Morgunblaðið - 29.02.2004, Síða 14

Morgunblaðið - 29.02.2004, Síða 14
14 SUNNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ Þ að vantar ekki upphrópanir og yfirlýsingar um að nýtt menn- ingarstríð sé skollið á í Banda- ríkjunum. Og það er ekki fjarri lagi. Á nokkrum dögum hafa samskipti samkynhneigðra orðið að helsta bitbeininu í bandarískri umræðu og gætu haft lykiláhrif í forsetakosningunum í nóvember. Kveikjan var úrskurður hæstaréttar í Massachusetts-ríki í byrjun febrúar um að frá miðjum maí myndu samkynhneigð pör geta gengið í hjónaband. Í kjölfarið sigldi ákvörðun borgarstjórans í San Francisco, Gavins Newsoms, fyrir tveimur vik- um um að byrja að gefa saman samkynhneigð pör og láta sig einu gilda að slík hjónabönd ættu sér ekki stoð í lögum í Kaliforníu. Þessir atburðir hafa vakið mikla umræðu í Bandaríkj- unum og reiði meðal ákveðinna hópa. Á þriðju- dag gekk George W. Bush forseti síðan fram fyrir skjöldu og lýsti yfir því að hann styddi að ákvæði um að banna hjónabönd samkyn- hneigðra yrði sett í stjórnarskrá. Í máli sínu vísaði hann bæði til úrskurðar hæstaréttar í Massachusetts og ákvörðunar borgarstjórans í San Francisco. Viðbrögðin við yfirlýsingu Bush létu ekki á sér standa. Stuðningsmenn hans fögnuðu, en sumir sögðu þó að hann hefði ekki gengið nógu langt. Andstæðingar hans gagnrýndu hann fyr- ir að ætla að nota réttindi samkynhneigðra í pólitískum tilgangi með það fyrir augum að þjappa saman stuðningsmönnum repúblikana og reka fleyg í raðir stuðningsmanna demó- krata. Vísa þeir til þess að þetta séu þekktar að- ferðir hjá Bush-fjölskyldunni, en í kosninga- baráttunni 1988 höfðaði George H.W. Bush, faðir núverandi forseta, til kynþáttafordóma þegar syrti í álinn í kosningabaráttunni við Michael Dukakis. Aðrir segja að hugur fylgi máli hjá forsetanum, stjórnarskrárbreyting sé það viðamikil og erfið að hann myndi ekki hætta sér út í slíkt nema hann tryði á málstað- inn. Ný borgarahreyfing? Yfirlýsing Bush varð til þess að ásóknin sam- kynhneigðra í að ganga í hjónaband jókst og hafa nú tæplega 3.500 pör gifst. Ekki er ljóst hver lagaleg staða þeirra verður ef hjónabönd samkynhneigðra verða bönnuð í stjórnarskrá, en á föstudag hafnaði hæstiréttur í Kaliforníu beiðni dómsmálaráðherra ríkisins, sem hafði fyrir atbeina Arnolds Schwarzeneggers ríkis- stjóra farið fram á það að rétturinn stöðvaði giftingarnar í San Francisco og ógilti þær gift- ingar, sem þegar hefðu farið fram. Víðar hefur dregið til tíðinda. Fyrr í mán- uðinum gaf embættismaður í Nýju-Mexíkó út 26 giftingarvottorð fyrir samkynhneigð pör, en dómsmálaráðherra ríkisins lýsti þau ógild. Á föstudag neitaði embættismaður í Iowa City í Iowa rúmlega 30 samkynhneigðum um gifting- arvottorð. Í fréttum kom fram að embættis- maðurinn væri samkynhneigður og hefði sagt að hann þyrfti að framfylgja lögunum. Á föstu- dag gengu einnig 25 samkynhneigð pör í hjóna- band í bænum New Paltz. Dómsmálaráðherra New York neitaði að verða við beiðni um að stöðva giftingarnar í bænum. Það væri dóm- stóla að kveða á um lögmæti giftinganna. „Við erum nú að verða vitni að því að stærsta lýðréttindahreyfing í Bandaríkjunum í heilan mannsaldur blómstri,“ sagði Jason West, bæj- arstjóri í New Paltz. Það er í það minnsta ljóst að margir samkyn- hneigðir hafa brugðist við yfirlýsingu Bush með því að gifta sig. Þar á meðal var skemmti- krafturinn Rosie O’Donnell, sem gifti sig Kelli Carpenter, ástkonu sinni til margra ára. Hún lýsti yfir því að kveikjan að giftingunni væri yfirlýsing Bush: „Ég held að sitjandi forseti hafi aldrei mælt jafn grimmileg og hatursfull orð,“ sagði O’Donnell í sjónvarpsþætti þar sem hún lýsti fyrirætlunum sínum. „Ég er í losti og mig hryllir við.