Morgunblaðið - 23.02.2004, Page 27
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2004 27
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Skrifstofa fjarskipta og öryggisþátta samgöngumála fer með yfir-
stjórn öryggismála siglinga, flugs og umferðar á landi auk fjarskipta-
mála. Umferðarmál fluttust til samgönguráðuneytisins í janúar síð-
astliðnum. Á skrifstofunni er unnið að stefnumótun í málaflokkum
hennar, gerð lagafrumvarpa og reglugerða og afgreiðslu stjórnsýslu-
mála.
Deildarsérfræðingur
í samgönguráðuneytinu
Staða deildarsérfræðings á skrifstofu fjarskipta
og öryggisþátta samgöngumála í samgöngu-
ráðuneytinu er laus til umsóknar.
Leitað er að einstaklingi með lögfræði- eða
verkfræðimenntun, önnur háskólamenntun
kemur einnig til greina. Framhaldsmenntun
og starfsreynsla að loknu háskólanámi er æski-
leg. Umsækjendur þurfa að búa yfir góðri færni
í íslensku, enskukunnáttu og kunnáttu í einu
Norðurlandarmáli. Einnig að hafa frumkvæði
og geta unnið sjálfstætt. Starfið felur í sér mikil
samskipti og krefst hæfileika til að vinna með
öðrum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi
FHSS og fjármálaráðuneytisins.
Umsóknir, með upplýsingum um menntun
og fyrri störf, skulu berast samgönguráðuneyt-
inu, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, 150 Reykj-
avík, eigi síðar en 8. mars nk. Öllum umsóknum
verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir
skrifstofustjóri í síma 545 8200.
Netfang: sigurbergur.bjornsson@sam.stjr.is
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
SEFL - Samtök eldri félaga í Lífeyrissjóði
verkfræðinga
Aðalfundur
Samtaka eldri félaga í Lífeyrissjóði verkfræð-
inga verður haldinn í húsi Verkfræðingafélags
Íslands, Engjateigi 9, kjallarasal, miðvikudag-
inn 3. mars 2004 kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Eftirtaldir munir verða boðnir upp í Fiskeldisstöð í landi Gil-
eyrar, 460 Tálknafirði, mánudaginn 1. mars 2004 kl. 17.30:
Tölvur með tilheyrandi búnaði.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki upp-
boðshaldara eða gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Patreksfirði,
20. febrúar 2004.
Björn Lárusson, ftr.
Uppboð
Eftirtaldir munir verða boðnir upp í Fiskeldisstöð í landi Gil-
eyrar, 460 Tálknafirði, mánudaginn 1. mars 2004 kl. 17.00:
Oxy Gueard viðvörunarkerfi.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki upp-
boðshaldara eða gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn á Patreksfirði,
20. febrúar 2004.
Björn Lárusson, ftr.
TILBOÐ / ÚTBOÐ
Óskað er eftir tilboðum í verkið:
„Geymir 3 á Reynisvatns-
heiði - stálsmíði og frá-
gangsvinna“
Verkið felst í að smíða, einangra og klæða um
10.500 m3 miðlunargeymi fyrir heitt vatn, ásamt teng-
ingu við núverandi kerfi.
Efnisþörf stáls u.þ.b. 300 tonn.
Verkinu skal að fullu lokið 15. nóvember 2004.
Útboðsgögn verða seld hjá þjónustufulltrúum á 1.
hæð í húsi Orkuveitu Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1,
110 Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 24. febrúar
2004. Verð útboðsgagna er kr. 5.000.
Tilboðin verða opnuð á sama stað í fundarsal á 5.
hæð, vesturhúsi, miðvikudaginn 16. mars
2004 kl. 14:00.
OR 2004/21
MÍMIR 6004022319 III
HEKLA 6004022319 VI
GIMLI 6004022319 I
I.O.O.F. 19 1842238 I.O.O.F. 10 1842238
ÞAÐ er óhætt að segja að loka-
umferðin í tvímenningskeppni
Bridshátíðar, sem lauk á laugar-
dagskvöld, hafi verið æsispennandi.
Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson
höfðu haft forustu nánast allt mótið
en Ásmundur Pálsson og Guðmund-
ur Páll Arnarson fylgdu jafnan í
humátt á eftir. En þegar ein umferð
var eftir settust skyndilega þeir
Kristján Blöndal og Jón Sigur-
björnsson í efsta sætið.
Þessi þrjú pör sátu öll í NS í síð-
ustu umferðinni á þremur efstu
borðunum. Jón og Þorlákur spiluðu
við Justin Hackett og Nick Sand-
quist, Kristján og Jón spiluðu við
Lars Blakset og Peter Fredin og Ás-
mundur og Guðmundur spiluðu við
Karl Sigurhjartarson og Snorra
Karlsson.
Í fyrsta spilinu byrjuðu Jón og
Þorlákur á að fara í 4 hjörtu, sem var
heldur hátt og spilið fór einn niður,
50 til andstæðinganna. Jón og Krist-
ján fengu 100 þegar þeirra andstæð-
ingar spiluðu 3 spaða, en Ásmundur
og Guðmundur spiluðu 3 hjörtu og
unnu þau, 140 til þeirra.
Í næsta spili spiluðu öll pörin 4
spaða. Guðmundur og Þorlákur
fengu báðir þægilegt útspil og alla
slagina þegar legan var góð. 710 til
þeirra. Kristján fékk hins vegar 12
slagi, 680.
Í þriðja spilinu mátti vinna bæði 6
lauf og 6 spaða í AV með því að finna
laufadrottningu en liturinn var
ÁKG86 á móti 10542. Þeir Hackett
og Sandquist spiluðu 6 lauf sem unn-
ust, 920 til þeirra. Blakset og Fredin
spiluðu 6 spaða og unnu þá, 980 en
Karl og Snorri spiluðu 4 spaða og
fengu aðeins 11 slagi, 450.
Í síðasta spilinu spiluðu NS pörin
á borðunum þremur bút og fóru öll 1
niður, 100 til andstæðinganna.
Eins og sést af þróaðist setan best
fyrir þá Ásmund og Guðmund og
þetta reyndist vera lokastaðan:
1. Ásmundur Pálsson -
Guðmundur Páll Arnarson, 809
2. Lars Blakset -
Peter Fredin, 797.
3-4 Helgi Jónsson -
Helgi Sigurðsson, 676
3-4. Hermann Lárusson -
Ólafur Lárusson,676
5. Jón Sigurbjörnsson -
Kristján Blöndal, 667
6. Erla Sigurjónsdóttir -
Sigfús Þórðarson, 659
7. Anton Haraldsson -
Sigurbjörn Haraldsson, 659
8 Jón Baldursson -
Þorlákur Jónsson, 638
9. Simon Gillis -
oye Brogeland, 636
10. Justin Hackett -
Nick Sandquist, 569.
Það voru líka miklar sveiflur í
næstsíðustu setunni en þá kom m.a.
þetta spil fyrir:
Norður
♠ÁK42
♥ÁDG5
♦D9
♣K108
Vestur Austur
♠10653 ♠8
♥98632 ♥1074
♦4 ♦KG76
♣ÁD3 ♣G7654
Suður
♠DG97
♥K
♦Á108532
♣92
Ásmundur og Guðmundur enduðu í 4
spöðum í suður og vestur spilaði út
hjarta. Ásmundur drap heima, tók
spaðadrottningu og spilaði spaða á
ásinn og legan kom í ljós. Hann tók
þá ÁD í hjarta og henti laufum heima
og spilaði tíguldrottningu, kóngur og
ás. Nú spilaði hann tígli á níuna og
austur drap með gosa og spilaði
laufi. En Ásmundur trompaði og
spilaði tígultíu og þegar vestur
trompaði gat Ásmundur yfirtrompað
með kóng, farið heim á spaðagosa og
lagt upp, 12 slagir.
Vörnin gat haldið sagnhafa í 11
slögum. Vestur verður að trompa
tígulinn og spila spaða því þá kemst
sagnhafi ekki hjá því að gefa austri
tígulslag til viðbótar. Í fljótu bragði
virðist einnig duga að austur leyfi
tígulníunni að halda slag, en þá getur
sagnhafi tekið síðasta hjartað og
víxltrompað síðan lauf og tígul.
