Morgunblaðið - 29.02.2004, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 29.02.2004, Blaðsíða 58
DAGBÓK 58 SUNNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Sel- foss kemur í dag Bjarmi fer í dag. Fréttir Fjölskylduhjálp Ís- lands Eskihlíð 2–4, í fjósinu við Miklatorg. Móttaka á vörum og fatnaði, mánudaga kl. 13–17. Úthlutun mat- væla og fatnaðar, þriðjudaga kl. 14–17. Sími skrifstofu er 551 3360, netfang dal- ros@islandia.is, gsm hjá formanni 897 1016 Mannamót Aflagrandi 40. Lög- reglan býður í óvissu- ferð með Hópbílum fimmtud. 4. mars. Mót- taka í völdu fyrirtæki, hressing, farið frá Afla- granda kl. 13, umferð- ar- og öryggismál rædd í ferðalok á Aflagranda. Skráning er hafin í síma 562 2571 og á Aflagranda. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Fulltrúi úr notendaráði verður með viðtalstíma mánu- daginn 1. mars kl. 9–10. Þeir sem vilja koma með ábendingar eða hugmyndir um fé- lagsstarfið eru vel- komnir að koma eða hringja í síma 568 3132 og ræða við hana. Félag eldri borgara í Garðabæ. Miðvikudag- inn 3. mars heldur Hrafnkell Helgason læknir áfram frásögn sinni um helstu atburði „Sturlungu“ kl. 14 í Garðabergi. Skráning stendur yfir í leik- húsferð 2. apríl á sýn- ingu Snúðs og Snældu, Rapp og rennilásar. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Leikfélagið Snúður og Snælda sýna „Rapp og rennilása“ í dag kl. 17. Ath. breyttan sýning- artíma. Dansleikur í kvöld kl. 20, Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Félags- heimilið er opið virka daga frá kl. 9–17, alltaf heitt kaffi á könnuni. Félagsstarf eldri borg- ara í Mosfellsbæ. Pútt- kennsla í Íþróttahúsinu Varmá, á sunnudögum kl. 11–12. Vesturgata 7. Miðviku- daginn 3. mars kl.13 verður haldið bingó, vöfflur með rjóma í kaffitímanum. Allir vel- komnir. Kvenfélag Laug- arnessóknar heldur fund í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 20 mánu- daginn 1. mars. Kvenfélag Seljasókn- ar. Fundur þriðjudag- inn 2. mars kl. 20. Helga Braga mætir á fundinn með glens og grín, kaffiveitingar. Orlofsnefnd kvenna í Reykjavík kynnir ferðir sumarsins á fundi á Hótel Loftleiðum, Vík- ingasal, mánudaginn 1. mars kl. 20. Kvenfélag Garða- bæjar. Fundur verður haldinn þriðjudaginn 2. mars á Garðaholti. Fundurinn hefst kl. 20. Kvenfélag Háteigs- sóknar, fundur verður þriðjudaginn 2. mars kl. 20 í Setrinu. Kvenfélagið Heimaey, fundur verður mánu- daginn 1. mars í Ársal Hótel Sögu kl. 20.30. Gestur er Hlíf Gylfa- dóttir safnvörður. Kristniboðsfélag karla. Fundur verður í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58–60, mánudaginn 1. mars kl. 20. Kristín Bjarnadótt- ir sér um fundarefnið. Allir karlmenn vel- komnir. Ferðaklúbbur eldri borgara heldur kynn- ingarfund á sum- arferðum 2004 í félags- heimili Þróttar við Engjaveg miðvikudag- inn 3.mars, kl. 13.30. Upplýsingar í síma 892 3011. Allir eldri borgarar velkomnir. NA (Ónefndir fíklar). Neyðar- og upplýs- ingasími 661 2915. Opn- ir fundir kl. 21 á þriðju- dögum í Héðinshúsinu og á fimmtudögum í KFUM&K, Austur- stræti. Minningarkort Minningarkort Vina- félags Sjúkrahúss Reykjavíkur eru af- greidd í s. 525 1000 gegn heimsendingu gíróseðils. Landssamtökin Þroskahjálp. Minningarsjóður Jó- hanns Guðmundssonar læknis. Tekið á móti minningargjöfum í s. 588 9390. Minningarsjóður Krabbameinslækn- ingadeildar Landspít- alans. Tekið er við minningargjöfum á skrifst. hjúkrunarfor- stjóra í s. 560 1300 alla virka daga milli kl. 8 og 16. Utan dagvinnutíma er tekið á móti minn- ingargjöfum á deild 11-E í s. 560 1225. Í dag er sunnudagur 29. febrúar, 60. dagur ársins 2004, Hlaupársdagur. Orð dagsins: Sérhver sem fer of langt og er ekki stöðugur í kenningu Krists, hefur ekki Guð. Sá sem er stöð- ugur í kenningunni, hann hefur bæði föðurinn og soninn. (2. Jh. 9.-10.)     