Morgunblaðið - 29.02.2004, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 29.02.2004, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2004 37 að landið sem þeir náðu á sitt vald í sex daga stríðinu árið 1967 sé skilgreint sem hernumið svæði, þar eð Jórdanar hafi þá farið með stjórn Vesturbakkans og hafi síðar gefið eftir tilkall sitt til svæðisins. Því eigi Haag- og Genfarsáttmál- arnir ekki við. Ísraelsstjórn viðurkennir að múr- inn víki sumstaðar frá Grænu línunni, en fullyrðir að það sé einungis af landfræðilegum ástæðum. Múrinn hafi enga varanlega þýðingu, því unnt sé að fjarlægja hann ef Ísraelar og Palestínumenn komist að pólitísku samkomulagi. Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, for- dæmdi dómsmálið á þriðjudag sem „alþjóðlega fjölleikasýningu“ og hét því að byggingu múrsins yrði fram haldið. En um það bil sem málflutn- ingnum var að ljúka fyrir Alþjóðadómstólnum á miðvikudag bárust fregnir af því að stjórnvöld í Ísrael hygðust breyta áætlunum sínum um lagn- ingu múrsins, þannig að hann verði 80 km styttri en áður var ráðgert. Rétta leiðin? Bygging múrsins leysir engan vanda og minnir með óhugnan- legum hætti á annan múr, sem reis fyrir fjórum áratugum. Þeim múr var ætlað að halda íbúum Austur-Þýzkalands innan landamæra alþýðulýð- veldisins. Múr Ísraelsmanna er ætlað að koma í veg fyrir að Palestínumenn komist inn í Ísrael nema undir nákvæmu eftirliti Ísraelsmanna. En áhöld eru um hvort umfjöllun fyrir Alþjóðadóm- stólnum sé heppilegasta leiðin til að leita lausnar á deilunni. Þrátt fyrir að aðildarríki Evrópusambandsins hafi setið hjá við afgreiðslu málsins í Allsherj- arþingi Sameinuðu þjóðanna, varaði sambandið við því að málið yrði sent Alþjóðadómstólnum til umfjöllunar. Í máli Jacks Straw, utanríkisráð- herra Bretlands, kom fram að Bretar hefðu farið þess formlega á leit við dómstólinn að hann kvæði ekki upp úrskurð í málinu. „Við [ríki Evrópusam- bandsins] teljum að það sé ekki við hæfi að dóm- stóllinn flækist inn í svo hápólitískt tvíhliða deilu- mál. Við teljum ennfremur að dómstóllinn eigi ekki að fjalla um mál nema samþykki beggja deiluaðila liggi fyrir,“ sagði Straw í yfirlýsingu í breska þinginu. Bandaríkjastjórn var alfarið á móti því að Alþjóðadómstóllinn kæmi að málinu og stendur enn fast á því að áætlunin um Vegvísi til friðar sé rétta leiðin fram á við í Mið-Aust- urlöndum. Tekið hefur verið undir þessi sjónarmið á und- anförnum dögum í forystugreinum og viðhorfs- dálkum í fjölmörgum blöðum og tímaritum, bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Bent er á að þar sem hugsanlegur úrskurður Alþjóðadómstólsins hefði hvort eð er ekki bindandi áhrif tæki hann óskynsamlega og ónauðsynlega áhættu með því að taka afstöðu í málinu. Ýmis arabaríki hafa hins vegar fullyrt að það sé í verkahring Alþjóðadómstólsins að taka málið til umfjöllunar og að það græfi undan trúverð- ugleika dómstólsins ef hann tæki ekki afstöðu til þess. Þröngt sjónar- horn á öryggis- hagsmuni Hvað svo sem segja má um lagningu máls- ins fyrir Alþjóðadóm- stólinn er ljóst að áframhaldandi upp- bygging múrsins og deilurnar sem af henni leiða eru mikið áhyggju- efni. Múrinn hefur augsýnilega dýpkað enn frek- ar þá gjá sem er á milli Ísraela og Palestínu- manna og vonin um frið fyrir botni Miðjarðarhafs virðist nú æði langsótt. Ísraelar hafa vissulega ríka ástæðu til að óttast um öryggi sitt og þeir eiga vitaskuld rétt á því að grípa til ráðstafana til að vernda líf og limi óbreyttra borgara. En aðeins svo fremi sem slík- ar ráðstafanir ganga ekki gegn alþjóðalögum og brjóta ekki gegn rétti annarra saklausra borg- ara. Auk þess má telja víst að bygging múrsins ali enn frekar á því hatri sem leitt hefur af sér upp- gang öfgasamtaka Palestínumanna og hræðileg óhæfuverk þeirra. Það hlýtur að teljast þröngt sjónarhorn á öryggishagsmuni ísraelsku þjóðar- innar að grípa til svo umdeildra og eldfimra ráð- stafana, sem við virðist blasa að auka ekki lík- urnar á því að friðsamleg lausn náist í bráð á þeim erfiðu deilumálum sem Ísraelar og Palest- ínumenn hafa átt við að etja um áratugi. Morgunblaðið/Eggert Ástfangnar álftir við Gróttu. Hvað svo sem segja má um lagningu málsins fyrir Al- þjóðadómstólinn er ljóst að áframhald- andi uppbygging múrsins og deil- urnar sem af henni leiða eru mikið áhyggjuefni. Laugardagur 28. febrúar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.