“ „Helsta grundvallarstofnun siðmenningarinnar“ En hvað gengur Bush til? Þegar hann kvaðst styðja stjórnarskrárbann við hjónabandi sam- kynhneigðra sagði hann að hjónabandið væri „helsta grundvallarstofnun siðmenningarinn- ar“ og bætti við að það væri ekki hægt að að- skilja það „menningarlegum, trúarlegum og náttúrulegum rótum sínum“ án þess að veikja samfélagið. Hann vísaði til þess að dómarar hefðu reynt að endurskilgreina hjónabandið og það varðaði þjóðarhag að vernda hjónabandið. Þó mættu einstök ríki leyfa borgaralega sam- búð samkynhneigðra. „Stjórnarskrárbreyting- in ætti að vernda hjónabandið, en gefa þingum ríkjanna svigrúm til að taka eigin ákvarðanir um að skilgreina lagalega tilhögun aðra en hjónaband,“ sagði hann. Bush hvatti til þess að hafðar yrðu hraðar hendur um stjórnarskrárbreytinguna, en það er ekki hlaupið að því að gera slíka breytingu. Tveggja þriðju hluta meirihluta þarf í bæði full- trúa- og öldungadeild þingsins og síðan þurfa þing í minnst 38 ríkjum að staðfesta breyt- inguna og gæti það tekið allt að sjö ár. John Kerry, sem allt bendir til að verði for- setaframbjóðandi demókrata í kosningunum í nóvember, hefur lýst því yfir að hann sé and- vígur hjónaböndum samkynhneigðra, en um leið gagnrýnt Bush harðlega fyrir að vera „í pólitískum leik með stjórnarskrá Bandaríkj- anna“. Ekki ríkir einhugur um það meðal repúblik- ana hvort breyta eigi stjórnarskránni vegna þessa máls. Forustumenn repúblikana í öld- ungadeildinni segja að tillaga um breytingu á stjórnarskránni gæti komið til atkvæða fyrir kosningarnar í nóvember og vitnaleiðslur gætu hafist þegar í þessari viku, en Tom DeLay, leið- togi meirihlutans í fulltrúadeildinni, var mun varkárari um leið og hann hældi Bush fyrir að taka forustu í málinu. Þá er ekki samkomulag um orðalag slíkrar stjórnarskrárbreytingar, þótt ýmsar tillögur séu á sveimi. Ein breytingartillaga hefur verið lögð fram og er hún svohljóðandi: „Hjónaband í Bandaríkjunum skal aðeins vera sambúð karls og konu. Hvorki þessari stjórnarskrá né stjórn- arskrá nokkurs ríkis, né lögum nokkurs ríkis eða alríkislögum, má haga þannig að gert sé að skilyrði að staða hjónabands eða lagalegt ígildi þess verði látin gilda um ógift pör eða hópa.“ Barist um kjósendur Bush lét þess ekki getið hvernig hann skil- greindi muninn á hjónabandi og borgaralegri sambúð, sem veitti mökum lagaleg réttindi. Hann hefur hins vegar verið gagnrýndur fyrir að hafa þennan möguleika opinn. „Við höfum áhyggjur af því að hann skildi dyrnar eftir opn- ar þannig að ríkin geta nú búið til hjónaband samkynhneigðra undir öðru nafni, til dæmis borgaraleg sambúð,“ var haft eftir Robert Knight, stjórnanda Menningar- og fjölskyldu- stofnunarinnar, í New York Times. „Hann fór vel af stað en undir lokin gaf hann yfirvöldum borga og ríkja í raun grænt ljós á að búa til hjónaband samkynhneigðra undir öðru nafni.“ Ýmsir hafa hins vegar haldið því fram að orðalag breytingartillögunnar gefi alls ekki kost á lagalegri tilhögun annarri en hjónabandi og vísa til þess að þar sé talað um að „hvorki staða hjónabands [né] lagalegt ígildi þess“ megi gilda um önnur pör en karl og konu. Þetta ákvæði gæti jafnvel skert þau réttindi, sem samkynhneigðir í sambandi hafi þegar, til dæmis í fjárhagsmálum. Stjórnmálaskýrendur hafa sagt að með því að setja þetta mál á oddinn hafi Bush verið að huga að grasrót flokksins, sem hafi verið farin að ókyrrast vegna snaraukins fjárlagahalla, stækkandi ríkisbákns, laga um mestu aukningu sjúkratrygginga í 38 ár og ákvörðunar um að veita ólöglegum innflytjendum tímabundin at- vinnuleyfi. Herfræðingar repúblikana kveðast ekki ótt- ast að íhaldssamir kjósendur hverfi frá Bush, en hafa áhyggjur af því að ákveðinn kjarni kjós- enda, sérstaklega úr hópi trúaðra, sé ekki jafn ákafur í stuðningi sínum við Bush og ákveðinn kjarni demókrata í andstöðu sinni við hann. Í fréttaskýringu í New York Times segir að demókratar telji að ávinningur Bush hjá kjarn- anum verði ekki án affalla. Meirihluti Banda- ríkjamanna kunni að vera andvígur hugmynd- inni um hjónaband samkynhneigðra, en eigi þó erfitt með að kyngja hugmyndinni um að breyta stjórnarskránni af ótta við að það ýti