Morgunblaðið - 23.02.2004, Page 36
ÞAÐ ER óhætt að segja að gríðargóð
stemmning hafi myndast á Stúdentakjall-
aranum á laugardagskvöldið, þegar stúd-
entar héldu tónlistarhátíð sem stóð yfir í tólf
tíma, frá fjögur um daginn til fjögur um
nóttina. Á þriðja tug hljómsveita kom fram á
tónleikunum sem enduðu í samsulti tónlist-
armanna úr öllum áttum og var dansað fram
á nótt. Ekki skorti heldur fólkið á staðinn,
sem var þétt skipaður bæði tónlistarfólki og
áhugafólki um tónlist, sem naut lífsins og
skemmti sér í mestu sátt og samlyndi. Var
þarna um að ræða allt frá kassagítarpoppi
til tölvutónlistar og til harðasta rokks og
ríkti bæði sátt og eining meðal tónlistar-
mannanna.
Góður rómur var gerður að tónleikunum
og hlökkuðu aðstandendur til þess að end-
urtaka leikinn sem fyrst, enda eru svona
viðburðir vítamínsprauta í félagslíf stúd-
enta og auka styrk og samheldni stúdenta-
samfélagsins.
Tónlistarveisla stúdenta í Stúdentakjallaranum
Morgunblaðið/Eggert
Hljómsveitin Box of Rocks gerði það ekki endasleppt í
rokkinu og flutti tónlist sína af mikilli innlifun.
Valur Sigurðarson og Nanna Gunnarsdóttir fylgdust
vel með fjölbreyttri tónlistinni.
Tónlist úr öllum áttum
Sannkölluð
stúdentastemn-
ing myndaðist í
áhorfendahópn-
um, en and-
rúmsloftið á
Stúdentakjall-
aranum er til-
valið til tón-
leikahalds.
ÁSTIN og vonin um endurfundi
eru öflin sem halda aðalpersónunum
í Kaldbak (Cold Mountain), á floti á
erfiðum tímum Borgarastyrjaldar-
innar í Bandaríkjunun á sjöunda
áratug 19. aldar. Inman (Jude Law)
og Ada (Nicole Kidman), eru ungir
og ástfangnir Suðurríkjamenn þeg-
ar Þrælastríðið brýst út og bindur
snöggan endi á ævintýri sem er að
hefjast. Inman yfirgefur sveitina
sína ásamt öðrum, vöskum Suður-
ríkjamönnum, Ada situr eftir, ný-
flutt úr borginni upp til fjallahéraðs-
ins í Norður-Karólínu ásamt
heilsutæpum föður sínum. Hann
fellur frá og Ada stendur hjálpar-
vana uppi með búið, uns hún fær
liðsstyrk í sveitastelpunni Ruby sem
kann á flestum hlutum skil. Á meðan
berst Inman í miskunnarlausri
styrjöld, slasast og í myndarbyrjun
strýkur hann af herspítalanum, full-
saddur á tilgangsleysi manndráp-
anna. Tekur stefnuna á fjallið sitt
Kaldbak, langt utan sjóndeildar-
hringsins, við rætur þess bíður lífið
og ástin sem bæði þrá og vona að sé
fyrir hendi.
Kvikmyndin Kaldbakur er líkt og
bókin, allt að því goðsagnaleg.
Ferðalag Inmans við erfiðar aðstæð-
ur; yfirvofandi hættur, bæði af völd-
um náttúrunnar og margvíslegra
andstæðinga, jafnt úr röðum óvin-
anna sem undirförulla samferðar-
manna og heigla sem sitja heima og
reyna að slá sig til riddara, minnir á
hetjukviður Hómers. Í bakgrunni
rís ofar öllu helgidómurinn sjálfur:
Ástin og fjallið. Líkt og Ólympusfjall
Grikkjum er Kaldbakur söguhetj-
unni tákn frelsis og vona – hinn end-
anlegi ákvörðunarstaður. Minghella,
leikstjóri og höfundur kvikmynda-
gerðar stórbrotnar sögu Fraziers,
eykur við samlíkinguna frekar en
hitt því Inman er ótvíræð þunga-
miðja myndarinnar. Ada og Ruby fá
ámóta mikið pláss og Inman á síðum
bókarinnar en hlutskipti kvennanna
er mun veigaminna á tjaldinu. Ming-
hella heldur sig að mestu leyti við
söguþráðinn á heimleiðinni ströngu.
