Morgunblaðið - 23.02.2004, Side 4
FRÉTTIR
4 MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Skógarhlíð 18, sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Mars og apríl
Fimmtudaga og mánudaga
3, 4 eða 7 nætur
Fegursta borg Evrópu og eftirlæti Íslend-
inga sem fara nú þangað í þúsundatali á
hverju ári með Heimsferðum. Í mars byrjar
að vora enda er þetta vinsælasti tími ferða-
manna til að heimsækja borgina. Farar-
stjórar Heimsferða gjörþekkja borgina og
kynna þér sögu hennar og heillandi menn-
ingu. Góð hótel í hjarta Prag, frábærir veit-
inga- og skemmtistaðir.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 36.550
Flugsæti til Prag, 11. mars
Verð kr. 39.950
Flug og hótel í 4 nætur, helgarferð 11.
mars M.v. 2 í herbergi á ILF Hotel.
Skattar innifaldir.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.
Helgarferð til
Prag
11. mars
frá kr. 36.550
BJÖRN Bjarnason dómsmálaráð-
herra víkur á heimasíðu sinni að end-
urskipulagningu lögregluumdæma
og hættunni sem íslensku samfélagi
stafar af alþjóðlegri glæpastarfsemi.
Kveikjan að umræðunni er líkfund-
urinn á Neskaupstað fyrr í þessum
mánuði. Í október á liðnu ári reifaði
ráðherra hugmyndir sínar um breyt-
ingar á skipan lögreglumála í landinu.
„Þar nefndi ég meðal annars al-
þjóðlega glæpastarfsemi og sagði að
það yrði að skipuleggja lögregluna
þannig að hún gæti tekist á við ný og
vandasöm verkefni með vísan til
verkefna en ekki landafræði, það er
lögregluumdæma. Ég setti eftir
þennan fund af stað vinnu við þessa
endurskipulagningu lögreglunnar.
Við slit lögregluskólans 11. desember
vék ég enn að nauðsyn þess að
styrkja lögregluna og nefndi þá sér-
sveit hennar sérstaklega til sögunn-
ar. Innan dómsmálaráðuneytisins og
á vegum lögreglunnar hefur síðan
verið unnið að málinu, samhliða því
sem ég hef unnið að því á vettvangi
ríkisstjórnarinnar,“ segir Björn.
Dómsmálaráðherra gerir líka að
umtalsefni umræður um samskipti
fjölmiðla og lögreglunnar. „Þessar
umræður koma engum á óvart, sem
þekkir til metnaðar fjölmiðla annars
vegar og þarfar lögreglunnar hins
vegar fyrir að gæta rannsóknarhags-
muna.“
Nefnd að störfum
Sem áður segir skipaði Björn
Bjarnason starfshóp til þess að móta
og setja fram tillögur að breytingum
á umdæmaskipan við löggæslu og
innra starfi lögreglunnar í október.
Tillögurnar eiga miða að því að
styrkja og efla starfsemi lögreglu og
sýslumanna og nýta fjármuni betur.
Ennfremur er hópnum ætlað að móta
löggæsluáætlun til næstu ára, þar
sem kynnt verður forgangsröð við úr-
lausn verkefna og þess freistað að
setja löggæslunni mælanleg mark-
mið.
Stefán Eiríksson skrifstofustjóri
og formaður hópsins, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að unnið væri
að tillögum um þessar mundir. „Fyr-
irmæli liggja fyrir um að vinna tillög-
urnar eins hratt og kostur er og þær
verða lagðar fram síðar á þessu ári,“
segir hann.
Ráðherra vill breyta skipan lögreglumála í ljósi alþjóðlegrar glæpastarfsemi
Skipulag á að miðast við
verkefni, ekki landafræði
LITHÁINN Tomas Malakauskas,
einn mannanna þriggja sem úr-
skurðaðir voru í gæsluvarðhald um
miðjan dag á laugardag vegna rann-
sóknar í kjölfar líkfundar í höfninni
á Neskaupstað 11. febrúar sl., hefur
kært úrskurðinn til Hæstaréttar.