undir fordóma. Einnig sé forgangsröð stjórn- arinnar tortryggileg á tímum átaka erlendis og efnahagsvanda heima fyrir og skoðanakannan- ir sýni að kjósendur velti fyrir sér hvaða hvatir búi að baki hjá forsetanum. Alþjóðlegar skírskotanir Blaðið hefur eftir repúblikönum að stjórn- arskrárbreyting hafi mun víðari skírskotun en bara til hins ákveðna kjarna Repúblikana- flokksins. Með þessu gætu repúblikanar náð sér í stuðning hinna svokölluðu Reagan-demó- krata, demókrata, sem eru á móti fóstureyð- ingum, og demókrata, sem fara í kirkju. „Með þessu er hægt að ná í fullt af demókrötum, sem eru óánægðir með Bush í efnahagsmálum, en eru ekki ánægðir með að Kerry skuli vera frá Massachusetts,“ er haft eftir ónefndnum starfsmanni Repúblikanaflokksins. Glen Bolg- er hefur gert skoðanakannanir fyrir repúblik- ana. Hann segir að spurt hafi verið um þetta mál fram og til baka og hann sjái ekki að þetta mál muni koma Bush í koll. Bann við hjónaböndum samkynhneigðra í Bandaríkjunum gæti hleypt af stað mikilli um- ræðu. Sambúð samkynhneigðra er þegar við- urkennd í Kanada og víða í Evrópu og velta menn því fyrir sér hvort pör í slíkri sambúð muni njóta slíkra réttinda flytji þau til Banda- ríkjanna til að vinna. Þetta sama vandamál gæti reyndar einnig komið upp innan Banda- ríkjanna, þegar til dæmis samkynhneigð hjón með hjúskaparvottorð frá Massachusetts hyggjast krefjast réttar síns í ríkjum Banda- ríkjanna, sem ekki viðurkenna hjónaband sam- kynhneigðra. Og reyndar á það einnig við nú þegar í Evrópu. Árið 1989 urðu Danir fyrsta þjóð heims til að viðurkenna og setja reglur um sambönd samkynhneigðra. Í kjölfarið fylgdu Norðmenn, Íslendingar og Svíar. Árið 2000 urðu Hollendingar fyrstir þjóða til að leyfa samkynhneigðum að ganga í hjónaband og njóta allra réttinda, sem borgaralegu hjóna- bandi fylgja, og í fyrra fylgdu Belgar fordæmi þeirra. Evrópusambandið hefur ekki lögsögu í fjölskyldurétti og því er það undir aðildarríkj- unum komið að setja lög og reglur. Sambúð samkynhneigðra er nú lögfest í flestum ríkjum Evrópusambandsins, en þó eru þar á undan- tekningar og má nefna Austurríki, Grikkland og Ítalíu í því sambandi. Því geta samkyn- hneigðir í staðfestri sambúð, sem flytja til ein- hvers af þessum þremur löndum, lent í vand- ræðum. Ian Sumner, sérfræðingur í fjölskyldurétti við háskólann í Utrecht í Hol- landi, segir í samtali við St. Petersburg Times að þess séu dæmi að samkynhneigt par frá Ítal- íu hafi látið staðfesta sambúð sína í Hollandi og það hafi ekki verið viðurkennt þegar aftur var snúið til Ítalíu. Hann nefnir einnig dæmi af pari, sem fékk hjónaband ekki viðurkennt í Ísr- ael. Evrópusambandið getur ekki neytt aðildar- ríki til að viðurkenna samband samkyn- hneigðra, en hefur þó gripið til aðgerða til að vernda réttindi samkynhneigðra para. Þannig hefur verið gefin út tilskipun um að samkyn- hneigður einstaklingur í skráðri sambúð eigi rétt á að taka maka sinn með sér til lands, sem viðurkennir slíka sambúð. Tilskipunin nær hins vegar ekki til lands, sem ekki viðurkennir sam- búð samkynhneigðra. Deilunni um sambúð samkynhneigðra í Bandaríkjunum mun ekki linna á næstunni og sátt mun ekki nást hvort sem gerð verður breyting á stjórnarskránni eða framhald verð- ur á þeirri þróun, sem hófst með úrskurði hæstaréttarins í Massachusetts og frumkvæði borgarstjórans í San Francisco. Nýtt menningarstríð Maria Castillo og Georjina Graciano dansa við undirleik mariachi-hljóðfæraleikara við ráðhúsið í San Francisco eftir að hafa gengið í hjónaband. Síðan um miðjan febrúar hafa um 3.500 samkynhneigð pör verið gefin saman í borginni. Hjónabönd samkynhneigðra gætu orðið eitt af þeim málum, sem ráða úrslitum í næstu forsetakosningum í Bandaríkjunum. George Bush, sem vill binda ákvæði, sem bannar slíka sambúð, í stjórnarskrá, hlýtur bæði lof og gagnrýni fyrir. Karl Blöndal kynnti sér umræðuna um málið. Reuters kbl@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.