Guðni Ágústsson ermikið ólíkindatól segir Hjörleifur Pálsson á frelsi.is. „Hann er líklega einn fyndnasti stjórn- málamaður okkar tíma, og þreytist seint á að reyta af sér brandarana. Það sem gerir Guðna svona fyndinn er að hon- um tekst ávallt að segja eitthvað skondið, jafnvel þótt hann sé bara alls ekkert að djóka. Eins og til dæmis nú um daginn þegar hann fór hreinlega á kostum með ummælum sínum um kúabú landsins.     Samkvæmt Guðna ámjólkurframleiðsla landsins að vera byggð upp á litlum fjöl- skyldubúum. Aðkeypt vinnuafl, stærri bú og of mikil vélvæðing er hins vegar af hinu illa. Guðni tók þó skýrt fram að mjaltavélar væru af hinu góða. Hann var samt ekki alveg nógu skýr í máli sínu, og minntist t.d. ekk- ert á traktora. Vonandi sker hann þó fljótlega úr um það hvort traktorar séu góð eða vond tæki, og bindur þar með enda á þá miklu óvissu sem hefur vafalaust nagað marga landsmenn síðustu daga.“     Hjörleifur segir að sam-kvæmt kenningum Guðna séu bændum sett- ar miklar takmarkanir varðandi ráðstafanir á eignum sínum. Þeim sé ekki ætlað að stækka við sig og kaupa aðra bænd- ur út úr greininni. „Nei, þá gætu þeir freistast til að byggja upp stærri og hagkvæmari bú. Og þetta gerir það að sjálfsögðu að verkum að búin verða verðlítil þar sem enginn hefur hag af því að kaupa þau, og þar með verður illmögulegt fyrir þá bændur sem vilja losna úr greininni að selja. Og það er væntanlega planið hjá Guðna.     Það á bara greinilegaekki að leyfa fólki að sleppa úr greininni ef það vill, eða að hagræða hjá sér þannig að það hafi það betra. Nei, bændur skulu búa á sínum litlu fjölskyldubúum, hvort sem þeim líkar það betur eða verr. Og allt skal þetta að sjálfsögðu vera ríkulega styrkt af skatt- borgurum, enda myndi kerfið annars ekki ganga upp, þar sem hag- kvæmnin er orðin bann- orð.“     Í lokin segir hann: „Núer það ekki ætlunin að níðast á mönnum fyrir það eitt að vera fyndnir, en það er einkenni góðra húmorista að hafa líka húmor fyrir sjálfum sér. Það væri því óskandi að Guðni myndi segja fleiri brandara á eigin kostnað, en hingað til hefur nán- ast öll hans gamansemi verið á kostnað skatt- borgara. Þetta er bara orðið soldið þreytt hjá honum, og spurning um að fara að skipta um pró- gramm áður en fólk hættir alveg að hlæja.“ STAKSTEINAR Gamansemi á kostnað skattborgara Víkverji skrifar... Víkverji á það til að bregða sér íbæinn um helgar og heimsækir þá venjulega ákveðnar ölstofur sem hann kann best við sig á. Á dögunum brá hann út af vananum og ákvað að hitta vini á Hverfisbarnum, en þang- að hafði hann ekki komið lengi. Víkverji er hins vegar nokkuð viss um að hann ætlar ekki að fara þang- að aftur. x x x Er Víkverji kom að Hverfisbarnumvar þar nokkur röð fyrir framan, svona á að giska 15 manns eða svo. Víkverja þótti það nú ekkert tiltöku- mál og ákvað að bíða rólegur þar sem hann er vanur slíkum röðum á ölstof- unni sem hann mest sækir og yf- irleitt, fyrr en síðar, endar með því að Víkverji er kominn inn fyrir. En röð- in á Hverfisbarnum haggaðist ekki. Í 40 mínútur beið Víkverji án þess að færast úr sporunum og það var ekki fyrr en að hópur fólks sem var fyrir framan hann gafst upp og fór á næsta bar að Víkverji eygði von um að komast inn fyrir lokun. En skýr- ingin á biðinni löngu var handan við hornið. Eða réttara sagt beint á móti honum því svo virðist vera á þessum stað að sért þú sérlegur vildarvinur staðarins fáir þú forgang og komist „fram fyrir röðina“ eins og það er kallað. Þarna virðist sem sagt við- gangast svokölluð VIP-röð sem fer afskaplega í taugarnar á Víkverja. x x x Víkverji hafði orð á þessu við dyra-vörðinn og sagði honum eins og var að hann væri búinn að bíða óhóf- lega lengi á meðan aðrir gengju beint inn. Svarið við þessu var nú einfald- lega glott af vörum dyravarðar, sem greinilega fann til valds síns. Víkverji lét sig hafa það að bíða