mannaeyjum, þegar ekki var róið. Hlýjuna í eldhúsinu á Kalmanns- tjörn, hvininn í olíueldavélinni, kaffiilmur og umræður um marg- vísleg málefni. Þeir dagar löngu horfnir og ekki bara dagarnir, einnig það tímabil í sögunni er var svo allt öðruvísi en í dag. Það er ekki bara tíminn „fyrir gos“ heldur líka tíminn fyrir svo margt annað sem er horfið og ann- að komið í staðinn. Margar stundir sem við áttum bæði fyrr og síðar og ræddum saman, hversdagslegt amstur, gleði eða sorg sem deilt var er gjarnan umhugsunarvert að leiðarlokum. Hún sýndi mér þann trúnað að ræða við mig í einlægni bæði yndi sitt og angur. Hvernig hún tókst á við það sem að kom og reyndar all- ir þurfa að fást við í lífinu en þó sýnu meira mál fyrir þá sem hafa ekki mikla krafta. En hún leysti það einnig, henni var raunar gefið heilmikið þegar á þurfti að halda. Það er bara lífið sjálft með öllu sem því fylgir að vera manneskja. Og er það ekki það sem skiptir þá máli þegar allt kemur til alls? Er það ekki sá farareyrir sem skil- ur eftir þegar lagt er í ferðina sem allir fara? Það er ekki undarlegt eða heldur óvænt að numið sé staðar, lagðar frá sér byrðarnar við vegkantinn er lúinn líkaminn vill hvílast og ekki voru þá efni til að rísa upp aft- ur og halda ferðinni áfram. Þannig skildir þú við okkur og við þökkum fyrir samfylgdina. Hitt er þá líka umhugsunarvert hvað okkur miðar eða er ætlað, sem enn erum á veginum. Við ráð- um ekki öllu en með góðri viðleitni má vera að við hvert og eitt getum orðið viðmið þeirra dyggða sem skipta máli. Og með þeirri hughreystingu sem okkur er gefin frá skaparan- um sjálfum og við Lilja töluðum um að myndi leiðrétta allar misfell- ur sem ófullkomnir menn þurfa að búa við kveðjum við Lilju Guð- mundsdóttur. Opinberunarbók. 21:3,4. „Sjá, tjaldbúð Guðs er meðal mannanna og hann mun búa hjá þeim, og þeir munu vera fólk hans og Guð sjálfur mun vera hjá þeim, Guð þeirra. Og hann mun þerra hvert tár af aug- um þeirra. Og dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur né vein né kvöl er framar til. Hið fyrra er farið.“ Jón Einarsson, Inga Jónatansdóttir. LILJA GUÐMUNDSDÓTTIR Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (M. Joch.) Kæri bróðir, ég kveð þig með söknuði og bið þér blessunar í nýjum heimkynnum. Elsku Anna, Höskuldur og dætur. Ólöf, Jonni, Eyjólfur og Eddi Þór, ég bið góðan Guð að vera með ykkur og styrkja ykkur í sorginni. Magnea Ásdís (Magga Dís). Eddi hafði verið undanfarin ár á Finnbogastöðum í Árneshreppi á Ströndum. Á ferðum sínum milli Reykjavíkur og Finnbogastaða kom hann yfirleitt og gisti hjá okkur. Síðastliðið sumar keypt hann sér þessa íbúð á Skagaströnd og hugðist skipta veru sinni á milli þess staðar og Finnbogastaða. Hann gekk út úr húsi þótt vissi hann varla hvar veldi hann næturstað. Hann gekk aðeins þangað sem grasið var mjúkt og grænt og fallegt hvert blað. Hann leiðina valdi í gamalli götu sem glöð honum vísaði leið. Hann fann sig einan og fagnaði því að finna hve slóðin var greið. Hann mátti feta sig hægasta fetið því honum lá ekki á. Hann vita myndi víst að kveldi hvar vegurinn endaði þá. --------- Horfði ei til baka þó húmaði að kveldi og hræddist ei myrkrið svart. Hann vissi að einhver lýsti hans leið og ljósið var himinbjart. Hann fann sér hvílu í fallegri laut og fann hve hvíldin var vær. Hann vissi að einhver vísaði leið og væri ávallt nær. (Sigfús Þorst. frá Rauðuvík við Eyjafj.) Blessuð sé minning Edda. Fjölskyldan Bálkastöðum. Elsku afi. Minningar mínar um þig mun ég ávallt geyma í hjarta mér. Ég man alltaf þær góðu stundir sem við áttum saman. Ég man alltaf þegar við fórum í gönguferð í búðina og keyptum Coco Puffs og fórum svo heim til þín og fengum okkur fulla skál. Ég man þegar þú fórst með okkur út á svalir og mældir okkur systurnar og merktir á vegginn. Það var svo gott að kúra í faðmi þínum. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Elsku afi, ég kveð þig núna með söknuði. Sigríður Höskuldsdóttir. Elsku afi. Það var svo sárt að frétta að þú værir dáinn. Þú varst fluttur til Skagastrandar þannig að styttra var fyrir þig að koma til okk- ar. Þú hringdir fyrir jól og sagðist ætla að koma að heimsækja okkur, en varst ekki enn kominn. Við vitum að mjög vont veður var á Skaga- strönd síðustu dagana sem þú lifðir og erfitt að keyra til okkar. Við geymum þig í hjarta okkar. Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með frjóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt, lit og blöð niður lagði, líf mannlegt endar skjótt. (Hallgr. Pét.) Þín barnabörn Ólöf Lilja, Laufey Lára og Aldís Anna. Elsku afi. Það eru margar minn- ingar um þig sem skjótast upp í huga mér núna. Ég veit því varla hvar ég á að byrja. En ein minning er mér efst í huga, það var þegar ég var hjá þér í Reykjavík og þú bjóst rétt hjá Miðbænum í risíbúð. Á morgnana vaktir þú mig milli 8-9 og ég var alltaf kominn út um hálftíu í strætó upp í Laugardalslaugina og þar var ég til 8-10 á kvöldin. Á eftir fórum við annaðhvort til Ollu eða fórum og keyptum okkur ís. Þetta gekk svona í tvær vikur. Öll skiptin þegar þú komst norður til okkar keyrðir þú með okkur út um allt og sýndir okkur hvar þú hefðir verið í sveit þegar þú varst lítill strákur. Þegar þú komst til okkar um ára- mótin varst þú með okkur að skjóta upp. Þegar þú varðst fimmtugur þá var svo gaman hjá okkur. Þú hélst upp á afmælið þitt með okkur á Laugarvatni í hjólhýsinu okkar og það kom fullt af fólki að heimsækja þig. Ég heimsótti þig tvisvar í sumar og var alltaf á leiðinni til þín á Skagaströnd. Afi minn, þín er sárt saknað. Þín afastelpa Edda Bára. mikill og góður, Líflegir dagar í hey- skap, réttum og mannamótum koma upp í hugann, hjálpsemi Birnu gagn- vart sínu frændfólki var ætíð mikil. Listræn var hún, teikning, olíu- málverk, útskurður lék í höndum hennar. Málverk hennar jafnt úr nátt- úrunni sem og teikningar af hestum þóttu okkur framúrskarandi og sýndi hún okkur myndir sínar af stolti. Bakkakot var jafnan líflegur stað- ur þar sem vinir og ættingjar þáðu kaffibolla, spáðu í tilveruna, spiluðu á spil og marga skákina tók hún við föður okkar. Ef sá gamli fannst ekki var hann eflaust búin að gleyma sér yfir skák- inni hjá Binnu. Birna hafði sterkar skoðanir á mönnum og málefnum og lét þær óspart í ljós. Hún var sterkur per- sónuleiki og talaði jafnan tæpitungu- laust yfir hausamótunum á okkur krökkunum ef henni sýndist svo og uppátæki okkar gáfu tilefni til. Eftir orðum hennar var jafnan tekið. Eftir að maður hennar Ólafur Þór- arinsson féll frá varð garðyrkja og trjárækt henni hugleikin og þar hafði hún svo sannarlega græna fingur, og lét hendur standa fram úr ermum. Á fáum árum gerði hún vöxtuleg- an skrúðgarð við Bakkakot, þar sem áður var nauðbitið af skepnum gróð- ursetti hún mikið af trjám og jurtum. Jafnvel eftir að heilsan bilaði var harðfylgi hennar í garðinum jafnt í gróðursetningu og grjóthleðslu með ólíkindum. Birna var einnig mikil skákkona og var Íslandsmeistari kvenna í skák um árabil. Tók hún til dæmis þátt í alþjóðlegu skákmóti í Buenos Aires á 8. áratuginum Síðustu árin dvaldi Birna á vetrum mestu leyti á Reyk- hólum í Barðastrandarsýslu bæði hjá Indíönu dóttur sinni og á dval- arheimili aldraða en var á sumrin í Bakkakoti. Með söknuði og þakklæti kveðjum við frænku okkar og allar góðu stundirnar. Fjölskyldu hennar og börnum vottum við samúð núna að leiðarlok- um. Megi minning hennar lifa í guðs friði. Fjölskyldan á Hólmi. Mín mæta vinkona Birna Norð- dahl, merk kona og mikil hetja, kvaddi þennan heim 8. febrúar síð- astliðinn. Birna var alveg einstök mann- eskja. Hún var bæði bóndi og lista- maður: bjó lengst af í Bakkakoti fyr- ir utan Reykjavík, hafði þar hesta sem hún heyjaði fyrir, málaði