Hver persónan skýtur upp kollinum
á fætur annarri og hver annarri bet-
ur túlkuð af óaðfinnanlega saman-
settum hópi valinkunnra skapgerð-
arleikara. Ruby er frábærlega
sköpuð sögupersóna frá hendi Fraz-
iers. Í heillandi náttúrubarninu sam-
samast staðgóð þekking höfundar á
mannlífi, umhverfi, og ekki síður
þjóðtrú og hindurvitnum ásamt
stolti og sjálfstæði fjallabúans og
Suðurríkjamannsins. Minghella hef-
ur úr svo miklu að moða að Ruby
verður yfirbotðskennd frá hans
hendi og ekki laust við að Zellweger
ofleiki þessa hálfvilltu skógarstelpu
með ráð undir rifi hverju. Brendan
Gleeson er einn magnaðasti leikari
samtímans og hann slær ekki feil-
nótu frekar en Stobrod, faðir Ruby-
ar, drykkjubolti, músikant og vinur
manns úr bókinni. Bjargvætturinn
Geitarkonan, Junior (Ribisi) og
hyski hans; Sara, svo undur lítil og
brothætt og allslaus með reifa-
strangann í höndunum og bóndann í
gröfinni, finlega túlkuð af Natalie
Portman; klerkafmánin Veasey, við
hittum þau öll við vegkantinn á leið-
inni hans Inmans, að ógleymdum
djöflamergnum Teague, sem sjálfur
Ray Winstone fær að spreyta sig á
með gamalkunnum tilþrifum.
Ada Monroe kyndir frelsisbálið og
lífslöngunina í brjósti Inmans og
Kidman er sannarlega eftirsóknar-
verð kona í höndum glæsilegrar og
góðrar leikkonu. Hún er brothætt
og umkomulaus, en Minghella á auð-
veldara með að skapa trúverðugar
karlpersónur að þessu sinni. Inman
slær á réttu strengina frá upphafi til
enda og Law ber myndina léttilega á
lúnum herðum hetjunnar. Aðrar
burðarstoðir Kaldbaks eru kvik-
myndatökustjórinn John Seale, tón-
listarmaðurinn Gabriel Yared og út-
litshönnuðurinn Dante Ferretti.
Þetta er mikilhæfur hópur heims-
frægra fagmanna sem gefa ásamt
leikurunum, útliti og yfirbragði
Kaldbaks stormandi reisn í hverri
töku. Kaldbakur er rómantískt
hetjuljóð þar sem minnstu smáatriði
eru unnin af vandvirkni, þau voru
einnig mikilsverður þáttur í bókinni,
Minghella er góður og skemmtileg-
ur sögumaður og undir hans leið-
sögn verður ferðalag Inmans hið
minnisstæðasta.
Reuters
Ástir í skugga
Þrælastríðsins
KVIKMYNDIR
Sambíóin, Háskólabíó.
Leikstjórn: Anthony Minghella. Handrit:
Minghella, byggt á sögu eftir Charles
Frazier. Kvikmyndatökustjóri: John
Seale. Tónlist: Gabriel Yared. Aðalleik-
endur: Jude Law, Nicole Kidman, Renée
Zellweger, Donald Sutherland, Ray Win-
stone, Brendan Gleeson, Philip Seymour
Hoffman, Natalie Portman, Kathy Baker,
James Gammon, Giovanni Ribisi, Eileen
Atkins, Charlie Hunnam, Jena Malone,
Jack White, Lucas Black. 160 mínútur.
Miramax Films. Bandaríkin 2003
Kaldbakur (Cold Mountain) ½
Sæbjörn Valdimarsson
36 MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
KRINGLAN
Sýnd kl. 8 og 10.20.
AKUREYRI
kl. 6. Ísl. tal.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
ÁLFABAKKI
kl. 4 og 6. Ísl tal.
Sannkölluð stórmynd
sem hlotið hefur
frábæra dóma og
viðtökur um allan heim.
Tom Cruise hefur aldrei
verið betri!
Frá
bæ
r g
am
an
my
nd
me
ð f
ráb
ær
ri t
ón
lis
t.
Með hinni efnilegu Beyoncé Knowles,
fimmföldum Grammy verðlaunahafa og
Óskarsverðlaunahafanum Cuba Gooding Jr.
Frábær gamanmynd frá höfundi
Meet the Parents
KRINGLAN
kl. 4. Ísl tal. / kl. 6. Enskt tal.EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 6, 8 og 10.
HJ. MBL
ÓHT. Rás2
6
Tilnefningar til
óskarsverðlauna
m.a. besta mynd ársins
Sýnd kl. 10. B.i. 16.
Heimur fa rfuglanna
Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl. 8 OG 10.30. B.i. 14 ára.
Mögnuð mynd með
Óskarsverðlaunahöfunum Ben Kingsley og
Jennifer Connelly
Tilnefningar til
óskarsverðlauna3
Sýnd kl. 5.50. B.i. 12 ára.
Sýnd kl. 5.30, 8, 9.15 og 10.30.
Kvikmyndir.com
HJ MBL „Fínasta
skemmtun“
B.Ö.S.
Fréttablaðið
Gamanmynd eins og þær gerast bestar !
Jack Nicholson, Diane Keaton, Keanu Reevesog Amanda Peet í Rómantískri
Gamanmynd frá Nancy Myers, leikstjóra „What Women Want“.
Roger Ebert
HJ MBL
ÓHT Rás2
Sýnd kl. 5.20.
Stórbrotin ogmargverðlaunað
stórmynd með
Óskarsverðlaunahafanum, Nicole
Kidman, Golden Globe og BAFTA
verðlaunahafanum Renée
Zellweger og Jude Law. Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 6 og 9. B.i. 16.
Sýnd kl. 7.05 og 8.10.
Skjóni fer á fjall
Kynnir