Morgunblaðið - 29.02.2004, Síða 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Bil
lund
19.995kr.
Flugsæti
Flogið með Loftleidir Icelandic alla
miðvikudaga frá 2. júní til. 1. september.
Ver› frá
LÍKA NJÓSNAÐ UM BLIX
Hans Blix, fyrrverandi yfirmaður
vopnaeftirlitsnefndar Sameinuðu
þjóðanna, segist hafa grun um að
samtöl hans hafi verið hleruð af
Bandaríkjamönnum í aðdraganda
Íraksstríðsins. Hann ýtir þar með
stoðum undir þær staðhæfingar
Clare Short, fyrrverandi ráðherra í
bresku stjórninni, að njósnað hafi
verið um helstu embættismenn SÞ
af hálfu Vesturveldanna.
Vinir á ný?
Vel fór á með þeim George W.
Bush Bandaríkjaforseta og Gerhard
Schröder, kanslara Þýskalands, eftir
fund sem þeir áttu í Washington.
Fréttaskýrendur segja þó ekki gróið
um heilt í vináttu þeirra eftir deilur
er vörðuðu árásina á Írak í fyrra.
Ræða hækkun Laxárstíflu
Haldinn verður almennur félags-
fundur í Landeigendafélagi Laxár
og Mývatns í þessari viku. Þar verð-
ur tekin afstaða til umdeilds bráða-
birgðaákvæðis í frumvarpi umhverf-
isráðherra sem veitir
Umhverfisstofnun heimild til hækk-
unar stíflu við Laxárvirkjun að und-
angengnu umhverfismati og fengnu
samþykki landeigendafélagsins.
Skiptast menn í tvo flokka í héraði,
þá sem vilja heimila hækkun stífl-
unnar og þá sem eru því andvígir.
Samningur um verk Laxness
Undirritaður hefur verið við-
aukasamningur milli Vöku-Helga-
fells, eins forlaga Eddu útgáfu, og
fjölskyldu Halldórs Laxness um út-
gáfu og kynningu á öllum verkum
hans hérlendis og erlendis. Skv.
samningnum verður starfrækt
Skrifstofa Halldórs Laxness.
Ekki neyðarástand
Stjórnendur Heilsugæslunnar í
Reykjavík eiga ekki von á að fjörutíu
starfsmenn sem sagt hafa upp störf-
um vegna deilunnar um heima-
hjúkrun mæti til vinnu á morgun.
Segja þeir fullyrðingar um neyðar-
ástand ekki eiga við rök að styðjast.
Ógnaði með byssu
Lögregla var kölluð að húsi í vest-
urbæ á föstudagskvöld en þar ógn-
aði maður fólki í nágrannahúsi með
skotvopni þar sem honum líkaði ekki
hávaði frá gleðskap í húsinu.
Y f i r l i t
Í dag
Skissa 6 Myndasögur 56
Sigmund 8 Bréf 56
Ummæli vikunnar
11
Dagbók 58/59
Af listum 28 Auðlesið efni 60
Listir 32/35 Hugvekja 61
Forystugrein 36 Spurt er 61
Reykjavíkurbréf 36 Leikhús 62
Minningar 38/43 Fólk 62/69
Skoðun 44/48 Bíó 66/69
Kirkjustarf 50 Sjónvarp 70
Þjónusta 55 Veður 71
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
STJÓRNENDUR Heilsugæslunn-
ar í Reykjavík reikna ekki með að
þeir 40 starfsmenn af 83 sem sagt
hafa upp störfum mæti til vinnu á
morgun og hafa lagt drög að því
hvernig staðið verður að heima-
hjúkrun í næstu viku. Þeir segja
fullyrðingar um að neyðarástand
muni skapast ekki eiga við rök að
styðjast en ljóst sé þó að þjónusta
muni raskast og þá einkum í kvöld-
þjónustu og hjá þeim sem fá heima-
hjúkrun sjaldan. Stefnan sé sú að
taka einn dag í einu í næstu viku og
halda að sem mestu leyti uppi
óbreyttri dagþjónustu við þá sjúk-
linga sem þurfa oft á aðstoð heima-
hjúkrunarinnar að halda. Fyrir
liggi að ríflega helmingur starfs-
manna verði áfram og þá sé gert
ráð fyrir að þrír hjúkrunarfræðing-
ar og einn sjúkraliði bætist við eftir
helgina.
Þetta var meðal þess sem fram
kom á upplýsingafundi sem stjórn-
endur Heilsugæslunnar héldu með
fjölmiðlum í gær svo og það að þeir
vonuðust í lengstu lög til þess að
starfsmenn myndu draga uppsagn-
ir sínar til baka áður en til samn-
ingsrofs kæmi, þ.e. fyrir miðnætti í
kvöld. Heilsugæslan vildi halda í
þessa starfsmenn og hefði raunar
hugboð um að einhverjir starfs-
menn myndu draga uppsagnir til
baka.