Jón og Þorlákur eru vanir að
sækja og þeir fóru alla leið í 6 spaða í
NS. Jón fékk einnig út hjarta og spil-
ið leit vel út þar til tromplegan kom í
ljós. Jón fylgdi leið Ásmundar lengi
vel en eftir að hafa spilað tígul-
drottningunni úr borði og drepið
kónginn með ás, spilaði hann tígultí-
unni að heiman; taldi ólíklegt að spil-
ið ynnist ef tígullinn væri 4-1 og vildi
ekki gefa vörninni tækifæri á að gefa
tígulníuna. En nú trompaði Karl Sig-
urhjartarson og spilaði trompi og
Jón fór 2 niður.
Æsispennandi loka-
umferð á Bridshátíð
BRIDS
Bridshátíð
Hótel Loftleiðir
Bridshátíð Bridssambands Íslands,
Bridsfélags Reykjavíkur og Flugleiða fer
fram 20.-23. febrúar. Keppt er í tvímenn-
ingi og sveitakeppni.
Guðm. Sv. Hermannsson
Moggabúðin
Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.
VIÐ athöfn í Íþróttahöllinni á Húsa-
vík fyrir skömmu kynnti Bjart-
sýnisfélagið Verðandi úrslit í kosn-
ingu á Garpi ársins 2003. Í
samvinnu við héraðsfréttavefinn
Skarp.is fór fram kosning í desem-
ber og byrjun janúar á Garpi ársins
2003 úr hópi þeirra sem valdir
höfðu verið garpar hvers mánaðar
2003. Þrír efstu í þessari kosningu
voru: 1. sæti Meistaraflokkur Völ-
sungs í knattspyrnu, sem voru
Garpar nóvember. 2. sæti Birgitta
Haukdal, sem var valin Garpur í
maí. 3. sæti Sigurður Hákonarson,
sem var Garpur marsmánaðar.
Eitt af meginverkefnum Bjart-
sýnisfélagsins er að vekja athygli á
því sem vel er gert og í því skyni
hefur félagið staðið fyrir vali á
Garpi hvers mánaðar undanfarin
tvö ár. Við þessa athöfn var einnig
tilkynnt um val á Garpi janúar- og
febrúarmánaðar þessa árs. Við af-
hendinguna sagði Gunnar Jóhann-
esson, stjórnarmaður í Verðandi,
að öflugt atvinnulíf væri öllum sam-
félögum afar mikilvægt.
„Við höfum undanfarið fylgst
með fyrirtæki á svæðinu vaxa og
dafna undir öruggri stjórn fram-
kvæmdastjóra þess og aðaleiganda.
Það er ekki aðeins að fyrirtækið
stækki og eflist heldur tók viðkom-
andi einstaklingur áskorun gagn-
vart rekstri annars fyrirtækis við
erfiðar aðstæður sl. sumar (á Rauf-
arhöfn) og hefur nýverið fært út
kvíarnar, út fyrir landsteinana.
Garpur janúar er Gunnlaugur Karl
Hreinsson, framkvæmdarstjóri
GPG, fyrir áræði, dug og kröftuga
atvinnuuppbyggingu.“
Gunnar sagði um Garp febr-
úarmánaðar að hann hefði eytt
miklum tíma og orku fyrir nokkr-
um árum í sveitarstjórnarmál fyrir
sitt sveitarfélag. „Hún ákvað fyrir
nokkrum árum að flytja sig um set
og eiga rólegri tíma á nýju svæði, í
öðru sveitarfélagi. En enn á ný tók
viðkomandi áskorun, og er nú odd-
viti í sínu nýja sveitarfélagi, og
sinnir því af krafti og víðsýni svo
eftir er tekið. Garpur febrúar er
Katrín Eymundsdóttir, oddviti
Kelduneshrepps, fyrir eljusemi,
víðsýni og kjark,“ sagði Gunnar.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Garpar ársins 2003, Víðir Svansson knattspyrnuráðsmaður t.v., sem tók
við viðurkenningu fyrir Völsunga ásamt Birni Elí syni sínum, Sylvía Hauk-
dal sem tók við viðurkenningu Birgittu Haukdal og Sigurður Hákonarson.
Knattspyrnulið Völsungs
Garpar ársins 2003