Morgunblaðið - 29.02.2004, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 29.02.2004, Blaðsíða 45
annan áróður frá hendi Lands- sambands íslenskra útvegsmanna. Það eru engin rök færð fyrir þeim tölum sem settar eru fram. Því síður er gerð grein fyrir þessu gríðarlega misræmi í málflutningi, þegar hann fullyrðir fyrst að „tæp þúsund tonn“ af aflaheimildum yrðu tekin af Hrað- frystihúsinu-Gunnvöru hf. en segir nokkru síðar „... ef við misstum frá okkur yfir 160 tonn að óbreyttu, í þorski, ýsu og steinbít“. Hvernig stendur á þessu misræmi? Útvegs- menn voru reyndar með véfréttir af þessu tagi í hverju byggðarlaginu af öðru um allt land en færðu engin rök fyrir þeim tölum sem þeir slógu fram í áróðursskyni. Mér finnst slíkt vera óheiðarlegur leikur. „Ef við misstum ...“ Ég hef líka sérstakar athugasemdir við það orðalag hjá Einari Val þegar hann segir „... ef við misstum frá okkur yfir 160 tonn að óbreyttu, í þorski, ýsu og steinbít“. Rökin fyrir þessum talnaleik eru ekki til. Það eru aðeins til rök og raunhæfar tölur varðandi þorskinn. Sjávarútvegs- ráðuneytið hefur einungis varðandi þorskinn gefið út með bindandi hætti hversu mikið skuli fara í línu- ívilnunina. Varðandi ýsuna og stein- bítinn hefur ráðherra hins vegar lög- um samkvæmt heimild til að stöðva þær veiðar ef þær teljast vera að fara eitthvað úr böndunum. Í annan stað hefur dregið úr ýsuveiðum vegna áhugaleysis manna á þeim veiðum út af verðhruninu á þessari fisktegund. Af þessum tveimur ástæðum er ákaflega hæpið að taka einhverjar tölur um ýsuna inn í þessa umræðu. Umræðan ætti að snúast um raunveruleikann en ekki einhvern órökstuddan hugarburð. Í Útveginum leggur Einar Valur á það áherslu, að Hraðfrystihúsið- Gunnvör hf. sé matvælaframleiðslu- fyrirtæki, orðnotkun sem minnir mig einna helst á kjúklingafram- leiðslu – tel farsælla að menn tengi sig frekar við hafið. Vissulega eru hölin stór hjá tog- urum Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf. og mikið af hráefni skemmist af þeim sökum og því óhæft til mat- vælaframleiðslu. Smábátamenn á línuveiðum eru ekki að taka nein stór höl. Hjá þeim kemur bara einn og einn fiskur. Hér mætti minna á hversu illa ýsan fer í trolli, svo dæmi sé tekið. Það veit ég af langri reynslu. Ef ýsan afhreistrast, þá er hún í flestum tilvikum dauð þótt hún sleppi. Það gildir um fleiri fiskteg- undir. Við vitum að togskipin drepa óhemju magn af fiski. Hins vegar vantar meiri rannsóknir til að geta staðhæft með nokkurri nákvæmni hversu mikið það er sem togveið- arnar drepa af fiski sem aldrei kem- ur upp í skipin. Engin efast hins veg- ar um að slíkt gerist. Togarar hafa þannig notið ívilnunar við veiðar sem nemur þúsundum tonna, en þess konar ívilnun þegja þeir um þunnu hljóði. Um línuveiðarnar gegnir allt öðru máli. Allt sem er drepið kemur um borð og dregst frá kvóta. Nýsett línuívilnun minnkar þá mismunun sem hingað til hefur tíðkast. Öryggi í hráefnisöflun Eitt af því sem Einar Valur og fleiri stórútgerðarmenn hafa nefnt smá- bátunum til foráttu, er að þeir séu ekki nógu stórir og öflugir til stöð- ugrar og öruggrar hráefnisöflunar. Við í Bolungarvík þekkjum þetta ekki. Með hinum nýju og öflugu fimmtán tonna smábátum okkar hef- ur aldrei dottið dagur úr vinnu. Hrá- efnisöflunin getur tæpast orðið öruggari, þótt vissulega sé heppilegt að hafa einnig stærri línuskip sem geta verið lengur úti og farið yfir stærra svæði. En það sem gerir ekki síst gæfumuninn varðandi smábát- ana er gangurinn. Þeir eru með yf- irburða ganghraða gagnvart öðrum fiskiskipum. Þeir hafa það líka fram yfir önnur fiskiskip, að þeir landa alltaf alveg nýveiddum og algerlega ferskum fiski. Ísfisktogararnir eru aftur á móti búnir að eyða allt upp í viku af geymsluþoli fisksins þegar þeir koma með hann í land. Þetta geymsluþol ætti frekar að nýtast þegar fiskurinn er kominn á erlenda markaði. Því meira svigrúm og því meiri tími sem þar gefst, þeim