Morgunblaðið - 29.02.2004, Page 1
Ljósmynd/Friðþjófur Helgason
„AFLI dagsins losar sennilega um þrjú tonn.
Það hefur heldur dregið úr aflabrögðunum
síðustu daga,“ sagði Árni Halldórsson, skip-
stjóri á netabátnum Níelsi Jónssyni EA frá
Hauganesi, þegar Morgunblaðið ræddi við
hann á föstudag. Árni, sem rær á bátnum
við þriðja mann, lagði netin í fyrsta sinn
hinn 12. febrúar sl., austan við mynni Eyja-
fjarðar, og sagði vertíðina hafa farið vel af
stað.
„Við erum með sex trossur og fyrstu dag-
ana var aflinn jafnan vel yfir fimm tonnum.
Við erum að fá mjög góðan fisk, mest átta
kílóa þorsk, sem við seljum í saltfiskverkun
GPG á Húsavík og fáum gott verð fyrir.“
Níels Jónsson EA er einn af síðustu svo-
kölluðum vertíðarbátum sem enn eru gerðir
út frá Norðurlandi og segir Árni að reyndar
hafi mjög dregið úr netaveiðum fyrir Norð-
urlandi á síðustu árum. Báturinn er sömu-
leiðis einn fárra eikarbáta sem enn eru í út-
gerð hérlendis. Margir eikarbátar eru þó
enn í notkun sem hvalaskoðunarbátar víðs-
vegar um landið en Árni hefur einmitt siglt
með ferðamenn og sýnt þeim hvali frá árinu
1989.
„Við erum á netum þrjá til fjóra mánuði á
ári en gerum út á ferðamenn á sumrin og
fram á haust. Þetta hefur gengið ágætlega
en það eru sveiflur í þeirri útgerð, rétt eins
og fiskveiðunum. Það gekk til dæmis vel í
hvalaskoðuninni í sumar, ágætur ferða-
mannastraumur og talsvert af hval á sveimi.
Það voru hnúfubakar að þvælast inn á okkar
svæði megnið af sumrinu og það kunnu allir
vel að meta,“ sagði Árni skipstjóri.
Gerir bæði út á fisk og fólk
Kemur akademían á óvart eða snýr
Hilmir heim með fangið fullt? | 28
Tímaritið | Uppgjör ólíkra kvenna Dagur í lífi flugfreyju
Heimsókn Tíska Flugan Stjörnurnar
Atvinna | Vinnusetur fyrir ungt fólk Atvinnuleysi jókst
Tímaritið og Atvinna í dag
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 300
BOÐAÐ hefur verið til almenns félagsfundar
í Landeigendafélagi Laxár og Mývatns í
næstu viku en þar verður tekin afstaða til
frumvarps til laga um verndun Mývatns og
Laxár sem umhverfisráðherra lagði fyrir Al-
þingi í byrjun febrúar. Lögunum er ætlað að
leysa af hólmi lög sem sett voru árið 1974 í
kjölfar Laxárdeilunnar svonefndu. Í frum-
varpinu er nú að finna bráðabirgðaákvæði til
10 ára þar sem segir að Umhverfisstofnun sé
heimilað að hækka stíflu við inntak Laxár-
stöðva að undangengnu mati á umhverfis-
áhrifum og að fengnu samþykki Land-
eigendafélags Laxár og Mývatns.
Í sáttargjörð sem undirrituð var að lokinni
Laxárdeilu er kveðið á um að breytingar á
vatnsborði séu óheimilar. Landsvirkjun hef-
ur viðrað hugmyndir um hækkun Laxárstíflu
til að mæta rekstrarvanda stöðvarinnar.
Skiptast menn í tvo flokka í héraði, þá sem
vilja heimila hækkun stíflunnar, en þeir telja
að hún muni að öðrum kosti hætta starfsemi,
og svo þá sem ekki vilja heyra á það minnst
að stíflan verði hækkuð.
Bráðabirgðaákvæðið kom á óvart
Flestir eru þó sammála um að bráða-
birgðaákvæðið hafi komið á óvart. Þannig
segir Atli Vigfússon, formaður Landeigenda-
félagsins, að líkja megi ákvæðinu við
sprengju sem varpað sé inn í samfélagið. Það
sé þó mikilvægt að hægt sé að sætta sjón-
armið og finna lausn sem allir geti sætt sig
við. Samfélagið hreinlega þoli ekki að ganga í
gegnum harðvítugar deilur að nýju.
