Morgunblaðið - 23.02.2004, Blaðsíða 32
DAGBÓK
32 MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Han-
seduo kemur í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Hanseduo kemur í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Vinnu-
stofa og leikfimi kl. 9,
boccia kl. 10, kl. 14 fé-
lagsvist. Hársnyrting,
fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 10 söng-
stund, kl. 13–16.30 smíð-
ar, útskurður, kl. 13–
16.30 handavinna, kl.
13.30 félagsvist, kl. 16
myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–
16 handavinna, kl. 9–12
bútasaumur, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 10–11
samverustund, kl. 13–16
bútasaumur, kl. 13.30
dans.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist í
Gullsmára 13 kl. 20.30.
Fótaaðgerð kl. 10. Skrif-
stofan er opin í dag kl.
10–11.30.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9
fótaaðgerð, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 10 leikfimi, kl.
13 brids.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin, kl. 10–
13 verslunin opin, kl. 11–
11.30 leikfimi.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Bað kl. 9–12,
opin vinnustofa, kl. 9–
16.30, félagsvist kl.
13.30.
Félagsstarf eldri borg-
ara Mosfellsbæ, Dval-
arheimilinu, Hlaðhömr-
um. Kl. 16 spænsku-
námskeið.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Kvenna-
leikfimi kl. 9.30, kl. 10.20
og kl. 11.15, spænska,
framh., kl. 11.30, gler-
bræðsla og pílukast kl.
13, spænska, byrjendur,
kl. 14, bollukaffi í Garða-
bergi.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Opnað kl.
9, pútt í Hraunseli kl.
10–11.30, biljardsalurinn
opinn til 16, tréút-
skurður kl. 13, félagsvist
kl. 13.30, kóræfing Gafl-
arakórsins kl. 17.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Brids í dag kl.
13. Línudanskennsla
fyrir byrjendur kl. 18.
Danskennsla í sam-
kvæmisdönsum, fram-
hald kl. 19 og byrjendur
kl. 20.30.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, frá hádegi spila-
salur opinn, kl. 9.30 sund
og leikfimiæfingar í
Breiðholtslaug. Bollu-
kaffi í Kaffi Bergi í kaffi-
tímanum.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–17 handavinna, kl.
9.30 gler og postulín, kl.
13 skák, kl. 20 skapandi
skrif.
Gullsmári, Gullsmára
13. kl. 9 vefnaður, kl. 10
ganga, kl. 11 boccia, kl.
13 brids og bútasaumur,
kl. 20.30 félagsvist.
Hraunbær 105. Kl. 9
postlín, keramik og fóta-
aðgerð, kl. 10 bæna-
stund, kl. 13.30 skraut-
skrift, kl. 13 hárgreiðsla,
kl. 13.30 skrautskrift.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9–
15 handmennt, kl. 9–10
og kl. 10–11 jóga, kl. 13–
16 spilað. Fótaaðgerðir
virka daga, hársnyrting
þriðju- til föstudags.
Korpúlfar Grafarvogi. Á
morgun, þriðjudag,
sundleikfimi Graf-
arvogslaug kl. 9.30.
Norðurbrún 1. Kl. 9–16
fótaaðgerð, kl. 10–11
ganga, kl. 13–16.45 opin
vinnustofa, myndlist.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9–10 boccia,
kl. 9.15–15.30 handa-
vinna, kl. 9.30–10.30
boccia, kl. 11–12 leikfimi,
kl. 12.15–13.15 dans-
kennsla, kl. 13–16 kór-
æfing.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9.30
bókband, bútasaumur
og morgunstund, kl. 10
fótaaðgerðir og boccia,
kl. 13 handmennt, gler-
bræðsla og spilað.
Þjónustumiðstöðin,
Sléttuvegi 11. Opið frá
kl. 9–16. Kl. 13.30 opið
hús, m.a. söngur, fé-
lagsvist.
Þórðarsveigur 1–5,
Grafarh. Kl. 13.30 spila-
dagur, kaffiveitingar.
