Morgunblaðið - 23.02.2004, Side 26
HESTAR
26 MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
KEPPNISTÍMABILIÐ er nú hafið
af góðum krafti og hafa nokkur
hestamót verið haldin og má þar
nefna vetrarmót á Gaddstaðaflöt-
um, hjá Geysi, á Æðarodda hjá
Dreyra, hjá Sörla í Hafnarfirði og á
ís á Meðalfellsvatni hjá Herði og á ís
á Kjóavöllum hjá Andvara svo eitt-
hvað sé nefnt.
Mótið á Meðalfellsvatni fór fram
fram í blankalogni og blíðu á sunnu-
dag fyrir rúmri viku. Þátttaka var
fín, en um 40 knapar mættu til leiks
og nokkur fjöldi áhorfenda skemmti
sér vel. Bændur í Kjós ruddu braut-
ir vítt og breitt um vatnið þannig að
hægt var að fara í fínan útreiðartúr
á ísnum. Allt sem fram fór var kvik-
myndað og verður notað sem uppi-
staða í sjónvarpsþætti sem Banda-
ríska sjónvarpsstöðin Horse TV
(http://www.horse-tv.com/cent-
ral.html ) mun sýna í apríl og end-
ursýna fjórum sinnum á næstu 6
mánuðum. Úrslit urðu eftirfarandi:
Unglingar
1. Ásaug A. Sigurbjörnsdóttir á Aldísi frá
Ragnheiðarstöðum
2. Linda R. Pétursdóttir á Aladín
Konur
1 . Bíbí Gunnarsdóttir á Fróða frá Hnjúki
2. Ásta B. Benediktsdóttir á Írafár frá Ak-
ureyri
3. Camilla Rip á Gerplu frá Ási 1
4. Halldóra S. Guðlaugsdóttir á Gusti frá
Lækjarbakka
5. Ragnheiður Þorvaldsdóttir á Hervöru frá
Hvítárholti
Karlar
1. Sigurbjörn Magnússon á Búa frá Kiða-
felli
2. Ásgeir Heiðar á Þorra frá Stykkishólmi
3. Ólafur Ólafsson á Rakel frá Hjálmholti
4. Atli Helgason á Fífli frá Flekkudal
5. Guðmundur Björgvinsson á Flugari frá
Hvítárholti
Meistarar
1. Súsanna S. Ólafsdóttir á Garpi frá Torfa-
stöðum
2. Guðlaugur Pálsson á Mekki frá Björgum
3. Kristján Magnússon á Hrafnari frá Hind-
isvík
4. Bjarni Kristjánsson á Ófeigi frá Þorláks-
stöðum
5. Þórdís Gunnarsdóttir á Mekki frá Skarði
Vetrarmót Andvara
haldið á Kjóavöllum
Pollar
1. Andri Ingason, Glampi frá Litla-Hamri,
15 v., brúnskjóttur.
2. Steinunn Jónsdóttir, Mundi frá Torfa-
stöðum, 13 v., brúnn.
3. Gunnar Sigurðsson, Fjöður frá Garðabæ,
25 v., móskjótt.
4. Sara Ý. Guðjónsdóttir, Erill frá Gunn-
arsholti, 12 v., brúnn.
Börn
1. Ástríður Magnúsdóttir, Pjakkur frá
Garðabæ, 7 v., jarpur.
2. Lydia Þorgeirsdóttir, Páfi frá Reykjadal,
14 v., rauður.
3. Rebekka Guðmundsdótir, Lómur frá
Eyjólfsstöðum, 10 v., grár.
4. Kolbrún Inga Bjarnadóttir, Gutti frá
Fljótshlíð, 7 v., jarpur.
Unglingar
1. Áslaug A. Sigurbjörnsdóttir, Aldís frá
Ragnheiðarstöðum, 6 v., bleik.
2. Ólöf Þ. Jóhannesdóttir, Stjörnudís frá
Kjarnholtum, 9 v., jörp.
3. Ásta S. Harðardóttir, Sölvi frá Hólavatni,
9 v., rauðblesóttur.
4. Sandra S. Rúnarsdóttir, Felgur frá Ket-
ilsstöðum, 6 v., rauðjarpur.
5. Anna G. Oddsdóttir, Rauður frá Skóg-
arkoti, 9 v., rauður.
Ungmenni
1. Ívar Örn Hákonarson, Rosi frá Hlíð, 11
v., jarpur.
2. Halldór F. Ólafsson, Nýherji frá Hjarð-
arholti, 11 v., grár.
3. Már Jóhannsson, Valíant frá Miðhjáleigu,
10 v., móálóttur.
4. Ingvar Freyr Ingvarsson, Snuggur frá
Eyrarbakka, 7 v., brúnn.
5. Margrét S. Kristjánsdóttir, Safír frá Þór-
eyjarnúpi, 11 v., grár.
Konur II
1. Silvía R. Gísladóttir, Krummi frá Heims-
enda, 8 v., brúnn.
2. Anna M. Hedman, Snót frá Selfossi, 11 v.,
rauðskjótt.
3. Inga D. Sváfnisdóttir, Hausti frá Efri-
Hömrum, 8 v., grár.
4. Oddný Erlendsdóttir, Máni frá Sólvöll-
um, 11 v., brúnstjörnóttur.
5. Ingibjörg Bjartmars, Gosi frá Reykjum,
11 v., rauðblesóttur.
Karlar II
1. Ingi Guðmundsson, Greifi frá Oddgeirs-
hólum, 10 v., brúnn.
2. Sigurbjörn Magnússon, Búi frá Kiðafelli,
11 v., móálóttur.
3. Ásgeir Heiðar, Þorri frá Forsæti, 8 v.,
móálóttur.
4. Jón Halldórsson, Kópur frá Hvanneyri, 9
v., jarpur.
5. Jón Magnússon, Mósart frá Einiholti, 14
v., móálóttur.
Konur I
1. Þórdís Gylfadóttir, Katla frá Flugumýri,
5 v., brún.
2. Erla Gylfadóttir, Brúnka frá Varmadal,
10 v., brún.
3. Randý Friðjónsdóttir, Garri frá Gerðum,
6 v., bleikálóttur.
4. Dagný Bjarnadóttir, Ljómi frá Brún, 8 v.,
moldóttur.
5. Britha Kristiansen, Hljómur frá Hofi, 7
v., jarpur.
Karlar I
1. Kristján Stefánsson, Þróttur frá Efri-
Hömrum, 8 v., jarpur.
2. Ársæll Hafsteinsson, Elding frá Brekk-
um, 6 v., svört.
3. Sveinn Gaukur, Skuld frá Garðabæ, 5 v.,
brúnstjörnótt.
4. Jón Ó. Guðmundsson, Baldur frá Holts-
múla, 8 v., rauðtvístjörnóttur.
5. Ágúst Hafsteinsson, Aþena frá Gýgjar-
hóli, 5 v., rauðblesótt
Keppnistímabilið hafið af krafti
NÁMSKEIÐAHALD er nú víða
komið í fullan gang víða um land og
hafa ýmsir góðir kostir verið í boði.
Má þar nefna námskeið á vegum
suðurdeildar Félags tamn-
ingmanna þar sem Eyjólfur Ísólfs-
son kenndi um helgina. Þá er vænt-
anlegur til landsins
heimsmeistarinn í gæðingaskeiði
Johan Häggberg frá Svíþjóð en
hvorki er búið að tíma né staðsetja
það námskeið enn. Lands-
liðseinvaldurinn Sigurður Sæ-
mundsson brá sér hinsvegar á nám-
skeið hjá Þjóðverjanum Christoph
Müller sem kennir þessa dagana
grunn að klassískri reiðmennsku í
Hindisvík í Mosfellsbæ við góðar
undirtektir en meðal annarra þátt-
takenda má nefna Trausta Þór
Guðmundsson og Sigurð Sigurð-
arson ásamt umboðsmanni íslenska
hestsins Jónasi R. Jónssyni. Á
myndinni situr Sigurður hryssuna
Spyrnu frá Holtsmúla undir vök-
ulum augum Christophs.
