Morgunblaðið - 29.02.2004, Blaðsíða 64
FÓLK Í FRÉTTUM
64 SUNNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Allir þekkja skilgreiningunabílskúrsrokk – er það ekkitónlist hljómsveita sem æfaí bílskúr, oftar en ekki
hrátt, frumstætt og skemmtilegt
rokk. Vestan hafs er skilgreiningin
áþekk en vísar þó til sérstaks tímabils
í bandarískri rokksögu er unglinga-
hljómsveitir tóku að stæla Bítlana,
Kinks og Rolling Stones um miðjan
sjöunda áratuginn. Getur nærri að
hljómur hafi verið frumstæður og
rokkið hrátt en margar sveitanna
reyndu einmitt að hafa rokkið eins
hrátt og hávært og þeim var unnt.
Bílskúrsrokkið leið undir lok, eða
hætti í það minnsta að vera sýnilegt
um hríð, en sneri svo aftur með látum
undir lok áttunda áratugarins og í
byrjun þess níunda og svo reglulega
eftir það. Bandaríska rokksveitin
White Stripes er einn af boðberum
síðustu uppsveiflu bílskúrsrokksins
en aðeins ein hljómsveit af mörgum,
nefnum til sögunnar Von Bondies
sem sendu frá sér fyrirtaks breið-
skífu, Pawn Shoppe Heart, á dög-
unum.
Motown = Detroit
White Stripes eru frá Detroit,
þeirri ágætu rokkborg sem var þó
löngum þekkt fyrir sitt svarta popp
Motown-útgáfunnar sem dregur nafn
sitt einmitt af borginni (Motor City /
Motor Town kölluðu menn Detroit
fyrir bílafabrikkurnar sem þar voru).
Af rokksveitum sem þaðan hafa kom-
ið má nefna MC5, Stooges / Iggy Pop,
Amboy Dukes / Ted Nugent og ? and
the Mysterians, að ógleymdri Parlia-
ment-fjölskyldunni svo helstu sveitir
séu taldar. Í dag eru helstar áður-
nefnd White Stripes, Soledad
Brothers, Detroit Cobras, Volebeats
og Von Bondies, sem eru tilefni þess-
ara skrifa.
Leiðtogi Von Bondies er gítarleik-
arinn og söngvarinn Jason Stoll-
steimer sem stofnaði hljómsveitina
fyrir hálfu fimmta ári. Hann var áður
í hljómsveit sem hét því hráslagalega
nafni The Baby Killers, en Marcie
Bolen, gítarleikari og söngkona, var
einnig í þeirri sveit. Hún fylgdi Stoll-
steimer í nýja hljómsveit og við bætt-
ust trymbillinn Don Blum og ónefnd
stúlka sem lék á bassa. Hún hætti
snemma, fór í skóla, og í hennar stað
kom bassaleikarinn og söngkonan
Carrie Smith.
Hálfgerður draugabær
Hljómsveitinni gekk bærilega að
koma sér á framfæri í Detroit sem
Stollsteimer lýsir sem hálfgerðum
draugabæ. Hann segir og að það að
alast upp í Detroit hafi kennt liðs-
mönnum sveitarinnar að allt sé hverf-
ult og miklu skipti að vera ekki hluti
af einhverri „hreyfingu“, að vera ekki
ein af „Detroit-sveitunum“, heldur að
vera hljómsveit sem enginn man
hvaðan er en allir muna eftir tónlist-
inni. „Málið er að hafa eitthvað að
segja, að vera að segja eitthvað. Þeir
sem hafa ekkert fram að færa nema
flotta frasa, eru ekki að segja frá lífi
sínu eða reyna að breyta heiminum,
ættu að hætta strax.“
Hann gerir mikinn greinamun á
Rock n’ Roll eða bara rokki. Rokk sé
Kiss (sem er reyndar frá Detroit líka)
og álíka sveitir og snúist ekki um tón-
list, heldur ímynd. „Aftur á móti er-
um við Rock n’ Roll og eigum fyrir
vikið ekki eftir að verða heimsfræg og
vinsæl.“
Textarnir í lögum Von Bondies eru
býsna persónulegir enda segist Stoll-
steimer jafnan semja um sjálfan sig
og líf sitt. „Ég byrjaði að semja lög
fyrir sjálfan mig vegna þess að mér
fannst það betra en að sitja og þjóra
alla nóttina og eftir að við tókum upp
Pawn Shoppe Heart er ég nánast
hættur að drekka, búinn að fá útrás.“
Hann segir að líta megi á plötur sveit-
arinnar sem hálfgerðar sólóskífur að
því leyti að hann semur öll lög og
texta, en leggur þó áherslu á að aðrir
liðsmenn leggi ýmislegt til málanna
þegar kemur að því að útsetja lögin,
spila á tónleikum og taka upp.