Grétar Sigurðsson unir gæslu-
varðhaldsúrskurðinum en þriðji
maðurinn, Jónas Ingi Ragnarsson,
hefur tekið sér frest til að ákveða
hvort hann kærir úrskurðinn. Menn-
irnir þrír voru úrskurðaðir í gæslu-
varðhald til 3. mars.
Rannsókn málsins beinist að því
að kanna ferðalög mannanna þriggja
og hins látna, Vaidas Jucivicius, seg-
ir Arnar Jensson, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn hjá Ríkislögreglustjóra.
Heimildir Morgunblaðsins herma að
lögreglan telji að Jucevicius hafi far-
ið með Jónasi og Malakauskas frá
flugstöðinni í Keflavík austur á Nes-
kaupstað í jeppa sem mennirnir
tóku á leigu. Arnar vildi ekki stað-
festa þetta. Hann segir sýni sem
tekin voru í jeppanum nú í rann-
sókn, en ekki er ljóst hvenær nið-
urstöður fást.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins halda hinir grunuðu því
fram að þeir hafi aldrei hitt hinn
látna, né séð myndir af honum.
Ætluðu að hitta Vaidas
Tveir mannanna, Jónas og Malak-
auskas, munu hafa sagt við yfir-
heyrslur að þeir hafi farið til Kefla-
víkur 2. febrúar til að taka á móti
manni sem þeir segja að hafi haft
fornafnið Vaidas, en segjast ekki
hafa vitað eftirnafn hans. Þeir segja
að hann hafi ekki látið sjá sig en að
„Vaidas“ þessi hafi síðar hringt í
Jónas og sagt að hann hefði fengið
far með portúgölskum vinum sínum.
Jónas mun hafa sagst hafa verið í
símasambandi við hann áður en
hann kom, og að hann hefði haft í
huga að flytja hingað sumarhús og
jafnvel reyna að fá atvinnuleyfi hér á
landi.
Arnar staðfesti að rannsóknin
beindist m.a. að því að kanna hvort
einhverjir mannanna hafi hitt Juc-
evicius á flugvellinum og tekið hann
með sér í bíl sínum. Arnar segir það
ljóst að einn mannanna hafi síðar
breytt flugmiða sem Jucevicius átti
bókaðan af landi brott, og það tengi
mennina vissulega við hinn látna,
eða í það minnsta flugmiða hans.
Húsleit hefur verið gerð á heimili
allra mannanna, bifreiðum og víðar,
segir Arnar. Hann staðfestir einnig
að leitað hafi verið í húsnæði sem
tengist einum mannanna á Nes-
kaupstað. Allar húsleitir sem gerðar
hafa verið til þessa tengjast mönn-
unum þremur á einn eða annan hátt.
Arnar vildi ekki segja til um hvort
eitthvað hefði fundist í húsrannsókn-
unum sem tengdi einhvern af mönn-
unum þremur við Jucevicius, en seg-
ir að sýni hafi verið tekin á mörgum
leitarstöðum og séu þau nú í rann-
sókn.
Ekkert tómt hylki
Endanlegar niðurstöður eru ekki
komnar úr krufningunni og því er
banamein Jucevicius ekki á hreinu.
Arnar segir það þó rangt sem komið
hefur fram í einhverjum fjölmiðlum
að eitt eða fleiri hylki með ætluðu
amfetamíni hafi verið tóm í maga
Jucevicius, en tekur fram að ekki sé
hægt að útiloka að eitthvert af hylkj-
unum hafi lekið. Rannsókn réttar-
meinafræðings beinist því ekki síður
að því að komast að því hvort þetta
mikla magn sem maðurinn var með
inni í sér hafi leitt hann til dauða.
Þrír í gæsluvarðhald til 3. mars vegna líkfundar
Ætluðu að hitta
Vaidas í Keflavík
FOOD and Fun-hátíðinni, Matur og
skemmtun, lauk um helgina með
sérstökum galakvöldverði á Hótel
Nordica og keppni milli erlendra
matreiðslumeistara í Vetrargarði
Smáralindar. Að sögn skipuleggj-
anda hátíðarinnar, Baldvins Jóns-
sonar, fór hún mjög vel fram og er
talið að um átta þúsund manns hafi
farið út að borða á þeim tólf veit-
ingastöðum borgarinnar sem buðu
sérstaka fjórrétta hátíðarmatseðla.