Hana-nú, Kópavogi.
Mánudagur til mæðu
fellur niður í kvöld.
Félag eldri borgara,
Suðurnesjum. Bingó í
Selinu, Vallarbraut 4,
Njarðvík, öll mánudags-
kvöld kl. 20.
Gullsmárabrids. Brids-
deild FEBK, Gullsmára,
spilar í félagsheimilinu,
Gullsmára 13, mánu- og
fimmtud. Skráning kl.
12.45. Spil hefst kl. 13.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12.
Kl. 19 brids.
Í dag er mánudagur 23. febrúar, 54.
dagur ársins 2004, bolludagur. Orð
dagsins: Og hann leit í kring á þá
með reiði, sárhryggur yfir harðúð
hjartna þeirra, og sagði við manninn:
„Réttu fram hönd þína.“ Hann rétti
fram höndina, og hún varð heil.
(Mk.. 3, 5.)
Erlingur Þór Tryggva-son skrifar á Frelsi.is
um lokun einu einka-
reknu heilsugæslu lands-
ins, Læknalindar, 1. sept-
ember. „Mig furðar að
ríkið skuli ekki hafa kom-
ið til móts við stöðina þar
sem að um fátt er meira
rætt en nauðsynlegar að-
gerðir til að hagræða í
heilbrigðisgeiranum.
Bestu sparnaðaraðgerðir
ríkisins eru að koma
rekstri úr þeirra höndum,
yfir í hendur einkaaðila.
Fyrirfram mætti ætla aðheilsugæsla án rík-
isstyrkja væri mun dýrari
en ríkisrekin, en svo er
nú ekki. Eins og staðan er
í dag fer enginn á heilsu-
gæslu án þess að greiða
að minnsta kosti 1.000 kr
komugjald, í Læknalind
var aðeins greitt mán-
aðargjald og með því
mánaðargjaldi gat maður
komið eins oft og þörf var
á, án þess að bíða klukku-
tímum saman á biðstofu.
Betri þjónusta og þægi-
legt verð (eitthvað um
2.500-3.000 kr.). Hvað var
það þá sem fór úrskeiðis?
Var þetta einhver áminn-
ing um það að einka-
rekstur í heilbrigðisgeir-
anum sé ómögulegur?
Nei, þetta var fyrst og
fremst greinileg um-
merki þess að einhverjar
uppstokkunar væri þörf í
heilbrigðiskerfinu. Ég
spyr sjálfan mig hvers
vegna hægt var að reka
heilsugæslu án rík-
isstyrkja í yfir ár, en
heilsugæslur sem að
greiddar eru niður af rík-
inu og innheimta komu-
gjald eru í vanda stadd-
ar? Ég leyfi mér að
fullyrða að hefði Lækna-
lind fengið þó ekki nema
helming þess fjármagns
sem að hinar heilsugæsl-
unar fá, hefði reksturinn
skilað hagnaði.
Nú kippa margir sérkannski upp, því að
hagnaður hefur verið al-
gjört bannorð í tengslum
við heilbrigðisþjónustu á
Íslandi. En hvað er að því
að aðilar hagnist svolítið
á heilbrigðisþjónustunni?
Sama „fobia“ var með
skólakerfið, en nú í dag
efast fáir um það að hinir
einkareknu skólar hafi
verið til góðs, ég tel það
sama eiga eftir að gerast
í heilbrigðisgeiranum.
Einkarekstur í heilbrigð-
isgeiranum veitir rík-
isrekstrinum nauðsynlegt
aðhald, heldur þeim á
tánum, eins og sagt er.
Nú eru framsókn-armenn búnir að
hafa ráðuneytið í að
ganga 9 ár, og sama sem
ekkert hefur gerst. Sjálf-
stæðismenn, líkt og
landsmenn, eru orðnir
þreyttir á ástandinu í
heilbrigðismálum og
heimta breytingar. Þær
gerast þó ekki á meðan
hinn afturhaldssami og
úrelti flokkur Framsókn
fer með ráðuneytið. Það
er kominn tími til að sjálf-
stæðismenn taki stjórnina
í ráðuneytinu og komi
heilbrigðiskerfinu í við-
unandi ástand! „Oft var
þörf en nú er nauðsyn.““
STAKSTEINAR
Hvað fór úrskeiðis?
