Morgunblaðið - 29.02.2004, Side 32

Morgunblaðið - 29.02.2004, Side 32
LISTIR 32 SUNNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ H ræringar í íslenskum út- gáfuheimi hafa verið með ólíkindum síðustu ár og ekkert lát virðist vera á. Í vikunni gekk Halldór Guð- mundsson, fyrrverandi út- gáfustjóri Máls og menn- ingar og útgefandi Eddu – útfgáfu og miðlunar, til liðs við JPV-útgáfu en eigandi hennar er Jóhann Páll Valdimarsson, fyrr- verandi samstarfsmaður Halldórs í Máli og menningu og jafnframt einn af hörðustu keppinautum hans. Raunar hefur svo margt gengið á í samskiptum þessara tveggja manna á útgáfumarkaðnum að ólíklegt hefði mátt telja að þeir myndu fara í eina sæng að nýju. En segja má að með því að losa sig undan útgáfusamningi um ævisögu Halldórs Laxness við Eddu nú í vikunni og semja við Jóhann Pál um útgáfu þeirrar bókar hafi Halldór nú endanlega, eða að minnsta kosti að sinni, rofið sambandið við Mál og menningu en því forlagi hefur Halldór tengst nánum böndum í rúma tvo áratugi. Um leið virðist Halldór vera að öðl- ast nýtt líf í útgáfuheiminum því hann mun taka að sér störf sem ráðgjafi JPV-útgáfu á sviði erlendra réttinda og sölu og kynningu íslenskra bókmennta erlendis. Er þetta upphafið að nánara samstarfi þeirra Halldórs og Jóhanns Páls? Er þetta hugsanlega upphafið að nýju stórveldi í ís- lenskum útgáfuheimi? Forvitnilegt væri að fá svör við þessum spurningum en brotthvarf Halldórs frá Eddu vekur fleiri spurningar. Hvers vegna vildi Halldór losa sig undan samningi við Eddu um útgáfu á ævisögu Halldórs Laxness en samningurinn virðist hafa verið álitlegur? Höfðu mál Hannesar Hólmsteins Giss- urarsonar einhver áhrif þar á? Ætlar og get- ur Halldór tekið með sér eitthvað af höf- undum Máls og menningar til JPV-útgáfu? Og er mögulegt að samningi Eddu við höf- undarréttarhafa að verkum Halldórs Lax- ness verði rift? Myndi JPV-útgáfa þá hafa áhuga á að gefa verk Laxness út og þá væntanlega með fulltingi Halldórs Guð- mundssonar? Hér verður leitað svara við þessum spurningum. Jóhann Páll segir að ekkert hafi veriðákveðið um framhald á samstarfi hansog Halldórs eftir að samningu ævisög- unnar lýkur. „Ég vil taka einn dag í einu hvað þetta varðar. En ég held þó að við skynjum það báðir þannig að samstarf okkar geti þróast með ýmsum hætti. Það er oft gangurinn í þessum bransa að samstarf milli útgefanda og höfundar heldur áfram og ég held að það gæti orðið með einhverjum hætti í þessu til- felli. Ég hef alltaf lagt áherslu á að halda samstarfi áfram við fólk sem reynist mér vel.“ Það hefur hins vegar ekki farið fram hjá neinum á undanförnum árum að Jóhann Páll og Halldór hafa eldað saman grátt silfur. Jó- hann segist ekki óttast það enda verði að greina á milli faglegra átaka manna á milli og persónulegra samskipta. „Við Halldór höfum alltaf getað talað sam- an eins og maður við mann þrátt fyrir að vera í harðri samkeppni á stundum.“ Halldór tekur í sama streng og segir að þeir Jóhann Páll hafi einungis samið um út- gáfu þessarar einu bókar og að samstarf þeirra leggist vel í þá, en sú spurning hlýtur að koma upp við þessa óvæntu vendingu hvort hugsanlegt sé að einhverjir höfundar Máls og menningar, sem Halldór átti langt samstarf við, muni flytja sig yfir til JPV- útgáfu. Halldór segir að sem betur fer og honum til ánægju hafi hann fundið að margir góðir höfundar hafi gjarnan viljað hafa hann áfram í þessari rullu. „En það er ekki á dagskrá eins og er.