Morgunblaðið - 29.02.2004, Síða 48
SKOÐUN
48 SUNNUDAGUR 29. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ENDA þótt Háskóli Íslands sé lít-
ill í alþjóðlegu háskólasamfélagi er
hann stór, öflug og traust há-
skólastofnun á Íslandi. Háskólinn
hefur breyst mikið undanfarin ár, að
flestra mati til hins betra. Breyting-
arnar eru af margvíslegum toga en
segja má að mesta breytingin sé sá
mikli vöxtur sem átt
hefur sér stað í rann-
sóknartengdu fram-
haldsnámi. Háskóla-
árið 2003–2004 eru
1.239 stúdentar skráð-
ir í meistara- og dokt-
orsnám og eru því
239% fleiri stúdentar í
rannsóknartengdu
framhaldsnámi en
skólaárið 1999–2000
voru framhaldsnemar
365.
Mikill vöxtur hefur
einnig verið í grunn-
námi og voru 7.878
stúdentar skráðir til náms til fyrstu
háskólagráðu háskólaárið 2003–
2004. Þetta eru 31% fleiri stúdentar
en skólaárið 1999–2000 en þá voru
þeir rúmlega 6.000.
Af þessu má sjá að fjölgun nem-
enda hefur verið mikil sl. fimm ár,
eða sem nemur 43%. Vöxturinn er í
sjálfu sér ánægjulegur og bendir tví-
mælalaust til þess að ungt fólk telji
að Háskóli Íslands hafi margt að
bjóða sem er eftirsóknarvert fyrir
stúdenta og samfélagið.
Vaxtarverkir
Flest fyrirtæki telja það eftirsókn-
arvert að vaxa. Vöxturinn leiðir alla
jafna af sér ýmsa jákvæða þætti, s.s.
fleiri viðskiptavini, auknar tekjur og
sterkari markaðsstöðu. Með aukn-
um tekjum og hagnaði gefst fyr-
irtækjum tækifæri til að bæta enn
vörur sínar og þjónustu sem aftur er
líklegt að leiði til frekari vaxtar.
Þessu virðist öfugt farið hjá Há-
skóla Íslands. Þar bendir allt til þess
að vöxturinn og velgengnin sé að
skapa skólanum fjárhagsleg vand-
ræði. Háskóli Íslands er ríkisháskóli
og hefur sem slíkur ákveðnum
skyldum að gegna. Forsvarsmenn
skólans hafa litið svo á að allir sem á
annað borð uppfylla mennt-
unarlegar kröfur, geti stundað nám
við sitt hæfi í Háskóla Íslands.
Starfsemi skólans er að stærstum
hluta fjármögnuð af hinu opinbera. Í
grundvallaratriðum er fjármögn-
uninni skipt í tvo hluta, kennslu-
framlag og rannsóknarframlag.
Kennsluframlagi er þá ætlað að fjár-
magna kennslu og rannsókn-
arframlagi er ætlað að fjármagna
rannsóknir. Til viðbótar hefur skól-
inn sértekjur og ennfremur hafa
rannsóknarstofnanir sem og kenn-
arar tekjur úr ýmsum rannsókn-
arsjóðum, innlendum sem erlendum.
Flestum er ljós munurinn á
kennslu og rannsóknum og það
hvarflar að fáum að eðlilegt sé að
leggja saman kennsluframlag, rann-
sóknarframlag og sértekjur, deila
upp í með fjölda nemenda og bera
niðurstöðuna saman við skóla sem
fyrst og fremst gegna kennslu-
hlutverki.
Kennsluframlag til Háskóla Ís-
lands er það fjármagn sem Háskól-
inn getur notað til kennslu.
Kennsluframlagið er
mjög mismunandi og
fer eftir því hvers kon-
ar nám viðkomandi
nemandi stundar. Mun
dýrara er t.d. að kenna
nemanda sem stundar
nám í raunvísindum en
þeim sem leggja stund
á félags- eða hugvís-
indi. Framlagið er föst
fjárhæð sem tekur mið
af ákveðnum fjölda ein-
inga en fylgir ekki
þeim vexti sem átt hef-
ur sér stað undanfarin
ár. Afleiðingarnar eru
þær að nú veitir Háskóli Íslands
nokkur hundruð nemendum kennslu
án þess að fá greitt fyrir. Háskóli Ís-
lands vill veita nemendum sínum
eins góða kennslu og frekast er unnt
og það er sjálfsögð krafa starfs-
manna sem og nemenda að mörkuð
verði skýrari stefna af hálfu stjórn-
valda í fjármögnun kennslunnar.
Ýmsar leiðir hafa verið nefndar, s.s.:
að ríkið greiði fyrir þá nemendur
sem sannanlega fá kennslu við
skólann
að skólinn taki upp fjöldatak-
markanir
að skólinn taki upp skólagjöld í
öllu eða hluta þess náms sem boð-
ið er
að skólinn dragi úr þeirri þjón-
ustu sem nemendur fá nú.
Skiptar skoðanir eru um leiðirnar
sem hér eru nefndar og þær útiloka í
sjálfu sér ekki hver aðra. Verst af
öllu væri þó óbreytt ástand, að skól-
inn héldi áfram að taka við ótak-
mörkuðum fjölda nemenda án þess
að fá umsamdar greiðslur fyrir það.
Það myndi eingöngu draga úr gæð-
um þeirrar þjónustu sem skólinn
veitir og rýra það mikla traust sem
hann nýtur í samfélaginu.
Háskóli Íslands nýtur mikils
trausts
IMG Gallup kannar reglulega hve
mikið eða lítið traust almenningur
ber til nokkurra stofnana í sam-
félaginu. Á mynd 1 má sjá að Há-
skóli Íslands er sú stofnun í sam-
félaginu sem almenningur ber mest
traust til.
Sjá mynd 1.
Hlutfall þeirra sem bera traust til
Háskóla Íslands hefur verið nokkuð
stöðugt sl. 5–6 ár en um og yfir 85%
svarenda telja sig bera traust til
skólans. Það kemur ekki á óvart þar
sem Háskóli Íslands á og þarf að
njóta trausts í samfélaginu og mik-
ilvægt að hann standist væntingar.
Að sjálfsögðu er skólinn ekki hafinn
yfir gagnrýni, enda hafa há-
skólamenn verið duglegir að gagn-
rýna hver aðra. Stúdentapólitíkin er,
og hefur alltaf verið, mjög virk og
veitt stjórnendum sem og kennurum
skólans heilbrigt aðhald. Þetta er
allt eðlilegt í jafn stóru samfélagi og
Háskóli Íslands er. Aðalatriðið er að
gagnrýnin sé sanngjörn og studd
faglegum rökum. Slík gagnrýni er
ekki vatn á myllu Kölska heldur
fjörefni í enn öflugri starfsemi Há-
skóla Íslands.
Viðhorf til Háskóla Íslands
Í júní árið 2003 framkvæmdi IMG
Gallup viðhorfskönnun fyrir Há-
skóla Íslands. Markmið könnunar-
innar var að athuga viðhorf til Há-
skóla Íslands í samanburði við aðra
íslenska háskóla. Úrtakið var 1250
einstaklingar á aldrinum 16–75 ára
sem valið var úr þjóðskrá. Fjöldi
svarenda var 807 og var því svar-
hlutfall rúm 64%.
Markmið könnunarinnar var einn-
ig að athuga hvaða háskóli stæði
fremst í þáttum sem Háskóli Íslands
telur mikilvæga þegar háskólastarf
er annars vegar. Spurt var um fjög-
ur atriði, rannsóknir, fjölbreytni í
námi, alþjóðleg samskipti og starfs-
skilyrði.
Niðurstöður er jákvæðar fyrir
alla háskólana, þar sem um og yfir
90% hafa frekar eða mjög jákvætt
viðhorf til þeirra. Sker þar enginn
skóli sig úr og má því álíta að al-
menningur sé almennt séð jákvæður
í garð háskólanáms.
Þegar kemur að því að segja til
um hvaða skóli stendur fremst varð-
andi rannsóknir, fjölbreytni í námi,
alþjóðleg samskipti og starfsskil-
yrði, hefur Háskóli Íslands mikla yf-
irburði.
Þetta kemur vel fram á mynd 2.
Hvað rannsóknir varðar þá nefna
7% Háskólann í Reykjavík, 5,4%
Tækniháskóla Íslands, en aðrir eru
nefndir sjaldnar.
Háskóli Íslands hefur einnig yf-
irburði þegar kemur að fjölbreytni í
námi, en rúm 82% telja að hann
bjóði upp á mesta fjölbreytni í námi.
Háskólinn í Reykjavík er nefndur af
9,4% svarenda og Háskólinn á Ak-
ureyri í 8,4% tilvika, en aðrir eru
nefndir sjaldnar.