lengur, eingöngu af því að vinirnir biðu innan- dyra. Hann á hins veg- ar ekki von á því að koma aftur á Hverf- isbarinn í bráð. x x x Eigendum skemmti-staða er auðvitað í sjálfvald sett hvort þeir vilji að ákveðnir ein- staklingar, velunnarar, fastagestir og þekkt fólk, fái að fara fram fyrir aðra almenna gesti staða sinna. Vík- verja finnst sér þó vera sýnd óvirðing með slíku, sérstaklega þegar VIP-röðin gengur hundrað sinnum hraðar en „venjulega“ röðin. Hverfisbarinn og aðrir barir, sem þetta stunda, eru sennilega að sækjast eftir ákveðnu fólki á staðina sína, ákveðnum mann- gerðum jafnvel og ætlar Víkverji ekki að fara að draga ályktanir út frá því. Hann veit bara eitt, á flestum öðrum stöðum er fólki að jafnaði hleypt inn eftir því hvað það er búið að bíða lengi í biðröð, ekki eftir því hvaða nafn það ber eða hvaðan það kemur. Morgunblaðið/Golli Að bíða í biðröð er ekki sterkasta hlið Víkverja. ÉG sótti um e-kortið, þar sem ég sá fram á að það gæti komið sér vel að fá endurgreiðslu af öllum inn- lendum færslum sem færu á kreditkortið mitt. Síðastliðinn mánudag fékk ég svo sendan tölvu- póst þar sem mér var til- kynnt að ég gæti ekki feng- ið e-kortið þar sem ég væri eignalaus (á hvorki hús né bíl) en gæti fengið fyrir- framgreitt kreditkort (eins konar debetkort). Þar sem ég hef slæma reynslu af slíku korti vildi ég bara fá venjulegt kred- itkort. Sjálf hef ég verið með MasterCard í rúmt ár og alltaf greitt á réttum tíma. Svo ég hringdi í þjón- ustufulltrúa hjá SPRON og benti henni á þessa greiðslusögu mína hjá MasterCard, og spurði hvort það vantaði bara ekki ábyrgðarmenn á kortið. Þá vildi hún ekki fá ábyrgðarmenn, það væri bara ekki í boði á þessu korti. Þá benti ég henni á bankareikningana mína (sem eru ekki galtómir), og hvort þá væri ekki mögu- leiki að ég fengi svona kort. Nei var svarið. Og nú spyr ég: Af hverju er þá ekki auglýst að e- kortið sé ekki fyrir eigna- lausa? Og þar með útilokar SPRON marga námsmenn og ungt fólk á vinnumark- aði. En ég verð víst að halda mig við gamla kortið mitt, sem er með ábyrgð- armönnum. Ein eignalaus. Vantar texta MIG vantar texta sem var sunginn fyrir nokkrum ár- um og byrjar á þessa leið: „Ég heiti bara Kalla í Kaplaskjólinu“. Þeir sem gætu liðsinnt mér hafi sam- band við Helgu í síma 487 8262. Illa gerð ÞAÐ er birt krossgáta í Vikunni sem er ætluð börn- um að ég held. Mér finnst hún ekki vera nokkru barni samboðin og ég skil ekki að þetta skuli vera birt ár eftir ár því hún er svo illa gerð að það er með ólíkindum. Sigrún. Dýrahald Hvolpur fæst gefins GULLFALLEGUR níu vikna hvolpur (tík), fæst gefins á gott heimili. Upp- lýsingar í síma 567 7612 eða 661 0908. Kettlingar fást gefins TVEIR kettlingar, 9 vikna, fást gefins. Svartur og hvít- ur og grár og hvítur, kassa- vanir, vel upp aldir. Upp- lýsingar í síma 894 0409. Fresskettir fást gefins ÞRÍR kolsvartir eins árs fresskettir (bræður) fást gefins vegna sérstakra að- stæðna. Blíðir og góðir. Upplýsingar í síma 552 5859 eða 847 1064. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is E-kort ekki fyrir eignalausa LÁRÉTT 1 merkjamálið, 8 ræsi, 9 kvenfuglinn, 10 greinir, 11 talar um, 13 elda, 15 drukkna, 18 orkaði á, 21 þegar, 22 botnfall, 23 hornspýtunnar, 24 borg- inmennska. LÓÐRÉTT 2 smyrsl, 3 fékkst, 4 púk- ans, 5 bandaskó, 6 hæðir, 7 draga andann, 12 reið, 14 hestur, 15 fægja, 16 þvo, 17 ilmur, 18 kulda- straum, 19 eru í vafa, 20 viljuga. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 bófar, 4 bylta, 7 glært, 8 nárum, 9 tog, 11 róar, 13 fimm, 14 ylgur, 15 þökk, 17 Írak, 20 urt, 22 rófur, 23 álkan, 24 korði, 25 nemur. Lóðrétt: 1 bogar, 2 flæða, 3 rétt, 4 bing, 5 lærði, 6 aum- um, 10 orgar, 12 ryk, 13 frí, 15 þorsk, 16 kæfir, 18 rík- um, 19 kænur, 20 urgi, 21 tákn. Krossgáta  Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.