Morgunblaðið - 23.02.2004, Blaðsíða 37
Ráðamenn þjóðarinnar gleðjast í þingveislu
BLÁSIÐ var til árlegrar þingveislu á föstudagskvöldið, þar sem
þingmenn þjóðarinnar og makar þeirra fögnuðu saman ásamt for-
seta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni og eiginkonu hans, Dorrit
Moussayef.
Veislan fór fram í Súlnasal Hótels Sögu eins og undanfarin ár og
lék hljómsveit hússins fyrir dansi. Stemmningin ku hafa náð há-
marki þegar Magnús Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokks-
ins, vippaði sér upp á svið og söng meðal annars hið fornfræga
„Traustur vinur“ með hljómsveitinni ásamt óþekktum „grúppíum“
úr Samfylkingunni sem tóku vel undir sönginn.
Það er hefð á þingveislum að engar ræður séu haldnar, en ef
menn vilja taka til máls er skylt að gera það í bundnu máli. Að
sögn heimildarmanna Morgunblaðsins fuku ófáar skemmtilegar
vísur manna á milli og var mikið um glettinn tækifæriskveðskap.
Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra kvað svo til Halldórs Blön-
dal, forseta Alþingis, Davíðs Oddssonar forsætisráðherra og Ólafs
Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, þar sem þeir sátu saman við
háborðið:
Við háborðið sé ég fagnaðarfund
fyrirmanna, en segja verð
væri nú ekki staður og stund
til að staðfesta eina reglugerð.
Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands og eig-
inkona hans Dorrit Mo-
ussayef voru heið-
ursgestir þingveislunnar.
Morgunblaðið/Sverrir
Davíð Oddsson
forsætisráðherra
og kona hans,
Ástríður Thor-
arensen, mættu
prúðbúin og
skemmtu sér vel í
þingveislunni.
Glens og glaumur
í Súlnasalnum
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2004 37
ÁLFABAKKI
kl. 3.45. Ísl. tal.
KRINGLAN
kl. 4. Ísl. tal.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10.20.
KRINGLAN
Sýnd kl. 4 og 6
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8.
Gamanmynd eins og þær gerast bestar !
Kvikmyndir.com
Diane Keaton tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í myndinni
HJ MBL
„Fínasta
skemmtun“
B.Ö.S. Fréttablaðið
Sannkölluð stórmynd
sem hlotið hefur
frábæra dóma og
viðtökur um allan heim.
Tom Cruise hefur aldrei
verið betri!
Kvikmyndir.is
DV
ÓHT Rás 2
i i .i
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8.
Tilnefningar til
óskarsverðlauna
KRINGLAN
kl. 6, 8 og 10.
ÁLFABAKKI
kl. 4, 7 og 10.
AKUREYRI
kl. 8.
KEFLAVÍK
kl. 8 og 10.15.
Stórbrotin
ogmargverðlaunað
stórmynd með
Óskarsverðlaunahafanum,
Nicole Kidman, Golden
Globe og BAFTA
verðlaunahafanum Renée
Zellweger og Jude Law. Kvikmyndir.com
B.i. 16 ára.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 7 og 10. b.i. 14 .
EF MARKA má gríðargóðar undirtektir þegar miðasala
á væntanlega tónleika Sugababes hófst mun verða frá-
bær stemmning í Laugardalshöllinni þegar þær stöllur
stíga á svið að kvöldi áttunda apríl næstkomandi.
Ísleifur Þórhallsson, skipuleggjandi tónleika Sugaba-
bes, segir sér lítast mjög vel á undirtektirnar. Miðasalan
stefnir í að fljótt verði uppselt. „Ef það verður eitthvað
eftir af miðum eftir daginn í dag, þá er það ekki mikið.
Við eigum eftir að heyra lokatölur úr miðasölunni, en
þetta lítur rosalega vel út. Fólk var byrjað að mæta
klukkan fjögur í nótt fyrir utan allar þrjár búðir,“ segir
Ísleifur, sem þykir miðasalan fara mun kröftuglegar af
stað en búist var við. „Það er mikill hiti í kringum þetta
og fólk er mjög þakklátt að fá eitthvað annað en rokk í
höllina. Þetta er annar hópur en venjulega, svolítið
breiðari. Það var fólk á öllum aldri að kaupa miða í dag
og oft virtust foreldrarnir spenntari en unglingarnir,“
segir Ísleifur.
Upphitunarbandið fyrir Sugababes verða Skytturnar
frá Akureyri, sem leika upplýst hip-hop á raunveruleg
hljóðfæri og með pólitískum textum. Umboðsskrifstofa
Sugababes valdi Skytturnar úr fríðum hópi íslenskra
sveita, ekki síst vegna þess hversu góðir þeir eru í lifandi
spilamennsku auk þess sem þeir gáfu út kraftmikla og
góða plötu fyrir síðustu jól.
Einnig mun Kalli Bjarni, sigurvegari Idol-stjörnuleit-
ar, hita upp fyrir stúlkurnar, en víst er að margir hlakka
til að sjá kappann í essinu sínu.
Löng biðröð eftir miðum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hópur ungmenna var mættur fyrir utan verslun Skífunnar í morgun.
Gríðargóð aðsókn í miða á Sugababes
LISTSKAUTADEILD skautafélags Reykjavíkur brá á leik á laugardaginn þegar með-
limir hennar sýndu listdans á skautum í Skautahöllinni. Margir áhorfendur komu á svæð-
ið til að berja listina augum og þótti þeim mikið til hæfileika hinna ungu dansara koma, en
listdans á skautum er tiltölulega nýlega farinn að skipa sess hér á landi. Bæði mátti á sýn-
ingunni sjá hópdans og einstaklingsdans.
Skautafélag Reykjavíkur var fyrst stofnað 1873 af menntaskólanemum og er eitt af
elstu íþróttafélögum Reykjavíkur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hópur stúlkna dansaði lystilega vel á svellinu í Laugardalnum.
Stokkið og snúist á svellinu
Listdans á skautum í Skautahöllinni