mynd- ir, vann úr leðri, skar út í tré auk þess sem hún gerði alla hefðbundna handavinnu og alla smíðavinnu inn- anhúss sem og utanhúss. Síðast en ekki síst var hún skákkona og á því sviði frumkvöðull að því að íslenskar konur tefldu fyrir Íslands hönd á Ól- ympíumótum í skák. Birna tók þátt í sínu fyrsta skák- móti árið 1940, þá 21 árs að aldri. Þá var hún eina konan sem tefldi á mótinu. Þegar kvennadeild Tafl- félags Reykjavíkur var stofnuð 1975 kom Birna fram á sjónarsviðið aftur. Sem ein fyrsta konan á Íslandi sem tefldi á opinberum skákmótum mátti Birna oft þola neikvætt viðhorf frá karlpeningnum. Hún minntist þess að karlmenn sýndu oft sterk við- brögð ef þeir töpuðu fyrir henni og að einu sinni vorkenndi hún svo strák einum sem hún hafði mátað, því hann var alveg niðurbrotinn eftir skákina, mest þó vegna þess að fé- lagar hans stríddu honum svo mikið fyrir það „að hafa tapað fyrir kerl- ingunni“ eins og Birna orðaði það. Þegar ég kynntist Birnu á Skák- þingi Íslands í apríl 1976 var hún þegar orðin margföld amma og bjó ein í Bakkakoti. Við tefldum af og til næstu árin og vorum svo í kvenna- sveitinni sem tefldi á Ólympíumótinu á Möltu 1980. Birna tefldi þar á sínu öðru og síðasta Ólympíumóti 61 árs og var hún þá orðin langamma. Birna sýndi þar sem fyrr að hún var mikil baráttukona, einnig á skák- borðinu, því hún tefldi ætíð til síðasta peðs og henni var í rauninni illa við jafntefli. Henni fannst „spenningur- inn, hvort maður lifir eða deyr“ það skemmtilegasta við skákina. Á árunum 1980 til 1985, eða þang- að til ég fluttist af landi brott til fjölda ára, vorum við Birna oft í sam- bandi, bæði heimsótti ég hana í Bakkakot og svo töluðumst við oft við í síma. Ég gat alltaf borið undir hana allar mínar vangaveltur um líf- ið og tilveruna og hún var ætíð góður hlustandi og sýndi mér skilning og hafði sjálf frá svo mörgu að segja. Birna var afar skemmtilegur ferða- félagi og sumarið 1983 tókum við tvær upp á því að fara með ferju til Bremenhaven í Þýskalandi með ein- ungis tveggja tíma stoppi í höfninni þar og svo tilbaka. Við höfðum taflið með og tefldum báðar leiðirnar uppi í veitingasalnum og vorum að sjálf- sögðu aðalskemmtikraftarnir á skip- inu fyrir bragðið. Alla tíð sem ég man eftir átti Birna við heilsubresti að stríða en hún gerði nú sjálf oftast gys að sínum veikindum og sagði frá þeim eins og um gamansögur væri að ræða. Mið- að við hennar sjúkdómssögu í gegn- um öll herrans árin hefur hún án efa snúið á læknavísindin og storkað læknunum oftar en einu sinni. Það kom nefnilega fyrir að hún fór rak- leiðis eftir uppskurð til útlanda á skákmót í trássi við læknana. En hún vildi jú tefla og fór því til útlanda á skákmót hvað sem öðru leið og svo eftir á sagði hún sigri hrósandi: „Auðvitað hafði ég rétt fyrir mér og ég vissi að ég myndi koma lifandi til baka!“ Birna var ein af glöðustu mann- eskjum sem ég hef kynnst um ævina. Hún hló dátt og innilega. Það geisl- aði af henni orka og áhugi. Hún var fordómalaus gagnvart fólki og sýndi dýrum og gróðri umhyggju og ég er sannfærð um að hún skildi dýr betur en flestir aðrir, einkum kindur og hesta, það sýna hin fjölmörgu mál- verk af þessum dýrum sem hún mál- aði. Birna sýndi mér ógleymanlegan vináttuvott þegar hún vorið 1982 gaf mér málverk af hryssu með folaldið sitt sem hún hafði málað og tileinkað mér. Ég þakka forsjóninni að vegir okkar Birnu Norðdahl lágu saman í gegnum skákina, því annars hefðum við – með okkar 42 ára aldursmun – sennilega aldrei hist. Innilegar samúðarkveðjur frá kvennalandsliði Íslands í skák til fjölskyldu Birnu Norðdahl. Við drúpum allar höfði yfir andláti Birnu og munum ætíð minnast hennar sem einnar fremstu og mestu skákkonu Íslands. Sigurlaug Regína Friðþjófsdóttir.  Fleiri minningargreinar um Birnu Eggertsdóttur Norðdahl bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.