Spurður um stöðu deilunnar
sagði Guðmundur Einarsson, for-
stjóri Heilsugæslunnar, það hafa
verið sameiginlegt mat sitt og Ög-
mundar Jónassonar, formanns
BSRB, að það myndi ekki skila
árangri að boða til samningafundar.
Stjórnendur Heilsugæslunnar
leggja áherslu á að þeir hafi þegar
með tilboði sínu til starfsmannanna
spilað út öllum þeim fjármunum
sem sparast munu ef akstursfyr-
irkomulagi verður breytt, kjarni
málsins sé sá að hvatinn í núver-
andi kerfi sé ekki í samræmi við
þjónustumarkmið stofnunarinnar.
Heilsugæslan segir
neyðarástand ekki ríkja
Kvöldþjónusta og þjónusta við
þá sjúklinga sem sjaldnar fá
heimsóknir mun þó skerðast
BIFREIÐ valt á Sæbraut í Reykja-
vík í kjölfar áreksturs í gærmorgun
og hafnaði inni í porti. Þrír voru í
bílnum og voru tveir þeirra fluttir á
slysadeild. Ekki lágu fyrir upplýs-
ingar um hversu alvarleg meiðsl
þeirra eru. Ökumaður í hinum bíln-
um stakk af af vettvangi á bíl sín-
um, rauðum Subaru Impreza, og
hafði lögreglu ekki tekist að hafa
uppi á honum þegar blaðið fór í
prentun. Skv. upplýsinum lögreglu
er talið að bílarnir hafi verið í
kappakstri á Sæbrautinni sem end-
aði með þessum hætti.
Morgunblaðið/Þorkell
Bifreiðin sem valt er illa farin. Kastaðist hún eftir áreksturinn út af Sæbrautinni, yfir hljóðmön og inn í port þar
sem hún skorðaðist við bíla sem þar voru á bílastæði. Þrír voru í bílnum og voru tveir þeirra fluttir á slysadeild.
Árekstur og bílvelta eftir
kappakstur tveggja bíla
EINN var fluttur á slysadeild eftir
árekstur þriggja bifreiða á þjóð-
veginum á Mosfellsheiði á tíunda
tímanum í gærmorgun. Fljúgandi
hálka vegna ísingar var á veginum
og lítið skyggni vegna þoku þegar
áreksturinn varð. Sendir voru
tveir sjúkrabílar og tækjabíll frá
slökkviliðinu á vettvang. Ekki er
talið að sá sem fluttur var á
sjúkrahús hafi meiðst alvarlega í
árekstrinum. Lögreglan lokaði
veginum í gærmorgun. Meiðsl á
fólki reyndust minniháttar en
draga þurfti bæði hópferðabíl og
jeppa af vettvangi. Var Þingvalla-
vegi lokað um tíma frá þjónustu-
miðstöðinni á Þingvöllum og að
Mosfellsdal á meðan bílarnir voru
fjarlægðir af veginum og starfs-
menn Vegagerðarinnar unnu að
því að dreifa salti á veginn.
Á slysadeild
eftir árekst-
ur á Mos-
fellsheiði
ALÞJÓÐABJÖRGUNARSVEIT
Slysavarnafélagsins Landsbjargar
sem var að störfum á jarðskjálfta-
svæðinu í Marokkó var væntanleg
heim til Íslands seinni partinn í gær.
Björgunarsveitin aðstoðaði m.a. við
að setja upp stjórnstöð björgunarliðs
Sameinuðu þjóðanna í Al Hoceima
og fór síðan í könnunarferðir um
hamfarasvæðið í borginni og ná-
grenni hennar.
Björgunar-
sveitin
snýr heim
LÖGREGLAN á Keflavíkurflug-
velli handtók karlmann og konu frá
Nígeríu sl. föstudag. Framvísuðu
þau flóttamannavegabréfum sem
lögregla telur að séu stolin. Fólkið,
sem er um þrítugt, var á leið til Ís-
lands frá Kaupmannahöfn í gegnum
Mílanó.
Eru þau í umsjá lögreglunnar á
landamærunum í Leifsstöð á meðan
mál þeirra eru til skoðunar. Til-
gangur ferðar þeirra hingað til
lands er óljós, skv. upplýsingum Jó-
hanns R. Benediktssonar sýslu-
manns.
Par frá Níger-
íu stöðvað með
stolin skilríki
KROSSGÁTA sunnudags-
blaðsins er í dag birt í Tímariti
Morgunblaðsins. Krossgátan
hefur verið fastur liður í Morg-
unblaðinu á sunnudögum um
árabil og hefur skapað sér sess
meðal lesenda blaðsins. Kross-
gátan mun framvegis birtast í
Tímaritinu og mun því áfram
birtast á sunnudögum þótt hún
hafi verið flutt um set.
Krossgát-
an í Tíma-
ritinu
♦♦♦
♦♦♦