Morgunblaðið - 23.02.2004, Síða 31
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2004 31
Skeifan 2 - 108 Reykjavík - S. 530 5900
poulsen@poulsen.is - www.poulsen.is
Rafmótorar
Á
S
P
R
E
N
T
Verð birt með fyrirvara um prentvillur.
Tilboðin gilda til 25. febrúar (nema annað sé tekið fram) eða meðan birgðir endast.
Nettó Akureyri - Akranesi - Mjódd - Salavegi Kópavogi
400gr
Fyrir sprengidaginn!
&baunirSaltkjötFrá99,-kr/kg
99,-
39,-
Rófur Laukur
Sellery
299,-
kr/kg
Búrfells saltkjöt
99,-Blaðlaukur
49,-
kr/kg
69,-
kr/kg
99,-
kr/kg
169,-
kr/kg
Átak félag fólks með þroska-
hömlun heldur fund um málefni
seinfærra foreldra, á morgun,
þriðjudaginn 24. febrúar kl. 20–23 í
Hinu húsinu.
Erindi halda: Ottó B. Arnar, Hanna
Björk Sigurjónsdóttir o.fl. Boðið
uppá kaffiveitingar. Allir velkomnir.
Á MORGUN
HJÖRVAR Steinn Grétarsson,
Taflfélaginu Helli, varð Norð-
urlandameistari í skólaskák, eftir
sigur á E-flokki. Mótið fór fram
um helgina í Karlstad í Svíþjóð.
Íslensku keppendunum gekk von-
um framar á mótinu, en auk hans
stóðu Atli Freyr Kristjánsson og
Halldór Brynjar Halldórsson sig
afar vel. Atli Freyr tapaði fyrsta
sætinu eftir tvöfaldan stigaút-
reikning, í c-flokki, og Halldór
Brynjar hafnaði í 2. sæti í a-
flokki.
Úrslit íslensku keppendanna í
6. umferð:
A-flokkur (1984–86): Halldór
Brynjar Halldórsson sigraði og
fékk 4 vinninga og hafnaði í 2.
sæti. Björn Ívar Karlsson gerði
jafntefli og fékk1,5 vinninga. Sig-
urvegarinn varð Christian K.
Pedersen frá Danmörku.
B-flokkur (1987–88): Hilmar
Þorsteinsson sigraði og fékk 3,5
vinninga og hafnaði í 3.–6. sæti.
Ágúst Bragi Björnsson tapaði og
fékk 2 vinninga. Nikolaj Mikkels-
en frá Danmörku varð Norð-
urlandameistari.
C-flokkur (1989–1990): Atli
Freyr Kristjánsson sigraði og
fékk 4,5 vinninga og hafnaði í 2.
sæti eftir tvöfaldan stigaútreikn-
ing. Alex Cambrey Orrason tap-
aði og fékk 0 vinninga. Norðmað-
urinn Jon Ludvig Hammer sigraði
en hann fékk einnig 4,5 vinninga
rétt eins og Atli en sigraði eftir
tvöfaldan stigaúteikning.
D-flokkur (1991–92): Helgi
Brynjarsson tapaði og fékk 3
vinninga. Sverrir Þorgeirsson
gerði jafntefli og fékk 2,5 vinn-
inga. Svíinn Lucas Wickström
varð Norðurlandameistari.
E-flokkur: Hjörvar Steinn Grét-
arsson gerði jafntefli og fékk 5
vinninga og er Norðurlandameist-
ari í skólaskák. Svanberg Már
Pálsson sigraði og fékk 4 vinn-
inga og hafnaði í 3.–4. sæti eftir
stigaútreikning.
Landskeppnin:
1. Svíþjóð 30,5 vinninga.
2. Noregur 33 vinninga.
3. Danmörk 31,5 vinninga.
4. Ísland 30 vinninga.
5. Finnland 28,5 vinninga.
6. Færeyjar 20,5 vinninga.
Morgunblaðið/Ómar
Hjörvar Steinn Grétarsson (í miðju) skákmaður varð Norðurlandameistari
í skák um helgina í sínum aldursflokki . Niels Grandelius frá Svíþjóð varð í
2. sæti og Frode O. Urkedal frá Noregi varð í 3. sæti.
Hjörvar Steinn
Norðurlanda-
meistari í skák
REYKJAVÍKURBORG hefur
auglýst eftir tilboðum í leigu á
Iðnó til reksturs veitingahúss
og menningarstarfsemi í hús-
inu, þar sem tími leigusamn-
ings er útrunninn. Skylt er að
auglýsa eftir rekstraraðilum
þegar samningurinn er útrunn-
inn, en þeir aðilar sem nú starfa
í húsinu hyggjast sækjast eftir
áframhaldandi leigu á húsinu.
Leigu-
samningur
Iðnó laus
Framtíð almennings-
samgangna
SAMFYLKINGIN í Kópavogi held-
ur opinn fund um framtíð almenn-
ingssamgangna í kvöld klukkan
20.30 í Samfylkingarsalnum í
Hamraborg 11, 3. hæð.
Til að ræða málin koma Ásgeir Ei-
ríksson, forstjóri Strætó og Har-
aldur Teitsson frá Teiti Jónassyni.
Nýtt leiðakerfi Strætó sem vænt-
anlegt er á næstu mánuðum verður
kynnt og rætt um málin frá ýmsum
hliðum.
Þarna er, að mati Samfylking-
arinnar, um brýnt og mikilvægt mál
að ræða á tímum vaxandi vandamála
vegna einkabílismans.
Fundurinn er öllum opinn og eru
ungir sem aldnir, konur sem karlar,
hvattir til að mæta og taka þátt í
áhugaverðri umræðu.
Kynningarfundur um uppbygg-
ingu miðborgarinnar
SKIPULAGS- og byggingarsvið
Reykjavíkur boðar til kynning-
arfundar í dag kl. 10:00 í Borgartúni
3, 4. hæð.
Tilefni fundarins eru nýjar hug-
myndir um uppbyggingu og skipu-
lag í miðborginni, nánar til tekið
nyrst í Kvosinni og á hafnarsvæðinu,
í tengslum við fyrirhugað tónlistar-
hús, ráðstefnumiðstöð og hótel.
Jafnframt verður borgarafundur í
Ráðhúsi Reykjavíkur nk. þriðjudag
til að kynna þessar hugmyndir fyrir
borgarbúum, heyra ábendingar og
svara fyrirspurnum.
Í DAG
Handteknir
með fíkniefni
ÞRÍR menn voru handteknir á
Akranesi um miðnætti aðfaranótt
sunnudags eftir að 15 grömm af ætl-
uðu amfetamíni fundust í bíl þeirra.
Lögreglan á Akranesi stöðvaði bílinn
í hefðbundnu eftirliti og fundust þá
fíkniefnin. Einn mannanna viður-
kenndi að eiga efnin, og var þeim
sleppt að loknum yfirheyrslum.
Mennirnir eru allir milli tvítugs og
þrítugs, og voru ekki undir áhrifum
þegar þeir voru stöðvaðir.
Bílvelta við
Bæjarháls
BÍLL valt við Bæjarháls í Reykjavík
um klukkan hálfátta í gærmorgun og
var ökumaður sem í honum var flutt-
ur á sjúkrahús. Hann kvartaði yfir
eymslum í hálsi. Ökumaðurinn var
einn í bílnum þegar hann valt. Við
veltuna fór bíllinn á toppinn en lenti
svo aftur á hjólunum.
♦♦♦