Lögin semur hann yfirleitt á bassa
þó hann sé gítarleikari, segir þau flest
orðin til þannig að hann vakni um
miðja nótt, yfirleitt um fjögur- til
fimmleytið, með bassalínu í hausnum
sem hann vinnur úr og kennir síðan
Smith. Textarnir koma síðar, yfirleitt
samdir á nóttunni líka og gengur
jafnan erfiðlega enda á Stollsteimer
erfitt með sjónina, getur illa lesið og
skrifar víst hörmulega, nánast skrif-
blindur.
Vendipunktur í sögu sveitarinnar
var þegar Jack White, betri helm-
ingur White Stripes, bauð Von Bon-
dies að vera með á safnskífunni
Sympathetic Sounds of Detroit, því í
framhaldinu bauðst sveitinni útgáfu-
samningur við Sympathy for the Re-
cord Industry, útgáfu White Stripes.
Jack White tók að sér að stýra upp-
tökum en vegna fjárskorts fékk sveit-
in aðeins tvo daga til að taka upp,
fyrri daginn var allt hljóðritað og
þann seinni hljóðblandað og frum-
eintak búið til. Kemur varla á óvart
að platan, Lack of Communication,
sem kom út 2000 í takmörkuðu upp-
lagi, var einkar hrá og kraftmikil og
fékk fína dóma.
Fyrsta „alvöru“ platan
Það varð enn til að auka hróður
sveitarinnar að eftir að skífan kom út
fór Von Bondies í tónleikaferð um
heiminn sem upphitunarsveit fyrir
White Stripes og í kjölfar þess, og
vinsælda White Stripes og bílskúrs-
rokksins tóku stórfyrirtækin að
keppast um að gera við Von Bondies
útgáfusamning. Á endanum samdi
sveitin við Sire sem er undirmerki
Warner, og fékk þá loks tíma og að-
stöðu til að gera „alvöru“ plötu þar
sem hægt var að liggja aðeins yfir
hljómnum og spilamennsku. Upp-
tökustjóri var ekki af verri endanum,
Jerry Harrison, sem lék á gítar með
Modern Lovers og síðar Talking
Heads eins og flestir muna eflaust og
hefur sent frá sér sólóskífur síðan.
Afraksturinn er svo Pawn Shoppe
Heart, afbragðsplata og kandídat í
uppgjör yfir bestu plötur ársins. Von
Bondies hafa verið mikið í pressunni
undanfarið eftir að Jack White gekk í
skrokk á Stollsteimer, en vonandi
gleymist sá krytur fljótt og sögurnar
sem bundnar eru í músíkina fá að
heyrast.
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Við erum
vagg og velta
Rokkhefðin er sterk í Detroit eins og sannast á nýrri
afbragðsskífu Von Bondies, Pawn Shoppe Heart.
A ustfirðingurinn HálfdánSteinþórsson hefur glattlandsmenn með nærveru
sinni í gegnum Skjá einn und-
anfarin ár. M.a. var hann einn um-
sjónarmanna Djúpu laugarinnar og
var síðan heilinn á bakvið Hljóm-
sveit Íslands. Hann stýrir nú nýjum
þætti, Landsins snjallasta, ásamt
Elvu Björk Barkardóttur og er hann
nýfarinn í gang og á dagskrá á
föstudagskvöldum. En hér kom-
umst við hins vegar að ögn sértæk-
ari hlutum um Hálfdán, t.a.m. að
furðulegasti matur sem hann hefur
bragðað var framreiddur á Hest-
eyri …
Hvernig hefurðu það í dag?