mun lengra inn í löndin er hægt að selja fiskinn og stækka þar með mark- aðina. Rosaleg skerðing hjá HG?! Páll Halldórsson, skipstjóri á Páli Pálssyni ÍS, ísfisktogara Hraðfrysti- hússins-Gunnvarar hf., sagði op- inberlega í haust, að hásetahlut- urinn á skipinu myndi rýrna um 900 þúsund krónur á ársgrundvelli ef aflaheimildir skipsins yrðu skertar vegna línuívilnunar. Þarna er skip- stjórinn, líkt og fleiri, að slá fram einhverju sem á ekki við nein rök að styðjast. Ef hin nýju lagaákvæði um línuívilnun og byggðakvóta hefðu komið til framkvæmda 1. september á liðnu hausti, þá hefði úthlutun á þorskkvóta til Páls Pálssonar ÍS á fiskveiðiárinu 2003/2004 orðið 0,8% minni en hann er nú, en aftur á móti hefur málflutningur stórútgerð- arinnar skert hann um 50% í byggðakvóta. Alls verða þetta því tæp 25 tonn. Þetta eru nú öll ósköp- in. Skerðingin á þorskkvóta hjá öll- um skipum Hraðfrystihússins- Gunnvarar hf. hefði að sama skapi orðið rúm 54 tonn á fiskveiðiárinu 2003/2004 þar með talin 50% skerð- ing á byggðakvóta. Þetta er enn eitt dæmið um órökstuddan talnaleik og fullyrðingar sem slegið er fram til að reyna að berja niður mál, línuíviln- unina, sem er hreint og klárt byggðamál. Að lokum skal því hnýtt hér við sem framkvæmdastjórinn gleymir að minnast á í hinu ítarlega viðtali að sértækar aðgerðir stjórnvalda til HG á þessu fiskveiðiári eru tæp 104 tonn í þorski og þá er ótalinn vænt- anlegur þorskeldiskvóti, sem á sl ári var 50 tonn. Höfundur er formaður Smábáta- félagsins Eldingar á norðanverðum Vestfjörðum. SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2004 45 Höfðabakki Atvinnuhúsnæði Góð lofthæð, mjög góð staðsetning, góð aðkoma og næg bílastæði. Eigum eftirfarandi til ráðstöfunar. Upplýsingar veitir Magnús Gunnarsson í síma 588 4477 eða 822 8242 www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30 Mögulegt er að skipta ofangreindum stærðum í smærri einingar. Húsnæðið hefur verið í notkun fyrir höfuðstöðvar Marels. Hentar fyrir ýmiss konar starfsemi, s.s. iðnað, heildsölu, skrifstofustarfsemi o.fl. Eignin er í eigu Landsafls, sem er öflugt sérhæft fasteignarfélag. 1. hæð 280 fm Innkeyrslud./lofth. 3,7 m. Laust 266 fm Innkeyrslud./lofth. 3,7 m. Laust 481 fm Innkeyrslud./lofth. 3,7 m. Laust 2. hæð 1.460 fm Skrifstofur/þjónusta Mjög hagstæð leiga Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði   Magnús Emilsson löggiltur fasteignasala ÁLFKONUHVARF - RAÐH. - VATNSENDA Nýkomin í sölu á þessum frábæra útsýnisstað í austurhlíðum Vatnsenda- hvarfs mjög vel skipulögð raðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr sam- tals um 170 fermetrar. Húsin skiptast í forstofu, hol, borðstofu, stofu, eldhús, þrjú herbergi, baðherbergi, geymslu, þvottahús, bílskúr innangengt. Húsin af- hendast fullbúin án gólfefna. Traustur verktaki. Upplýsingar og teikningar á skrifstofu Hraunhamars. Verð frá 17,7 millj. Tvær glæsilegar skrifstofubyggingar Þessar tvær glæsilegu skrifstofubyggingar eru til sölu. Húsin afhendast tilbúin undir tréverk og málningu og frágengin að utan með vandaðri utanhúsklæðningu. Sameign verður fullbúin og lóð fullfrágengin með malbikuðum bílastæðum. Hlíðasmári 3 er samtals um 4.400 fm og tilbúin til afhendingar nú þegar. Hlíðasmári 1 er samtals um 3.300 fm og verður tilbúinn til afhendingar síðar á árinu. Eignirnar henta vel fyrir hvers kyns skrifstofur, verslanir og þjónustu. Húsin eru sérlega vel hönnuð. Fyrirkomulag er gott og nýting húsanna góð. Lyfta. Hægt er að tengja húsin saman enda liggja þau samsíða. Aðkoma og staðsetning húsanna er mjög góð og við fjölfarna umferðaræð. Útsýni er fallegt. Frágangur er vandaður. Húsunum fylgir fjöldi bílastæða. 3957 Undirritaðir annast sölu eignanna og veita allar nánari upplýsingar um þær. HLÍÐASMÁRI 1 OG 3 - KÓPAVOGI FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali SMS tónar og tákn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.