Verða þeir áfram í boði næstu
daga.
Baldvin segir að hátíðin, sem var
haldin í þriðja sinn, sé sífellt að
vaxa og sé mikil lyftistöng fyrir
veitingahúsin á þessum árstíma. Til
landsins komu nærri 60 blaðamenn
og er því umfjöllunar að vænta í
fjölmiðlum víða um heim næstu
daga og vikur. Baldvin segir mat-
reiðslumenn erlendis sýna hátíðinni
mikinn áhuga og þegar vilji 20 slík-
ir koma hingað að ári. Hann segir
einnig liggja fyrir að fjölmörg fjög-
urra og fimm stjörnu veitingahús í
Bandaríkjunum hafi ákveðið að
hafa íslenska matseðla á boðstólum
næsta haust.
Í galakvöldverðinum á Nordica á
laugardagskvöld settu 20 meist-
arakokkar upp hlaðborð með öllu
því besta sem íslensk matargerð-
arlist hefur upp á bjóða. Sama
kvöld fór fram verðlaunaafhending
þar sem verðlaun voru veitt fyrir
besta fiskréttinn, besta kjötréttinn
og besta eftirréttinn. Að auki var
krýndur Food and Fun-kokkur árs-
ins 2004, sem hafði flest samanlögð
stig fyrir alla réttina, og þá útnefn-
ingu hlaut John Besh frá New Or-
leans í Bandaríkjunum.
Morgunblaðið/ÞÖK
Bestu matreiðslumenn Food and Fun-hátíðarinnar, f.v. þeir Hans Horberth, sem átti besta eftirréttinn, John Besh,
sem hlaut aðalverðlaunin, Gerrard Thompson átti besta kjötréttinn og Per Thostesen besta fiskréttinn.
Um 8.000 út á borða á Food and Fun
TVÆR bílveltur urðu með stuttu
millibili í umdæmi lögreglunnar í
Reykjavík um kvöldmatarleytið í
gær. Bíll valt á Suðurlandsvegi við
Rauðhóla, og voru tveir fluttir á
slysadeild með minniháttar meiðsli.
Stuttu síðar valt bíll á Vesturlands-
vegi við Leirvogsá, og voru ökumað-
ur og farþegi fluttir á slysadeild, en
meiðsl þeirra ekki talin alvarleg.
Báðir bílarnir voru óökufærir eftir
velturnar og þurfti að fjarlægja þá
með kranabíl.
Fjórir slas-
aðir í bíl-
veltum
LÖGREGLAN á Hólmavík stöðvaði
um 100 bíla í sérstöku átaki frá há-
degi á föstudag fram á kvöld á
sunnudag. Tilgangurinn var að
kanna ástand bíla og ökumanna. Ár-
angurinn var sá að ekki einn einasti
ökumaður var látinn blása í blöðru.
Aðeins tvær athugasemdir voru
gerðar í sambandi við beltanotkun í
aftursæti, auk nokkurra um ljósa-
búnað. Telur lögreglan þennan ár-
angur einkar góðan, sér í lagi þegar
haft er í huga að þorrablót sem
drógu að sér mikið af aðkomufólki
voru á Hólmavík um helgina.
Átak lögreglu
á Hólmavík
♦♦♦
ÖKUMAÐUR fólksbíls slapp ótrú-
lega vel þegar hann fór út af veg-
inum og skall á miklum hraða á klett
við vegbrúnina. Atvikið varð um kl.
18.30 í gær og var maðurinn á leið
austur Barðaströnd.
Lögreglan á Patreksfirði segir til-
drögin vera þau að bíllinn lenti í
krapa á veginum, snerist og fór út af
veginum. Farþegahlið bílsins lenti á
mikilli ferð á klett sem er við veg-
brúnina, og kastaðist bíllinn af klett-
inum og valt. Ökumaður slapp ótrú-
lega vel að sögn lögreglu, kvartaði
yfir smávægilegum eymslum.
Ómeiddur
eftir að hafa
ekið á klett
♦♦♦