Víkverji skrifar...
Vinkona Víkverja nemur líffræðivið Háskóla Íslands og er því í
hópi þeirra sem fyrir skemmstu
fengu nýtt þak yfir höfuðið, þar sem
er hið glæsilega Náttúrufræðahús í
Vatnsmýrinni. Vinkonan og samnem-
endur hennar eru í sjöunda himni yf-
ir þessu glæsilega húsi, sem og því,
að vera komin á háskólasvæðið „og
meira að segja í miðja Vatnsmýrina!“
eins og vinkonan komst að orði.
Þó hefur ýmislegt verið að koma í
ljós sem óneitanlega mætti betur
fara í nýtingu þessa glæsilega húss,
sem Maggi Jónsson arkitekt hann-
aði. Vinkonan tjáir Víkverja að um
það bil 400 nemendur séu skráðir til
BS- og MA- náms í Náttúrufræða-
húsinu, en þar er ekki lesaðstaða fyr-
ir nema 25 BS-nema og annað eins
fyrir MA-nema. Auk þess sé lessal-
urinn ekki hljóðeinangraður og ofan í
kaupið staðsettur beint yfir kaffistof-
unni, sem þjóni öllum sem fara um
svæðið. Lessalurinn er lokaður af
með glervegg, en ekki hljóðeinangr-
aður. Hópvinnuborð á svölum fyrir
framan lesstofu teljist ekki til les-
aðstöðu, enda þau alveg án hljóðein-
angrunar í rými sem er opið frá
neðstu hæð hússins og upp í rjáfur.
Vinkona Víkjverja er dálítið fúl út af
þessu fyrirkomulagi og telur það til
marks um gamaldags hugmyndir
skipuleggjenda hússins um nám, það
er að segja, að nám sé eitthvað sem
maður geri með annarri hendinni á
meðan maður eyðir tímanum að öðru
leyti í djamm og vinnu.
„Staðreyndin er hins vegar sú, að
þeir sem fara út í nám taka það mjög
alvarlega, enda leggja þeir oft mikið
undir, taka milljónir í lán og sinna
náminu öllum stundum,“ sagði vin-
konan við Víkverja um daginn. Nem-
endur líti á skólahúsið sem vinnu-
staðinn sinn, ekki bara stað til að
mæta á til að hlýða á fyrirlestra.
„Nám er vinna“ sé ekki bara slagorð
hjá bönkum. Það sé því óneitanlega
undarlegt að í Náttúrufræðahúsinu
sé í raun ekki vinnuaðstaða fyrir 2⁄3
þeirra sem starfi í húsinu. Til að bæta
gráu ofan á svart sé geymsluaðstaða
nemenda fyrir námsgögn sín engin,
hvergi læst hólf að hafa og því ekki
hægt að leggja frá sér verðmæti. Há-
skólasvæðið muni vera vinsælt hjá
þjófum.
Fulltrúar stúdentaráðs – sem eru
kosnir af nemendum – hafi svarað at-
hugasemdum um þessi mál með orð-
um eins og „ég lærði nú alltaf heima
hjá mér“, og „eiga ekki allir fartölvur
hvort eð er?“ Frá bygginganefnd hafi
borist ummæli eins og „ég lærði nú
alltaf á kaffihúsum krakkar mínir,
hvað eruð þið að kvarta?“
Húsið er fagurt og fínt. En vin-
kona Víkverja telur að ekki hafi nóg
verið hugað að nýtingu þess og þörf-
um nemendanna sem það hýsir.
Morgunblaðið/Ásdís
Í Náttúrufræðahúsi HÍ.
Hver á myndina?