„Þetta ákvæði hefur skaðað málið og skap-
að visst óöryggi í hérðaði,“ sagði Atli. „Að-
algallinn við það er að það gildir í tíu ár, en
mín skoðun er sú að til þess að fara í fram-
kvæmdir við virkjunina til lagfæringa hefði
ekki þurft að gefa svo langan tíma.“
Ákvæði til
tíu ára um
hækkun Lax-
árstíflu skap-
ar óöryggi
Eins og sprengju/10
DEILAN um meintar njósnir um
ýmsa forystumenn Sameinuðu
þjóðanna vatt enn upp á sig í gær
þegar haft var eftir Hans Blix, fyrr-
verandi yfirmanni vopnaeftirlits-
nefndar SÞ, að hann grunaði að
samtöl hans hefðu verið hleruð í að-
draganda Íraksstríðsins.
The Guardian birti í gær viðtal
við Blix en þar segir hann sig hafa
grunað að Írakar njósnuðu um sig
en að sú tilhugsun að „einhver í
sama liði“ hefði einnig njósnað um
sig væri „viðurstyggileg“.
Blix sagði að grunsemdir hefðu
vaknað þegar síminn á heimili hans í
New York bilaði ítrekað. Óhugur
hans hefði magnast þegar Banda-
ríkjamenn sýndu honum ljósmyndir
sem aðeins hefði verið hægt að nálg-
ast eftir vafasömum leiðum, sem lík-
lega komu af skrifstofu Blix sjálfs.
Blix segist hafa hitt John Wolf,
varautanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, í málefnum er varða út-
breiðslu kjarnorkuvopna, tveimur
vikum áður en ráðist var á Írak og
sýndi Wolf honum þá tvær ljós-
myndir af vopnum Íraka. „Þessar
myndir hefði hann ekki átt að hafa
undir höndum. Ég spurði hann
hvernig hann hefði komist yfir þær
og hann vildi ekki segja mér það, ég
sagðist kunna því illa,“ sagði Blix.
Blix taldi að
samtöl hans
væru hleruð
„OKKUR hefur greint mjög á,
hér áður. En það er ekkert at-
hugavert við það að vinir séu
ósammála. Við erum báðir stað-
ráðnir í að snúa við blaðinu og
horfa fram á veginn,“ sagði
George W. Bush Bandaríkja-
forseti þegar hann og Gerhard
Schröder, kanslari Þýskalands,
hittu fréttamenn eftir viðræður
þeirra í Washington á föstudag.
Tvö ár eru liðin síðan
Schröder heimsótti síðast Hvíta
húsið en sem kunnugt er skarst
mjög í odda með Þjóðverjum og
Bandaríkjamönnum vegna
Íraksstríðsins í fyrra. Á fundi
sínum á föstudag reyndu leið-
togarnir tveir mjög að gefa til kynna að gróið væri um heilt í sam-
skiptum þeirra. Hétu þeir því m.a. að vinna saman að því að ráða nið-
urlögum hryðjuverkahópa og stuðla að lýðræði og stöðugleika í
Mið-Austurlöndum. Fréttaskýrendur segja hins vegar að þrátt fyrir allt
vinarþelið hafi Bush og Schröder ekki getað náð samkomulagi um þau
mál, sem helst brenna á mönnum nú um stundir. Bandaríkjamenn eru
enn ekki tilbúnir til að gefa þýskum fyrirtækjum tækifæri til að bjóða í
verkefni í tengslum við uppbyggingarstarfið í Írak og Schröder er, fyr-
ir sitt leyti, ekki reiðubúinn til að senda herlið til Íraks eins og Þjóð-
verjar hafa gert í Afganistan.
Reuters
Vinarþel í Washington
HÆSTIRÉTTUR Kaliforníu-ríkis
hafnaði í fyrrakvöld beiðni saksóknara
ríkisins um að hann bannaði þegar í
stað giftingar samkynhneigðra í San
Francisco-borg og dæmdi ógildar þær
næstum 3.500 hjónavígslur sem þegar
hafa verið framkvæmdar.
Bill Lockyer, saksóknari í Kaliforn-
íu, hafði að frumkvæði Arnolds
Schwarzeneggers ríkisstjóra beðið
hæstarétt ríkisins um að grípa inn í
deiluna um giftingar homma og lesbía
á meðan dómstóllinn væri að hugleiða
hvort giftingarnar stæðust lög. Rétt-
urinn hafnaði þessari beiðni hins vegar
á föstudagskvöld. Fór rétturinn fram á
frekari rökstuðning í málinu og skal
hann liggja fyrir í lok vikunnar.
Hæstirétt-
ur grípur
ekki inn í
San Francisco. AFP.
Nýtt menningarstríð/14
Eftirsótt Óskars-
verðlaun afhent
STOFNAÐ 1913 59. TBL. 92. ÁRG. SUNNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is