Morgumblaðið/Vakri
Gróska í námskeiðahaldi
MIKIÐ er um að vera í reiðhöllinni
Svaðastöðum um þessar mundir,
enda núna tíminn sem notaður er
til að temja og undirbúa sýningar-
og keppnishross fyrir sumarið.
Að sögn Ingimars Ingimars-
sonar framkvæmdastjóra Svað-
astaða er Skagfirska mótaröðin,
sem svo er nefnd að hefjast og er
fyrsta mótið þann 27. þessa mán-
aðar, þar sem keppt verður í fjór-
gangi og tölti, þann 12. mars í
fimmgangi og skeiði og þannig
áfram, en síðan í byrjun apríl verði
úrslitakeppni þar sem stigahæstu
keppendur leiða að lokum saman
hesta sína og fá fram niðurstöðu
um gæði og frammistöðu kepp-
enda.
Þá sagði Ingimar að nú annað
árið í röð væri kenndur sex eininga
valáfangi í hestamannsku við Fjöl-
brautaskólann sem nefndist Jór, og
nyti hann vaxandi vinsælda, og ein-
mitt á meðan dvalið var hjá Ingi-
mar voru þrjár ungar stúlkur að
spretta af hestum sínum og ljúka
kennslustundinni, en aðrir nem-
endur voru farnir.
Einnig sagði Ingimar að barna-
og unglingastarf hestamannafélag-
anna í Skagafirði færi fram í reið-
höllinni aðra hverja helgi og sæktu
þá fræðslu tæplega 60 krakkar og
gengi mjög vel. Þess á milli fengju
bæði frjálsíþróttamenn og knatt-
spyrnumenn að iðka sínar íþróttir í
höllinni og væri því ljóst hversu
mikil þörf væri á góðri aðstöðu eins
og hér væri. Auk hins hefðbundna
starfs væru svo allmargar hátíðir
og nefndi Ingimar þar til 10. apríl,
þegar karlakórinn Heimir og reið-
höllin héldu samkomu þar sem kór-
inn og hestarnir færu með aðal-
hlutverkinn og benti á að á síðasta
ári hefði verið flutt leikgerð Jóns
Ormars Ormssonar á sögunni um
Djáknann á Myrká, en nú yrði saga
Solveigar og séra Odds á Miklabæ
skoðuð, og dagana 23. og 24. apríl
væru dagar sem kallaðir væru Tek-
ið til kostanna á Króknum.
Þessir tveir dagar væru ásettir
fjölmörgum glanssýningaratriðum
þar sem þeir bestu, bæði meðal
hesta og knapa færu á kostum.
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Nemendur Fjölbrautaskólans f,v. Silja, Ásta og Margrét ánægðar með námsbrautina Jó að lokninni kennslustund.
Skagfirska mótaröðin að hefjast
HESTAMANNAFÉLAGIÐ Glaður
stendur þessa dagana fyrir reið-
námskeiði í Búðardal. Kennari er
Anton Páll Níelsson. Kennt er í
fjögra manna hópum og eru nem-
endurnir alls 23 talsins, á öllum
aldri, allt frá börnum sem eru að
byrja í hestamennskunni til atvinnu-
tamningamanna. Anton mun koma
og kenna í þrjú skipti, tvo daga í
senn. Anotn er einn aðalreiðkennari
Hólaskóla og er jafnframt með þjálf-
ara- og reiðkennarapróf FT. Þar
sem engin reiðskemma er í Dölunum
þurfa menn að treysta á veðurguð-
ina sem brugðust ekki þessa helgina.
Morgunblaðið/Helga H. Ágústsdóttir
Valberg Sigfússon, Monica Backmann og Einar H. Einarsson í tíma hjá
Antoni Páli Níelssyni, reiðkennara frá Hólum.
Hestamennskan
blómstrar í Dölum
Ást og umhyggja
Barnavörur
www.chicco.com