ÞESSI mynd fannst í
bílageymslu Kringl-
unnar fyrir ca. 2 vik-
um. Nánari upplýs-
ingar gefur Unnur í
síma 550-2000 á skrif-
stofutíma.
Ísland í býtið
ÉG er einn af þeim er
vakna snemma og
þykir prýðilegt að
horfa á morgunsjón-
varp Stöðvar 2.
Eitt sem ég undra
mig þó á, og er ekki
einn um það, er þáttar-
stjórnendavalið. Með fullri
virðingu fyrir stjórnendun-
um, ná þeir æði misjafnlega
saman. Í morgun, 19. febr-
úar, sáu Heimir og Gulli
Helga um þáttinn og
blómstruðu saman. Greini-
legt að þar voru á ferðinni
tveir gæðasjónvarpsmenn
er drógu það besta fram hjá
hvor öðrum. Náðu að gera
misáhugaverð mál áhuga-
verð, nauðsynlegur eigin-
leiki þáttagerðamanna.
Eins og Inga Lind mynd-
ast vel og sómir sig frábær-
lega, á skjánum, sem frétta-
þulur, þá virðast hvorki
Heimir né Gulli Helga njóta
sín í hennar návist.
Manni er spurn hvað
ræður er fólk er parað sam-
an á stöð 2 í þáttagerð. Er
Ísland í bítið eitthvert æf-
ingaverkefni fyrir sjón-
varpsmenn meðan þeir
vinna sig upp í eitthvað ann-
að?
Ef áhorf er það sem
skiptir máli, er nokkuð ljóst
að það ættu tveir herra-
menn að stjórna þættinum
á hverjum morgni.
Aðdáandi Íslands í bítið.
Á engan fána?
GETUR verið að Þjóð-
menningarhúsið eigi engan
íslenskan fána? Hann alla
vega sést ekki, hvorki á
virkum dögum né tyllidög-
um. En aftur á móti eru
hangandi uppi þrjár skítug-
ar bláar auglýsingadulur.
Sverrir R. Bjarnason.
Gott framtak
Hundaræktarfélag Íslands
vill koma á framfæri þökkum
til RÚV, fyrir að sýna frá
Westminster-hundasýning-
unni í sjónvarpinu og hvetur
sjónvarpið til að sýna frá
fleiri viðburðum tengdum
hundum á sýningum og í
vinnu.
Hundaeigendum og
áhugamönnum um hundinn
fjölgar stöðugt og er því mik-
ill áhugi fyrir þess háttar
sjónvarpsefni. Gott framtak.
F.h. HRFÍ,
Hanna Björk Kristins-
dóttir.
Tapað/fundið
Gsm-sími í óskilum
GSM-sími fannst á bílaplan-
inu við Skíðaskálann í
Hveradölum sunnudaginn
15. febrúar. Upplýsingar í
síma 581 4969.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 geðrík, 8 brestir, 9
starfað, 10 ætt, 11 slitna,
13 afkomenda, 15 höf-
uðfats, 18 drengur, 21
kriki, 22 kroppi, 23 vaf-
inn, 24 sljór.
LÓÐRÉTT
2 skarð milli fjalla, 3
böggul, 4 ásynja, 5 at-
vinnugrein, 6 espar, 7
starf, 12 hef gagn af, 14
greinir, 15 fornafn, 16
mannsnafn, 17 vitur, 18
áfall, 19 borðhaldinu, 20
framkvæma.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 flagg, 4 afber, 7 Leifs, 8 úlfúð, 9 súð, 11 rödd,
13 áran, 14 Íraks, 15 fugl, 17 tólf, 20 ess, 22 riðil, 23 kot-
ið, 24 kenna, 25 penna.
Lóðrétt: 1 falur, 2 aðild, 3 góss, 4 alúð, 5 bifar, 6 rúðan,
10 úrans, 12 díl, 13 ást, 15 fersk, 16 gæðin, 18 óttan, 19
fiðla, 20 elja, 21 skip.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16