“ Og Jóhann Páll segist auðvitað geta hugs- að sér samstarf við ýmsa höfunda. „Það eru vissulega ákveðnir höfundar sem mig hefur lengi langað til að starfa með. En það er heldur ekkert markmið og hefur aldr- ei verið markmið JPV-útgáfu að stækka, þetta hefur alltaf átt að vera svona lítið og notalegt. Kannski er það vegna þess að ég hef svo gaman af því sem ég er að gera að ég hef aldrei getað staðið við þær fyrirætl- anir að auka ekki starfsemina.“ Jóhann Páll segir ennfremur að samning- urinn við Halldór um útgáfu á ævisögu Hall- dórs Laxness sé ekki hluti af neinu stóru plotti um að ná útgáfurétti á verkum Lax- ness til JPV-útgáfu. „Vissulega þætti mér það mjög ánægjulegt ef ég ætti þess kost að gefa út Halldór Lax- ness en ég hef ekkert aðhafst í því sam- bandi.“ En er þetta samstarf við Halldór Guð- mundsson hugsanlega upphafið að nýju stór- veldi í íslenskum útgáfuheimi? „Ég vil lítið tjá mig um það, drambið er varasamt í öllum viðskiptum,“ segir Jóhann Páll. Páll Valsson, útgáfustjóri Máls ogmenningar, kveðst ekki vita til þessað höfundar séu á leið frá Máli ogmenningu. Hann bendir á að Halldór Guðmundsson hafi látið af störfum hjá Eddu fyrir ári og það hafi vissulega verið stór tímamót. Ævisöguritun hans sjálfs sé svolítið annar handleggur. „Ég er í góðu sambandi við mína höfunda og veit ekki til þess að neinn sérstakur óró- leiki sé hjá þeim, auðvitað þykir þeim leitt, eins og mér, að Halldór skuli ætla að gefa út bók sína annars staðar, en það er val hans sjálfs og ekkert við því að segja. Ég gerði samning við Halldór um ævisögu Halldórs Laxness vegna þess að mig langaði til þess að gefa hana út og það var mér vissulega harmsefni að missa hana. Hann færði hins vegar persónulegar ástæður fyrir ákvörðun sinni sem ég virði.“ Jóhann Páll segir að sú hugmynd að JPV-útgáfa gæfi út ævisögu Halldórs Lax-ness eftir Halldór Guðmundsson hafi þróast í tali milli sín og Halldórs. Páll Bragi Kristjónsson, forstjóri Eddu, segir að það hafi komið sér algerlega í opna skjöldu að Halldór Guðmundsson skyldi óska eftir því að losna undan samningi við fyr- irtækið um útgáfu á ævisögu sinni um Hall- dór Laxness. „Við höfðum skrifað undir formlegan samning um þessa útgáfu 26. nóvember síð- astliðinn. Samkvæmt honum átti Halldór að vera á launum hjá Eddu við ritun bók- arinnar frá mánaðamótunum febrúar-mars 2004 en starfslokasamningur hans við fyr- irtækið rann út 1. febrúar síðastliðinn. Hann nefndi ákveðnar ástæður fyrir því að hann vildi losna undan samningnum og ég hef ekkert meira um það að segja.“ Þegar Halldór er spurður hvort ástæðan fyrir því að hann vildi losna undan samn- ingnum hafi með einhverjum hætti tengst því að Edda hefur einnig gefið út fyrsta bindi ævisögu Hannesar Hólmsteins Giss- urarsonar um Halldór Laxness og þeirri umræðu sem spratt um vinnuaðferðir við ritun þeirrar bókar kveðst hann ekki vilja svara því. „Mér finnst ég satt að segja ekki skulda neinum manni skýringu á þessu. Ég mat þetta einfaldlega best fyrir mig og verk mitt. Og þetta var gert í fullri sátt við Eddu.“ Velta mætti vöngum yfir því hvort það hefði ef til vill getað valdið einhverjum óþægindum fyrir höfunda hinna tveggja ævisagna Halldórs Laxness að koma út hjá sama útgáfufyrirtækinu, ekki síst ef annað bindi ævisögu Hannesar Hólmsteins yrði jafn umdeilt og hið fyrsta. En Páll Bragi segir að enn hafi ekki verið gerður neinn samningur um útgáfu á öðru bindi ævisögu Hannesar Hólmsteins. „Við gerum ekki samninga um slíkar bæk- ur fyrr en handritið er komið í hús og búið er að lesa það og meta. Halldór Guðmunds- son var undantekningin enda naut hann sér- staks trausts okkar til verksins.“ En hvað með verk Halldórs Laxness?Eru þau á leið frá Eddu? Það vekur óneitanlega athygli aðá síðustu misserum hafa þrír menn sem hafa sérstaka þekkingu á verkum Lax- ness og útgáfumálum hans yfirgefið Eddu, Ólafur Ragnarsson, fyrrverandi eigandi Vöku-Helgafells og stjórnarformaður Eddu – miðlunar og útgáfu, Pétur Már Ólafsson, fyrrverandi útgáfustjóri Vöku-Helgafells, og Halldór Guðmundsson. Páll Bragi segir að verk Halldórs Laxness verði áfram gefin út hjá Vöku-Helgafelli. Samningurinn um útgáfu verka hans gild- ir til ársins 2008. Og síðastliðinn föstudag var undirritaður viðauki við samning Auðar Laxness og Vöku-Helgafells um verk Hall- dórs sem felur í sér að á vegum forlagsins verði starfrækt Skrifstofa Halldórs Laxness. Samkvæmt þessum samningi mun Skrifstofa Halldórs Laxness hafa það að meginmark- miði að stuðla að sem víðtækastri útbreiðslu á verkum skáldsins og halda nafni Halldórs Laxness hátt á lofti. Hún mun hafa allsherj- arumsjón og yfirsýn með upplýsingagjöf um verk Halldórs Laxness ásamt allri samn- ingagerð um notkun á verkum hans í hvaða formi sem kann að vera. Skrifstofan mun beita sér fyrir sérstakri kynningu á verkum hans þegar tilefni gefast vegna afmæla eða annarra tímamóta er tengjast skáldinu og standa fyrir fyrirlestrum um Halldór og verk hans bæði heima og erlendis. Páll Bragi segir að með þessum viðauka sé útgáfusamningurinn um verk Halldórs Laxness styrktur til muna. „Laxness er því ekki á leiðinni frá Eddu.“ Jóhann Páll Valdimarsson hefur veriðáberandi í þeim hræringum sem orðiðhafa í íslenskum útgáfuheimi undanfarin ár. Þegar hann er spurður um ástandið í þessari atvinnugrein um þessar mundir segir hann það hættulega tvísýnt. „Þessi grein á í erfiðleikum. Ég hef miklar áhyggjur af því að útgáfunni kunni að fara hnignandi. Vegna fjárhagsstöðu munu útgef- endur þurfa að sýna æ meiri varfærni og ég óttast að það dragi úr stórhug sem einkennt hefur íslenska bókaútgáfu lengi. Það er ljóst að það þarf að koma til opinber skilningur á stöðu þessarar greinar. Við verðum að hafa í huga að Menningarsjóður hefur verið lagður niður sem útgáfufyrirtæki. Það eru því ein- göngu einkaaðilar að starfa við þessa grein. En til þess að útgáfuflóran verði nægilega fjölbreytt og til þess að stór og kostn- aðarsöm verk haldi áfram að koma út verður að vera einhver skilningur fyrir hendi hjá hinu opinbera á erfiðleikum þessarar at- vinnugreinar. Það verður að búa þessum fyr- irtækjum góðar aðstæður. Þetta er spurning um menningarlegan metnað þjóðarinnar. Í nágrannalöndum okkar og á meginlandi Evr- ópu er rækilega stutt við þessa starfsemi enda öllum ljóst, jafnvel meðal stórþjóða, að bókaútgáfa þarfnast stuðnings.“ Ljóst má vera að fyrirtæki í bókaútgáfu á Íslandi hafa verið að minnka að umfangi síð- ustu misseri. Tilraunin til þess að stofna eitt stórt útgáfu- og miðlunarfyrirtæki virðist hafa mistekist. Spurningin er hvort nú hafi náðst jafnvægi á þessum markaði, þar sem þrjú fyrirtæki eru mest áberandi, eða hvort fyrirtækin eiga enn eftir að verða minni og fleiri. Hugsanlega er rúm fyrir eitt í viðbót. Það myndi þýða að skriður kæmist á höf- undahópinn. Hræringar í útgáfuheimi Halldór Guðmundsson ætlar að gefa ævisögu Halldórs Laxness út hjá JPV-útgáfu, en skyldu verk Laxness einhvern tímann verða gefin út á þeim bæ? AF LISTUM Eftir Þröst Helgason throstur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.