Sama er uppi á teningnum þegar
kemur að því að fá mat fólks á því
hvaða háskóli á í mestum alþjóð-
legum samskiptum, en tæp 75%
svarenda telja það vera Háskóla Ís-
lands. 15,7% nefna Háskólann í
Reykjavík og 9,3% nefna Við-
skiptaháskólann á Bifröst, en aðrir
eru nefndir sjaldnar.
Yfirburðir Háskóla Íslands eru
ekki jafn augljósir þegar kemur að
því að fá mat svarenda á því hvaða
háskóli bjóði bestu starfsskilyrðin,
en tæp 52% nefna Háskóla Íslands.
Með starfsskilyrðum er átt við
starfsskilyrði fyrir nemendur, kenn-
ara eða sérfræðinga í rannsóknum.
Rúm 28% nefna Háskólann í
Reykjavík, 15,5% nefna Við-
skiptaháskólann á Bifröst og 10,7%
nefna Háskólann á Akureyri. Aðrir
skólar voru nefndir sjaldnar.
Af þessu má sjá að staða Háskóla
Íslands er mjög sterk og svo virðist
sem almenningur vilji veg og vanda
skólans sem mestan. Almenningur
er einnig jákvæður í garð hinna
skólanna þótt hann telji Háskóla Ís-
lands fremstan á þeim sviðum sem
hér hafa verið nefnd. Flestum er
ljóst að hinir háskólarnir vinna gott
starf, hver á sínu sviði. Þeir eru hins
vegar að mörgu leyti ólíkir Háskóla
Íslands, sérstaklega hvað varðar
umfang rannsókna og fjölbreytni
námsleiða. Það er óþarfi að allir
skólar verði eins og vænlegra til ár-
angurs fyrir þá að þeir sérhæfi sig á
tilteknum sviðum.
Þegar upp er staðið gildir það
sama um háskóla og annað, þeir
verða dæmdir af athöfnum sínum en
ekki orðum. Háskóli Íslands hefur
látið verkin tala í rúm níutíu ár, ein-
mitt þess vegna er Íslendingum
svona annt um hann.
Þversögn
velgengninnar
Eftir Þórhall Örn
Guðlaugsson
’Það er óþarfi að allirskólar verði eins og
vænlegra til árangurs
fyrir þá að þeir sérhæfi
sig á tilteknum sviðum.‘
Þórhallur Örn
Guðlaugsson
Höfundur er lektor við Viðskipta- og
hagfræðideild Háskóla Íslands og for-
maður markaðs- og samskipta-
nefndar háskólaráðs.
Hver af háskólunum stendur fremst
hvað varðar nokkra þætti
Hlutfall þeirra sem nefna Háskóla Íslands
85,2% 82,2%
74,7%
51,7%
0%
10%
20%
30%
40%
50%
60%
70%
80%
90%
Rannsóknir Fjölbreytni í
námi
Alþjóðleg
samskipti
Starfsskilyrði
Mynd 1: Hlutfall þeirra sem bera traust til stofnana. Heimild: IMG Gallup, Þjóðarpúls mars 2003.
Mynd 2: Hver af háskólunum stendur fremst hvað varðar nokkra þætti,
hlutfall þeirra er nefna Háskóla Íslands. Heimild: IMG Gallup, könnun unn-
in fyrir HÍ í júní 2003.
!
"
!
#
$ !%
! &'(
)
( !! !
) & !!( ) ) ' &
!
' '
** ' !% +
!
$ & ' ! ! ,!)!
- ' ! .
/%)!
" "#" # $
0' % $
& ' ! !
Viðskiptatækifæri – Veitingaeldhús
Spennandi tækifæri í hringiðu borgarinnar. Fullbúið og glæsilegt
veislueldhús með frysti- og kæliklefa ásamt öllu lausafé sem góðu
veislueldhúsi þarf að fylgja. Mjög góð viðskiptasambönd geta fylgt
eftir áralöng viðskipti. Reksturinn er í 168 fm björtu, eigin húsnæði
á jarðhæð með góðu aðgengi.
Nánari upplýsingar gefur
Guðmundur Valtýsson hjá
Fasteignakaupum,
sími 515 0500 eða gsm 865 3022.
Erna Valsdóttir Lögg. fast.-, skipa- og fyrirtækjasali.
Sölufulltrúi:
Guðmundur Valtýsson,
gsm 865 3022,
gudmundur@fasteignakaup.is
Ármúla 15
Sími 515 0500
Fax 515 0509
www.fasteignakaup.is
fasteignakaup@fasteignakaup.is