Ég hef það alveg ágætt þakka þér
fyrir.
Hvað ertu með í vösunum?
Ég er með tóma vasa og ekki í
fyrsta skiptið.
Uppvaskið eða skræla kartöflur?
Þetta er nú það eina sem ég get
gert skammlaust í eldhúsinu svo
ég verð að velja hvort tveggja eins
og alltaf.
Hefurðu tárast í bíói?
Jú, jú, ég hef grenjað eins og stung-
inn grís.
Ef þú værir ekki dagskrárgerð-
armaður, hvað vildirðu þá vera?
Þá myndi ég vilja vera dag-
skrárgerðarkona.
Hverjir voru fyrstu tónleikarnir sem
þú fórst á?
Ég held að fyrstu tónleikarnir sem
ég fór á hafi verið með SúEllen í
portinu við Egilsbúð.
Ég hlusta á Led Zeppelin.
Uppáhaldsmálsháttur?
Ég á því miður ekki neinn uppá-
haldsmálshátt, en mig hefur dreymt
um það í mörg ár.
Hvaða plötu keyptirðu síðast?
Ég man varla til þess að hafa nokk-
urn tíma keypt plötu.
Hvert er þitt mesta prakkarastrik?
Éta allt úr jóladagatalinu hennar
Stellu systur minnar.
Hver er furðulegasti matur sem þú
hefur borðað?
Hádegismatur hjá Önnu vinkonu
minni á Hesteyri.
Trúirðu á líf eftir dauðann?
Þetta er lífið eftir dauðann.
„Þetta er lífið
eftir dauðann“
SOS
SPURT & SVARAÐ
Hálfdán
Steinþórsson
Hvaða leikari fer mest í taugarnar á
þér?
Ben Affleck.
Hver er þinn helsti veikleiki?
Ég gef frá mér hátíðnihljóð þegar ég
er sofandi og ég get aldrei munað
að setja setuna niður þegar ég er
búinn að gera mitt.
Finndu fimm orð sem lýsa persónu-
leika þínum vel.
Ég, er, sonur, Siggu, og, Steina (ef
ég má nota sex orð).
Bítlarnir eða Stones?
Bítlarnir hafa alltaf verið í meira
uppáhaldi hjá mér enda voru þeir al-
gjörir snillingar.
Hver var síðasta bók sem þú
last? Það var Ríkur pabbi
fátækur pabbi.
Hvaða lag
spilarðu áð-
ur en þú
ferð út á
laugardags-
kvöldi?
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
Á
rn
i S
æ
be
rg
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Ólafur Snorri Ottósson 435 0098 694 7372
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Björn Svanur Þórisson 452 4019/864 4820/662 0984
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík María Jane Duff 475 6662
Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161 662 1373
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 846 8123
Grenivík Hörður Hermannsson 463 3222
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 895 0222
Hellissandur/Rif Aron Jóhannes Leví Kristjáns. 436 6925
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478
Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Gunnar Þorvaldsson 451 2482 894 5591
Hveragerði Erna Þórðardóttir 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416
Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 821 3475
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 820 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8378 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Jakop Antonsson 486 8983
Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173
Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2347 866 7958
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574
Reykholt Bisk. Oddur Bjarni Bjarnason 486 8900
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð v/Mýv. Margrét Hróarsdóttir 464 4464
Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888 862 2888
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Hanna Lísa Vilhelmsdóttir 472 1102 690 2415
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815
Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 456 4936
Tálknafjörður Rakel Guðbjörnsdóttir 456 2595 696 2663
Varmahlíð Ragnar Helgason 453 8134 867 9649
Vestmannaeyjar Sigurgeir Jónasson 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 698 7521
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 848 6475
Þingeyri Arnþór Ingi Hlynsson 456 8285
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni