Vísir - 25.04.1981, Síða 2

Vísir - 25.04.1981, Síða 2
VÍSIR Laugardagur 25. apríl 1981 UT UM HVIPPINN OG HVAPPINN — UT UM HVIPPINN OG HVAPPINN — UT UM HVI NU fer i hönd sáðtiö eða gaukmánuður eins og Snorra Edda vill láta hann heita, þennan fyrsta mánuð sumarsins. Nafnið gaukmán- uður minnir á, að nú spáir hrossagaukurinn fyrir okkur og ekki fráleitt að leggja við eyrum, — úr hvaöa átt heyrist fyrst i honum? 1 austri auðsgaukur suðri sælsgaukur vestri vesælsgaukur norðri nágaukur. En Harpa er þó nafnið, sem nú þekkist best, nafn sem ekki ku finnast á íslenskri bók fyrr en á 17. öld og „merking þess er óviss” segirBók daganna-. Flestum mun þó gjarnast aö hugsa til hljóðfær- isins likt og Laxness hefur gert, þegar hann yrkir um ljóð hörpunnar i vetrarlok: Stundum var I vetur leið veðrasamt á glugga, var ekki einsog væri um skeið vofa I hverjum skugga? Fáir vissu aö voriö beið og vorið kemur aö hugga. Þá var Halldór 26 ára gamall og staddur vestur i San Fransisco, þar sem hvorki sjást „litil lömb né lambagrös á vorin” eða börn, „við bæjarlækinn smáa / I túninu þar sem trippið er.” Og þannig lýkur íslensku vögguljóði, ortu á Hörpu: Einsog hiín gaf þér fslenskt blóð ungi draumsnillingur, megi ioks hin iitla þjóö leggja á hvarm þér fingur, — á meðan Harpa hörpuljóö á hörpulaufið syngur. Gleðilegt sumarl Snorri Hjartarson. Úr afmælis- dagbókinni Afmælisbarnið okkar að þessu sinni er enginn annar en Snorri Hjartarson skáld og verðlauna- hafi Norðurlandaráðs 1981. Hann á afmæli þ. 22. april en um þann dag segir i afmælisdagabókinni: „bú ert mjög jákvæður i skapi, ákafur og herskár, en hefur ham- ingjusaman hæfileika til að hlusta á. og notfæra þér ráðleggingar annarrra. Þroskaðu hljómlistar- hæfileika Ji'na sem best. Þú hefur hvassa innsæisgáfu og hárnæmar áhrifakenndir, sem þér er óhætt að reiða þig á. Astalif þitt mun verða hamingjusamt.” Hótel Ísland Hljómleikar frá kl. 3-5 1. P. Lincke: Casanova............Ouverture 2. E. Waldteufel: Acclamation ...... Walzer 3. A. Schreiner: Von Gluck bis Wagner.Fantasie PIANOSOLO C. BILLICH Mondscheinsonate von L. v. Beethoven 5. J. Massenet: Elegie 6. W. Borchert: Rund um die Wolga... Walzer 7. F. Lehár: Die lustige Witne ...Potpourri ........*,*•*.....................;.;•.........•;.*.•........;.;.........•;.;.........;.;•.........;•;•..................................**;• . .....'............"...........•"........................."........................."............"...........•"•.........t''}•«.. t þá daga sátu tónleikagestir við hvitdókuð borð og gæddu sér á kaffi og Napóleonskökum um leið og þeirhlýdduá músikina. Og það á hverjum einasta sunnudegi! Sjá annars viðtal viö einleikarann, Carl Billich I miðopnu VIsis f dag. Brjóstlangl Brjóstlangi? „Mjólkurkirtill konuhnar er oröinn óþarfur og hann mætti fjarlægja úr brjóstum unglings- stúlkna til að koma f veg fyrir brjóstkrabba siðar á ævinni. 1 Vestur Þýskalandi mætti á þann hátt koma i veg fyrir um 10.000 brjóstkrabbatilfelli á ári hverju (reikna þyrfti aö vfsu út tiðni dauðsfalla af þessari fyrirbyggj- andi aðgerö)”. Orörétt úr „Anatomie — Tex und Atlas”, bls 364 eftir professor dr. med.dr. phil Herbert Lippert, yfirmann liffræðideildar Lækna- háskólans i Hannover, V-Þýska- landi. Vonandi eru engir Is- lendingar i námi hjá honum þess- um! Eggjaprófiö •~-'%*TítT7 ,,E nn er mér f fersku minni sú tilfinning, sem kom yfir mig um leið og við gengum inn i húsið. A svipstundu varð mér ljóst að eitthvaö var á seyði. Það var greinilegt að einhver haföi sezt f stól föður mins, móður minnar og minn eigin. Það haföi verið hróflaö við hafragrautnum, sem við skildum eftir á borðinu til þess aö láta hann kólna. Þó óraöi ekkert okkar f yrir þvi, sem beið okkar uppi á loftinu.” Loksins, loksins, örugg aðferð til að kanna sálarlif mótunautar- ins. Eggjaprófið. Sálfræöingar hafa kannaö hinar ýmsu aðferðir til að brjóta skurn hænueggs og komist að frdðlegum niðurstöö- um. Leikmenn geta lagt prófið fyrir sambýlisfólk og aöra mötu- nauta, — allt sem gera þarf er að hafa augun hjá sér. Niðurstöð- urnar eru þessar: Manngerð A: Innbrots- þjófurinn. Þessi manngerð lætur odd- mjórri enda eggsins snúa upp i loft og brýtur örlitiö op i skurnina með skeiðinni. Gatið er aldrei stærra en svo að skeiöin rétt kemst niður til aö sækja matinn. Þessa manngerð mætti einnig nefna pukrarann, hinn leyndar- dómsfulla, músina, sem læðist... Best er að hafa allan vara á i um- g,engni við hana. Manngerð B: Kolumbus Þessi manntegund tekur eggið sér i hönd, litur yfir það með ásetning i augum og slær þvi siðan snöggt en þéttingsfast á borðplötuna. Árangurinn er undursamlegur en ekki alltaf áreiðanlegur, þvi stundum mis- heppnast höggiö og rauðan splundrast yfir borðið og alla nærstadda. En þaðkemur sjaldan fyrir. Hér er um að ræða hinn dæmi- gerða framagosa, mann sem elskar áhættu en lætur ávallt sem hann hafi ekki nokkurn skapaðan hlut fyrir neinu. í samneyti< við slíka manngerö er ráðlegt að liggja aldrei vel við höggi. Manngerð €: Fornleifa- fræðingurinn. Sú manngerð, sem hér um ræð- ir, drepur skeiðinni varlega en af natni á yfirborð eggsins, oftast breiðari endann, þangaö til skurnin gefur eftir. Fornleifa- fræðingurinn gefur sér einatt nægan tima. Þegar skurnin hefur verið brotin á þennan kurteislega hátt snýr manngeröin skeiðinni við (hafandi notað neöri flöt til þess) og plokkar skurnina af. Fornleifafræðingurinn hefur auga fyrir hinu fagra i lifinu og smekk fyrir hátiðahöld. Hann raskar þvi aðeins jafnvægi tilver- unnar að hann vilji komast að merg málanna. Þegar hann hefur etið eggið, tinir hann skurnina nostursamlega upp og skilar henni ofan i leifarnar. Þessi manngerð getur veriö smá- smuguleg aö þvi marki að vera óþolandi i sambúð. Manngerð D: Pungrott- an Þessa gerð er nær eingöngu að finna meöal karla. Slikur karl hefur verk sitt aö þvi er viröist mjög sakleysislega. Brátt veröur þó ljóst að hann fær ekki haldið aftur af hvötum sinum. Hin ávala og mjúkleita ásýnd eggsins freistar hans um of. Hann afklæð- ir það alveg niður að brún bikars- ins og oft neðar og hraðar verkinu eftir þvi sem á liður. Sálarlif þessarar manngerðar er nær allt- af brenglað og samneyti við hana óráðlegt nema i margmenni. Manngerð E: Böðullinn Þessi manngerð gripur verk- legasta hnifinn á borðinu, mundar hann yfir egginu meö blik i augum reynir bitið og miðar einu sinni eða tvisvar áður en hann slær eggið leifturhratt þvert á koll þess. Þetta er áhrifarikt ef ekki ógnvekjandi sjón. Hafandi sneitt kollinn af egginu, litur hann á sárið eins og til að kanna hvort um mannúðlegt högg hafi veriö aö ræða. Einstöku sinnum geigar höggiö og lendir á fingri böðulsins en slikt verkar aðeins örfandi enda lætur hann sig ekki muna um aö borða tvö egg i hverri mál- tið. Þeir sem halda að þá sé um að ræöa venjulega matarlyst, ættu að hugsa sig um aftur. Fleiri orð um þessa manngerð ættu að vera óþörf. Og þá eru sálgreindar mann- gerðir upptaldar. Þeir sem kunna að nota aörar aðferðir við að brjóta eggjaskurn geta unaö glaðir við sin. Sálfræðingar telja ekki ástæðu til að hafa nein við- varandi orð um þá! ÚT UM HVIPPINN OG HVAPPINN — ÚT UM HVIPPINN OG HVAPPINN — ÚT UM HVI

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.